Tíminn - 09.01.1976, Blaðsíða 10

Tíminn - 09.01.1976, Blaðsíða 10
10 TÍMINN Föstudagur 9. janúar 1976, Veggskilti og málverk vitna um stærsta slysið á vatninu. 1688 drukknuðu 60 manns á pflagrimsferð. „Eins og gimsteinn f miðju fjailalandi Bayern” ortu skáldin um Königssee. Milljónir ferða- manna fara tii hinna undurfögru staða umhverfis vatnið. En i djúpinu, sem þoka svffur yfir á veturna hvila óteljandi látnar manneskjur. Sögur og annálar segja frá dauða þeirra. Trén gnæfa eins og vofur upp Ur nóvemberþokunni. Það er svo kyrrt að maður heyrir blöðin falla. Vatnið drýpur af greinun- um. Undir liggur Königssee grá- svart eins og blý. Rafmagnsskipið „Tauern” líð- ur suðandi framhjá eynni Christlieger i átt til St. Bartholoma. Skipstjórinn gripur kikinn og horfir til hægri, nokkur hundruð metra yfir að Falken- steinveggnum, sem fellur lóðrétt i vatnið. Svo segir hann: — Ekkert að sjá. Ekkert sést til froskmannanna tveggja, Gerhard Heins og Jochen Glaser, frá Heidelberg Fyrsta sunnudaginn i nóvember fóru þeir hérna i vatnið til að reyna nýju froskmannsbiíning- ana sina. Þeir komu ekki aftur, Fyrst á þriðju sunnudegi i nóvember fundust þeir. Með að- stoð neðansjávarmyndavélar uppgötvuðu köfunarfélagar lik þeirra á 150 metra dýpi. Sjö vik- um áður höfðu kafarar vatna- gæzlunnar i Berchtesgaden fund- ið lfk af karlmanni i hinni vist- legu Málaravik á móti Falken- steinveggnum. Likið lá á 40 metra dýpi og hallaðist upp að sokknu tré. Það var klætt vetrarfrakka sem var bundinn saman með snæri. — Eins og alltaf i svona tilvikum, sagði vatnagæzlustjóri Kurt Kruger, — var fundurinn tilkynntur landamæralögregl- unni. Landamæralögreglan til- kynnti það héraðslögreglunni, héraðslögreglan tilkynnti það saksóknara rikisins i Traunstein. Leiðin milli yfirvaldanna tók nákvæmlega eina viku. Brátt var komiztá snoðirum, að likið var af eftirlaunamanninum Josef Reindl úr þorpinu Schönau. Hann hafði sézt siðast lifandi 7. des. 1971. Enginn veit, hvernig hann hvarf i vatnið. Enginn veit heldur um sögu konunnar sem kafarar fundu 23. ágúst þessa árs. Lik hennar lá lika i Málaravikinni. Aðeins skórnir höfðu haldið sér og pen- ingabuddan sem i var tveggja marka silfurpeningur með mynd þýzka keisarans Vilhjálms, sleg- inn 1892. Opinberar skýrslur um hina draugalegu fundi i Königssee eru ekki til. En þeir verða alltaf fleiri — siðan kafaraflokkur Berechts- gaden gerði það að iþrótt að ná þeim fórnarlömbum vatnsins, sem það skilar ekki sjálft. Krtiger vatnagæzlumaður segir: — Þaö kemur til af þvi að hitinn á meira en tiu metra dýpi er aðeins fjórar grðaur. Það hindrar gasmyndun- ina, sem annars lætur likin fljóta upp. A páskadag 1968 fann kafarinn Eberhard Meinke frá Hamburg Höfuðkúpu i Königssee. Hann náði I hana og setti hana á sillu rétt fyrir ofan vatnsborðið i Falkensteinveggnum. Þar fannst hún á hvitasunnunni af tveimur ræðurum. Þeir létu landamæra- lögregluna vita. Leitin að likamanum, leiddi til þess að fyrst sex mánuðum seinna var útlimalausu kvenllki náð upp. Konan hafði verið um það bil 30 ára gömul. Hver hún var og hvernig hún lézt varð ekki skýrt. Maður, sem fannst á næstum sama stað var lika grafinn nafn- laus. Lik hans var búið að liggja i vatninu i fimmtán ár ; samkvæmt áliti lækna. Königssee er 188 metra djúpt þar sem það er dýpst. Það liggur i 602 metra hæð frá sjávarmáli. Bakkarnir eru næstum 20 kiló- metra lgngir. Lægðin, sem það liggur i, dýpkaði á Isöldinni enn meir af voldugum isstraumum. Frá Frárennslislausdæld myndað ist, sem fylltist af leysingarvatni jöklanna. Undir yfirborðinu ligg- ur kynlegur heimur. Klettar með rifum, skotum, götum og hryggj- um, með risavöxnum björgum og sdcknum trjám. Allt þetta i hrafnsvörtu djúpi, þar sem enginn ljósgeisli kemst að.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.