Tíminn - 09.01.1976, Blaðsíða 3
Föstudagur 9. janúar 1976.
TÍMINN
3
Aðeins einn
skjálfti fannst í
AAývatnssveit
Baldur hélt úr höfn í morgun
í gærdag
— borhola við Kröflu spýtti af sér
lokanum
Gsal-Reykjavik — Hið nýja varð-
skip Landhelgisgæzlunnar, skut-
togarinn Baldur, hélt úr höfn i
Reykjavik i morgun. Að sögn
Landhelgisgæzlunnar mun Bald-
ur ekki halda til gæziustarfa
næstu daga, heldur sinna ýmsum
öðrum verkefnum, sem Land-
helgisgæzlan þarf að inna af
hendi. Þó mun ekki líða á löngu
þar til Baldur mun bætast í hóp
varðskipanna úti fyrir Austfjörð-
um.
Skipherra á nýja varðskipinu er
Höskuldur Skarphéðinsson,
fyrrum skipherra á Arvakri, og
enn fremur er áhöfn Baldurs aö
mestu leyti skipuð þeim mönnum,
sem áður voru á Arvakri. Timinn
spurðist fyrir um það hjá Land-
helgisgæzlunni i gær, hver tæki
við starfi skipherra á Arvakri, og
fékk þau svör, að ekki hefði verið
tekin ákvörðun um það enn.
Mó-Reykjavik. — Jón Illugason
oddviti sagði i viðtali við Timann,
að ekki hefði fundizt nemaeinri’
kippur i Mývatnssveit i gær.
Vatnsborð við Voga hefði hins
vegar hækkað um 1 sm á sólar-
hring siðustu þrjá sólarhringana.
Að sögn Sigurjóns Rists vatna-
mælingamanns er unnið að þvi að
kanna orsakir þessarar hækkun-
Kristján Sæmundsson jarð-
fræðingur ferðaðist töluvert um i
Mývatnssveit i gær, og varð hann
ekki var við neinar breytingar,
nema þá helzt við Leirhnúk.
Stærsta borholan við Kröflu
sprengdi af sér loka i gær og er nú
talsvert rennsli úr henni. Þá
hefur þrýstingur i nýju holunni i
Bjarnarflagi aukizt verulega og
er þrýstingurinn nú 80 kg á fer-
sentimetra, en var áður 50 kg á
fersentimetra. Að sögn Karls
Ragnars verkfræðings hjá Orku-
stofnun er ekki hægt að álita ann-
að en breytingar þessar stafi af
jarðhræringunum, enda hafa ekki
slikar breytingar komið fyrr en
þær byrjuðu. Væri vissulega tölu-
verð hætta á að þessi hola
sprengdi einnig af sér loka. Þá
má minna á að stuttu eftir að
jarðskjálftarnir byrjuðu datt
þrýstingurinn niður i einni bor-
holunni við Kröflu.
ar.
BREZK FREIGÁTA HINDRAR
ÍSLENZKT RANNSÓKNASKIP
Bretarnir virðast ganga út frá því, að sérhvert skip,
sem kemur í námunda við þá, sé gæzluskip
BH-Reykjavik. — Brezka freigát-
an Andromeda tók upp á þvi á átt-
unda timanum i morgun að þvæl-
ast fyrir okkur, reyna að beina
okkur út af settri stefnu okkar, og
veitti okkur siðan eftirför góða
stund, þrátt fyrir að þeim mætti
ijóst vera, að um væri að ræða
rannsóknaskip en ekki gæzluskip
eins og þeim hafði verið bent á.
Þannig komst Hjálmar Vil-
hjálmsson, leiðangursstjium borð
I hafrannsóknaskipinu Árna Frið-
rikssyni, að orði, þegar Timinn
ræddi við hann i gærkvöldi.
Undirstrikaði Hjálmar greini-
lega, að brezki flotinn á Islands-
miðum virtist ganga út frá þvi, að
sérhvert skip sem kæmi i nám-
unda við þá, væri gæzluskip.
— Það sem mestu máli skiptir
og er þyngst á metunum i þessu
sambandi er það, að nú skuli
BPBÉ—----------------
' íí' ' ''/ -
‘f< ° '
f A
m
Rannsóknaskipið Arni Friðriksson
Samstarfsnefnd
sjómanna kölluð
saman að nýju
SAMSTARFSNEFND sjómanna
< hefur afhent forsætisráðuneytinu
lista með nöfnum 120 áhafna
fiskiskipa eöa alls um 1500
manna, auk 42 manna, sem sátu
fund I Sjómannafélagi Grindavik-
ur fyrir fáum dögum. Vilja sjó-
menn með þessu mótmæla seina-
gangi þeim, sem þeir telja að sé á
endurskoðun sjóöakerfis sjávar-
útvegsins, en eitt þeirra skilyrða,
sem sjórrienn settu fyrir þvi að
róðrar hæfust aö nýju 26. okt. sl.,
var að niðurstöður endurskoðun-
ar lægju fyrir um mánaðamótin
nóv.-des. sl.
Sú varð ekki raunin á, og þvi
hafa sjómenn kallað saman sam-
starfsnefndina að nýju, og er
henni ætlað að taka ákvörðun um
næsta þátt málsins.
Þeir Sigurpáll Einarsson og
Guðmundur Jónsson, sem sæti
eiga i samstarfsnefndinni, sögðu I
viðtali við Timann i gær, að
undirskriftalistar þeir, sem af-
hentir voru forsætisráðuneytinu i
gær, væru aðeins sýnishorn til
þess að sýna afstöðu sjómanna,
þvi að enn væru margir listar ó-
komnir hvaðanæva af landinu.
Bretinn vera farinn að hindra
siglingar skipa um þessi blessuð
úthöf, sem hann hefur talað svo
fjálglega um að þykjast vilja
virða. Þaðmá öllum ljóstvera, að
við höfum ekki sýnt af okkur
nokkurn skapaðan hlut, sem likja
mætti við áreitni. Leið okkar lá
algerlega af tilviljun i gegnum
togarahópinn.
Að öðru leyti sagðist Hjálmari
Vilhjálmssyni svo frá atburðum:
— Á áttunda timanum i morg-
un vorum við staddir um 40—45
milur norður af Hraunhafnar-
tanga, þegar við komum að hópi
brezkra togara, og það skipti eng-
um togum, að freigátan Andro-
meda kom undireins á vettvang
og upp að okkur. Siðan var beint
að okkur ljóskastara. Svo i birt-
ingu i morgun fóru þeir að vesen-
ast i okkur og reyna að koma i veg
fyrir að við gætum haldið stefnu
okkar. Við fórum okkur rólega,
það var veltingsskratti, en þetta
gekk svona i einar fim.m milur
austur á við, og þá vorum við
orðnir leiðir á þessu. Svo að við
kölluðum upp varðskip og klöguð-
um þetta háttalag Andromedu.
Varðskipið hafði umsvifalaust
samband við Andromedu og út-
skýrði málin. Þeir sögðust hafa
haldið, að við værum gæzluskip,
og kváðu okkur hafa sagt það!
Þetta er náttúrlega fráleitt, við
ræddum ekkert við þá, en vissum
hins vegar af þvi, að tvær freigát-
ur voru eitthvað að tala saman,
þegar togari kallaði til þeirra og
tilkynnti, að okkar skip væri
gæzluskip. Annað höfðu þeir nú
ekki fyrir sér.
— En þeir hafa þá látið af þvi
að bekkjast við ykkur?
— Já, þeir lofuðu fyrst öllu
fögru og hættu að snúast i kring-
um okkur. En þeir eltu okkur
góða stund, i hálfrar milu fjar-
lægð, þangað til við vorum komn-
ir vel út fyrir togarahópinn.
Dregið hjá
DASí gær
1 GÆR var dregið i happ-
drætti DAS. Hæsti vinningur
— ibúð að verðmæti 2
milljónir króna — kom á
miða númer 12903. Næst-
hæsti vinningurinn, sem var
bllvinningur að upphæð ein
milljón, féll á miða nr. 6689.
BHavinninga að verðmæti
hálf milljón króna fengu
eftirtalin númer: 52100 —
22965 — 21310 — 54344 — 63131
— 26928 — 12110.
(Birt án ábyrgðar)
Engin loðna ennþá
BH-Reykjavik. — Loðnuleitin á
Arna Friðrikssyni hefur enn
engan árangur borið, enda
leiðindaveður á þeim slóðum,
þar sem rannsóknaskipiö hefur
aðallega haldið sig, en það er
djúpt út af Langanesi i stefnunni
norð-norðvestur. Hjálmar
Vilhjálmsson, leiðangursstjóri
um borð i Arna Friðrikssyni,
tjáði Timanum i gærkvöldi, að
skipið, sem hafði verið i land-
vari vestur af Melrakkasíéttu,
hefði haldið út um hálftvöleytið i
fyrrinótt og stefnt i NNA út fyrir
landgrunnið. Hefði verið leitað
að loðnu i stefnunni suðaustur
meðfram kantinum og upp á
hann þangað til komið hefði
verið norðaustur af Langanesi.
Kvað Hjálmar leiðindaveður
á leitarsvæðinu, og ekkert hafa
fundizt. Hinsvegar byggist hann
við skánandi veðri, og myndu
þeir leita betur á þessu svæði,
þótt þeir dokuðu við, þar sem
þeir væru núna, um 50 sjómilur
undan landi, meðan veðrið væri
að ganga niður. Kvaðst hann
búast við, að þeir héldu i suð-
vestur, upp á kantinn til að
byrja með, en siðan snúa i norð-
austur.
Hjálmar Vilhjálmsson
DAGBLAÐID BAUD AÐSTOD
AÐ STÖDVA ALÞÝÐUBLADP!
REYKJAPRENT TEKUR VID
REKSTRI ALÞÝÐUBLADSINS
FJ-Reykjavik. -r Það er rétt aö
þaö komi fram, aö Dagblaöiö
geröi Alþýöublaöinu tilboö, sem
fól i sér, aö viö legöum Alþýöu-
blaöiö niöur og létum Dagblaöinu
eftir aöstööu okkar I Blaöaprenti,
sagöi Sighvatur Björgvinsson,
ritstjóri Alþýöublaösins, I viötali
viö Timann I gær. Samningar
hafa nú tekizt viö Reykjaprent
hf., útgáfuaöila Visis, um aö
Reykjaprent annist rekstur
Alþýöublaösins, og kom Alþýöu-
blaöiö út aö nýju i gær.
Sighvatur sagði, að
Reykjaprent tæki viö rekstri
Alþýðublaðsins skuldlausum, en
hins vegar hefði orðið samkomu-
lag milli Reykjaprents og Blaös
hf., sem siðast gaf Alþýðublaðið
út, að Reykjaprent greiddi
ákveðna hluti fyrir Blað hf., aðal-
lega gjöld til Blaðaprents, en Blað
hf. afhenti Reykjaprenti á móti
reikninga desembermánaðar til
innheimtu. Endanlegt uppgjör
færi svo fram siöar, en Reykja-
prent hæfi nú rekstur Alþýðu-
blaðsins á núlli.
Aðspuröur um það, hvort hann
væri að láta af ritstjórn Alþýðu-
blaðsins, kvað Sighvatur svo
vera, en þaö stæði á engan hátt i
sambandi við þessa breytingu á
rekstri Alþýðublaðsins, enda
hefði hann veriö annar tveggja
samningamanna i samningum
við Reykjaprent. Hins vegar hefði
hann á sl. hausti tilkynnt, að hann
gæti ekki sinnt ritstjórastarfinu
með þingmannsstarfi sinu, en
dregizt á aö halda áfram þar til
nýr ritstjóri væri fundinn.
Ihaus Alþýðublaðsinsigærvar
Alþýðuflokkurinn skráður útgef-
andi Alþýðublaðsins og Reykja-
prent hf. rekstraraöili.