Tíminn - 09.01.1976, Blaðsíða 8

Tíminn - 09.01.1976, Blaðsíða 8
8 TÍMINN Föstudagur 9. janúar 1976. SÞ-ráðstefna um umhverfi mannsins í Vancouver í vor MARKMIÐIÐ ER AÐ ALLIR GETI LIFAÐ MANN SÆMANDI LÍFI SJ-Reykjavík.Ráðstefna um um- hverfi mannsins, sem hlotið hefur nafnið Habitat, verður haldin á vegum Sameinuðu þjóðanna i Vancouverí Kanada 31. mai til 11. júní i vor. Unnið hefur verið að undirbúningi ráðstefnunnar siðan 1972, en ekki var formlega sam- þykkt að halda hana fyrr en á allsherjarþingi SÞ nú i desember. A umhverfismálaráðstefnunni i Stokkhólmi 1972 var samþykkt á- skorun um að efna til slikrar ráð- stefnu, þar sem fjallað yrði um allt umhverfi mannsins og allt það sem nauðsynlegt er til að hann geti lifað mannsæmandi lifi. Kanadamenn hafa lagt mikið fé til ráðstefnuhaldsins, en auk þeirra standa Sameinuðu þjóðirn- ar, Umhverfismálastofnunin i Nairobi straum af kostnaðinum, en Sviar hafa lagt fram fé til kvikmyndagerðar vegna hennar. Ráðstefnan verður haldin á eyju innan marka Vancouver- borgar i gömlum flugskýlum, sem breytt hefur verið i þessu skyni og einnig á hótelum i borg- inni. Pétur Guðjónsáon hagfræðing- ur, sem starfar við upplýsinga- miðlun hjá þeirri stofnun SÞ i New York, sem sér um Habitat, var staddur hér á landi i vikunni og kynnti hana fréttamönnum i utanrikisráðuneytinu. Að hans sögn verður ráðstefnan sú stærsta sem SÞ hafa haldið hvað snertir fjölda þátttakenda. Einnig kvaðst hann búast við að þúsundir starfsmanna fjölmiðla um heim allan sæktu ráðstefnuna. Farið yrði inn-á nýjar brautir um ráðstefnuhald og yrðu kvik- myndir og skuggamyndir, sjón- varp og útvarp hagnýtt við upp- lýsingamiðlun i meira mæli en á nokkurri ráðstefnu áður, en horf- iðfrá þvi skýrslu og pappirsflóði, sem til þessa hefði einkennt slíkar samkomur og færi oft ólesið i glatkistuna. Gerðar hafa verið 200 kvik- myndir i 120 löndum á siðasta ári, sem sýndar verða á ráðstefnunni, en_ þær fjalla um mismunandi laúsnir á ýmsum umhverfis- vandamálum mannsins. Kanad- iska kvikmyndaráðið hefur sent starfsmenn út um allan heim til kvikmyndatöku, en þeir annast fyrst og fremst tæknilega aðstoð, þvi myndirnar eru flestar teknar af heimamönnum. Þegar hafa Kanadamenn lagt fram tiu milljónir dala vegna ráðstefnunn- ar. Orðið Habitat hefur oft verið tengt bústöðum mannsins, en á ráðstefnunni i vor verður viðtæk- ari skilningur lagður i orðið. Þar verður m.a. fjallaðum umferðar- vandamálið, sem er geigvænlegt viðsvegar um heim, læknisþjón- ustu, en meðál fjölmennustu þjóða heims sér allur obbinn af fólki aldrei lækni á sinni æfi, of- fjölgun, en fólki þéttbýlissvæð- anna i þriðja heiminum mun fjölga um 1400 milljónir á næsta aldarfjórðungi og fjölgunin er mest i fátækrahverfum stórborg- anna. Borgarbúum annars staðar i heiminum fjölgar væntanlega um 400 milljónir á sama tímabili. Megnið af fátæklingum i þriðja heiminum býr við itrustu neyð og allar tilraunir yfirvalda til að leysa vanda þeirra hafa reynzt árangurslausar, sem og vanda- mál i fátækrahverfum annars staðar. Markmið þessarar næstu stór ráðstefnu SÞ er að lágmarksskil- yrðum verði fullnægt til þess að allir menn geti lifað mannsæm- Enrique Penalosa forseti ráðstefnunnar. Pétur Guðjónsson segir blaða mönnum frá ráðstefnunni. andi lifi. SÞ vill biðja allar þjóðir að taka höndum saman um þetta verkefni. Vitað er að 120 þjóðir a.m.k. taka þátt i' ráðstefnunni, en form- leg boðsbréf hafa enn ekki verið send út. Rikisstjórnir senda full- trúa sina en einnig verða áheyrn- arfulltrúar frá öðrum aðilum. Ekki er ákveðið hvort eða hvernig þátttaka Islendinga verður og verður sú ákvörðun tekin i Fé- lagsmálaráðuneytinu, en undir það heyra flest þau mál er ráð- stefnan fjallar um. En hver sem ákvörðunin þar verður, er senni- legt að kvikmynd um Reykja- vikurborg, sem Gisli Gestsson tók, þar sem m.a. er fjallað um hitaveitukerfið, verði til sýningar á ráðstefnunni, svo og litskyggn- ur og kvikmynd um Vestmanna- eyjar fyrir og eftir gos, eldsum- brotin, viðbrögð og uppbyggingu. Gerðist Jóhannes skírari efasemdamaður? Það ætti að mega ætla það, að mikill meiri hluti háskólalærðra og vigðra presta þjóðkirkjunnar islenzku — ekki heimskari þjóð en tslendingar eru yfirleitt — hljóti að sjá, að það er meira en hæpið, og að það er enda óheimilt, að halda þvi blákalt fram, að Jó- hannes skirari, sem lesa má um i Nýjatestamentinu i Matteusar guðspjalli, þriðja og ellefta kafla, i Markúsar guðspjalli, fyrsta og sjötta kafla, Lúkasar guðspj., þriðja kafla, og viðar i Nýja testa- mentinu, hafi verið farinn að efast um messiasardóm Krists, þ.e. efast um það, að Jesús Kristur væri sá, sem koma ætti samkvæmt ritningunum — og byggja þá fullyrðingu á þvi einu, að skirarinn Jóhannes sendi til Jesú tvo af lærisveinum sinum og lét þá spyrja hann, Meistarann: ,,Ert þú sá, sem koma á, eða eig- um vér að vænta annars?” Það sannar ekkert i þessu efni, þótt einhverjir hafi einhvern tima byrjað á þvi að hafa uppi getgátur um, að vistin, sem Jóhannes, skirarinn, hafi orðið að þola, hafi verið slik i fangelsi Heródesar konungs, að heilsa skirarans, Jó- hannesar, hafi, er hann sendi lærisveina sina til Jesú með áður greinda spurningu, verið orðin svolömuð, af þvi að spámaðurinn Jóhannes hafi verið orðinn svo aðþrengdur af illri fangelsisvist, 'að þess vegna hafi hann, i ein- hverjum efasemdum um Krist, sent lærisveina sina til hans. Samt virðast furðu margir vigðir þjóðkirkjuprestar hafa verið fastir i þessari meiningu, að minnsta kosti eftir orðum þeirra að dæma i ræðum. Það er siður en svo, að nokkuð sé að finna i Nýja testamentinu, sem bendi hið minnsta til þess, að Jóhannes skirari hafi - oið að þola illþolandi aðbúð eða viður- gjörning i fangelsi Heródesar. 1 fyrsta lagi gat Jóhannes kallað til sin tvo af lærisveinum sinum (Lúk. 7, 19) og sent þá til Drottins Jesú með áður greinda spurningu, hvort Jesús væri sá, sem koma ætti. Lesið hef ég um það i riti eftir prestvigaðan mann, að á þeim tima, er Jóhannes skirari var i fangelsi Heródesar, sem greint er frá i Nýjk testamentinu, hafi verið til fangelsi, sem hafi verið „óþverraholur”. Það sannar i sjálfu sér ekkert um, að þvi fangelsi hafi verið ábótavant, sem Jóhannes skirari var i. Að Heródes konungur hafi haft Jóhannes skirara i slæmu fang- elsi er hvergi sagt orð um i Nýja testamentinu. Móti þvi, að svo hafi verið, þ.e. að illa hafi verið búið að skfraranum Jóhannesi i fangelsinu, virðist eindregið mæla það, að sagt er um Heródes konung, sem hafði Jóhannes skirara i fangelsinu, að „Heródes óttaðist Jóhannes, þar eð hann vissi, að hann var maður réttlátur og heilagur, og verndaði hann: og hann hlýddi á tal hans og vissi ekki, hvað hann átti úr að ráða, en ljúft var honum að hlusta á hann.” Hvað sem um annað má segja i sambandi við það, sem sagt er frá hugsunum og atferli Heródesar i þessum 6. kafla i Markúsar guðspjalli, þá er þó engin sérstök ástæða til að ætla, að Heródes hafi haft manninn Jóhannes skirara i slæmri vistarveru, og hlustað á hann þar — konungurinn — manninn, sem Heródes vissi, að var „maður réttlátur og heilagur” og maður sem Heródes konungur „óttaðist” og „verndaði” samkv. ofanritaðri tilvitnun i 6. kafla Markúsar guðspjalls, 20. gr. Það er að vfsu fleira sagt i þess- um kapitula Markúsar guðspjalls um hugsanir og at- ferli Heródesar konungs i sam- bandi við Jóhannes skirara, en það slær ekki niður þá röksemd, að fyrst Heródes hlýddi á Jóhannes, skfrarann, og sagt er lika að hann (Heródes) hafi vitað, að Jóhannes skirari var maður réttlátur og heilagur — og fyrr i 20 gr., að Heródes hafi óttazt Jóhannes, og (siðast i sömu grein) að Heródesi hafi verið ljúft að hlusta á Jóhannes (þeir voru báðir af sömu þjóð) — þegar þetta allt er athugað, þá virðist mér gegna furðu, að nokkur skuli geta gert ráð fyrir, að konungurinn hafi — alveg að óþörfu og vafa- laust ótilneyddur — haft Jó- hannes skirara i einhverju slæmu eða lélegu fangelsi, sem þó ýmsir hafa a.m.k. talað utan að að þeir álitu, og virðast hafa viljað láta menn halda, að svo hafi þetta verið. Þó að hámenntaðir menn hafi, að þvi er virðist, stundum viljað láta menn lúta að þessum rökleysum svo sem einhver rök væru, þá sannar það aldrei neitt. Hvað sagði svo Jesús Kristur um Jóhannes skirara? Um það lesum við — meðal annars i ellefta kafla Matteusar guðspjalls. Þar er greint frá þvi, sem Jesús sagði við mann- fjöldann um Jóhannes skirara, eftir að hann hafði svarað sendi- mönnum Jóhannesar skirara og sendimennirnir vorú farnir, Jesús sagði þá: „Hvað fóruð þér út i óbyggðina að sjá? Reyr af vindi skekinn? Eða hvað fóruð þér út að sjá? Mann mjúkklæddan? Sjá, þeir, sem bera mjúk klæði, eru i höll- um konunganna. Eða til hvers fóruð þér út? Til að sjá spámann? Já, ég segi yður, jafnvel meira en spámann.” (Matt. 11, 7—9) Fleira sagði Jesús um skirarann á eftir þessum orðum, i sama kafla. En bókun á þvi, sem Jesús svaraði lærisveinum Jóhannesar, sem sendir höfðu verið til hans með áður greinda spurningu, er að finna i sama kafla, Matt. 11, 4—6. gr.: „Farið og kunngjörið Jóhannesi það, sem þið heyrið og sjáið: Blindir fá sýn og haltir ganga, likþráir hreinsast og dauf- ir heyra, og dauðir upprisa og fátækum er boðað fagnaðarerindi. Og sæll er sá, sem ekki hneykslast á mér.” Þegar Jesús vakti Lazarus, sem dáinn var, aftur til lifsins, sem greint er frá i 11. kafla Jó- hannesar guðspj., er sagt, að þegar steinninn hafði verið tekinn burt, sem lokaðhafði gröfinni, þá hóf Jesús upp augu sin og sagði: „Faðir, ég þakka þér, að þú hefur bænheyrt mig. Ég vissi að sönnu, að þú ávallt bænheyrir mig, en vegna mannfjöldans, sem stendur hér umhverfis, sagði ég það, til þess að þeir trúi, að þú hafir sent mig”. Og er hann hafði þetta mælt kallaði hann hárri röddu: Lazarus, kom þú út. Og hinn dáni kom út, vafinn lik- blæjum á fótum og höndum og fyrir andlit hans var bundinn sveitadúkur. Jesús segir við þá: Leysið hann og látið hann fara. Margir af Gyðingunum, sem komnir voru til Mariu og höfðu séð það, sem hann gjörði, trúðu nú á hann. Upptalning Jesú á krafta- verkunum, sem hann hafði verið að gera og var að gera, þegar lærisveinar Jóhannesar komu til hans, samkvæmt framansögðu, hefur alveg vafalaust orðið til trúarstyrkingar, ogupphafs trúar lika á Krist, hjá mörgum — fjölda fólks — ekki aðeins á þeim tima, sem kraftaverkin voru framin, til hjálpar nauðstöddum og sjúkum, heldur lika um allar aldir, sem liðnar eru siðan, er menn hafa heyrt og lesið um þessi kraftaverk Jesú. Við gröf Lazarusar sagði Jesú, svo sem að framan greinir: „vegna mannfjöldans, sem stendur hér umhverfis, sagði ég það, til þess að þeir trúi, að þú hafir sent mig”. Eins hlýtur það að hafa orðið hjá þeim stóra hópi manna, sem lesið hafa þetta svar Jesú, til lærisveina Jóhannesar. Þeir hafa vitað það af verkum Jesú Krists, að hann var sendur af Guði. Og lika má vænta þess sama um marga samtimamenn Jesú, að það að vita um kraftaverkin, sem hann gerði, hafi orðið til þess, að þeir trúðu á hann, einmitt vegna þessara kraftaverka, sem Jesús hafði verið að gera, er sendimenn Jóhannesar komu til hans — og ekki siður fyrir það, að vakin var svona sérstaklega athygli á kraftaverkunum. Það er þvi frá minu sjónarmiði langeölilegast að ætla, að Guð, sá sem sent hafði Jóhannes til að prédika og skira, og þannig Framhald á bls. 19

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.