Tíminn - 09.01.1976, Qupperneq 9

Tíminn - 09.01.1976, Qupperneq 9
Föstudagur 9. janúar 1976. TÍMINN 9 tJtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: í>órarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri;; Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gisla- son. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu við Lindargöty, simar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aðal&.træti 7, slmi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — auglýsingaslmi, 19523. Verð j lausasölu lír. 40.00. Askriftargjald kr. 800.00 á mánuði. BlaðaprentB'.ff Hvað gera Nato og Bandaríkin Eftir þá atburði, sem gerðust úti fyrir Aust- fjörðum i fyrradag, þegar brezk herskip reyndu að sigla á bæði Tý og Þór, er það ljósar en nokkru sinni áður, að brezk stjórnarvöld hafa markað þá stefnu, að reyna að gera islenzku varðskipin ófær til gæzlustarfa. Hvenær, sem er,geta hlotizt stór- felldustu slys af þessum ásiglingartilraunum. í samræmi við áróðursvenju Breta i styrjöldum, reyna þeir að kenna andstæðingnum um árekstrana og ásiglingatilraunirnar, en eftir siðustu atburði, er það svo ljóst, að brezk stjórnar- völd fara hér með visvitandi ósannindi, að óþarft er að fara um það fleiri orðum. Eftir þessa atburði er i vaxandi mæli spurthér á landi: Er ekki orðið timabært að tilkynna brezkum stjórnvöldum að áframhald þessara ásiglingar- tilrauna muni leiða til heimkvaðningar sendiherra og stjórnmálaslita? Er ekki orðið timabært að gera Nato ljóst, að taki það ekki skýra afstöðu með Islendingum, muni íslendingar endurskoða afstöðu sina til þess? Og má ekki fara að minna Bandarikin á, að íslendingar muni endurmeta vernd þeirra, ef þau láta með öllu afskiptalaust, að erlend herskip reyni að skemma og eyðileggja is- lenzk varðskip á fiskimiðunum við Island? Þessum spurningum munu íslendingar velta fyrir sér i vaxandi mæli, ef ekkert lát verður á ásiglingatilraunum brezku herskipanna. Þá mun íslendingum lika ekki þykja ófróðlegt að heyra um viðbrögð vinaþjóða okkar á Norðurlöndum og hvort þær ætla að vera alveg hlutlausar i styrjöldinni, sem er háð á íslandsmiðum. Hvað ætlar t.d. danska stjórnin að gera? En rétt er að minna á að íslendingar heyja hér ekki aðeins styrjöld sjálfs sins vegna, heldur einnig i þágu Grænlendinga og Færeyinga, þvi að þeir hafa ekki minni þörf fyrir 200 milna fiskveiðilögsögu en Is- lendingar. Hrein nýlendustefna Af hálfu brezkra stjórnvalda er reynt að halda þvi fram, að íslendingar hafi sýnt ósanngirni i viðræðum við þá. Staðreyndin er þessi: Brezku stjórninni var tilkynnt með löngum fyrirvara, að íslendingar væru reiðubúnir til að semja við þá um undanþágur til veiða vegna útfærslu fiskveiði- lögsögunnar i 200 milur. Samningar um þessar undanþágur yrðu hins vegar að byggjast á tveim- ur meginsjónarmiðum. Annað væri það, að niður- stöður fiskifræðinga sýndu, að draga yrði stórlega úr þorskveiðum á íslandsmiðum næstu árin. Hitt væri það, að forgangsréttur strandrikis væri ótviræður til að nýta þann afla, sem skynsamlegt væri að veiða. Siðustu kröfur Breta um að mega veiða hér allt að 100 þús. smálesta, aðallega af þorski, sýna, að þeir sniðganga bæði þessi sjónar- mið. Þeir haga sér alveg eins og nýlenduveldi á 19. öld, sem lagði stund á hreina rányrkju og mat einskis hagsmuni viðkomandi landsmanna. Bretar fylgja nú algerri nýlendustefnu á Is- landsmiðum. Jafnvel Danir reyndu aldrei til þess á nýlendutimum þeirra, að kippa eins fótum undan afkomugrundvelli Islendinga og Bretar gera nú. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Gallaghan kallaði sendiherrann heim Til að mótmæla pyntingum d brezkum borgara Sheila Cassidy FYRIR nokkru sleppti Chile- stjórn samkvæmt kröfu brezku stjórnarinnar enskum kvenlækni, Sheila Cassidy, úr fangelsi, en henni hafði verið haldið þar í tvo mánuði án dóms og laga. Chilestjórn taldi sig hafa sýnt brezku stjórninni sérstaka tilhliðrunarsemi með þvi, að fallast á þessa kröfu hennar. Brezki utanrikisráð- herrann, James Callaghan, leit hins vegar öðruvisi á mál- ið. Eftir að Sheila Cassidy kom heim til Bretlands skýrði hún frá þvi, að hún hefði orðið fyrir miklum pyntingum með- an hún var i fangelsinu. Chile- stjórn mótmælti þessari frá- sögn hennar en brezk stjórn- völd og þó sérstaklega utan- rikisráðherrann tóku þau mót- mæli ekki til greina. Gallaghan ákvað að mótmæla þeirri aðferð, sem Cassidy hafði sætt, með þvi að kalla heim brezka sendiherrann i Santiago, höfuðborg Chile. Sendiherrann, sem heitir Reginald Seconde, dvelst enn heima i Bretlandi og er enn al- veg óráðið hvenær hann snýr til Chile aftur. Það mun jafn- vel hafa komið til orða, að stjórnmálasambandinu verði alveg slitið vegna þessa at- burðar. Sendiherra Chile i London dvelst þar enn, en að sjálfsögðu mun stjórn hans kveðja hann heim, ef brezki sendiherrann verður ekki lát- inn fara til Santiago aftur. ATBURÐUR sá, sem hér ræðir um, er i stuttu máli þessi: Sheila Cassidy sem er 37ára gömul, fór til Chile fyrir fjórum árum og vann þar á spitala um skeið, en gekk siðan I þjónustu sérstakrar mannúðarstofnunar, sem er starfrækt undir leiðsögn katólsku kirkjunnar. Hún hafði ekki haft nein afskipti af stjórnmálum þar, og hugur hennar hafði helzt stefnt að þvi, að hún gengi I klaustur. Hinn 18. október siðastliðinn sneri prestur sem hún þekkti, sér til hennar og bað hana að hjálpa særðum manni, sem ekki gæti farið á spitala, þvi að hann væri pólitiskur flótta- maður. Sheila Cassidy varð við þessari beiðni, og fór með prestinum á fund hins særða manns, Gutierres að nafni. Hún veitti honum nauðsynlega læknisiijálp og heimsótti hann svo öðru hverju næstu daga. Hinn 1. nóvember hafði lög- reglan fengið nasasjón af þessum ferðum hennar og var hún þá handtekin. Fyrst var hún stranglega yfirheyrð og greip hún þá til þess ráðs að segja ósatt. Það varð fljótt uppvist, og var þá gripið til enn strangari aðgerða og þeg- ar þær dugðu ekki, var gripið til hryllilegustu pyntinga og var aðallega beitt rafmagns- tækjum. Eftir tólf tima pyntingar lét hún að lokum undan og gaf lögreglunni bæði upp nafn prestsins og dvalar- stað hins særða manns. Það er hins vegar ekki upplýst,hvort lögreglunni hefur tekizt að hafa hendur i hári þeirra, þvi að ef til vill hafa þeir frétt af handtöku Cassidys i tæka tið. Sheila Cassidy skýrði strax frá þvi við heimkomuna til Bretlands, hvaða meðferð hún hefði sætt i fangelsinu. Eftir að brezk stjórnvöld töidu sig hafa sannprófað, að frásögn hennar væri rétt, ákvað Gallaghan utanrikisráðherra að kalla brezka sendiherrann i Santiago heim, eins og áður segir. Chilestjórn hefur mót- mælt þessu, og hafa nokkrir brezkir ihaldsþingmenn tekið undir þau mótmæli þeirra, þar sem Cassidy hafi gerzt brotleg við lög i Chile með þvi, að veita umrædda læknishjálp. Margir hafa hins vegar orðið til að verja hana. Viðbrögð hennar sjálfrar hafa orðið þau, að hún segist nú staðráð- in i þvi að ganga i klaustur. ÞAU viðbrögð Gallaghans utanrikisráðherra, að kalla sendiherrann heim, þykja yfirleitt vera i samræmi við þá venju, sem skapazt hefur undir likum kringumstæðum. Þótt segja megi.að heimkvaðning sendiherrans sé aðallega formsatriði, felst i henni ein hin sterkustu dipló- matisku mótmæli, sem til greina geta komið.Vist er lika að heimkvaðning sendiherr- ans hefur vakið stórum meiri athygli á þessum atburði en ella. Hann gerist lika á tima, sem getur gert hann áhrifa- meiri en ella. Chilestjórn á ekki aðeins öllu meira i vök að verjast en áður, heldur virðist vera kominnupp ágreiningur innan hersins. Samkvæmt fregnum, sem taldar eru byggjast á allgóðum heimild- um, hafa nokkrir herforingjar i Chile myndað með sér sam- tök, sem krefjast breyttra og fr jálslegr.i stjórnarhatta. Það er jafnvel talið ekki ósennilegt með öllu, að þar verði bráðlega mynduð ny stjórn, sem verði ekki ein- göngu skipuð hershöfðingjum, en nú gegna hershöfðingjar öllum helztu ráðherraembætt- um i Chile. Þ.Þ. James Gallaghan.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.