Tíminn - 09.01.1976, Page 19

Tíminn - 09.01.1976, Page 19
Föstudagur 9. janúar 1976. TÍMINN 19 Valtir veldisstólar veröa á dagskrá sjónvarpsins n.k. sunnudagskvöld. I undanförnum þáttum hafa leik- ararnir Charles Kay og Gayle Hunnicutt vakiö veröskuldaöa eftirtekt i hlutverkum rússnesku keisara- hjónanna, Nikulásar og Aiexöndru. 0 Jóhannes greiða veg Jesú Krists (sbr. orð Jesú iMatt. 11,10), hafi fyrir anda sinn hvatt Jóhannes Skirara til að senda lærisveina sina með áður greinda spurningu til Jesú, til þess beinlinis, að svar Jesú yrði bókað i helgum ritning- um Nýja testamentisins og til þess að frásögnin yrði lika til þess, að þeir, sem læsu um áður greind kraftaverk Jesú, tryðu, að Guð hefði sent hann. Það var ærin ástæða fyrir sendiförinni. Og það er mittálit, að svo fjölmargir hafi öðlazt trúarstyrkingu af að heyra og lesa þessa frásögn af kraftaverkum Jesú, sem hann talaði um við lærisveina Jóhann esar, að það hafi verið fullnóg ástæða til þess, að Guð, fyrir sinn heilaga anda hvatti Jóhannes skirara til að senda lærisveina sina til Jesú með áður greinda spurningu —en ekki sé ástæða til að tala um neinar efasemdir Jó- hannesar skirara um Jesú á nokkurn hátt, án allra raka. Þvi að það eru engin rök, þó að ein- hverjir háskólagengnir menn — eða hverjir aðrir sem væru — héldu, að i sporum Jóhannesar skirara myndu þeir sjálfir ekki hafa sent til Jesú nema sjálfs sins vegna vegna eigin efasemda, með þá spurningu, sem Jóhannes skirari sendi lærisveina sina með til Jesú. Það virðist lika liggja miklu nær að halda, að læri- sveinar Jóhannesar skirara hafi átt greiða leið til þess að sjá svo um, að lærimeistari þeirra, Jó- hannes, þyrfti ekki að liða hinn minnsta skort á góðum fæðuefnum, ef þeirra aðstoð hefði þurft til þess, alveg eins og Jóhannes gat kallað til sin tvo af þeim til að senda þá til Jesú. Og reyndar má bæta þvi við, og alveg eins og tekið er fram i Postula- sögunni i Nýja testamentinu 24. kafla, 23. grein, að Felix land- stjóri hafi lagt svo fyrir, að ekki skyldi meina neinum af vinum Páls postula að veita honum þjónustu. Páll var þarna án saka i haldi h já Felix landstjóra — alveg eins og Jóhannes skirari var i fangelsi, ekki af þvi að hann væri afbrotamaður, heldur af þvi að hann hafði sagt, að Heródes ,,mætti ekki eiga hana”, það er Heródias, konu bróður hans, og taka hana sér fyrir konu (saman- ber III Mósebók, 20,21). Páll postuli varð ekki miður sin i trúnni og traustinu á Guði, þrátt fyrir óskaplegan sjóhrakning (sem lesa má um i 27. kafla i Postulasögunni), þótt hann hefði ekki neytt matar þá i allnokkra daga. En hvers á þá Guð að gjalda, ef menn vilja halda fram, að Guð, sem „sendi” Jóhannes til að skira (samanber Jóh. guðspj., 1,33), sem hlaut þó að vera þess megn- ugur að láta Jóhannes skirara halda heilum sönsum ogviti,en — eftir þvi sem ýmsir virðast óbeint eöa beint halda fram — virðist ekki vera talinn hafa hirt um að viðhalda minni Jóhannesar skir- ara — og á ég þar við að gefa Jóhannesi að muna það, sem Jóhannes hafði fengið vitneskju um frá Guði, að Jesús væri ,,það Guðs lamb, sem burfber heims- ins synd”, þ.e.a.s. endurlausnari syndugra manna, samkvæmt ritningunum? Hvernig ætti að standa á þvi, ef Guð hefði tekið frá Jóhannesi skirara þessa vitneskju, sem Jóhannes talaði um við Jórdan, þegar hann þar benti á Jesúm Krist og sagði: ,,Sjá það Guðs lamb, sem burt ber heimsins synd”? Ekki dettur mér i hug, hvað sem háskólamennirnir sumir hugsa — eða segja i hugsunar- leysi — að Guðs andi hafi eitt augnablik vikið frá Jóhannesi skirara og að af þeim sökum hafi skirarinn gleymt þvi, sem hann vissi, er hann var við Jórdan og benti á Jesúm Krist, að Jesús Kristur var ,,það Guðs lamb, sem burt ber heimsins synd”, þ.e. endurlausnari syndugra manna með fórnardauða sinum, sem spáð var fyrir um ,,i hinum spá- mannlegu ritum”. Nei, sannarlega er engin ástæða til að ætla, að Guð hafi sleppt hendi sinni af Jóhannesi skirara, þótt Jóhannes væri i fangelsi, og að öllum likindum vel haldinn um alla meðferð og að- búnað þar.semkvæmt framanrit- uðu, og látið hann þannig ruglast i áður fullvel vitaðri ráðsályktun Drottins Guðs, samkvæmt köllun oglika fyrirheitum Guðs i helgum spádómum Gamla testamentis- ins. Ég vildi óska, að Guð gæfi öll- um „þjónandi” klerkum evangelisk-lútersku kirkjunnar á Islandi skýrleiksanda, þegar sú stétt manna fer væntanlega á föstunni i kirkjum landsins að tóna, og lika segja fram án þess að tóna, orðin þessi: ,,Sjá það Guðs lamb, sem burt ber heims- ins synd” — með viðeigandi endurtekningum — svo að þeir sneru við blaðinu, sem taláð hafa um efasendir Jóhannesar skirara um Krist. Þvi fullyrðingar um efasemdir Jóhannesar skirar, sem oft hafa heyrzt — með mis- munandi áherzlu þó — eru svo sannarlega i þeim flokki fullyrð- inga, sem hver einasti hæsta- réttardómari hlýtur að visa frá sem rökstuðningslausum og ómerkum, ef fram væru bornar sem vera skyldu þær rök til sóknar eða varnar fyrir rétti, i einhverju máli. Ef einhver skyldi halda, að af þvi að ég er utanþjóðkirkjumaður (hef verið það i nær 50 ár) sé ég fremur að deila á framkomu sumra presta þjóðkirkjunnar i ræðum i útvarpi, þá er það ekki rétt. Utanþjóðkirkjumenn (fáir) hafa gert tilraunir til að lasta framkomu Abrahams spámanns Guðs, Tarasonar. Hef ég reynt að koma þarleiðréttingum við, og að ég tel með nokkrum árangri. Vænti ég, að áfram haldi þær leiðréttingar frá mér. 1 Guðsfriði. ólafur Tryggvason frá Kothvammi. 0 Angóla en tvær klukkustundir, þó að upp- haflega hefði verið gert ráð fyrir þvi, að þeir yrðu tvo daga að undirbúa leiðtogafundinn. Utanrikisráðherra Eþiópiu sagði á ráðherrafundinum i gær, að niðurstaða leiðtogafundarins, sem haldinn verður um helgina, gæti breyttmiklu um sögu Aíríku. ,,Ef okkur .mistekst,” sagði ráöherrann, „munum við skrifa sögu, sem komandi kynslóðir i Afriku munu skammast sin fyrir.” Athugasemd Timanum hefur borizt eftirfar- andi frá Hilmari Vilhjálmssyni: ,,Ég fer þess vinsamlega á leit við yður að þér birtið eftirfarandi yfirlýsingu i blaði yðar svo fljótt sem við verður komið, þó svo að tilefni hennar sé ekki vegna skrifa i blaði yðar. Að gefnu tilefni vilég taka fram eftirfarandi: 011 hlutabréf Cudoglers h/f eru i m'inni eigu og f jölskyldu minnar. Um aðra eigendur er ekki að ræða og eru þvi ágizkanir um utanað- komandi hluthafa og stjórn- armenn staðlausir stafir. Húseignin Skúlagata 26 er eign Skjólgarðs h/f, og hefur sú eign ekki verið boðin til sölu sam- kvæmt upplýsingum stjórnarfor- manns Skjólgarðs h/f.” Fundir um sjávarútvegsmál Vestfirðingar. Fundir um málefni sjávarútvegs verða haldnir á Bildudal kl. 14.00 laugardaginn 10. jan. Patreksfirði kl. 16.00 sunnudaginn 11. jan. Tálknafirði kl. 21.00 sunnudaginn 11. jan. Fleiri fundir auglýstir siðar. Allir velkomnir. Steingrimur Hermannsson. Viðtalstímar alþingismanna og borgarfulltrúa Framsóknarflokksins Kristján Benediktsson borgarfulltrúi verður til viötals á skrif- stofu Framsóknarflokksins, Rauðarárstig 18 laugardaginn 10. janúar frá kl. 10 til 12. Bílddælingar, nærsveitamenn Samband ungra Framsóknarmanna, kjördæmissamband Fram- sóknarmanna á Vestfjörðum og Framsóknarfélagið á Bildudal gangast íyrir félagsmálanámskeiði i Félagsheimilinu á Bildu- dal, sem hefst föstudaginn 9. jan. kl. 21.00. Leiðbeinandi verður Heiðar Guðbrandsson, form. verkalýðs- og sjómannalélags Álftfirðinga, Súðavik. Námskeiðið er öllum op- ið. Hádegisverðar fundur FUF i Reykjavik heldur hádegisverðarfund i Klúbbnum laugar- daginn 10. janúar og hefst hann kl. 12. Gestur fundarins verður Freysteinn Jóhannsson ritstjórnarfulltrúi á Timanum. Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti. Stjórnin. Kanarí- eyjar Þeir sem áhuga hafa á ferðum til Kanarieyja (Teneriffe) i febrú- ar, gefst kostur á ferð hjá okkur 19. febrúar (24 dagar). Góðar íbúðir, góð hótel. $érstak- ur afsláttur fyrir flokksbundið f ramsóknarfólk. örfá sæti laus. Þeir, sem eiga pantaða miða, en hafa ekki staðfest pöntun sina með innborgun eru beðnir um að gera það strax, að öðrum kosti eiga þeir á hættu að missa af ferðinni. Haf- ið samband við skrifstofuna að Rauðarárstig 18, simi 24480. VIKULEGAR HRAÐFERÐIR EINNIG REGLUBUNDNAR FERÐIR Fró NORFOLK WESTON POINT KRISTIANSAND HELSINGBORG GDYNIA VENTSPILS VALKOM Frá ANTWERPEN - FELIXSTOWE - KAUPMANNAHÖFN - ROTTERDAM - GAUTABORG - HAMBORG mánudaga þriójudaga þriájudaga þriójudaga mióvikudaga fimmtudaga FERÐIR FRÁ ÖÐRUM HÖFNUM EFTIR FLUTNINGSÞÖRF

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.