Tíminn - 29.01.1976, Blaðsíða 2

Tíminn - 29.01.1976, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Fimmtudagur 29. janúar 1976. Loðnuaflinn 36.700 lestir gébé—Rvik. — Frá miönætti á þriðjudag tilkynntu tuttugu og sjö bátar um loönuafla samtals 8.540 tonn. Aflann fengu þeir tlu sjómíl- ur sunnan viö 67. gráöu, eöa út af Héraösflóanum. Heildaraflinn Skipstjóra- og stýri- mannafélagið Aldan: Gagnrýnir seinagang d endur- skoðun sjóða kerfisins- Á aöalfundi Skipstjóra- og stýrimannafélags „Oldunnar” sem haldinn var aö Bárugötu 11, 18. janúar s.l. var eftirfarandi ályktunartillaga samþykkt sam- hljóöa. „Aðalfundur Skipstjóra- og stýrimannafélags „öldunnar” haldinn að Bárugötu 11, 18. janú- ar 1976, gagnrýnir harðíega þann seinagang, sem orðið hefur á endurskoðun „sjóðakerfisins” svokallaöa og úrbótum þeim er starfandi sjómenn kröfðust i þeim efnum. Fundurinn fagnar þvi að endurskoöunarnefnd hefur nú lokið störfum með álitsgerð til stjórnvalda og skorar á rikis- stjórn og háttvirt Alþingi að hraöa endanlegri afgreiðslu þessa máls.” varþviorðinn 36.700 tonn klukkan 18.00 i gærkvöldi. Bátarnir lönd- uöu á eftirtöldum stööum: Itaufarhöfn, Vopnafiröi, Seyöis- firöi, Eskifisöi, Reyöarfiröi og Fáskrúösfiröi. Eftirtaldir bátar fengu afla frá miðnætti á þriðjudag til klukkan 18.00 í gærkvöldi: GullbergVE 380 tn Hrafn GK 350 tn DagfariÞH 230 tn GuömundurRE 700 tn Sæberg SU 220 tn Örn KE 300 tn AlbertGK 270 tn RauðseyAK 200 tn Pétur JónssonRE 320 tn Loftur Baldv. EA 460 tn IsleifurVE 250 tn Keflvikingur KE 260 tn Óskar Magnúss. AK 450 tn MagnúsNK 220 tn NáttfariÞH 230 tn Sæbjörg VE 290 tn Gisli Árni RE 400 tn Huginn VE 400 tn VörðurÞH 190 tn BörkurNK 700 tn ArnarHF 210 tn Lárus Sveins. SH 220 tn Asberg RE 360 tn HelgalIRE 230 tn Reykjaborg RE 320 tn Þórkatla II GK 130 tn Höfrungur III AK 250 tn Stjórnarráðið lokað vegna útfarar Hermanns Jónassonar Vegna útfarar Hermanns Jónassonar, fyrrverandi for- sætisráðherra, verður Stjórnarráðið lokað frá kl. 13.00 til kl. 15.00 i dag. Feröanefnd Feröafélags tslands. (Tímamynd Gunnar). 210 ferðir á Ferðafélags óætlun íslands Næsta órbók verður um Fjallabaksveg syðri Ferðaáætlanir félags- deildanna úti á landi FB—Reykjavik. Feröafélag ís- lands hefur gefið út feröaáætlun fyrir áriö 1976. t henni eru áætlaö- ar 210 feröir, sem skiptast þannig: Sumarleyfisferöir 24, tveggja og þriggja daga ferðir 79, þar af 36 I Þórsmörk, 17 í Land- mannalaugar og 9 á Kjöl. Styttri ferðir veröa alls 107. t siðasta ári var alls farin 201 ferö á vegum félagsins, og farþegar I þeim voru 5902, en þar af voru um 700 út- lendingar. Ferðanefnd Ferðafélags ís- lands skýrði blaðamönnum frá starfsemi félagsins á blaða- mannafundi. Þar kom fram, að á siðasta ári voru farnar 50 ferðir i Þórsmörk, og fóru þær 2409 farþegar. I Landmannalaugar voru farnar 14 ferðir með 453 farþega. Þrettán ferðir voru farn- ar á Kjalarsvæðið með 327 farþega. Ferðir.sem stóðu lengur en fjóra daga voru 14 og farþegar i þessum ferðum voru 318. Fararstjórar i ferðum félags- ins voru 53 talsins. Tveir erlendir ferðahópar voru hér á vegum félagsins siðastliðið sumar, frá Bretlandi og Bandarikjunum, og voru ferðamenn i þessum hópum 35. 1 ferðaáætlun þeirri, sem nú hefur verið gefin út, er i fyrsta sinn skrá yfir ferðir félagsdeilda F1 úti á landi, en þær eru: Ferða- félag Skagafjarðar, með 7 ferðir, Ferðafélag Akureyrar með 33 ferðir, Feröafélag Húsavikur með 6 ferðir, Ferðafélag Fljóts- dalshéraðs með 4 ferðir, Ferða- félag Vopnafjarðar með 2 ferðir. Birting ferðaáætlana félags- deildanna úti á landi er hugsuð sem hagræðing fyrir fólk, sem gjarnan vildi notfæra sér þessar ferðir ef það væri statt úti á landi. Einnig hyggst Fí hafa samstarf við þessi félög þannig, að ekki sé veriö að skipuleggja ferðir á þess vegum hér i Reykjavik á sömu staði og deildirnar hafa ferðir heldur sé þeim slegið saman. Ætti á þann hátt að vera hægt að fá mun betri nýtingu hverju sinni. Fræðsluferðir með sér- fróða fararstjóra 1 ráði er að fara stuttar fræðslu- og kynnisferðir á laugardögum 12.1% minna bvaat í Revkiavík '75i en '74 — Meðalstærð íbúða 33 rúmmetrum meiri FB-Reykjavik. Lokiö hefur verið viö að byggja i Reykjavík áriö 1975 82.004.1 fermetra, og 586.956 rúmmetra, eða 12.1% minna en áriö á undan, aö þvi er segir i skýrslu byggingarfulitrúans i Reykjavik. Er hér um að ræða byggingar ibúöarhdsa, skóla, iþróttahúsa, f éla gs heim ila, verzlunar og skrifstofuhúsnæöis, iönaðar og verksmiöjuhúsnæöis, bilskúra og geymslna. Meðalstærð nýbyggðra ibúða á árinu er ca 392 rúmmetrar, eða um 33 rúmmetrum stærri en árið 1974. t smiðum nú um áramótin voru 1316 ibúðir og eru þar af 539 fok- heldar eða meira. Á árinu var hafin bygging 741 nýrrar ibúðar. Lokið var við 175 ibúðum færra árið 1975 heldur en árið áður, og hafin bygging 45 ibúðum færra en árið 1974. Ibúða yfirlit yfir árin 1970-1975. 200 óra afmæli bandarísku byltingarinnar: Hátíðardagskrá hjá AAenningarstofnuninni Bandarikjamenn minnast á þessu ári að 200 ár eru liðin frá bandarisku byltingunni og verða þar i landi mikil hátiöahöld á þessum merku timamótum. Menningarstofnun Bandaríkj- anna á Islandi byrjar hátiðardag- skrá sina dagana 2. til 13. febrúar n.k. með nýstárlegri sýningu á landakortum af Bandarikjunum, sem gerð hafa verið á s.l. 450 ár- um. A sýningunni verða um 37 kort og skyld skjöl og er elzta kortið frá 1525eftir Laurentius Fries. Er um að ræða frumútgáfu á öllum sýningarmunum, að þvi undan- skildu að eftirprentun er af Vin- landskortinu fræga. Kortin og skjölin oru öll frá John Judkyn-minningarstofnuninni i Freshford Manor við Bath i Bret- landi, sem hefur það markmið að kynna og auka tengsl við Banda- rikin með söfnun frumrita af kortum og skjölum. í safni stofn- unarinnar er nú að finna þúsundir muna, sem varpa ljósi á þróun sögu og menningar Bandarikj- anna. Auk korts Fries frá 1525 er kort eftir Sebastian Munster frá 1545, kort eftir Gastaldi frá 1548 og kort úr „Landafræði Ptolemys” frá 1561, sem gefin var út á ítaliu. Gefa sýningarmunirnir á mjög ljósan hátt til kynna vaxandi þekkingu mannsins á Nýja heiminum og heiminum, sem hann lifir i i dag. Er einkum at- hyglisvert að fylgjast með hvernig þekking kortagerðar- manna vex á hinum miklu land- könnunartimum 16. og 17. aldar- innar. A sýningunni eru einnig nokkur ný yfirlitskort til að auðvelda gestum að gera samanburð á verkum frumherjanna á sviöi kortagerðar. M.a. má þar nefna kort frá 1970 af New York og kort frá 1777 af New Yorkhéraði. Sýningin verður opin alla virka daga frá kl. 13-19, laugardag og sunnudag kl. 13-17. Fullgerðar ibúðir tbúðir i smiðum Fokheldar ekki fokheldar Hafin bygging á nýjum Ibúðum 1975 743 539 777 741 1974 918 606 712 786 1973 794 859 591 1133 1972 902 423 688 895 1971 530 711 407 664 1970 640 509 475 685 Allmikill samdráttur hefur oröiö i byggingum I Reykjavik, ef fram- kvæmdir áriö 1975 eru bornar saman viö framkvæmdirnar áriö áöur. um nágrenni Reykjavikur. Ætluniner, aðkynnt verði sérstök viðfangsefni, bæði varð- andi sögu, náttúrufræði, jarð- fræði og fleira, sem forvitnilegt þykir. 1 þessum feröum verða fræðimenn á hverju sviði leið- sögumenn hópsins. Slikar ferðir voru farnar litillega á siðasta ári, og var mikill áhugi á þeim. Þá voru t.d. farnar fjöruskoðunar- ferðir og ferð á Esju, þar sem náttúra og jarðfræði voru aðal- áhugamál þeirra, sem I ferðinni voru. Sögðu Ferðafélagsmenn, að greinilegt væYi, að i þessar ferðir kæmi fólk, sem hefði sérstök áhugamál, og vildi afla sér þekkingar með þvi að njóta leið- sagnar fræðimanns. Næst þannig þátttaka sérstakra áhugamanna- hópa, sem annars væru ef til vill ekki meðal þátttakenda i ferðum Fí. Námskeið fyrir farar- stjóra Enn ein nýjung i starfi Ft á þessu ári verður námskeið, sem haldið verður i marz. Þar verður mönnum kennd meðferð átta- vita, kortalestur og einnig hjálp i viðlögum. Þetta námskeið verður haldið i samvinnu við Hjálpar- sveit skáta. Reiknað verður með, að haldin verði að þessu sinni tvö námskeið og hámarksfjöldi þátt- takenda i þeim báðum verði um 50manns.Verðigreinilegur áhugi á námskeiðunum, er i ráði að endurtaka þau aftur næsta haust. Vonast Ferðafélagsmenn til þess, að með þessum námskeið- um komi fram nýir fararstjórar, en auk þess sem áður hefur verið talið upp, og fjallað verður um á námskeiðunum, verður kynntur ferðaútbúnaður og ferðaklæðnað- ur, svo nokkuð sé nefnt. Árbók Ferðafélagsins Næsta árbók Ferðafélags ts- lands sú 49. i' röðinni mun fjalla um Fjallabaksveg syðri, leiðina frá Keldum og austur i Álftaver. Bókina skrifar Árni Böðvarsson. Alla jafnan eru i undirbúningi nokkrar ferðafélagsbækur sam- timis, og af þeim, sem fyrirhug- aðar eru, en enn hafa ekki verið fullskrifaðar.má nefna bók um Þingeyjarsýslu austan Skjálfandafljóts, sem Jóhann Skaftason mun skrifa. Einnig verður skrifuð bók um öræfin, sem Kvískerjabræður munu sjá um. Þá hefur verið ákveðið, að ein árbókin i náinni framtið f jalli um Ódáðahraun. Höfundar Ferðafélagsbóka eru nú orðnir um 40 talsins. Aðalfundur og félagsmenn Aðalfundur félagsins verður næstkomandi þriðjudag, 3. febrú- ar. Verður hann haldinn i Súlna- salnum á Hótel Sögu. Er það gert með tilliti til þess, að geysileg þátttaka var i aðalfundinum i fyrra, ogkomust þá ekki allir inn, sem vildu. Félagar i Ferðafélaginu eru nú samtals 7094, þ.e. sem greitt hafa ársgjald sitt. Þar af eru 3724 i Reykjavik, 1873 úti á landi, og 13021 deildum úti á landi. Erlend- ir félagar eru 52, en auk þess eru i félaginu ævifélagar og heiðurs- félagar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.