Tíminn - 29.01.1976, Qupperneq 11

Tíminn - 29.01.1976, Qupperneq 11
Fimmtudagur 29. janúar 1976. TtMINN 11 son 18% - 1976 arflokknum töldu Sjálfstæðis- menn sig eygja von um aukið fylgi, og ekki vonlaust um þing- sætið ef vel klofnaði. — Leið svo fram til þess, er framboðsfundir voru haldnir. Urðu fundirnir fjörugir og nokkuð sögulegir. Allt var þó enn i óvissu. Kosningarnar 1934 voru sögu- legur viðburður. Mikil tiðindi voru að gerast. Nýir menn voru i framboði og úrslit tvi'sýn. Mest beindust augu manna að kosn- ingunum i Strandasýslu. Ef Framsóknarflokkurinn tapaði þingsæti þar og annars staðar, þá var sú umbótastefna, sem Framsóknarflokkurinn og Al- þýðuflokkurinn stefndu að, úr sögunni. Inn i þetta spannst svo „kollumálið” fræga og beindi sjónum manna að frambjóð- anda Framsóknarflokksins i Strandasýslu. Framboðsfundirnir hófust i Arnesi. Kvöldið áður en þeir hófust, komu allir frambjóðend- urnir hingað i Vikina og gistu hér, sinn á hverjum bæ. — Þeir Tryggvi og Kristján komu með varðskipi, en Hermann hafði komið landveg á hestum hingað norður. Sváfu þeir svo af um nóttina, en árla morguns veittu þeir, sem fyrstir voru á fótum, þvi eftirtekt, að maður stóð á efsta tindi Árnesfjalls, sem gnæfir yf- ir byggðina i vikinni. Vissu menn i fyrstu ekki hvers kyns var. En brátt kom i ljós, að þarna var Hermann Jónasson á ferð. Hafði hann risið úr rekkju siðla nætur og lagt á brattann, og lét ekki staðar numið fyrr en á efsta tindi f jallsins, sem þó er ekki auðveldur uppgöngu. Þarna, i skini upprennandi morgunsólar, stóð hann á tind- inum, og horfði yfir hið stór- brotna landslag byggðarinnar. Af tindinum blasti við sjónum hans þvi nær öll sveitin, með sina tilkomumiklu fjallatinda, dali, firði, vikur og voga. A sömu stundu hafði hann gert sér ljósa grein fyrir byggðinni, kostum hennar, möguleikum og göllum. Linur landsins lágu eins og opin bók fyrir fótum hans, mun skýrar en þeirra, sem að- eins horfa af jafnsléttunni. Framtið og örlög sveitarinnar voru honum augljós frá þessari stundu, það sagði hann mér sið- ar. Þótt ég þá vildi ekki fallast á að svo gæti farið, sannfærðist ég um það siðar að hann hafði séð rétt. Að þessari morgungöngu lok- inni kom Hermann heim hress og endurnærður, löngu áður en keppinautar hans risu úr rekkju. — Á tilsettum tíma mætti hann til leiks, sem allur varð honum i vil. Ég hygg, að þetta, sem hér er sagt frá, hafi verið dæmigert fyrir Hermann og sýnt, að hon- um var flestum öðrum eðlilegra að horfa á mál og málavexti of- an frá og með meira viðsýni en almennt gerðist. Menn Tryggva Þórhallssonar voru lengi á báðum áttum um hvað gera skyldi. Einn þeirra (Agnar á Hrauni) velti málinu lengi fyrir sér. En nokkru fyrir kosningarnar dreymir hann draum.sem tók frá honum allan vafa. Hann dreyndi, að til hans kom maður með þrjá sykur- mola og gaf honum kost á að velja sér einn mola. Agnar virti molana vandlega fyrir sér. Fljótlega hafnaði hann einum, en hinum tveim velti hann fyrir sér með gaumgæfni. Sér hann þá að annar molinn er laus i sér og finnst hann ekki þola mikinn þrýsting án þess að molna. En þá er eftir sá þriðji. Hann tekur Agnar i hönd sér og skyggnir hann við birtuna. Sér hann þá að molinn er steyptur úr hörðum kristöllum og fastur í sér. Virðir molann fyrir sér um stund og segir: Þessi er ekta. Þetta er SANNUR maður. Þennan kýs ég mér. — Þennan draum heim- færði Agnar á frambjóðendurna og molann, sem hann valdi sér, taldi hann tákn Hermanns Jón- assonar. Þar með var fylgi Agn- ars ráðið. — Þetta og annað si- aði út frá sér, og menn skildu tákn timanna. Að þessum kosningum lokn- um var Hermanni falið að mynda stjórn. Var það hin fyrsta VINSTRIstjórn hér á landi. Mörg og vandasöm mál biðu úrlausnar. Þau voru leyst af hendi með festu, skörungs- skap og manndómi, svo það mun verða dómur sögunnar, að i annan tima hafi ekki verið bet- ur stjórnað i atvinnumálum og fjármálum hér á landi við örð- ugar aðstæður. — Var þetta upphaf af löngum ráðherraferli Hermanns og þá lengstum sem forsætisráðherra, sem hann hefur verið lengur en nokkur annar islenzkur stjórn- málamaður til þessa. Auk umfangsmikilla stjórnar- starfa reyndist Hermann Jónas- son með afbrigðum ötull og for- sjáll fulltrúi kjördæmis sins. Á skömmum tima urðu verklegar framkvæmdir meiri i Stranda- sýslu en um langt timabil áður. I raun og veru mátti segja að kyrrstaða, sem rikt hafði fram að þessu i opinberum fram- kvæmdum væri rofin . Vegir voru lagðir, ár, sem fram að þessu höfðu verið illar yfirferð- ar og farartálmi voru brúaðar, hafnarbætur gerðar, þar sem þeirra var þörf, og si'ðast en ekki sizt simi lagður heim á næstum hvern bæ til ómetan- legra þæginda og öryggis i dreifðri byggð. Margt fleira mætti telja. Allt sýndi þetta hve vakandi auka hinn nýi þingmað- ur Strandamanna hafði á fram- kvæmdaþörf okkar. Skorti oft meira framkvæmdahug og þrótt heimamanna, en atfylgi þing- mannsins til þess sem gera þurfti. Var það þó augljóst, að meira var gertá ýmsum sviðum i þessu kjördæmi en öðrum á þessum tima. Það er engum ofsögum sagt, að strax eftir kosningasigur Hermanns Jónassonar vorið 1934 varð hann ástsæll fulltrúi Strandamanna, engu siður en fyrirrennari hans. Menn lærðu fljótt að meta manngildi hans, karlmennsku hans, atorku og óviðjafnanlegan drengskap, sem kom fram i öllum störfum hans, jafnt á opinberum vett- vangi og i fyrirgreiðslu við þá einstaklinga, sem aðstoðar þurftu og leituðu til hans. Menn fundu, hve gott var að njóta fyr- irgreiðslu hans, og af hvaða heilindum hún var i té látin. — Honum var ljóst, hve villugjarnt er fyrir ókunna og óreynda ein- staklinga að reka erindi sin i völundarhúsi skrifstofa og stofnana i Reykjavik. Ef hann vissi þörf manna, og til hans var leitað, var fyrirgreiðsla hans vis og þá örugg og afgerandi, svo hlutirnir gerðust án mikillar fyrirhafnar þiggjandans. Reyndi égþetta sjálfur og vissi, að sama var með fjölmarga aðra. Var þá ekki spurt um, hvort sá, er þurfti liðsinnis við, væri flokksmaður hans eða ekki. Þar voru allir jafnir. Þetta kunnu menn vel að meta og geymdu i þakklátum huga, og með þessu ávann hann sér vináttu og virðingu sérhvers manns, sem samskipti átti við hann. Ég held, að óhætt sé að fullyrða, hvernig sem menn krossuðu við kjörboðrið, hafi Strandamenn allir borið til hans hlvjan vinarhug. Það sýndi sig við mörg tæki- færi, svo sem er Strandamenn heiðruðu hann með samsæti í tilefni 25 ára þingmannsferils hans, og aftur er hann hafði lát- ið af þingmannsstörfum sökum heilsubrests. Þá voru pólitiskir andstæðingarhans framarlega i flokki og mæltu til hans vináttu og viðurkenningarorðum. Orð- um, sem ekki voru tækifæris- uppgerð, heldur komu beint frá hjartans rótum og voru af heil- um huga mælt. Slikt kunni hann vel að meta og var vel að skapi. Áður en ég skilst við þennan þátt um samskipti Hermanns við kjósendur sina, ætla ég aö segja frá einum slikum atburði. t sem segir meiraum manninn og gerðhans en þó lengra mál væri skrifað. Oft hefur veðráttan verið okk- ur Árneshreppsbúum erfið og harðhent, svo að til vandræða hefur horft. Veturinn 1949 var einhver sá harðasti, sém núlif- andi menn muna. Hitt tók þó út yfir, hvað vorið var vont. Segja mátti, að vetrarveðrátta rikti fram i endaðan júni og skepnur á gjöf. Hey voru gengin til þurrðar hjá nær öllum og vá fyrir dyrum. Þá voru heyflutn- ingar milli landshluta ekki orðnir eins algengir og siðar hefur orðið með nýrri heybindi- tækni og flutningaleiðum, svo Ur vöndu var að ráða. Hermanni Jónassyni var þá sagt frá vand- ræðum okkar og hann beðinn aðstoðar. Verður lengi i minn- um haft, hvernig hann brást við þeim vanda. Ekki voru nema fáirdagar liðnir, þegar sérstakt skip kemur hingað fermt af ilm- andi og grænni töðu i sekkjum. Þessum dýrmæta feng var út- hlutað. Skepnum okkar var borgið. Þegar farið var að leita eftir hjá Hermanni, hvað heyið kostaði.kom svarið: „Þettahey átti ég sjálfur og þurfti ekki að leggja út fyrir það. -Það kostar ekki neitt”. Og siðan bætti hann við: „Björn, afi minn, miðlaði oft heyjum, en seldi aldrei”. Þetta var dæmigert fyrir dreng- lund hans og úrræði. Öllum, sem kynntust Her- manni Jónassyni nokkuð, verð- ur hann eftirminnilegur. Ber þar margt til. Sumt af þvi hefur þegar komið fram i þvi, sem hér hefur verið sagt um hann, og samskipti hans við okkur kjós- endur hans. Hann var góðum og margþættum gáfum gæddur. Að ytra útliti var hann imynd karl- mennsku og hreysti, meðan hann naut heilsu. Hann var gáf- aður og djúphygginn, gæddur skáldlegu, jafnvel spámannlegu innsæi, likt og hann sæi fyrir óorðna hluti, viðsýnn og frjáls- lyndur. Lausviðalla smámuna- semi. Svipmikill og mikil festa i svipnum. Geðrikur skapmaður, en þó mildur og bliður og mikil birta i svipnum: Sannur höfð- ingi i sjón og raun. Það var i senn ánægjulegt og lærdómsrikt að kynnast Her- manni Jónassyni. Þess nutu lika margir. Hann var vinmargur og vinfastur. — Gott var að koma á heimili hans og hinnar ágætu konu hans, Vigdisar Stein- grimsdóttur. Þar var okkur kjósendum hans, og öðrum, tek- ið opnum örmum, og þar vorum við leiddir til stofu og veittur hinn bezti beini. Gilti einu, hvort við komum einir eða fleiri sam- an. öllum var jafnvel fagnað. Þurfti þá margs að spyrja heiman úr kjördæminu og um hagi hvers og eins. Ef lengur var setið, beindist talið að ýms- um hugðarefnum hans, svo sem iþróttum, listum og skáldskap, en sizt að stjórnmálum. Hann var mikill listunnandi og fagur- keri. Um það bar hið fagra heimili hans gleggstan vott. 1 þvi hygg ég, að þau hjónin hafi átt saman sin hugðarmál sam- an. eigi siður en á öðrum svið- um. — Oft var það, að hann leiddi gesti sina að bókaskáp sinum og dró fram ljóðabók og las okkur kvæði, sem hann hafði mætur á, með djúpri lotningu. Hygg ég, að hann hafi haft sér- stakar mætur á Einari Bene- diktssyni sem skáldi, enda vitn- aði hann oft i Einar Benedikts- son i ræðum sinum og einkavið- ræðum. Þar fór saman mannvit og djúp skáldhyggja. Eitt sinn er ég var einn i heimsókn hjá honum, sýndi hann mér ljósrit af frumhandriti ljóða Jónasar Hallgrimssonar, sem hann hafði þegið að gjöf. Hann fór höndum um bókina með mikilli lotningu og viðkvæmni. „Þetta er ger- semi”,sagði hann. — „Og að sjá hvaða vinnu skáldið hefur lagt i að fága og breyta, þar til það fegursta og bezta er fengið.” — Mér fannst ég kenna saknaöar i rödd hans, að hann sjálfur skyldi ekki hafa haft tima eða tækifæri til slikrar iðju. — Til þess hygg ég, að hann hefði haft hæfileika, hefði hann lagt rækt við þá. Hermann var ágætur ræöu- maður, þó ekki mælskur, eins og það er kallað, fyrr en i harð- bakka sló, en rökvis og rökfim- ur. Ræður hans voru gæddar skýrri hugsun, djúpri hyggju og alvöruþunga. Ræður hans, svo sem við áramót, áramótagrein- ar hans og ávörp við sérstaka atburði báru af um þetta, og ég hef oft hugsað til þess, að þar væru geymdar gersemar, sem bezt sýndu manndóm hans vizku og heita réttlætiskennd. Væru þær verðugt bókarefni til minningar um hann i stað þess aðgeymastá gulnuðum blöðum og gleymast. „Þetta geymi ég og les stund- um. Mér finnst meira af þvi mega læra en mörgu öðru, sem lesið er”, sagði gömul ná- grannakona min eitt sinn við mig um leið og hún dró undan koddanum sinum gamalt Tima- blað með áramótagrein eftir Hermann Jónasson. — Þetta fannst mér athyglisvert og ábendandi. Éghefhér rakiðnokkuð kynni min og annarra, eftir þvi sem það getur átt við um aðra en sjálfan mig, af Hermanni Jón- assyni meðan hann var fulltrúi okkar Strandamanna, heill heilsu og gat neytt þess mann- dóms, sem hann var gæddur i rikum mæli. Af þingmennsku lét hann fyrir nær áratug, þá þrot- inn að heilsu. Var hann þá búinn að búa við heilsubrest um nokk- ur ár. Fast að áratug er hann búinn að vera ósjálfbjarga. Lengst af þeim tima hefur hann ekki mátt hönd hræra eða mál mæla. Það var ömurlegt að vita hann verða þeim örlögum að bráð. Oft var tvisýnt um lif hans.Sterkthjartahans tafði þó fyrir þeim leikslokum, þar til nú. Löngu og ströngu sjúkdóms- striði afburðamanns er lokið. Lausnin er fengin. Tvivegis kom ég heim til hans, eftir að hann var orðinn sjúkur. t fyrra sinn hafði hann enn nokkra fótavist og gat með erfiðismunum gertmér skiljan- leg nokkur orð. Mér rann til Hermann Jónasson er látinn. Þar með er lokið ævi manns úr hópi merkustu Islendinga á þessari öld. Ævi, sem markaði dýpri spor i islenzka sögu um áratugaskeið, en titt er, jafnvel um stjórnmálamenn. Ævi karl- mennsku og glæsileika. Ævi mikilla sigra til æðstu trúnaðarstarfa. Og að lokum karlmennskuraunin mikla, barátta við óvænta og ósigrandi vanheilsu fullan áratug þar til yfir lauk. Þessi ævi er liðin, en eftir stendur minning okkar um at- burðina, okkar, sem ýmist voru áhorfendur eða þátttakendur i sögunni sem var að gerast. Þeir, sem staddir voru á stjórnmálafundinum að Hólma- vik I júni 1934, þeir munu flestir muna hann enn. Þá réðust mikil örlög og hygg ég, að sá fundur hafi ráðið úrslitum um kosninguna i Strandasýslu það ár, og þar með verið kveikjan að löngu og gifturiku samstarfi Hermanns Jónassonar og Strandamanna. Það var gaman að vera ungur á þeim árum og njóta forystu og handleiðslu þessa vitra og karl- mannalega manns, sem kom óvænt eins og skrugga, sá og sigraði. Sambandið milli Hermanns rifja að sjá, hver breyting var á orðin. En hlýleiki hans i minn garð var sá sami. Hann hrein- lega vafði mig örmum, eftir þvi sem hann hafði mátt til, og tár blikuðui augum hans. Gleðitár? — Þegar ég gekk frá honum i það sinn, rifjaðist upp i huga mér brot úr erfiljóði um Hannes Hafstein, sem ég las i blaði fyrir áratugum og ég held að hafi verið eftir Þorstein Gislasori. Þar er þetta: „Og þinn var kraftur þrotinn, þinn þrekni vængur brotinn. Hjáfrónskum lýð hinn frækni foringi gleymist ei.” Mér fannst þetta eiga við að- stæðurnar. Það kom sem kall úr hugarfylgsnum. I fyrravetur kom ég ásamt öðrum fornvini hans til hans. Þá var hann eins og blaktandi skar, sem er að brenna út. — Aðeins gat ég merkt, að hann væri að reyna að bera fram nafn sveit- unga mins. Þá vissi ég, að hugur hans var sá sami, þó að tungan yrði ekki hrærð til orðmyndun- ar. Ég lýsi þvi ekki frekar. Við tveir vinir hans frá fyrri árum gengum hljóðir frá beði hans. Okkur varþungt ihuga. — Nú er hann látinn. Guði sé lof fyrir h'f hans og starf, fyrir þjóð okkar og fósturjörð, sem hann unni og sýndi svo margvislega ást sina i verki, meðan hann gat. Við Strandamenn þökkum honum langa, farsæla og giftu- rika þjónustu við okkur sem ein- staklinga og i heild. — Konu hans, börnum hans og öðrum vandamönnum sendum við hug- heilar samúðarkveöjur okkar. Að lokum tilfæri ég niðurlags- erindið úr áðurnefndu erfiljóði: Nú heill tíl himna landa þú heldur striðið eftir, með vonarvængi þanda, sem verða ei framar heftir. Sem svanur svif þú veginn, mót sólu lausnu feginn. Frá ættjörð fylgja ómar: Alvaldur blessi þig.” Bæ, Ásneshreppi, 25. janúar 1976, Guðmundur T. Valgeirsson. Jónassonar og Strandamanna um árabil var athyglisvert. Hermann var allra manna lausastur við smjaður og kjósendadekur og samband hans við Strandamenn byggðist ekki á hömlulitilli fyrirgreiðslu- pólitik, eins og suma hendir, heldur á gagnkvæmri virðingu fyrir mannlegum eigindum. Vegna áratuga fjarveru úr heimabyggð minni skortir mig grundvöll til að flytja hér kveðjur og þakklæti alls þorra Strandamanna til Hermanns Jónassonar, en fullviss er ég þess, að meginhluti hinnar eldri kynslóðar, þar i héraði. muni taka undir þær kveðjur og gera þær að sinum. Sjálfur er ég ákaflega þakklátur fyrir að hafa kynnzt Hermanni Jónassyni, fyrst sem meðreiðarsveinn i snarpri orrustu, siðar um árabil i félagslegu starfi. Ég er þakklátur fyrir það traust. er hann jafnan sýndi mér jafnvel þó óverðskuldað væri. Mikilhæfri konu hans, sem lagði svo fagurlega sitt lif við hans lif, flyt ég samúðar- kveðjur svo og niðjum hans. Gunnar Grimsson. Mannsævi, sem markaði djúp spor

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.