Tíminn - 01.02.1976, Page 7
TÍMINN
7
HELGARSPJALL
Ingi Tryggvason:
Vegir eða vegleysa?
Oft fáum við að heyra, að
vissir þættir samf'önguinála
okkar séu tneð næsta frumstæðu
sniðí. Landið er stórt og strjái-
býlt, og þótt unnin hafi verið
stórvirki i samgöngumálum á
þessari öld, blasa hvarvetna við
hálfunnin eða óunnin verkefni.
Tæpast finnst sú höfn i landinu,
að þar sé ekki auðsæ þörf á stór-
framkvæmdum i náinni frant-
tið, flugvellir eru ntargir og
rnikið notaðir, en llestir þeirra á
ýmsan hátt stórlega vanbúnir.
Sjaldan hljóta vegir okkar
mikið lof, jafnvel við beztu
skilyrði um hásumarið.
Ærið er þó misjafnt, hvernig
örðugleikar samgangna koma
við landsfólkið.
Á þéttbýlasta svæði landsins
eru vegir með nútimasniði, og
komi á þá snjór, sem sjaldan
verður að marki, er hann fjar-
lægður hið bráðasta. í snjó-
þyngri landshlutum er viða
varið umtalsverðu fé til að
hreinsa snjó af vegum og
tryggja þannig samgöngur, en
oft fer það tvennt saman, að
moksturinn er ófullnægjandi, og
þó dýr þeim sem hans njóta. Ef
snjóþvngsli verða mjög mikil,
má heita ógjörlegt að lialda
lágum vegum opnum með þeim
tækjum, sem liingað til hafa
einkum verið notuð, þ.e. vcg-
lieflum og jarðýtum. Hefur þá
oft orðið að bregða á það ráð að
nota jarðýtur til vöru flutninga,
og er það algjört neyðarúrræði
kostnaðar vegna.
A undanförnum árum hafa
nýir vegir i snjóasveitum verið
byggðir mun hærri en áður tiðk-
aðist. Þessir vegir cru alldýrir,
en að öðru leyti hafa þeir ótvi-
rætt sanuað ágæti sitt i vetrar-
snjóum og valdið algjörri bylt-
ingu i samgöngum, þar sem
þeirra nýtur.
i sjóþungum sveitum, þar
sem vetrarsamgöngur voru
áður næróleysanlegt vandamál,
verjastnýir vegarkaflar i flestu
tiðarfari, og komi á þá snjór,
sem vissulega getur orðið við
ákveðin veðurskilyrði, er til-
tölulega auðvelt að losna við
hann. Þessir nýbyggðu vegir
hafa i reynd sannað, að þeir eru
raunhæf lausn á þeim sam-
gönguvanda, sem enn er þvi
miður allt of viða óleystur.
Fyrirkoinulag á snjómokstri
af þjóðvegum er með ýmsum
liætti. i snjóþyngri héruðum er
vfirleitt mokað með ákveðnu
Ingi Tryggvason.
millibili, á kostnað rikisins,
sums staðar vikulega eða meö
lengra inillibiii, sums staðar
tvisvar á vetri. Allvíða er það
svo, að vegagerðin kostar
aðeins fyrsta og siðasta
mokstur vetrarins. Sé mokað
oftar, verður kostnaður af þvi
að greiðast af hálfu af viðkom-
andi byggðarlagi. Þeir sem við
þessar aðstæður búa. bera þvi
ekki aðeins þann kostnað, scm
af þvi hlýzt að þurfa iðulega að
heita tækjum sinum í erfiðri
færð, hcldur verða þeir að bera
verulegan aukakostnað af þvi
að iialda þjóðvegiinum færum
vegna nauðsynlegustu sam-
gangna.
Það er oft talað um þörf þess
aðjafna aðstöðu manna tii lifs-
framfæris i þessu landi. Á sum-
íim sviöum liefur raunverulegur
jöfnuður náðst. Allinargar
vörutegundir svo sem bensin og
flestar landbúnaðarvörur, eru
seldar með sama verði um allt
land.Á ýmsum öðrum nauðsyn-
jum er mjög tilfinnanlegur
verðmunur, svo sem orku til
húshitunarog annarra heimilis-
nola. Þeh- sem við hærra verð-
lag búa, greiða lika meira til
þarfa þjóðfélagsins, þar sem
söluskattur er lagöur á heildar-
verð vörunnar i smásölu. Kkki
miðar það að auknu réttlæti.
Unniðerað þvi að finna leiðir til
aukinnar verðjöfnuiiar, en þvi
verki miðar hægt. I.itil þjóð i
svo stóru lamli sem island er,
hlýtur þó ekki aðeins að leggja
kapp á að hyggja landið allt,
lieldur einnig að veita þegnun-
uni sein jafnasta samfélagslega
þjónustu, án tillits til búsetu i
sveit í‘ða við sjó.
Kinn þátturinn i þeirri jöfnun
lifsaðstöðu, sem við hljótum að
stefna að, er bættar samgöngur.
Vist liöfum við nú um sinn
nauman skerf til sameiginlegra
fi-amkvæmda ilandinu. Þó hygg
ég, að á fáuni árum gætum við
komið vegunum upp úr snjón-
um, ef við heindtim vegafé fyrst
og fremst að þvi verkefni. öII-
um þykir sjálfsagt að halda
þjóðvegum færum á sumrin.
Þjóðvegir um sveitir og milli
lielztu bvggðarlaga þurfa engu
siöur að vera færir á vetruni en
sumrum. Keynslan sýnir, aö svo
getur orðið. Það kostar að visu
lé, en sparar lika marga krón-
una. Kkki vil ég gera á nokkurn
liátt litið úr hágkvæmni þess og
nauðsvn að leggja varanlegt
slitlagá vegi. Slikir vegir koma.
og. þeir hreyta landi okkar og
bæta það. Kn lyrst af öllu þurf-
uni við að sinna frumþörfunum.
gera þjóðvegi okkar færa án til-
lits til árstiða. Að þvi verkefni
a'ttum við að beita okkur af
fullri einurð næstu árin. Þeir
sem vegleysið þekkja af eigin
’ reynd, myiidii meta slikt fram-
tak flestu fremur.
fflM— | SVEFNBEKKJA
|xs>jr^.3MT|
Höfðatúni 2 - S(mi 15581
Röykjavík
ATHUGIÐ! Nýir eigendur. -----------,----------
breiðir, stækkanlegir. Svefnstólarog svefnsófasett væntanlegt. Falleg
áklæði nýkomin.
Gjörið svo vel að lita við eða hringja. Sendum gegn póstkröfu um land
allt. Opið til kl. 22 þriðjudaga og föstudaga og til kl. 1 laugardaga. —
Athugið, nýir eigendur.
Endurnýja
gamlar myndir
og stækka
Sendiö mér myndirnar
og ég sendi þær til
baka í póstkröfu.
Ljósmyndastofan
Mjóuhíiö 4.
Sími 2-30-81
Opiö frá kl. 1-7.
rm Kópavogur—
gæzluvöllur
Ákveðið hefur verið i tilraunaskyni að
breyta opnunartima Brekkuvallar gæzlu-
vallarins við Þverbrekku sem hér segir:
kl. 10-12 og 13-16 rúmhelga daga.
Félagsmálaráð.
ÚTSALA NÆSTU DAGA
VEGGFOÐUR 100 fermetrar á
Verð d rúllu frd kr. 100 3j)úsun(/ kr,
15% afsldttur
af nýjum vörum í tilefni
útsölunnar
TORKOSTLEG
VERÐLÆKKUN
10 lítra fötur með
PLASTMÁLNINGU
d aðeins kr. 3.000
VEGGFOÐUR
VEGGSTRIGI
GÓLFDÚKUR
Gripið tækifærið strax
og sparið ykkur stórfé
50%
afsláttur
á Sadolin
málningu —
þ.e. 10 I fata á
kr. 4.500
VIllKNI i"
Veggfóður- og málningadeild
Ármúla 38 — Reykjavik
Símar 8-54-66 og 8-54-71
Opið til 10 d föstudögum og hddegis d laugardögum