Tíminn - 01.02.1976, Síða 19

Tíminn - 01.02.1976, Síða 19
Sunnudagur 1. febrúar 1976. TtMINN 19 Sigfús Halldórsson meö aimanakið, sem Hjálparsveit skáta í Kópavogi hefur látiö prenta, meö mynd af oiiumálverki eftir Sigfús. Verk Kópavogsmálara áalmanökum Hjdlparsveit skáta i Kópavogi hefur i hyggju að gefa árlega út stórt almanak með eftirpreritun af málverki eftir Kópavogsbúa. Fyrsta almanakið er þegar kom ið. Á þvi' er eftirprentun af mál- verki eftir Sigfús Halldórsson. Málverkið á almanakinu málaði Sigfús árið 1965. Viðfangsefnið er bryggjan á Kársnesi. 1 baksýn eru Gálgahraun og Keilir. Svo skemmtilega vill til að lengst til vinstri á málverkinu sér i hús það sem Hjálparsveitin hefur aðsetur i. Otgáfa þessa almanaks er i fjáröflunarskyni fyrir starf H j á lp a rs v ei ta r i nna r . A almanakinu er listi yfir fyrirtæki i Kópavogi, og simanúmer þeirra. Sunnlendingar Framsóknarfélögin i Hveragerði og ölfushreppi gangast fyrir almennum fundi um landhelgismálið i Hótel Hveragerði næst- komandi sunnudag kl. 14. Dagskrá: 1. Framsöguerindi flytja: Steingrimur Hermannsson Lúðvik Jósepsson Pétur Guðjónsson Sighvatur Björgvinsson Magnús Torfi Ólafsson. 2. Frjálsar umræður 3. Framsögumenn svara fyrirspurnum. Fundarstjórar verða Páll Pétursson og Sigurður Jónsson. STUTT ATHUGA- SEMD Vegna þeirra lesenda Timans sem kunna að hafa lesið pistil Marteins M. Skaftfells um náttúrulækningafélagið 23. jan. og ekki hafa fylgzt með orða- skiptum okkar Marteins undan- farið, vil ég biðja blaðið fyrir stutta athugasemd. Þessi grein Marteins er efnis- lega endurtekning á þremur greinum hans i Dagblaðinu, 6. og 19. des. og 12. jan., en aðalinntak þeirra er þetta: Við Arni Ásbjarnarson og stjórn NLFl viljum „sölsa” undir okkur Pöntunarfélag NLFR og NLF-búðirnar. Hér eru höfð svo rækileg hausa- vixTá hlutunum, að það er stjórn pöntunarfélagsins og tveir fundir i þvi félagi, sem samþykktu til- lögu þess efnis, að pöntunarfélag- ið skyldi sameinað NLFÍ undir stjórn náttúrulækningafélagsins. Þetta viöurkennir Marteinn sjálfur, bæði i Timagreininni og i Dagblaðinu 29. des. Og þar með er allur hans málflutningur hrun- inn i rúst, og þá ekki siður þær ósæmilegu og dólgslegu dylgjur, sem hann lætursérsæma, i annað skipti á fáeinum vikum, að bera fram i garð frú Arnheiðar Jóns- dóttur, forseta sNLFÍ, þar sem hann ber henni á brýn „heimsku- pör” og „blygðunarlausa ófyrir- leitni og lögleysur”. Reiði hans og hugarangur eru skiljanleg þeim sem vita, að fyrirtæki, sem honum er annt um, á hagsmuna að gæta i sambandi við rekstur og stjórn NLF-búð- anna. 26. jan. 1976 Björn L. Jónsson Árshátíð Barðstrendingafélagsins i Reykjavik verður haldin i Domus Medica, laugar- daginn 7. febrúar og hefst með borðhaldi kl. 19. Dagskrá: Ávarp Ræða. Skemmtiatriði Dans. Aðgöngumiðar verða seldir i Domus Medica, miðvikudaginn 4. febrúar og fimmtudaginn 5. febrúar kl. 16-19 báða dagana. Borð tekin frá á sama tima. Stjórnin. Útboð Leiguibúðanefnd Stykkishólmshrepps auglýsir hér með eftir tilboðum i byggingu 8 ibúða i fjölbýlishúsi að Skúlagötu 9, Stykkishólmi. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu sveit- arstjóra Stykkishólmshrepps, Aðalgötu 10, Stykkishólmi, gegn 10.000.00 króna skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað 1. marz 1976 kl. 14. Leiguibúðanefnd Stykkishólmshrepps. ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ VIÐ GRENSÁSVEG ® 58 22 BORGARHUSGOGN HREYFILL 85522 LITAVER ÞJONUSTUMIÐSTÖD VIÐ GRENSÁSVEG

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.