Tíminn - 01.02.1976, Side 28
28
TÍMINN
Súrinudagúr 1. febrúar 1976.
ItiaKita.
rafmagnshandf ræsari
★ Aflmikill 1500 watta
mótor
★ 22000 snún./mín.
★ Léttur, handhægur
★ Aleinangraður
★ Innifalið í verði:
★ Verkfæri
★ Karbíttönn
★ Lönd o.fl. o.fl.
★ Hagstætt verð
Leitið upplýsinga um
aðrar gerðir Makita
rafmagnsverkfæ ra
_ 1 □ 1
1 SÍMI 01500-ÁRI n
SAOLATI 1
BÍLALEIGANl
EKILL :ord Bronco I
Land- Rover
Cherokee
Blazer
Fiat
VW-fólksbílar
Nýtt
vetrarverð.
SÍMAR: 28340-37199
ILaugavegi 118
Rauðarárstígsmegin
DATSUN .
7,5 I pr. 100 km
Bilaleigan Miðborg
Sendurn'31 1-94-921
O Menning
hlifastviðaðbenda áhvað betur
mætti fara, þar sem honum
sýnist svo og það sizt að lasta.
En hægra er að kenna heilræðin
en halda þau. Hann segir t.d. i
umvöndunartóni, um grein
Kristjáns Eldjárns, að þar ægi
saman alls konar öldum og
hljóti að vefjast fyrir og vera ill-
skiljanlegt lesendum. Svo nefnir
hann sjálfur sumar þessar sömu
aldir. Mér er ekkert ljósara
hvað vikingaöld og miðöld tákn-
ar i ritdómi Sveinbjarnar en i
þætti Kristjáns i bókinni. Það
finnst mér vorkunnarmál.
Mér finnst það kostur á þess-
ari sögu, að hún er yfirleitt hóf-
lega rituð og höfundarnir gera
sér far um að greina milli þess,
sem vitaðeroghins sem gizkað
er á. Stundum koma fram mis-
munandi getgáturum sama efni
eins og fjölda landsmanna. Það
er gott þar sem i bæði skiptin er
þess getið að um sé að ræða
ágizkanir aðeins.
Með þessu yfirliti vænti ég þá
að á það sé bent, að Skirnir er að
þessu sinni þannig úr garði
gerður, að fellur inn i almennar
umræður um islenzkar bók-
menntir, tungu menningar og
sögu á liðandi stundu. Sá er lika
tilgangur hans. Og þeim til-
gangi nær hann engu siður, þó
að sumt af efni hans sé þannig
að ýmsum þyki ástæða til
athugasemda og andmæla.
Þessu öllu vildi ég vekja athygli
á. Sé þeim svo þökk sem að
þessu hafa unnið.
H.Kr.
Útboð Framkvæmdanefnd leiguibúða i Borgar- nesi óskar eftir tilboðum i að byggja og fullgera 9 ibúðir að Kveldúlfsgötu 28, Borgarnesi. Útboðsgagna má vitja á verkfræðiskrif- stofu okkar Ármúla 4, Reykjavik og á skrifstofu Borgarneshrepps, Borgarnesi, gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Borgar- neshrepps, föstudaginn 20. feþrúar kl. 11 f.h. \tsr VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN sf ÁRMÚLI 4 REYKJAVlK SlMI 84499
Félagsskapur óskar eftir jörð eða landsspildu undir sumarhús. Æskilegt að landið liggi að á, vatni eða sjó. Þeir sem vildu sinna þessu, sendi svör með sem gleggst- um upplýsingum til afgreiðslu blaðsins fyrir 20. febrúar n.k. merkt Sumarland 1885.
Laus skrifstofustörf Störf ritara og bókara (bókhaldsvél), eru laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi rikisstarfs- manna. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf skulu sendar emb- ættinu fyrir 15. febrúar 1976. Bæjarfógetinn i Keflavík, Grindavik og Njarðvik. Sýslumaðurinn i Gullbringusýslu. Vatnsnesvegi 33, Keflavik.
Trésmiðir Vantar 2 góða smiði. Annar þarf að geta tekið að sér verkstjórn i fjarveru meistar- ans. Upplýsingar i sima 2-33-53 frá kl. 12—13,30 og 6—7 á kvöldin.
Skerpir 25 ára í dag Brýnir og skerpir sem á að bita. Selur bandasagarblöð fyrir kjöt, tré og járn. Rauðarárstig 24.
Leikfangahúsið
Skólavörðustíg 10, sími 14806
LEIK-SPIL
Kappakstursspil, kúluspil, Kinaspil, bobb-
spil, ludo, billiardborð, myndabingó,
hoppluspil, kartspil, boga, rafmagnsspil,
magasinspil, monopoly, rúlettur, yatzy,
dart spil.
Póstpöntunarsími 1-48-06
Yfirlýsing fró
yfirnefnd
Verðlagsróðs
sjóvarútvegsins
Undanfarna daga hefur frétta-
tilkynning frá svokallaðri sam-
starfsnefnd sjómanna birzt i
flestum dagblaðanna. Frétta-
tilkynningin hefur einnig verið
lesin i útvarpi og sjónvarpi.
t tilkynningu þessari er fjallað
um fiskverðsákvörðun yfir-
nefndar verðlagsráðsins fyrir
janúarmánuð 1976, einkum verð á
ufsa. t fréttatilkynningu sam-
starfsnefndar sjómanna er þvi
m.a. haldið fram, að tilkynning
um janúarfiskverð hafi ekki birzt
opinberlega fyrr en 24. janúar
s.l., og er látið liggja að þvi, að
lækkun á verði ufsa i 2. og 3.
gæðaflokki 85 cm. og stærri.hafi
visvitandi verið haldið leyndri
fyrir sjómönnum. t frétta-
tilkynningu samstarfsnefndar
sjómanna segir loks, að ætla
megi, að verð á ufsa, er veiddur
er i net og flokkaður i gæðaflokka
sé nú 12-14 kr. pr. kg., en hafi
verið fyrir ákvörðunina 18-20 kr.
pr. kg. Þannig er þvi haldið fram,
að verðákvörðunin hafi falið i sér
30-33% lækkun á ufsaverði að
meðaltali. I blaðaviðtölum við
menn, sem kenna sig við fyrr-
nefnda samstarfsnefnd sjó-
manna, eru höfð uppi ýmis stór-
yrði um þessa verðbreytingu og
það staðhæft, að uppistaðan i
janúarafla bátaflotans sé 2.
flokks ufsi og þvi jafnvel haldið
fram, að 80-90% ufsaaflans sé i
verðflokkum þeim, er lækkunin
náði til. Raunar er þvi á einum
stað haldið fram, fyrirvaralaust,
að verðákvörðun þessi feli i sér
30-33% kjaraskerðingu hjá meg-
inþorra sjómarina. Fullyrðingum
þessum hafa fylgt ásakanir á
hendur verðlagsráðsmönnum,
þess efnis, að þeir hafi beinlinis
stefnt.að þvi að skerða hluti sjó-
manna og haldið leyndri
fyrir þeim verðákvörðuninni,
sem þessum ósköpum ylli.
Að þessu tilefni vill yfirnefnd
verðlagsráðsins láta eftirfarandi
koma fram.
1 fréttatilkynningu frá Verð-
lagsráði um fiskverðsákvörðun
yfirnefndar fyrir janúar 1976
sem út var gefin 30. desember
1975, komu að venju einungis
fram meginatriði ákvörðunar-
innar. En að þessu sinni var á-
kvörðunin einkum um breytingu
á stærðarflokkum fisks, en um þá
breytingu sem aðrar við þessa
verðákvörðun náðist samkomu-
lag. Aætlað er, að breytingar
þessar i heild valdi hækkun fisk-
verðs að meðaltali um 1- 1 1/2%,
og er þá miðað við samsetningu
aflans á heilu ári. t frétta-
tilkynningu Verðlagsráðs frá 30.
des. 1975 kom fram, að auk
stærðarflokkabreytingarinnar
hefðu orðiðnokkrar minni háttar
verðbreytingar. Þeirra var hins
vegar ekki nánar getið i upphaf-
legri fréttatilkynningu, enda
sýnir reynslan, að fjölmiðlar
stytta yfirleitt jafnvel einnar siðu
frétt af þessu tagi.
Eins og jafnan áður tók
nokkurn tima að ljúka prentun og
dreifingu hinnar endanlegu,
opinberu verðtilkynningar, þar
sem tilgreind eru nákvæmlega
verð allra þeirra fisktegunda,
sem verðlagðar voru, i öllum
stærðar-og gæðaflokkum, auk af-
hendingarskilmála. Að þessu
sinni var verðtilkynning send út
til dreifingar 15. janúar 1976, en
ekki 24. janúar eins og haldið er
fram. Þá var tilkynningin send
til Lögbirtingablaðsins 2. janúar
1976, og hún birt þar hinn 16.
janúar s.l. Mestu skiptir þó, að
allar upplýsingar um einstök verð
gátu þeir, sem áhuga höfðu eða
hagsmuna áttu að gæta, fengið
hjá félagasamtökum sjómanna,
útvegsmanna, fiskvinnslustöðva
og skrifstofu Verðlagsráðs strax
31. desember 1975. Hefur þessi
háttuk jafnan verið á hafður og
ekki sætt gagnrýni. Þvi fer
þannig viðs fjarri, að nokkur
leynd hafi verið yfir þessari
verðákvörðun. Þvert á móti má
benda á, að hún hafi i senn legið
fyrr fyrir en undanfarin ár og
verið nánar frá henni greint i
fyrstu frétt en oft áður, þvi oftast
hefur niðurstöðu verðákvörðunar
i fyrstu verið lýst með einni
meðaltalsprósentu. Við stærðar-
flokkabreytinguna voru stórufsa-
mörkin færð niður úr 85 cm i 80
cm en á þessu lengdarbili áætlar
Hafrannsóknarstofnunin, að
10-11% af ufsaaflanum i heild
liggi. Verð á 1. fl. ufsa af
miðlungsstærð er kr. 15.40 en
verðástórum ufsa i 1. fl. er nú kr.
23.30 miðað við óslægðan fisk.
Gefur þvi auga leið, hve mikils
virði þessi breyting er fyrir sjó-
menn og útvegsmenn. Auk þess-
arar breytingar varð að ráði —
vitaskuld að kröfu kaupenda, sem
þáttur i heildarlausn — að láta
sama verð gilda fyrir 2. og 3.
flokks stórufsa og fyrir miðlungs-
ufsa i sömu gæðaflokkum en 2. og
3. flokks stórufsi eru aðeins 7-10%
af ufsaaflanum á heilu ári, skv.
beztu heimildum. Rökin fyrir
þessari breytingu’eru skýr. Hið
háa verð á stórufsá helgast af
framleiðslu saltufsaflaka, en i
þau þarf gallalaust hráefni,
Gallaður fiskur, þótt stór sé,
hentar þvi miður eingöngu i af-
urðir, sem nú gengur mjög erfið-
lega að selja.
Að teknu tilliti til verðfellingar
á 2. og 3. fl. stórufsa verður
niðurstaðan 1 1/2-2% hækkun á
ufsaverði að meðaltali miðað við
heilt ár, en verðlagsráðið miðar
flestar áætlanir sinar af þessu
tagi við aflatölur fyrir heilt ár. Til
dæmis um það, hve fráleitar full-
yrðingarnar i fréttatilkynningu
samstarfsnefndarinnar eru, er
rétt að geta þess, að ef litið er á
ufsaaflann mánuðina okt.-des.
1975, en um hann liggja nú fyrir
skýrslur frá Fiskifélagi íslands,
má ætla, að á þessu timabili
hafi meðalverðið hækkað skv.
janúarfiskverðsákvörðuninni um
3-4%, úr 18.40 i u.þ.b,-19.00 krónur
miðað við óslægðan fisk. Vistmá
telja, að breytingin á verðflokk-
um ufsa komi sumar- og haust-
veiðum fremur til góða en vetrar-
veiðum. Hins vegar eru allar
fullyrðingar um, að 80-90% ufsa-
aflans i janúar séu i 2. og 3. gæða-
flokki, sem betur fer hrein fjar-
stæða. Úrtak úr fiskkaupum
helztu fiskvinnslufyrirtækja um
suður- og suðvesturland og i
Vestmannaeyjum sýnir, að 1. fl.
ufsi var yfirleitt 60-80 af ufsa-
aflanum i net i janúar 1976.
Samkvæmt þessari athugun er
meðalverð á netaufsa i janúar
1976 kr. 19.70 miðað við óslægðan
fisk, (sbr. fullyrðingar sam-
starfsnefndarinnar um 12-14 kr.
meðalverð) Að lokum er rétt að
fram komi, að hlutfall ufsa i
heildarverðmæti fiskaflans 1975
hefur liklega verið nærri 10%. í
ljósi þessa þarf að skoða
fullyrðingar um mikilvægi
verðbreytinga á ufsa.
Það verður að harma að menn
skuli ryðjast fram i nafni sjó-
mannastéttarinnar með órök-
studd gifuryrði,en þetta háttalag
virðist einkenna starfsaðferð
svonefndrar samstarfsnefndar
sjómanna, sem raunar á hvergi
svo kunnugt sé itök i eiginlegum
stéttarfélögum sjómanna.
Jón Sigurðsson
Arni Benediktsson
Eyjólfur isfeld Eyjólfsson
Ingólfur S. Ingólfsson
Kristján Ragnarsson.
Auglýsið í
Tímanum