Tíminn - 06.02.1976, Blaðsíða 7
Köstudagur (i. febrúar 197«.
TÍMINN
7
FRAMSÓKNARFLOKKSINS
REKSTRARREIKNINGUR 1. JAN. - 31. DBS. 1974»
TEKJUR:
Happdrætti v/ kosninga '74 ...................... Kr.
Happdrætti haustið '74 ......................... "
Almanak sútgáfan ................................ "
Halli ...........................................1—
1.609.535.oo
1.981.707 . oo
828.666.oo
40.987.77
Kr. 4.460.895.77
EFNAHAGSREIKNINGUR PR. 31. DESEMBER 1974.
SKULDIR:
Skuld við kjördæmissambönd .................... Kr.
Höfuðstóll:
Eignir umfi'am skuldir l/l 1974. Kr. 2.137» 507*2o
Halli á rekstrarreikningi ..... ”_______40.987.77 __
615.000.oo
2.096.519.43
Kr. 2.711.519.43
£
&
lega hætt, en þess í stað haft
happdrætti tvisvar á ári.
Þess skal þó getið, að þeg-
ar kosningar eru, vilja menn
gjarna i hita kosningabarátt-
unnar leggja fram fé til
hennar. Þau framlög ganga i
kosningasjóð hvers kjör-
dæmis fyrir sig, og koma þvi
flokksreikningunum ekki
við.
Um almanaksútgáfuna er
það að segja, að þetta er út-
gáfustarfsemi, sem flokkur-
inn hefur á sinni hendi, þar
sem gefin eru út dagatöl og
mánaðatöl. Við þetta starfa
starfsmenn flokksins og
sjálfboðaliðar, og er þvi eng-
inn aukakostnaður af þessari
útgáfustarfsemi.
— Nú hefur þú riðið á vað-
ið með að birta opinberlega
reikninga stjórnmálaflokks.
Þeir sýna hins vegar ekki hin
frjálsu framlög einstaklinga
til flokksins. Telur þú þá rétt,
að reikningar hinna einstöku
kosningasjóða yrðu gerðir
opinberir, með likum hætti
og reikningar flokkanna
sjálfra?
— Það er ekki rétt, að
reikningar flokksins sýni
ekki frjáls framlög einstak-
linga til hans. Útkoman úr
hverju happdrætti sýnir, að
þessi framlög eru okkar
drýgstu tekjulind.
Varðandi spurninguna um
kosningasjóðina vil ég segja
það, að mér fyndist eðlilegt,
að reikningar kosningasjóð-
anna væru birtir, og sæist þá
hve miklu fé flokkarnir verja
raunverulega til þessarar
starfsemi.
Hins vegar teldi ég áhættu-
samt og óeðlilegt, aö farið
yrði út i þaö að birta nöfn
allra þeirra, sem leggja 500
til 1000 krónur i kosninga-
sjóð, eða kaupa 2 til 3 happ-
drættismiða, þvi ég tel, að
það myndi leiða af sér, að
stjórnmálaflokkarnir neydd-
ust annað hvort til þess aö
komast á rikisframfæri, eða
verða þeim að bráð, sem yfir
miklu fjármagni ráða.
— En nú er þvi einmitt oft
haldið fram, að flokkarnir
séu i raun i höndum ein-
hverra fárra, sem yfir miklu
fjármagni ráða.
— Ég get að sjálfsögðu
ekki svaraö nema fyrir hönd
Framsóknarflokksins og
sagt eins og. áður, að fjár-
hagur Framsóknarflokksins
byggist fyrst og fremst á
happdrættismiöakaupum
þúsunda flokksmanna og
annarra, sem kaupa þessa
miða. Enda finnst mér
reikningarnir, sem hér eru
birtir, sanna þetta.
Ég vil láta það verða min
siöustu orð hér, að ég skora á
aðra stjórnmálaflokka að
birta i fjölmiðlum reikninga
sina og sanna með þvi, að
þeir séu ekki, fremur en
Framsóknarflokkurinn,
ofurseldir sterkum fjár-
málaöflum, heldur byggi
fyrstog fremst á hinu frjálsa
framlagi fjöldans.
A FLOKKA AÐ BIRTA
BERLEGA LÍKA