Tíminn - 06.02.1976, Blaðsíða 24
* ..........................1
Föstudagur 6. febrúar 1970.
-
SIS-FODIJH
SUNDAHÖFN
fyrirgóóan niat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
-
Fundur Schmidts og Wilsons:
Ræða vaxandi
atvinnuleysi
í V-Evrópu
Ueuter/Bonn. Sameiginlegt
átak rikja Vestur-Evrópu til aft
útrýnia ört vaxandi atvinnu-
leysi i rikjum álfunnar, verftur
hel/.ta umræftuefni W'ilsons, for-
sætisráölierra Breta, og
Schmidts kanslara Vestur-
Þýzkalands, um helgina, en þá
ræftast þeir vift á sveitasetri
Wilsons I Chequers, skammt ut-
an vift London.
Af erlendum vettvangi mun
hæstbera i viðræöum þeirra ósk
Grikkja um inngöngu i Efna-
hagsbandalag Evrópu og hið
alvarlega ástand i Angóla.
Atvinnuleysi er eitt helzta
vandamálið, sem vestur-þýzkir
ráðamenn eiga við að glima
þessa stundina, þvi að nýjustu
opinberar tölur sýna, að at-
vinnuleysið þar i landi hefur
verulega aukizt, um 5,9%, og
eru atvinnuleysingjar i landinu
nú 1,351,000.
Leiðtogar Gaullista í Frakklandi:
Vara við kosningum
til Evrópuþingsins
Reuter/Paris — Framkvæmda-
stjórn franska Gaullistaflokksins,
sem er stærsti flokkurinn á
franska þjóftþinginu, vill fara aft
öllu meft gát i sambandi vift
áform um kosningar til sameigin-
Framkvæmdastjórnin sam-
þykkti á fundi sinum i gær að
halda leyndum öllum umræöum
um kosningar þessar, en áreiðan-
legar fregnir herma, að allir þeir
leiðtogar flokksins, sem til máls
tóku á fundinum i gær, hafi lýst
yfir miklum efasemdum um
áform um kosningar til hins sam-
eiginlega þings, en d’Estaing for-
seti er hlynntur slikum kosning-
um. Leiðtogarnir virtust sam-
mála um, að kosningar þessar
ógnuftu fullveldi franska rikisins.
Chirac forsætisráftherra fór
hins vegar öllu vægar I sakirnar,
til þess að einangra sig ekki frá
forsetanum, eins og segir i
Reutersfréttum frá Paris i gær,
en hann viðurkenndi þó, aft kosn-
ingar þessar væru eitt erfiðasta
vandamálift, sem Gaullistaflokk-
urinn ætti við að striða.
Italía:
Sósíalistar
bjarga Moro
Reuter/Róm — ttalski sósialista-
flokkurinn tók þá ákvörftun I gær,
að greifta ekki atkvæfti gegn
minnihluta stjórn Aldos Moro,
leiötoga kristilegra demokrata,
og benda nú allar likur til þess, aft
stjórnarkreppan ttaliu, sem
staðift hefur i mánuft, sé á enda.
Sósialistaflokkurinn á Italiu, er
þriðji stærsti flokkurinn á þingi
landsins, og án hlutleysisyfirlýs-
ingar hans gæti minnihlutastjórn
Moros ekki setið við völd.
Áður en Moro gengur hins veg-
ar formlega frá stjórnarmyndun,
þarf hann að fá sams konar
stuðningsyfirlýsingu frá Lýðveld-
isflokknum, sem hefur þó mun
minni þingstyrk að baki sér held-
ur en sósialistaflokkurinn, og um-
fram allt þarf Moro stuðningsyf-
irlýsingu eigin flokks, kristilega
demokrataflokksins. Telja sumir
fréttaskýrendur, að það verkefni
muni reynast honum erfitt. Þó er
almennt talið, að meirihluti ráða-
manna flokksins sé þvi samþykk-
ur að Moro myndi minnihluta-
stjórn, sem byggi tilverurétt sinn
á hlutleysisafstöðu sósialista-
flokksins.
Helzta verkefni hinnar nýju
stjórnar verður að koma með
raunhæfar úrbótatillögur i efna-
hagsmálum, enda hefur gengi
itölsku lirunnar lækkaft um 10% á
siðustu fjórum vikum, og fjár-
hagsstaöa landsins út á við er
mjög erfið.
Stjórnarmyndun þessi verður
að öllum likindum aðeins til
bráðabirgða, eða þangað til
flokksþing sósialista og kristi-
legra demokrata eru afstaðin.
Sithole
ekki í
fangelsi
Reuter/Salisbury. Talsmaftur
ríkisstjórnar Ródesiu neitaöi
þvi fyrir rétti i gær. aft lög-
regluyfirvöld i landinu héldu
dr. Edson Sithole, einum
helzta leifttoga blökkumanna i
Ródesiu I fangeisi efta gæzlu-
varðhaldi. Sithole hvarf ásamt
ritara sinum 15. október sl.
Segjast talsmenn stjórnarinn-
ar ekkert vita, hvaft orðift hafi
um Sithole.
Fær hundurinn að
fylgja
í fangelsið?
Reuter/Kaupmannahöfn —
Hundaaödáandieinn i Danmörku,
Niels Larsen, gekk á fund dóms-
málaráftherra Dana og fór þess á
leit viö ráftherrann, aft hann fengi
aö hafa hundinn sinn meft sér i
fangelsi, en Larsen þessi var
dæmdur i 20 daga fangelsisvist
fyrir aft hafa barift strætisvagn-
stjóra.
Astæða þess að Larsen barði
strætisvagnstjórann var sú, að
Larsen ætlaði með hundinn sinn i
strætó, en vagnstjórinn neitaði
hundinum um uppgöngu. Reiddist
Hefur Lockhead-mdlið
dhrif á úrslit þing-
kosninganna í Japan?
Reuter/Tokyo. Uppljóstranir
þær, seni fram hafa komift fyrir
handariskri þingnefnd, um stór-
fclldar mútur Lockhead-f lug-
vélaverksmiftjanna i Banda-
rikjunum til japanskra stjórn-
mála- og embættismanna, liafa
valdift niiklu fjaðrafoki á hægri
væng japanskra stjórnmála. en
kosningar fara fram siftar á
þessu ári i Japan.
Eins og skýrt var frá i blaðinu
i gær, birti þingnefnd sú, er
rannsakað hefur mál þetta,
yfirlit yfir greiðslur þær, sem
Lockhead-verksmiðjurnar haía
innt af hendi til japanskra aðila.
Þar kemur fram, aö öfgasinn-
aður stjórnmálamaður til
hægri, Yoshio Kodama, hefur
veitt viðtöku um það bil
7,085,000 dollurum. Maru-
beni-samsteypan hefur fengið
3,223,000 dollara, en samsteypa
þessi hefur verið einskonar um-
boösaðili Lockhead i Japan.
Þingnefndin bandariska hefur
lengið þaö staðl'est, að Maru-
beni-samsteypan hafi veitt fé
þessu viötöku, en siðan afhent
þaö stjórnmála- og embættis-
mönnum, svo og starfsmönnum
japanska llugfélagsins Japan
Airlines til þess að liöka fyrir
viðskiptum Lockhead i Japan.
Þaö hefur t.d. komið fram, að
Japanir pöntuðu 21 flugvél frá
Loekhead eftir fund Nixons og
Tanuka, þáverandi forsætisráð-
herra Japans árið 1972.
Talið er, aö mál þetta muni
veröa til umræðu á þingfundum
i japanska þinginu i dag og
sósialistar og kommúnistar
gera harða hríð að stjórninni
íyrir spillingu og óreiðu, sem
hún láti viögangast innan
stjórnkerfisins. Einkanlega
mun stjórnarandstæðingum
umhugað um aö íá aö vita, hvað
orðið hafi um fé það, sem
Kodama tók við.
þá Larsen og jafnaði heldur betur
um vagnstjórann og fékk fyrir 20
daga fangelsisdóm..
f Danmörku hafa þeir svo
milda refsilöggjöf, þegar um
minniháttar líkamsmeiðingar er
að ræða, að sakborningur getur
fengið að ráða þvi, innan vissra
timamarka þó, hvenær hann af-
plánar fangelsivistina. Þegar
Larsen ætlaði svo að koma og
setjast á fangelsisbekk, hugðist
hann hafa hundinn með, en fang-
elsisyfirvöld neituðu. Sagðist
Larsen þá alls ekki fara i fang-
elsi.
Nú hefur hann, sem fyrr segir,
skotið málinu til ráðherra.
UNITA
ætlar að
nota flug-
Reuter/Lusaka. Jorge
Sangumba, utanrikisráftherra
UNITA-hreyfingarinnar I
Angóla, sagfti I gær, aft hreyf-
ingin ætiafti sér aft taka her-
flugvélar i notkun I strifts-
rekstrinum i Angóla.
Sangumba sagfti, aft flugvél-
ar hreyfingarinnar væru staft-
settar utan Angóla, og vildi
ekki gefa upp, i hvaöa landi
þær væru, hverrar tegundar
þær væru né hverjir myndu
stjórna þeim.
Bein tengsl á milli
Mafíunnar og kristilegra
Minnihluti ítölsku rannsóknarnefndarinnar:
demokrata
Reuter/Róm — ftölsk þingnefnd,
sem siftast liftin 13 ár hefur haft
það verkefni aft rannsaka starf-
semi Mafíunnar á ttaliu, birti i
gær helztu niðurstöður þeirrar
rannsóknar. Kommúnistarnir I
nefndinu skiluöu séráliti og gagn-
rýna mjög nifturstööu meirihlut-
ans, og telja hann algjörlega
vikja sér undan aft ræöa kjarna
Mafiuvandamálsins, sem sé
tengsl Mafiunnar vift leifttoga
kristilega demokrataflokksins á
Italiu, núverandi stjórnarflokks.
Meirihluti nefndarmanna telur
i niðurstöðu, að helzta leiðin til að
útrýma glæpahringum sem
Mafiunni.séu verulegar umbætur
á sviði félags- og efnahagsmála,
ásamt öflugra lögreglu- og dóm-
stólakerfi.
f áliti minnihlutans segir, að álit
meirihlutans sé algjörlega ófull-
nægjandi. Segja minnihlutamenn
i nefninni, að skýrsla þeirra verði
birt i heild innan tiðar, og þá muni
verða birt nöfn þeirra leiðtoga
kristilega demokrataflokksins á
Sikiley, sem standi i nánum
tengslum við Mafiuna.
Hinn aldni leiðtogi kommúnista
á Sikiley, Girolamo Li Causi,
sagði á blaðamannafundi I gær,að
það væri misskilningur, að
Mafian væri eitthvert sérstakt
sikileyskt vandamál. „Ahrifasvið
Mafiunnar nær langt inn i raðir
alls hins italska stjórnkerfis,”
sagði Girólamo Li Causi.
MPLA gerir loft-
árásir á UNITA
Reuter/Lusaka. Ilerflugvélar
MPL A-hreyfingarinnar i
Angóla, sem nýtur stuftnings
stjórna Sovétrikjanna og Kúbu,
gerftu loftárásir á borgina
Mussende, sem er á yfirráfta-
svæfti UNITA-hreyfingarinnar.
Margir angólskir borgarar biftu
hana i árásum þessum, aft þvi er
utanrikisráftherra UNITA-
hreyfingarinnar, Jorge Sang-
umba, tjáfti fréttamanni Reut-
ers i Lusaka.
Sangumba sagði, að fréttir af
árásum þessum hefðu borizt
aðalherstöðvum UNITA, sem
eru i' Silva Porto. Mussende er
150 km norðaustur af Silva
Porto.
Sangumba sagði ekki, hvers
konar flugvélum hefði verið
beitt i árásum MPLA á Muss-
ende, en hann kvað leyniþjón-
ustu ÚNITA vita til þess, að
MPLA hefði á aö skipa
MlG-þotum og FIAT-þotum.
..Flugher okkar er nú i við-
bragðsstööu”, bætti ráðherrann
við.
Sangumba sagði i fyrradag,
aö ef loftárás yröi gerð á helztu
borgir UNITA, yröi svarað i
sömu mynt innan 48 klukku-
stunda.