Tíminn - 06.02.1976, Blaðsíða 9

Tíminn - 06.02.1976, Blaðsíða 9
Föstudagur 6. febrúar 1976. TÍMINN 9 Málverkasýning og sýning á vegg spjöldum íNorræna húsinu samtökunum. Skilafresti í þessari sam- keppni hér á landi lauk 15. janú- ar siðast liðinn, en veggspjaldið á að nota i alþjóðaherferð fyrir auknu öryggi barna i umferð- inni. Það skal skfrskota til öku- manna i þéttbýli og vera ábend- ing til þeirra að gæta itrustu varkámi gagnvart börnum inn- an 10 ára aldurs. Alls bárust 39 tillögur frá 26 aðilum. Sýning á tillögunum hefur nú verið opnuð i anddyri Norræna hússins og mun standa i viku, að þvi er seg- ir i bréfi umferðarráðs til fjöl- miðla. 1. verðlaun, að upphæð kr. 140 þúsund krónur, hlaut til- laga Fanneyjar Valgarðsdóttur og Gi'sla B. Björnssonar, en i umsögn dómnefndarinnar segir á þessa leið: „Hraöi umferðarinnar og um- komuleysi barnsins er skýrt dregið fram meö markvissri uppbyggingu forms og lita. Myndin dregur að sér mikla at- hygli. ógnvaldur barnsins, bill- inn, stefnir á það margfaldur og gerir barnið að miðpunkti á veggspjaldinu. Hinn margfald- aði bfll minnir á þá staðreynd, aðá þennan hátt getur umferðin komið barninu fyrir sjónir. Uppbyggingin er einföld, en jafnframt rökræn og hiutlæg, og höfðar þvi vel til ökumanna.” Við skoðun á myndum i Nor- ræna húsinu er hæpið að fallast á skilgreiningu verðlaunanefnd- arinnar, þvi að verðlaunamynd- in hefur liklega ekkert umfram aðrar annað en það, að hún er faglega framsett, og satt að segja virðist framlag islenzkra listamanna til þessarar sam- keppni ekki i neinu samræmi við það, sem búast mátti við að órey ndu. Veggspjaldalistmargra landa er mjög háþróuð, og er hætt við að framlag Islands til sýningar- innar þyki hvorki frumlegt, né merkilegt. Það sem einkum virðist skorta á (þar á ég ekki við verð- launamyndina) er frágangur,- og margar þessara frummynda mætti lagfæra með faglegu handbragði, og virðist i fljótu bragði ekkert vera þvi til fyrir- stöðu að fá æfða auglýsinga- teiknara til þess að endurgera myndir til sendingar út i heim. Önnur úrslit i samkeppninni urðu þau, að sérstaka viður- kenningu hlutu þrjú veggspjöld. Höfundar þeirra eru: Sigurður örn Brynjólfsson teiknari, Vita- stig 3, Hafnarfirði, Evgenia Hjálmarsson, Snorrabraut 67, Reykjavik og Benedikt Gunn- arsson listmálari, Kastalagerði 13, Kópavogi. Þá voru valin sex veggspjöld, ásamt þeim fjórum, sem aöur hefur verið getið um, til að senda i alþjóðasamkeppnina. Höfundar þeirra eru: Gunnár Gunnarsson teiknari, Laugar- ásvegi 7, Reykjavik, og Ragnar Lár teiknari, Jörfabakka 12, Reykjavik, Borghildur óskars- dóttir myndlistarkennari, Barðaströnd 29, Seltjarnarnesi. Ólöf Ingibjörg Baldursdóttir teiknari, Keldulandi 15, Reykja- vik, Lars Eric Björk, Lang- holtsvegi 108, Reykjavik, Sig- urður örn Brynjólfsson teikn- ari, Vitastig 3, Hafnarfirði og Benedikt Gunnarsson listmál- ari, Kastalagerði 13, Kópa- vogi. Þótt maður verði fyrir hálf- gerðum vonbrigðum með þetta glataða tækifæri veggmynda- málara, tækifæri, sem t.d. allt of margir teiknarar og mynd- listarmenn hafa látið fram hjá sér fara, þá ber að fagna þessari samkeppni umferðarráðs. Dómnefnd skipuðu þeir Pétur Sveinbjarnarson framkvstj., Torfi Jónsson teiknari og Arni Reynisson, framkvæmdastjóri Náttúruverndarráðs. Trúnaðarmaður var Arni Þór Eymundsson upplýsingafull- trúi. Jónas Guðmundsson Úrslit i teiknimynda- samkeppni Umferðarráð sá um aðild Is- lands að samkeppni um vegg- spjöld, en þetta er alþjóðleg keppni, sem Evrópunefnd sam- gönguráðherra (ECMT) og al- þjóðasamtök um varnir gegn umferðarslysum (PRI) standa að sameiginlega, en um 35 þjóð- ir eiga aðild að siöarnefndu Elias B. Halldórsson Um þessar mundir sýnir i Norræna húsinu Elias B. Hall- MALVERK TEIKNINGAR TRÉRISTUR dórsson listmálari, sem er bú- settur á Sauðárkróki og hefur verið það siðast liðin tólf ár, Elias fæddist i Borgarfirði Sýning í Norræna húsinu 31. janúar- 8. febrúar 1976 eystra árið 1930. Hann stundaði myndlistarnám i Handiða- og myndlistaskóla Islands 1955-1958, siðan framhaldsnám við akademiuna i Stuttgart, Þýzkalandi, og við akademiuna i Kaupmannahöfn. Hefur tvisv- ar sýnt i Bogasal Þjóðminja- safnsins, fyrsta sýning 1960 og i siðara sinn þar 1967. Einu sinni á eftirtöldum stöðum: A Nes- kaupstað, Akureyri og Eski- firði, og fimm sinnum á Sauðár- króki. Auk þessa tekið þátt i nokkrum samsýningum, og þar á meðal mörgum grafiksýning- um hér og erlendis. Eins og sjá má af framan- sögðu, er Elias skólaður vel i myndlistum, þótt hljóðara hafi verið um nafn hans en góðu hófi gegnir, en þar á búsetan sjálf- sagt drýgsta þáttinn. Menn úti á landi vílja gleymast. Elias B. Halldórsson sýnir að þessu sinni 88 verk, oliumál- verk, pastelmyndir, vatnsliti, teikningar og grafik. Oliumál- verkin taka mest rúm og mynd- irnar eru flestar nýlega gerðar, þær elztu frá ’68 og ’72, en flest- ar eru frá siðustu tveim árum. Þær eru málaðar af vandvirkni og talsverðu öryggi, en dálitill útkjálkabragur er að sumu að manni finnst, en kannski er það imyndun. Abstraktionir verða að landslagi og gróðri, einhvers konar dularfullum surrealisma. Bezt virðist honum takst upp, þegar hann stilfærir landslag eða aðrar fyrirmyndir, og nær þannig nokkru sjálfstæði i myndsköpun. Litameðferðin er óvenju góð, hann hefur góða sjón, og mörg blæbrigði eru til vitnis um það, til að mynda i málverki, sem Listasafn fslands mannaði sig Elías B. Halldórsson upp i að festa kaup á á sýning- unni. Það er liklega bezta myndin á sýningunni, og eru menn þó ekki ávallt sammála þvi fólki, þegar myndlistir eru annarsvegar. Pastelmyndir Eliasar éru vel gerðar, en ekkert sérstakt er þó við þær að voru mati. Hinsvegar eru þær fáu vatnslitamyndir, sem þarna eru sýndar, til vitnis um góða kunnáttu málarans. Tréristur Eliasar eru hrein- asta afbragð, og reyndar öll hans svartlist. Sumt af þessum myndum hefur hann að sögn sýnt áður, og manni er það ljóst, að hann myndi liðtækur á þvi sviði, sér i lagi með tilliti til þeirra vakningar sem nú er I þessulistformi, þegar rösk sveit ungmenna stendur saman til þess að hefja grafikina til nauð- synlegrar virðingar á Islandi. Nóg um það. Islenzkir málarar eru af- skekktir i heimslistinni. Auðvit- að hafa þeir tileinkað sér þá þróun i myndlistum, sem ávallt verður erlendis, en þeir eru á útkjálka, þar sem menn elska að visu myndir, og það gerir kjör þeirra bærileg. Þeir sem enn verreru settir, eru þeir sem dveljast einir sér úti á landi, án bandamanna og starfsbræðra. Gunnlaugur Scheving prófaði að setjast að á Seyðisfirði, en hrökklaðist suður. En timarnir hafa breytzt. Kannski fara mál- arar okkar að geta setzt að úti á landi, likt og aðrir þarfir hand- verksmenn. Sauðkræklingar mega vera stoltir af þessum heimamálara sinum, sem þrátt fyrir allt stendur vel fyrir sinu, og rúmlega það, og það er sér- stakt gleðiefni að fá þessa góðu sýningu hans suður. Sýningunni lýkur 8. febrúar næstkomandi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.