Tíminn - 24.02.1976, Síða 7

Tíminn - 24.02.1976, Síða 7
Þriðjudagur 24. febrúar 1976 TÍMINN 7 BREZKU HERSKIPIN HAFA FENGIÐ FYRIRAAÆLI UM AÐ BEITA FULLRI HÖRKU — Týr og Baldur skáru á togvíra tveggja veiðiþjófa Varðskipið Ægir klippti á báða togvira þessa togara sl. fimmtudag, en togarinn heitir Royai Lincs og er frá Grimsby. Brezka freigátan Scylla i baksýn. Timamynd: örn Rúnarsson. Gsal—Reykjavik. — Varðskipin Týr og Baidur skáru á togvira tveggja brezkra togara í gær, þrátt fyrir að togararnir væru umkringdir herskipum og dráttarbátum. Siðari hluta dags i gær gerði freigátan Yarmouth itrekaöar tilraunir tii ásiglingar á varðskipið óöin ., en áður en þær tilraunir hófust, var Helga Hallvarössyni, skipherra á óðni tilkynnt að freigáturnar hefðu nú fengið fyrirmæli um það, að „þola ekki iengur truflanir á veiðum brezkra togara á úthafinu”. ' * Brezka freigátan Scyila kemur æðandi á eftir varðskipinu Ægi á miðunum fyrir austan land. Tfmamynd: örn Rúnarsson. Ásigiingartilraunirnar mis- heppnuðust. Baldur kom að fjórum brezk- um togurum norðaustur af Hraunhafnartanga i gærmorgun, og hifðu þeir allir og kölluðu á freigátuna Bacchante, sem kom óðara á vettvang. Togararnir hófu þvi veiðar að nýju, en þá skar Baldur á báða togvira Arctic Vandal H-374. Eftir þetta bað yfirmaðurinn á freigát- unni hina þrjá togarana um að hifa þegar inn veiðarfæri sin, hvað þeir og gerðu. Týr klippti svo á báða togvira Luneda FD-134 og geröist það fyrir framan nefið á freigátunni Scyllu og dráttarbátnum Lloydsman, um 38 sjómilur frá Langanesfonti. A þessum slóöum voru nokkrir brezkir togarar aö veiðum og eftir atburðinn var óskað eftir þvi, að Euroman kæmi einnig til verndar togurunum á þessu svæði. Siðari hluta dags i gær hóf freigátan Yarmouth itrekaðar ásiglingartilraunir á varðskipið Öðin. Varðskipið hélt i átt til lands, og hætti freigátan ásiglingartilraununum, þegar varðskipið var komið inn fyrir 12- milna mörkin. Brezku togurunum hefur fækk- að siðustu daga, og eru nú aðeins liðlega tuttugu talsins. Auglýsið í Tímanum Félag járniðnaðar- manna Aðalfundur Félags járniðnaðarmanna verður haldinn laugardaginn 28. febrúar 1976 kl. 13.30 i Domus Medica v/Egilsgötu. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Ath. Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofunni Skólavörðustig 16 föstudag- inn 27. feb. kl. 16.00 til 18.00 og laugardag- inn 28. feb. kl. 9.00 til 12.00 Mætið vel og stundvislega Stjórn Félags járniðnaðarmanna. Eggjaframleiðendur Hinir gömlu, góðu timar eru komnir aftur og Teigur býður aftur upp á landsins beztu hænuunga — nýtt norskt kyn. Aukin framleiðsla. Tryggið ykkur unga hið allra fyrsta. TEIGUR S.F. Mosfellssveit. Simi 91-66130. CROWN Tæknilegar upplýsingar Magnari 6 — IC, 33 transistorar 22 dióður, 60 wött. Útvarp: örbylgja: (FM) 88-108 megarið Langbyigja: 150-300 kDóríð Miðbylgja: 520-1605 kDórið Stuttbylgja: 6-18 megarið Segulband Hraði: 4,74 cm/s Tiðnisvörun venjulegrar kas- ettu (snældu) er 40—8000 rið. Tiðnisvörun Cr02 kasettu er 40—12.000 rið. Tónflökt og -blakt (wow & flutter) betra en 0.3% RMS Timi hraðspilunar á 60 min. spólu er 105 sek. Upptökukerfi: AC bias, 4 rása stereo Afþurrkunarkerfi: AC afþurrk- un CROWN FETI FRAMAR 60 vött — 4ra vídda stereo ÖLL SAMSTÆÐAN VERÐ 129.980 CROWN Tæknilegar upplýsingar Plötuspilari: Full stærð, allir hraðar, sjálf- virkur eöa handstýrður. Ná- kvæm þyngdarstilling á þunga nálar á plötu. Mótskantur mið- flóttans sem tryggir litiö slit á nál og plötum ásamt fullkom- inni upptöku. Magnetískur tón- haus. Hátalarar: Bassahátalari 20 cm af konískri gerð. Mið- og hátiðnishátalari 7,7 cm af kóniskri gerð. Tlðnisviö: 40—20.000 rið. Aukahlutir: Tveir hátalarar Tveir hljóðnemar Ein Cr02 kasetta FM loftnet Stuttbylgju loftnetsvir Tæki til hreinsunar á tónhaus- um segulbands. CROWN Nóatúni - Sími 23-800 Klapparstíg 26 - Sími 19-800 CROWN CROWN

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.