Tíminn - 24.02.1976, Side 13

Tíminn - 24.02.1976, Side 13
Þriðjudagur 24. febrúar 1976 TÍMINN 13 <VIKMYNDIR — KVIKAAYNDIR BERGLJOT ARNA- DÓTTIR í SJÖ STELPUM DAHL- BERGS OG SETH Leikstjórn og handrit: Hans Dahlberg og Carl Johan Seth. Aðalhlutverk: Bergljót Árnadóttir, Lena Bro- gren, Agneta Ehrens- vard. Gerð eftir samnefndri sögu og leikriti Erik Thorstenson. Margir íslendingar kannast við verk þetta af leikhúsfjölunum. Það hefur verið uppfært hér og notið mikilla vin- sælda. Verkið f jallar um einn dag i lifi sjö stúlkna. Þær hafa allar misst fót- festu sina i lifinu og dveljast á betrunarhæli. Lifi þeirra er lýst á nær- færinn, en opinskáan hátt. HVÍTUR VEGGUR Leikstjórn: Stig Björkman Aðalhlutvérk: Harriet Anders- son Myndin fjallar um dag i lifi fráskilinnar konu. Konan vaknar snemma að morgni þessa dags og við hlið hennarhvilir ókunnugur maður, sem fljótlega hverfur á braut. Hún fer sjálf út og leitar allan daginn að sambandi við annað fólk, en gengur illa. Meðal þeirra sem hún leitar að er fyrr- verandi eiginmaður hennar. Hún finnur hann, seint og siðar meir, en hann getur ekkert gert henni til hjálpar utan að láta hana hafa peninga upp i húsa- leigu. Um stund virðist birta ofurlit- ið til fyrir henni, þegar hún hittir ungan Grikkja og getur opnað hjarta sitt fyrir honum. Þau reynast þó bæði of feimin til að stofna til nánari kúnnings- skapar, svo það verður til litils. Eftir daglanga, árangurslitla leit, fer hún um kvöldið á dans: leik með vinkonu sinni. Að dans- leiknum loknum tekur hún enn ókunnan mann heim með sér. Stubbur litli Helgi tekur reiðhjólið sitt og fer að leita Klöru, sem hafði horfið aftur jafn skyndilega og hún birtist honum. Klara býr nokkuð langt i burtu og á leið sinni hittir Helgi margs konar fólk — jafnvel fólk sem hann hafði ekki imyndað sér að væri til. Allir þeir sem hann hittir verða með einhverjum hætti hluti af ástarsögu hans. Hann hittirsvo einnig Klöru á ný og kemst þá aö þvi, að hún ber allt annað nafn. Leikstjórn: Bo Widerberg Aðalhlutverk: Johan Bergman Stubbur er sex ára gamall knattspyrnumaður, sem valinn hefur verið i sænska landsliðið. Hanner helzta máttarstoð liðsins og verður brátt átrúnaðargoð þess. Hvað eftir annað hefur hann átt stóran þátt i sigrum þess og þegar keppnisferð til Sovétrikj- anna er fyrir dyrum, þykir ekki fært að fara hana án hans. Stubbur'er alvarlegur ungur maður, en verður þó að láta aðra lesa fyrir sig blaðadóma um frammistöðu sina, þvi hann er hvorki læs né skrifandi. Auk þess gera auglýsingamenn sér mat úr honum. Sjálflýsandi leikbrúður, menn og dýr, i útfjólubláu ljósi koma fram á sýningum Leikbrúðulands, sem nú eru á sunnudögum kl. 3 að Frikirkjuvegi 11. Atli Heimir Sveinsson hefur samið tónlist við annað leikrit- ið, sem flutt er „Grétu og gráa fiskinn”, en hitt er um gamlan kunningja brúðuleikhúsunnenda Meistara Jakob. Timamynd Róbert Leikbrúðuland til sjós LEIKBRÚÐULAND „Gréta og grái fiskurinn” og „Meistari Jakob og tröllið Loðinbarði.” Frumsýning. Leikstjóri: liólmfríður Pálsdóttir Leikmynd og brúður Þorbjörg Ilöskuldsdóttir Atli Ileimir Sveinsson samdi tónlist. Textahöfundur Hólmfríður Pálsdóttir Lcikbrúðuland frumsýndi siðastliðinn sunnudag tvö brúðuleikrit, GRÉTU OG GRAA FISKINN og MEISTARA JAK- OB OG TRÖLLIÐ LOÐIN- BARÐI, en þetta mun vera fjórði veturinn sem Leikbrúðu- land hefur starfað i húsi æsku- lýðsráðs Reykjavíkurborgar. Má þvi segja að sýningar flokksins séu orðinn árviss liður i skemmtanahaldinu hér ekki sizt ef litiö er á hina samfelldu sögu. Jeppi á fjalli á Eyrar- bakka 1914 Það mun hafa verið danskur maður austur á Eyrarbakka sem fyrstur manna sýndi brúðuleikhús hér á landi, en hann sýndi Jeppa á fjalli árið 1914 austur á Eyrarbakka, en upp úr þvi mun hann hafa farið i leikför til Austfjarða með sýninguna. Siðan tekur við brúðuleikhús Jóns E. Guð- mundssonar.hins kunna brúðu- smiðs og myndlistarmanns, en á brautryðjendastarfi Jóns mun leikhús þetta byggja að veru- legu leyti. Jón er að mestuhætt- ur, en þó hefur þvi verið fleygt að hann sé nú að smiða sér dúkkur i nýjan leik. Brúðuleikhúsið er á hinn bóg- inn forn leiklistargrein. Það var i hávegum haft hjá Fom-Grikkjum og barst norður i Evrópu á miðöldum. Brúðu- leikhúsin höfðu fasta búsetu, mörg hver, en önnur voru á stöðugum ferðalögum milli borga og bæja. Þau voru fastur liöur i hátiðahaldi og á markaðstorginu, þar sem fólkið kom saman. Þróun þessa leikhúss hefur hins vegar orðið sú, að það eru einkum sérstakir áhugaflokkar eða listhópar, sem fást við þessa grein sem tómstundastarf, en erlendis hafa atvinnuleikhús með brúðum viða verið aflögö en málin komin i hendur leik- klúbba. Brúðuleikhús er leikhús (venjulega) þar sem brúður koma fram i staðinn fyrir holdi klædda leikara. Brúðunum er stjórnað með strengjum ofan- frá, eða neðanfrá, en það fyrr- nefnda er talið algengara. tslenzka brúðuleikhúsið beitir blandaðri tækni, i fyrsta lagi brúðum, sem stjórnað er neðan- frá og svo sviðsverum, sem eru i fanginu á svartklæddum túlkendum, sem ekki sjást, en með bláu ljósi og sérstökum lit- um, sjástsviðsverurnar i einkar litrlkum blæðbrigðum. Þetta útf jólubláa ljós gerir lit- ina siálflýsandi, en bað var Jón bóndi i Mörðudal sem fyrstur orðaði þörfina á slíkum litum fyrir málverkið, þvi þá gæti lit-f urinn holdgazt eins og hann orð- aði það. Gréta og grái fiskurinn Gréta og grái fiskurinn er byggt á samnefndri sögu eftir Mariette Vanhalewijn, sem til er i þýðingu örnólfs Thorlacius. Leikritið gerist mest á hafs- botni, eða niðri i sjó, en önn- ur aðalpersónan, Gréta.siturá bryggju. Hin aðalpersónan er litill grár fiskur með minni- máttarkennd af þvi að honum finnst hann vera svo ljótur og það er Gréta sem ræður bót á vandræöum hans með þvi að binda á hann rauðan hálsborða. t tilskrifi frá Leikbrúðulandi stendur að þetta sé i fyrsta sinn sem Leikbrúðuland ræöst i þessa tækni i leikbrúðugerð”. Þaö kann rétt að vera, en þessi tækni minnir þó fremur á grimu-leiklist, en venjulegt brúöuleikhús, eða jafnvel grimu-dansa. Hvað um það, þetta var stór- skemmtileg sýning og nýstárleg i bezta máta og þarna var leikin undir tónlisteftir hið ágæta tón- skáld Atla Heimi Sveinsson, en tónlistin gefur sýningunni sér- stakan rythma og svip. Eftir tónum dansa fiskar, sæhross og krabbar. Þessi uppfærsla er meö þvi frumlegasta sem sézt hefur i sviðstækni lengi. Hin útfjólu- bláa lýsing kemur þó reyndum sjómönnum og öðrum ferða- löngum ekki með öllu á óvart, þvi fjólublá ljós eru viða I djúp- um rökkrum svokallaðra skemmtistaða i hafnarborgum heimsins. Þar verða drullugar skyrtur hvitar og kámug slifsi glóa sjálflýsandi i glæsileik hinna djúpbláa ljósa. Gamlar kerlingar sýnast ung- ar sem er verra. Meistari Jakob Síöara stykkiö var með hefð- bundum hætti. Brúður, sem stjórnað var neöan frá „léku” verkið. Maöur er svolitið byrjaður aö venjast brúðunum, þvi allt tekur sinn tima. Aðalpersónur er meistari Jakob, er krakkar i leikhúsinu þekktu sýnilega og er hann góöur. Svo er andstæðan, vondur karl, tröll sem býr i skógi, og svoauðvitaðkóngur og kóngsdóttir og svo skemmtileg hryssa, sem kóngsdóttirin fær i afmælisgjöf. Prinsessunni er rænt, en meistari Jakob bjargar öllu eins og vera ber. Þetta tókst prýðilega og börnin voru svo áhugasöm, að stundum mátti ekki á milli sjá hvorir léku meira áhorfendur eða leikendur. Llklega er það einmitt svona sem barnaleik- húsið á aö vera, og maður heyrði hjartsláttinn i brjóstun- um ungu út um allt, þegar sá vondi var hvað glæfralegastur i hátterni sinu. Það er Hólmfriður Pálsdóttir sem stjórnar leikjunum tveim. Einnig samdi hún leikgerðina af gráa fiskinum og af Meistara Jakob. Leikmynd gerði Þor- björg Höskuldsdóttir i sam- vinnu við Leikbrúðuland. Frumsýnt var fyrir troðfullu húsi, en sýnt mun veröa á hverj- um sunnudegi klukkan þrjú. Brúður og grimur Það var góð hugmynd að sýna tvöólikverk á sömu sýningu og Framhald á bls. 23

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.