Tíminn - 04.03.1976, Side 7
Fimmtudagur 4. marz 1976.
TÍMINN
7
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn-
arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri: Helgi H.
Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrlmur Gislason. Rit-
stjórnarskrifstofur I Edduhúsinu viö Lindargötu, simar
18300 — 18306. Skrifstofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — af-
greiðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verð I lausa-
sölu kr. 40.00. Áskriftargjald kr. 800.00 á mánuði.
Blaðaprent h.f.
Rannsóknar-
lögregla ríkisins
Nýlega hefur verið lagt fram i neðri deild
stjórnarfrumvarp um rannsóknarlögreglu rikis-
ins. Tildrög þess eru þau, að haustið 1972 skipaði
Ólafur Jóhannesson dómsmálaráðherra fjóra
lögfræðinga i nefnd, sem skyldi athuga hvernig
hraða mætti afgreiðslu dómsmála i héraði. Áður-
nefnt frumvarp er samið af þessari nefnd. Aðal-
efni þess er, að komið verði á fót sérstakri stofn-
un, rannsóknarlögreglu rikisins. Yfirmaður þess-
arar stofnunar nefnist rannsóknarlögreglustjóri,
sem þykir heppilegra orð en rannsóknarstjóri.
Ljóst er, að embætti rannsóknarlögreglustjóra
rikisins verður mjög þýðingarmikið. Þykir þvi
eðlilegt, að það heyri beint undir dómsmálaráð-
herra, enda þarf rannsóknarlögreglustjóri að
hafa jafna aðstöðu gagnvart öllum lögreglustjór-
um á landinu stöðu sinnar vegna. Hann verður að
sjálfsögðu að hlita fyrirmælum rikissaksóknara
lögum samkvæmt eins og aðrir lögreglustjórar.
Stofnun rannsóknarlögreglu rikisins hefur þá
breytingu m.a. i för með sér, að yfirsakadómar-
inn i Reykjavik verður ekki lengur yfirmaður
rannsóknarlögreglunnar i Reykjavik, svo sem nú
er. Er þar með stigið spor i þá átt að aðskilja
dómsvald i opinberum málum og lögreglustjórn,
þó að ekki þyki fært að stiga það skref til fulls.
Tæplega verður um það deilt, að rétt sé að fylgja
fordæmi annarra þjóða um slikan aðskilnað.
Frumvarpið gerir ráð fyrir, að starfandi verði
sérstök rannsóknarlögregludeild við lögreglu-
stjóraembættið i Reykjavik, er rannsaki til fulln-
ustu vissa flokka brotamála, þar á meðal brot á
umferðarlögum, sem er einn umfangsmesti
málaflokkurinn a.m.k. að þvi er málafjölda
varðar. Þegar er starfandi sérstök umferðardeild
hjá lögreglustjóraembættinu i Reykjavik. Má
ljóst vera, að það verður kostnaðarminna fyrir
rikissjóð og verulegt hagræði fyrir almenning, að
slik brot séu rannsökuð til fullnustu á sama stað i
stað þess sem nú er, að frumrannsókn fer fram
hjá lögreglustjóraembættinu, sem siðan sendir
málin til rannsóknarlögreglu til áframhaldandi
rannsóknar.
Rannsóknarlögreglu rikisins er aftur á móti
ætlað að rannsaka meiri háttar afbrot, svo sem
brot á hegningarlögum. Ætlazt er til, að hún hafi
á að skipa hinum hæfustu mönnum, sem völ er á,
sérfróðum á ýmsum sviðum rannsókna.Ekki er
sizt nauðsynlegt, að þar séu menn sérfróðir um
bókhaldsrannsókn, en rannsókn mála dregst oft
úr hófi fram, þegar bókhaldsrannsókn þarf að
framkvæma. Rannsóknarlögreglustjóri á að geta
sent sérfræðinga sina til aðstoðar lögreglustjór-
um hvar sem er á landinu, þegar þörf krefur.
Einnig er eðlilegt, að rannsóknarlögregla rikisins
hafi með höndum rannsóknir i þeim málum, sem
spanna yfir mörg lögsagnarumdæmi, svo sem oft
er t.d. i smyglmálum.
í greinargerð frumvarpsins er bent á, að þessi
nýskipan mála kunni.að hafa nokkurn aukinn
kostnað i för með sér, enda þótt jafnframt yrði
komið á ýmsum skipulagsbreytingum, sem
gætu leitt til sparnaðar. Enginn mun þó telja
slikan kostnaðarauka eftir. Aðalatriðið er að
styrkja réttarfarið og tvimælalaust verður stigið
stórt spor i þá átt með þeirri nýskipan, sem hér er
fyrirhuguð.
ERLENT YFIRLIT
___________N______
Hörð kosninga-
barátta í Florida
Tekst Carter að sigra Wallace?
Carter i hópi fylgismanna i Florida
(JRSLIT prófkosninganna,
sem fóru fram i Massachu-
setts i fyrradag, hafa aöallega
vakiö athygli vegna sigurs
Jacksons öldungadeildarþing-
manns, en hann fékk flest at-
kvæöi hinna sjö frambjóöenda
demókrata, sem kepptu þar.
Hann fékk aö visu ekki nema
24% greiddra atkvæöa, en
þetta sýnir eigi aö siöur aö
hann nýtur vaxandi fylgis.
Jackson gaf einnig kost á sér
sem frambjóöandi demókrata
fyrir forsetakosningarnar
1972, en hann fékk ekki nema
2% af atkvæöunum, sem voru
greidd 1 prófkjörinu þá. Segja
má, aö hann hafi veriö aö
undirbúa framboö sitt fyrir
forsetakosningarnar 1976
stööugt siöan, og hefur honum
oröiö sérstaldega vel ágengt
aö þvi leyti, aö hann hefur
fengiö rifleg framlög I kosn-
ingasjóö sinn. Einkum fær
hann rifleg fjárframlög frá
Gyöingum, en litiö er á hann
sem helzta talsmann Israels i
öldungadeildinni. Jackson
hefur tvimælalaust gildastan
kosningasjóö þeirra fram-
bjóöenda demókrata, sem
hafa gefiö kost á sér til þessa.
Prófkjöriö I Massachusetts er
fyrsta prófkjöriö, sem Jack-
son tekur þátt i aö þessu sinni,
og mun sigur hans 1 þvl reyn-
ast honum verulegur styrkur.
Vafalltiö styrkir þaö aöstööu
hans I prófkjörinu, sem fer
fram I Florida á þriöjudaginn
kemur, en þar keppir hann
aöallega viö þá Wallace, rikis-
stjóra I Alabama, og Carter,
fyrrum rlkisstjóra I Georglu.
Jackson hefur ekki þótt sigur-
vænlegur þar, en hins vegar
hefur hann bundiö miklar von-
ir við prófkjöriö I New York,
sem fer fram 6. aprll. Hann
nýtur öflugs stuönings
Gyöinga, sem eru mjög fjöl-
mennir þar. Fyrir Jackson
yröi þaö mikill ávinningur, ef
hann ynni sigur I næststærsta
riki Bandarikjanna.
ÚRSLITIN i Massachusetts
uröu nokkurt áfall fyrir Cart-
er, sem fékk ekki nema um
14% atkvæöanna hjá demó-
krötum, og varö fjóröi I röö-
inni. Tvennt er taliö hafa or-
sakaö þetta. Annaö er þaö, aö
eftir prófkjöriö i New Hamps-
hire, þar sem hann varö sigur-
sælastur, hafa keppinautar
hans beint spjótum sinumgegn
honum I vaxandi mæli, eins og
venjan er aö veröi hlutskipti
þess, sem þykir sigurvæn-
legastur. Hitt er þaö, og senni-
lega hefur þaö ráöiö meiru, aö
Carter hefur litiö beitt sér I
Massachusetts, þvl aö hann
hefur lagt aöaláherzlu á bar-
áttuna viö Wallace i Florida.
Fyrir Carter skiptir höfuömáli
aö sigra Wallace þar, en
Wallace vann þar mikinn sig-
ur I prófkjörinu 1972. Sigri
Carter i Florida hefur hann
mjög styrkt aöstööu slna.
Sennilega eru úrslitin I Massa-
chusetts verst fyrir Carter aö
þvl leyti, aö Wallace reyndist
honum fylgissterkari þar, en
hann fékk um 18% atkvæð-
anna. Þaö sýnir, aö Wallace á
einnig verulegu fylgi aö fagna
utan Suöurrlkjanna.
Kosningabaráttan i Flórida
vekur þó ekki mesta athygli
sökum þess aö þeir Carter og
Wallace leiöa þar saman hesta
slna. Aðalathyglin þar beinist
aö gllmu þeirra Reagans og
Fords. Reagan hefur steftit
markvisst að þvl aö sigra þar,
og hingaö til hafa skoöana-
kannanir spáö honum sigri.
Ford hefurhins vegar veriö aö
vinna á. Þeir voru þar báöir á
kosningafundum um siöustu
helgi og virtist Ford þá veita
betur. Þaö yröi verulegur sig-
ur fyrir Ford, ef hann ynni
prófkjöriö i Florlda, og ynni
svo aftur I Illinois, en þar fer
fram prófkjör viku seinna.
Tapi Reagan I báöum þessum
rlkjum, er vonlítiö fýrir hann
aö halda baráttunni áfram.
Aðstaða Fords myndi hins
vegar versna verulega, ef
hann biöi ósigur bæöi I IUinois
og Flórida, en þó ekki veröa
vonlaus, þvi aö andstaöan
gegn Reagan myndi þá
haröna.
Fyrir Ford er þaö verulegur
styrkur, aö hann vann mikinn
sigur I Massachusetts, þar
sem hann fékk einn 70% at-
kvæðanna. Hvorki hann eöa
Reagan tóku verulegan þátt i
baráttunni þar, heldur ein-
beittu sér að Florida, eins og
Carter.
(JRSLITIN i Massachusetts
virðast leiöa i ljós, aö Udall,
fulltrúadeildarþingmaöur frá
Arizona, er fylgissterkastur
meðal hinna frjálslyndari
demókrata, sem hafa gefið
kost á sér til framboös. Hann
fékk 18% atkvæöanna eöa
jafnmikiö og Wallace. Hann
varö einnig hlutskarpastur
þeirra INewHampshire.Eftir
úrslitin I þessum tveimur rikj-
um reikna flestir meö því, aö
þeir Fred Harris, fyrrum
öldungadeildarþingmaöur frá
Oklahoma, og Sargent Shriv-
er.mágur Kennedy-breðra, séu
úr sögunni. Sennilega gildir
þetta einnig um Birch Bayh,
öldungadeildarþingmann frá
Indíana. Þaö gæti oröiö Udall
mikill styrkur, ef allir þessir
þremenningar heltust úr lest-
inni og hann yröi einn um að
afla sér fylgis meöal frjáls-
lyndari demókrata.
Raunverulega má segja, að
eftir þessi fyrstu prófkjör séu
ekki nema fjórir eftir af þeim
demókrötum, sem hafa gefiö
kost á sér, eöa þeir Jackson,
Carter, Wallace og Udall.
Enginn þeirra hefur enn
tryggt sér það forskot, aö geta
talizt sigurvænlegastur á
flokksþinginu, sem útnefnir
forsetaefni demókrata. Enn
bendir þvl margt til, að Hu-
bert Humphrey veröi forseta-
efni demókrata, en hann tekur
ekki þátt I prófkjörum.
Athyglisvert er, aö þaö virt-
ist mjög sigurvænlegt aö vitna
til stuönings þeirra, sem mest
létu taka til sln viö rannsókn
Watergatemálsins. Þannig
hampaði Udall þvi, aö hann
nyti stuönings Cox, sem Nixon
lét reka, en Jackson hampaöi
meömælum frá Ervin, sem
var formaöur þeirrar nefndar
öldungadeildarinnar, sem
haföi máliö til meðferöar. Þá
kann þaö aö hafa styrkt Jack-
son nokkuð, aö hann lýsti yfir
þvi, að hann myndi gera Pat
Moynihan, fyrrum sendiherra
hjá Sameinuöu þjóöunum, aö
utanrikisráöherra sinum, ef
hann yrði forseti. Moynihan er
aö sönnu umdeildur, en hefur
aflaö sér fylgis ýmissa meö
þvi aö vera ómyrkur i máli.
Þ.Þ.
Ford meöal blómarósa f Florida
Þ.Þ.