Tíminn - 14.03.1976, Page 6
6
TÍMINN
Sunnudagur 14. marz 1976
Ingólfur Davíðsson:
Byggt og búið
í gamla daga
14
Kirkjan á Þingmúla i Skriðdal (1968)
1108. þætti 25. janúar var birt
mynd af óþekktu fólki á ferða-
lagi. Gunnlaugur Halldórsson
arkitekt hefur látið i té upplýs-
ingar þær um myndina, er hér
fara á eftir. Myndina tók Hall-
grimur Einarsson haustið 1903
eða vorið 1904. Hefur fólkið
e.t.v. verið á leiö frá Akureyri
austur i Vaglaskóg. Undir foss-
inum litla, lengst t.h. á mynd-
inni, er frú Anna Gunnlaugsson
(þá frk. Therp), fædd i Kaup-
mannahöfn 16/12. 1885, dáin
22/8. 1965. Ættuð frá Kaupangi i
Eyjafirði, gestkomandi hjá
móðursystur sinni Onnu Er-
lends kaupkonu, er þá verzlaði i
Fjörunni á Akureyri. Maðurinn
við hlið Onnu Gunnlaugsson er
unnusti hennar Halldór Gunn-
laugsson læknir, þá hjá Guð-
mundi Hannessyni (1903-1905),
siðar á Rangárvöllum, og i
Vfestmannaeyjum 1906-1924.
Halldór fæddist á Skeggjastöö-
um i Bakkafiröi 25/8. 1875, for-
eldrar séra Gunnlaugur Hall-
dórsson, siðar á Breiðabólstað i
Húnavatnssýslu, og kona hans
Margrét Andrea Lúðvigsdóttir
Knudsen. Halldór fórst, ásamt 6
vöskum dugnaðarmönnum, við
Eyjar 16/12. 1924. Lengst t.v. á
myndinni mun vera fylgd-
armaður, en við hlið hans, á
gráa hestinum, bórhallur
Gunnlaugsson, hálfbróðir Hall-
dórs (samfeðra). Móðir Þór-
halls var Halldóra Vigfúsdóttir
spitalahaldari, siöari kona séra
Gunnlaugs. Þau komu, ásamt
Halldóri, talsvert við leikstarf-
semi á Akureyri á þessum
árum. Þórhalls minnast margir
i sambandi við heitstrengingar
ungmennafélaga um aldamótin.
Þórhallur hét þvi ,,að lifa 100 ár,
eða liggja dauður ella”.
Övist er hverjar konurnar
tvær á miðri myndinni eru.
önnur kynni aö vera Hólm-
friöur, seinni kona Sigmundar
úrsmiös(?) Ólafur Halldórsson,
nú læknir á Akureyri, er elztur
barna þeirra Halldórs og önnu.
Höldum austur á land. Þegar
komið er af Fjöllum niöur i
Vopnafjörð vekur stórbýlið
gamla Burstarfell ærna athygli.
Reisulegur burstabær eins og
sjá má á korti Litbrár. Þilin eru
rauð og þek-ur grænar af grasi,
en burnirótartoppar prýða milli
veggi ofan til. Bænum er haldið
við, en þar er margt að sjá i
mörgum vistarverum, enda
leggja margir ferðamenn þang-
að leið sina. Stöku steinhús hafa
verið byggð i burstastil, t.d.
Laugarvatnsskólinn. Þórodd-
staðir við Reykjanesbraut i
Reykjavik bera og að nokkru
þennan sama burstasvip, þó úr
steini sé. Húsið er nú hvitt meö
grænu þaki. Það hefur staðið
lengi og vakið þægilega eftir-
tekt.
Jón Amfinnsson garðyrkju-
maður hefur léð mynd af kirkj-
unni i Þingmúla i Skriðdal. Var
hún grá og bárujárnsklædd þeg-
ar Jón var þarna á ferð 1968, en
var gerð upp siöar, máluð rauð-
brún og lagt inn rafmagn. 1
Þingmúla var til forna þing-
staður fyrir fjórðunginn, og
siðar var þar lengi prestssetur.
Draga Múlaþing og Múlasýslúr
nafn af staðnum. Torfbæir týna
óðum tölunni. Hér gefur að lita
einn, Atlastaði, sem verið er að
rifa norður við Eyjafjörö. Geta
athugulir menn eflaust glöggv-
að sig á ýmsu er kemur i ljós
undan torfinu.
Burstarfell
Veriö að rifa svarfdælskan sveitabæ (1975) Þóroddsstaðir I Reykjavik 15. sept. 1975 (Guðmundur faöir
Karolfnu vefnaðarkonu lét byggja húsið 1928).
Fólk á feröalagi 1903 eða 1904