Tíminn - 14.03.1976, Page 24
24
TÍMINN
Sunnudagur 14. marz 1976
A FLOTTA FRA ASTINNI
Eftir Rona Randall 6
dragtina sína. Þetta var ekki góð byrjun. Hún stóð
frammi fyrir yfirlækninum, ringluð og skömmustuleg.
— AAá ég....
Hönd hans var stór, en grönn og vel löguð og hann f jar-
lægði blettinn með vasaklútnum sínum. Síðan tók hann
viðtómum bollanum, setti hann frá sér og benti á stól við
skrif borðið.
AAyra sá frammi fyrir sér mann með vakandi augu,
munn, sem áreiðanlega gat brosað, þegar tækifæri
gafst, og hreina andlitsdrætti. Hann var ekki eins og hún
hafði vænzt, stuttur í spuna og málef nalegur, já eða ógn-
vekjandi. Þessi maður var rólegur, kurteis og blátt
áf ram.
— Doktor Henderson, það er skylda mín að bjóða yður
velkomna hingað, en ég tel það líka skyldu mína að vekja
athygli yðar á þvi, aó sjúkrahússtjórnin réð yóur gegn
vissri andstöðu.
— En voru skjöl mín ekki fullnægjandi?
— AAjög svo f ullnægjandi. Það var auðvitað ástæðan til
þess, að ekki var tekið tillit til andstöðunnar.
— Á hverju byggðist hún?
— Tortryggni á kvenkyns lækna. Hér hef ur aldrei verið
kvenkyns læknir áður.
— Óskráð lög, að þvi mér hefur skilizt.
— AAörg óskráð lög eru byggð á heilsteyptum grund-
velli.
— Það geta þessi ekki verið!
Hann leit snöggt á hana. Nú.....svo hún hafði kjark!
Hún var þá ekki aðeins viljugt verkfæri, sem myndi taka
öllu, sem því væri sagt að gera? Það gat oróið óheppi-
legt....eða gott. Að sjálfsögðu var það gott fyrir karl-
mann — en ókvenlegt fyrir kvenmann. Hann var ekki
alveg viss um, að honum geðjaðist að uppgötvun sinni.
— En, hélt hann áfram.— Fyrst þér eruð komnar hing-
að, leyfi ég mér að segja að ég vona, að yður líki vel
hérna og að þér megið verða sjúkrahúsinu að gagni. St.
George skiptir mig miklu máli.
Það, hugsaði hún, var áreiðanlega of lítið sagt. Hvað
hafði dr. Harwey sagt? Að maðurinn lifði fyrir sjúkra-
húsið, að það væri upphaf og endir lífs hans. Allt í lagi,
hugsaði hún. Það skal verða upphaf og endir fyrir mig
lika. Ég skal ekki hafa áhuga á neinu öðru. Þess vegna
kom ég hingað, til að komast burtu frá afganginum af
heiminum.
Hún var á f lótta f rá ástinni og hún vissi það sjálf.
AAark Lowell stóð upp. — Ég skal kynna yður fyrir rit-
ara okkar, hann mun sýna yður sjúkrahúsið. Þér munuð
áreiðanlega komast að raun um, að allir hér eru hjálp-
samir. Verkefni yðar munu verða mörg og á hinum ólík-
legustu tímum, þannig er það hjá okkur öllum og sá, sem
ekki getur starfað með okkur, gerir réttast i því að yf ir-
gefa staðinn á stundinni.
Hún leit beint á hann. — Dr. Lowell — er yður á móti
skapi, að ég hef ji störf hér við St. Georges?
— Ég vil aðeins hafa hér starfsfólk, sem er til gagns
fyrir sjúkrahúsið — er því til sóma.
— Og er einhver ástæða til að ætla, að ég geti ekki verið
það?
— Já, þér eruð kona og það gerir yður óáreiðanlega og
ótrausta, hvað tilf inningar varðar. Sem kona gætuð þér
líka tekið upp á því að gifta yður skyndilega og koma
okkur í vanda. Þegar karlmaður kvænist, gerir hann það
ekki. Hann heldur starfi sínu áfram. En gift kona, sem
heldur starfi sínu áfram, er aðeins plága. Annað hvort
fórnar hún f jölskyldunni vegna starfsins, eða starfinu
vegna f jölskyldunnar. Hvoru tveggja getur ekki gengið
fyrir hjá henni.
AAyra dró djúpt andann. — Ég get f ullvissað yður um,
að ég ætla ekki að gifta mig og ég verð heldur ekki
óáreiðanleg. Ég er komin hingað til að fylla stöðu og það
ætla ég að gera. Það er aðeins eitt, sem mig langar til að
vita— hver var það, sem var andvigur ráðningu minni?
— Ég, svaraði AAark Lowell.
— AAér datt það í hug. Jæja..þá veit ég að minnsta
kosti, hvar ég stend.
3. kaf li
AAyra fékk leigt notalegt herbergi rétt hjá Sorbonne, en
fyrsta mánuðinn gafst henni ekki tækifæri til að skoða
sig um i París. Það sem David hafði sagt henn um vinnu-
hörkuna á sjúkrahúsinu og lítinn tíma fyrir sjálfan sig,
hafði reynzt satt. Hún hafði heldur ekki umgengizt
David mikið, aðeins hit hann á stof ugangi, eða á f undum
Sunnudagur
14. marz
8.00 Morgunandakt. Séra Pét-
ur Sigurgeirsson vigslubisk-
up flytur ritningarorð og
bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög.
9.00 Fréttir. Otdráttur úr for-
ustugreinum dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10
Veðurfregnir). a. Verk eftir
Carlo Tessarini, Georg
Philipp Telemann og Carl
Philipp Emanuel Bach.
Evelyn Barbirolli og Valda
Aveling leika á óbó og sem-
bal. b. Pianósónötur eftir
Padre Antonio Soler. Mario
Miranda leikur. c. Kvintett
eftir Friedrich Kalkbrenn-
er. Mary Louise Boehm
leikur á pianó, Arthur
Bloom á klarinettu, Howard
Howard á horn, Fred Sherry
á selló og Jeffrey Levine á
kontrabassa.
11.00 Guðsþjónusta i Akur-
eyrakirkju á vegum æsku-
lýðsstarfs þjóðkirkjunnar
og hjálparstofnunar kirkj-
unnar — að lokum æskulýðs-
og fórnarvikunnar. Séra
Birgir Snæbjörnsson þjónar
fyrir altari. Þrir mennta-
skólanemar, Jón Helgi Þór-
arinsson, Jóhann Baldvins-
son og Guðrún Sigurjóns-
dóttir, flytja stuttar hug-
leiðingar. Kirkjukór Akur-
eyrar og félagar i Æsku-
lýðsfélagi Akureyrarkirkju
syngja. Organleikari:
Jakob Tryggvason.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.15 Erindaflokkur um upp-
eldis- og sálarfræði Gylfi
Asmundsson dósent flytur
sjötta erindið: Hópsálar-
fræði og hóplækningar.
14.00 Undir vorhimni. Um
uppvöxt og fyrstu starfsár
Ásgrims Jónssonar málara.
Björn Th. Björnsson list-
fræðingur tekur saman efn-
ið. Lesari með honum er
Sveinn Skorri Höskuldsson
prófessor. Fyrri dagskrá.
14.45 Miðdegistónleikar:
„Lúkasarpassian” eftir
Krzysztof Penderecki.
Flytjendur: Einsöngvar-
arnir Stefania Woytowicz,
Andrzej Hiolski og Bernard
Ladysz, drengjakór,
blandaður kór og Filhar-
móniusveitin i Kraká.
Stjórnandi: Henryk Czyz.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Framhaldslcikritið:
,,Upp á kant við kerfið” Olle
Lansberg bjó til flutnings
eftir sögu Leifs Panduros.
Þýðandi: Hólmfriður Gunn-
arsdóttir. Leikstjóri: Gisli
Alfreðsson. Persónur og
leikendur i þriðja þætti: Da-
við, Hjalti Rögnvaldsson.
Mamma, Herdis Þorvalds-
dóttir. Schmidt læknir, Æv-
ar R. Kvaran. Hugo,Bjarni
Steingrimsson. Traubert,
Helgi Skúlason. Fabby,
Bessi Bjarnason. Kamma,
Sigrún Björnsdóttir. Mari-
anna, Helga Stephensen.
17.00 Léttklassisk tónlist.
17.40 Útvarpssaga barnanna:
Spjall um Indiána. Bryndis
Viglundsdóttir heldur
áfram frásögn sinni (5).
18.00 Stundarkorn með banda-
riska pianóleikaranum
Adrian Ruizsem leikur verk
eftir Niels Gade. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 „Hjónakornin Steini og
Stina”, gamanleikþáttur
eftir Svavar Gests.
19.45 Frá tónlistarhátíðinni i
Schwctzingen i sumar.
Kammersveitin i Mainz
leikur. Gunter Kehr stjórn-
ar. a. Forleikur að óratori-
unni „Jósef” eftir Handel.
b. Sinfónia i g-moll op. 6 nr..
6 eftir Johann Christian
Bach. c. Cassation i G-dúr
(K63) eftir Mozart.
20.30 Námslán og náms-
styrkir. Rætt við mennta-
málaráðherra, fulltrúa