Tíminn - 14.03.1976, Side 27
Sunnudagur 14. marz 1976
TÍMINN
27
TRABANT UMBOÐIÐ
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg, simar 84510 og 84510
Pétur Gautur
á Húsavík
Leikfélag Húsavikur:
Höfundur:
Henrik Ibsen
Þýðing:
Einar Benediktsson
Tónlist:
Edwald Grieg
Leikstjóri:
Sigurður Hallmarsson
Gestaleikur: .
Gunnar Eyjólfsson
Leikmynd:
Hallmar Sigurðsson.
Leikurinn var frumsýndur i
Samkomuhúsinu á Húsavik
þriöjudaginn 24. febrúar sl.
Frumsýningargestir tóku sýn-
ingunni afburöa vel og fögnuöu
leikurum og leikstjóra lengi og
innilega i leikslok. Skemmst er
frá aö segja, aö sýningin tókst
mjög vel, og meö henni hefur
gerzt enn eitt ævintýriö á vett-
vangi leiklistar hér á Húsavik.
A Húsavík er maöurinn maö-
ur, dcki hjöl i vél, þvi er vera
gestsins, mannsins og lista-
mannsins, Gunnars Eyjólfsson-
ar, meöal okkarhér á Húsavlk á
rlkjandi vetrarmánuöum, hluti
ævintýrsins. Þaö er gott aö hafa
sin á meöal svo góöan gest frá
höfuöborginni. Ef til vill er ekki
raunhæft aö reyna aö gera
greinarmun á manni og lista-
manni I einum og sama mannin-
um, en til glöggvunar veröur aö
geta þess, aö maöurinn, Gunnar
Eyjólfsson, hefur með ágæti
sinu unniö hugi margra Húsvlk-
inga utan leikhúss sem innan. í
túlkun sinni á Pétri Gaut I leik-
húsinu stendur listamaðurinn
Gunnar vel fyrir sinu, og eru þó
gerðar til hans miklar kröfur.
Aðrir leikarar gera hlutverkum
sinum svo góð skil, að hvergi er
bláþráöur á I sýningunni. Sér-
staka athygli vekur mjög góöur
leikur Herdísar Birgisdóttur I
hlutverki Asu og Kristjönu
Helgadóttur I hlutverki Græn-
klæddu konunnar, dóttur Dofr-
ans. Ingimundur Jónsson leik-
ur Dofrann, svo aö vart verður
aö fundiö, óg ágætur er leikur
Einars Njálssonar I hlutverki
Hnappasteyparans. Framsögn
Ingimundar og Einars er sér-
staklega skýr, en helzt verður
aö flutningi leiksins fundiö, aö
framsögn einstakra leikara er
ekki eins skýr og bezt veröur á
kosiö.
Leikstjóri er Sigurður Hall-
marsson, og hefur hann áöur
stýrt tiu leiksýningum hjá Leik-
félagi Húsavlkur. Fyrsta verk
hans á þeim vettvangi var
Galdra-Loftur eftir Jóhann
Sigurjónsson. Sýningu á þvi
leikriti stýröi hann árið 1949, og
var hann þá aðeins tvitugur aö
aldri. Með árangri sinum viö
uppsetningu á Pétri Gaut sýnir
Sigurður enn hve ágætur leik-
listarmaður hann er.
Leikmyndina gerði Hallmar
Sigurðsson, sonur Sigurðar
Hallmarssonar og Herdisar
Birgisdóttur — Asu. Hallmar
stundar nám I leikhúsfræðum i
Sviþjóð, og hefur leikmynd hans
við Pétur Gaut verið samþykkt
sem prófverkefni hans við skól-
ann.
Það er munaður að geta
horfiö um stund frá kaldrana
vetrarmánaöa norðurhjarans
inn til ævintýrisins um Pétur
Gaut I gamla Samkomuhúsinu á
Húsavik. Þessa ævintýris, sem
enn eftir meira en hundrað ár
frá þvi er það var skrifaö, getur
sýnt okkur margan napran
raunveruleikann. Raunveru-
leikann um okkur sjálf og okkar
þjóð siöla á tuttugustu öld, eigi
siöur en um Norðmenn og
norsku þjóðina fyrir hundraö
árum. Heimir Pálsson segir i
stuttri grein , sem birt er i leik-
skrá: „Tækifærissinninn Pétur,
sem alltaf beygir hjá erfiðleik-
um, skeytir hvorki um skömm
né heiður, reynir. það eitt að
skara eld að sinni köku. Þessi
persóna var I Ibsens augum
sjálfur óli Norðmaður.” Þegar
þjóöarbú okkar íslendinga
stendur höllum fæti og við
eigum i harðri baráttu við erlent
riki um lifshagsmuni okkar, þá
leggjum viö niður vinnu i þeim
tilgangi einum að reyna aö ýta
erfiðleikunum af herðum sér-
hvers okkar yfir á herðar ein-
hvers annars okkar. Pétur
Gautur er ekki heill i neinu,
hann er svo hálfur i öllum hugs-
unum sinum og gerðum, að
jafnvel höfðinginn i Neðra telur
hánn einskis virði og vill ekki
lita við honum. Samt er Pétri
unnað: þess vegna fyrirferst
hann ekki. Hann á sér sinar
góðu hliðar, þrátt fyrir allt,
móður sinni, sem hann hefur
brugðizt eins og öllum öðrum,
fylgir hann til himna.
Sýningu Leikfélags Húsa-
vikur á Pétri Gaut fylgir ágæt
leikskrá, og er fengur aö henni
fyrir leikhúsgesti. Svo sem áður
er fram komið, er i leikskránni
stutt grein um leikritið og höf-
undinn eftir Heimi Pálsson.
Einar Njálsson skrifar um
gestaleikarann, Gunnar
Eyjólfsson, og leikstjórann,
Sigurð Hallmarsson. Sveinn
Skorri Höskuldsson skrifar þar
nokkur orð um þýðingu Einars
Benediktssonar á Pétri Gaut. I
grein sinni segir Sveinn Skorri á
þessa leið: „Það fer vel á þvi, að
Leikfélag Húsavikur sýnir nú
þann stórhug og menningarlega
metnaö að sýna Pétur Gaut, þvi
aö hér nyrðra á Héðinshöfða
gerði Einar fyrstu atlöguna aö
þýðingunni, og veturinn
1888-1889 vannhannað hennium
Sviðsmynd úr Pétri Gaut hjá Leikfélagi Húsavikur.
Pétur Sigurðsson
forstjóri
Landhelgisgæzlunnar
segir:
\.,Ég hef átt Trabant
bifreið frá 1967
og aðra frá 1974.
Að mínu áliti er Trabant ein bezta
smábifreið, sem ég hef ekið."
Vorum að fó sendingu
af Trabant-bifreiðum
VERÐ KR.
525.000
Innifalið í verði:
Ryðvörn og frágangur
Verð til öryrkja: Fólksbifreið kr. 364.000.
Lán kr. 150.000. Útborgun kr. 214.000.
Asa og Pétur Gautur/ Herdis
Birgisdóttir og Gunnar Eyjólfs-
son.
Ljósm.: Ljósmyndastofa Péturs
Húsavik.
þriggja mánaða skeið. Næst tók
Einar aftur til við þýðingu sina,
er hann að loknu námi dvaldi á
Héðinshöfða 1892-’94.” I þann
tima hefur Einar dvalið hjá
föður sinum Benedikti Sveins-
syni, sem þá var sýslumáður
Þingeyinga og bjó að Héöins-
höfða skammt norðan Húsa-
vikur.
Þegar þetta er ritað, er búið
aö sýna Pétur Gaut fimm sinn-
um á Húsavik og aðsóknin hefur
verið svo mikil, sem húsrýmið
hefur leyft.
Húsavik, 1. márz 1976
Þorm. J.