Tíminn - 14.03.1976, Page 28

Tíminn - 14.03.1976, Page 28
28 TÍMINN Sunnudagur 14. marz 1976 Ullarvörur frá Álafossl: Komnar inn á mark- aði á Italíu og í Kanada vaxandi markaðurí Japan 1 janúarmánuöi ár hveri eru valdar ákveðnar flikur, hannaðar og framleiddar úr ull, til þes að sýna og selja á erlend- um mörkuðum. Jafnframt er vandaður myndalisti gefinn út til að kynna þessan vörur, en upplag myndalistans i ár er 16.000 eintök. Þetta er fjórða árið i röð, sem slikur myndalisti er gefinn út, en um dreifingu á honum sér fyrirtækið sjálft, svo og umboðsmenn þess. Flikurnar eru framleiddar i 14 prjóna- og saumastofum, og eru 10 þessara fyrirtækja staðsett utan Reykjavikursvæðisins. Allar vörurnar eru framleiddar úr hráefnum frá Álafossi hf. sem siðan sér um sölu og freif- ingu þeirra á erlenda markaði. Að sögn forráðamanna Ala- foss hf. hafa niðurgreiðslur á kindakjöti orðið þess valdandi, að bændur hirða ekki nægilega vel um ullina, og sögðu þeir, að um 20% ullarinnar væri svo lé- legt hráefni, að ekki væri hægt að nýta hana. Þeir bentu á, að ullin hefði áður fyrr verið metin sem 8% af verðmæti sauðkind- arinnar., en vegna niður- greiðslna á kindakjöti hefði hlutfallið raskazt svo mjög, að nú væri ullin aðeins um 3% af verðmæti kindarinnar. Forráðamenn fyrirtækisins bentu á, að I frumvarpi Halldórs E. Sigurðssonar, landbúnaðar- ráðherra, um lækkun niður- greiðslna á dilkakjöti en hækk- un niðurgreiðslna á ull, væri stigið spor i rétta átt, og sam- kvæmt frumvarpinu ætti ull að ''erða 8% af verðmæti sauðkind- arinnar, eins og áður. Sögðu þeir, að áhrifa þessa myndi samt ekki gæta fyrr en að nokkrum árum liðnum. Siðastliðið haust hafði Skiða- samband Islands samband við ALAFOSS hf. og leitaði eftir þvi, hvort fyrirtækið hefur áhuga á að klæða ólympiufara okkar i sérstakan einkennisklæðnað. Svo skemmtilega vill til, að Olympiufarar 1935, eða fyrir 40 árum, fengu pokabuxur sem ferðabúning frá Álafossi hf. ís- lenzku Olympiufararnir voru nú klæddir i nýlega gerð af úlpum. Gsl—Reykjavik — Otflutnings- verðmæti ullarvara frá Álafossi hf. nam á siðastliðnu ári 575 milljónum kr. og svarar það til 2/3 hluta af heildarsölu fyrir- tækisins. Iðnaðarvörur Álafoss hf. hafa verið seldar i auknum mæli á erlendum mörkuðum siðustu ár, og að sögn forráða- manna fyrirtækisins, benda allar líkur til þess að enn frekari söluaukning muni verða á þessu ári. Helztu markaðssvæði fyrir ullarvörur Álafoss hf. eru nú Vestur-Evrópa, Norðurlönd og Bandarikin, en stöðugt er unnið að markaðsöflun fyrir útflutn- ingsvörur, og hefur t.d. nýverið verið gengið frá samningi á all- verulegum fatakaupum til Italiu og Kanada. Markaðs- svæði Álafoss hf. spannar hins vegar yfir allar heimsálfurnar, og geta skal þess, að Japan er mjög vaxandi markaðssvæði. 10423 víxlarafsagðir A árinu 1975 voru 10.423 vixlar afsagðir hjá 2790 fyrirtækjum. Heildarupphæðin var tæpir 3,9 milljarðar króna. Upplýsingaskrifstofa Verzlunarráðs Islands hefur gert skrá um þau fyrirtæki, sem farið hafa yfir ákveðið mark i fjölda eða upphæð afsagna. A afsagna- lista fyrir 1971 voru 509 fyrirtæki, 1972 voru þau 598, 1973 664, 1974 845 og 1975 1101. Færðar hafa ver- ið spjaldskrár yfir firmaskrán- ingar, gjaldþrot og dóma. Hjá upplýsingaskrifstofunni geta fyrirtæki nú fengið skýrslur um einstök fyrirtæki önnur og nú hef- ur verið tekin upp sú þjónusta, að félagsmenn geta fengið sendan mánaðarlegan vanskilalista, sem til þessa hefur eingöngu verið sendur bönkunum. Athugasemd I helgarspjalli minu i Timan- um s.l. sunnudager ranglega sagt frá niðurstöðu Kirkju þings 1974 varðandi frv. til laga um veitingu presta- kalla. Rétt er, að meðmæli með frv. voru samþykkt með 13 atkv. gegn 2. Undirritað- ur, sem var samþykkur, var fjarverandi, en telur sig hafa haft fregnir af afgreiðslunni, á þann háttsem skýrt er frá i greininni, þótt ekki breyti þetta miklu um niðurstööu er rétt að hafa það sem sannara er. Hlutaðeigendur eru beðnir afsökunar á mistökunum. Gunnlaugur Finnsson Víxlaafsagnir hjá fyrirtækjum með 5 afsagða víxla eða fleiri, eða afsagða víxla að nafnverði yfir kr. 300.000 samtals í Reykjavík. Andvirði vixla 10 Fjöldi Heildar stærstu vixla 1975: Fjöldi Fjöldi upphæð vanskilenda 10 stærstu ’ víxla fyrirtækja þús. kr. þús. kr. vanskilenda Janúar 733 191 226.334 95.116 134 Febrúar 741 197 426.913 237.888 153 Marz 765 237 459.277 243.221 131 Apríl 1094 270 395.660 122.433 193 Maí 892 238 363.484 129.661 149 Júní 866 235 319.447 145.159 152 Júlí 912 248 266.461 69.144 145 Ágúst 928 255 334.159 108.960 157 September 718 196 228.931 86.852 132 Október 677 195 205.617 65.114 128 Nóvember 810 206 233.746 81.955 146 Desember 1287 322 415.409 133.810 194 1975 10.423 2.790 3.875.438 1.519.313 1.814 1974 8.833 2.020 2.109.211 779.338 1.859 1973 8.086 1.518 1.132.554 418.350 1.816

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.