Tíminn - 14.03.1976, Blaðsíða 30

Tíminn - 14.03.1976, Blaðsíða 30
30 TÍMINN Sunnudagur 14. marz 1976 Margar stórstjörnur poppsins orðaðar við Listahátíð — ROLLING STONES, DAVID BOWIE, ELTON JOHN, PAUL McCARTNEY OG WINGS OG JONI MITCHELL LISTAHATÍÐ 1976 verður haldin dagana 4.-16. júní n.k. og aö þessu sinni er stefnt að þvi, að fá hingað til lands erlenda popphljómiistar- menn. Engar ákvarðanir hafa verið teknar i þessum efnum enn sem komið er, en Hrafn Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Listahátið- ar, hefur „allar klær úti” svo notuð séu hans eigin orð, og mun að sögn gera allt, sem i hans valdi stendur til þess að erlendir popp- hljómiistarmenn komi tii islands á sumri komanda. Hrafn hefur vlða oröið sér úti um „sambönd”, og m.a. annars er hann I Sam- bandi við umboðsmenn Rolling Stones, Eiton Johns, David Bowies, Wings og fleiri. Þó hefur verið haft beint samband við t.d. Joni Mitcheil. Nútiminn rabbaði við Hrafn Gunnlaugsson um erlent popp á Listahátið 1976. — Ég vil ekki vekja of miklar vonir, sagði Hrafn i upphafi, ef af- þessu getur ekki oröið. Hins vegar finnst mér rétt að greina frá þvi, sem gert hefur verið, fyrst spurt er. Rolling Stones — Ég hef að undaníörnu stað- ið i sambandi við Peter Rudge, sem er umboðsmaður Rolling Stones varðandi hljómleika- ferðir þeirra, ogathugað mögu- leika á þvi, að fá Rolling Stones hingað á Listahátið, sagði Hrafn Gunnlaugsson framkvæmda- stjóri Listahátiðar 1976 i samtali við Nú-timann. — Rolling Stones hyggja á hljómleikaferð um Norðurlönd i vor og það er von okkar, að hijómleikarnir beri upp á sömu daga og hátiðin. — Að visu myndi ég telja að möguleikarnir á þvi, að hijóm- sveitin væri á leið yfir Atlants- hafið einmitt dagana 4.-16. júni, væru eitthvað u.þ.b. einn á móti tiu. — Það er hins vegar spurn- ing, hvort ekki væri hægt að fá Rolling Stones til að hafa við- dvöl hér, þótt það yrði ekki ein- hvern þeirra daga sem hátiðin Ntendur yfir. Þetta atriði get ég þö ekki ákvarðað neitt um, heldur eingöngu varpað fram þeirri tillögu til viðkomandi að- ila, þ.e. Reykjavikurborgar og Menntamálaráðuneytis, sem standa að hátiðinni. — Þá vil ég taka það fram,að ég veit ekki ennþá, hve mikinn áhuga Rolling Stones hafa á þvi að koma til tslands. David Bowie — Elton John — — Við höfum fengið upp- lýsingar um það, að bæði David Bowie og Elton John verða á feröinni yfir Atlantshafið i sum- ar og U.S.I.S. (United States Information Service) á tslandi, kom okkur i samband við um- 'boðsmann þeirra, og nú erum við að athuga, hvort það sé fræöilegur möguleiki á þvi, að fá þessa listanienn til aðstaldra hér við eitt kvöld, sagði Hraln. U ings Bitillinn lyrrverandi Paul McCartney og hljómsveit hans Wings hafa verið orðaðir við Listahátið, og þvi inptum við llrafn eftir þvi, hvað væri að frétta varöandi Wings. — Strax og ég fékk upplýsing- ar um Erik Thomsen, umboðs- mann Wings, sem hefur með höndum hljómleikaferðir þeirra um Nopðurlönd, skrifaði ég hon- um bréf með beiöni um það, að hann léti okkur vita hvenær hljómsveitin yrði á ferð vestur um haf. Ég reikna með þvi að hann sendi mér hljómleikaáætl- un Wings og ' dagsetningar hljómleika, en að öðru leyti er ekkert um þetta að segja. Wings fara i hljómleikaferð um Norðurlönd i vor. Joni Mitchell — Jakob Magnússon benti mér á Joni Mitchell, sem hann þekkir eitthvað litillega sjálfur, sagöi Hrafn. — Hann skrifaði henni sjálfur bréf, og siðan hef égskrifað henniog tjáð henni að ég hafi haft samband við Jakob. Einnigsendi ég henni bæklinga, kort og ýmislegt annað um tsland — og hvatti hana til að ■koma. Svar hefur ekki borizt frá Joni. Who — Okkurbuðust Who, en bara það eitt að þeir kæmu fram á hljómleikum i Laugardalshöll- inni átti að kosta 2,5 millj. isl. kr. (6.000 pund), sagði Hrafn. Ofan á þetta hefði siðan bætzt kostnaður við flutninga á mörg- um tonnum hljómtækja og ferðir. Ég kannaði ekki hver heildarkostnaður yrði, þvi mer lannst þetta óheyrileg upphæð. — Tilboðið frá Who kom frá umboöi i Engiandi, og okkur var greint frá þvi, að Who gætu komið til íslands og leikið fyrir þessa upphæð. Bob Hylan — Dylan sýndi þvi áhuga að koma á Listahátið, sagði Hrafn, endaku hann þekkja eitthvað til tslands. Hins vegar eru engar likur á þvi, að hann komi, þar sem umboðsmenn hans tóku því Mick Jagger, söngvari The Rolling Stones. David Bowie. Elton John.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.