Tíminn - 14.03.1976, Blaðsíða 37
Sunnudagur 14. marz 1976
TÍMINN
37
ÞAÐ NALGAST nú óðum hálfa
öld siðan Héraðsskóli Suður-
lands var byggður á Laugar-
vatni.
Þrjú nöfn eru okkur minnis-
stæðust i sambandi við stofnun
hans.
Fyrst er að nefna þann er lét
af hendi land undir skólann,
Böðvar Magnússon. Hann seldi
jörö sina alla til handa skólan-
um og hætti þá þegar búskap.
Næst minnumst við Jónasar
Jónssonar, sem oft hefur verið
kallaður faöir Laugarvatnsskól-
ans. Hann sá Laugarvatn i öðru
ljósi en aðrir menn i þá daga.
Hann sá það fyrst og fremst sem
skólaáetur, þar sem ungt fólk
nyti menntunar. En hann sá það
einnig sem paradis ferða-
mannsins, tilvalið til hvildar og
hressingar. Einnig vettvang.
ungs fólks til leikja og likams-
ræktar. Þá var Laugarvatn i
augum Jónasar tilvalið til
margs konar listsköpunar, enda
hafa listamenn gjarnan lagt
þangað leið sina.
Það verður ekki ofsögum sagt •
af þvi dálæti, sem Jónas frá
Hriflu hafði á Laugarvatni. En
hvers 'vegna þurfti alla jörðina,
nokkur þúsund hektara? Það
var vegna þess að fyrstu árin
rak skólinn búskap á jörðinni.
Ég byst við að það hafi verið
hugmynd Jónasar með það fyrir
augum, að nemendur fengju ó-
dýra landbúnaðarvöru, en á
þessum árum fór ótrúlega mik-
ill hluti vöruverðs, t.d. mjólkur,
i dreifingarkostnað, gæti trúað
að mjólk hafi nærri fjórfaldazt i
verði á leiðinni frá framleiðand-
anum til neytandans.
Þriðja nafnið er Bjarni skóla-
stjóri Bjarnason. Hann mótaði
skólann frá upphafi má segja.
Hann var frumkvöðull margs
konar framkvæmda, áræðinn og
öruggur þótt um fjárfrekar
framkvæmdir væri að ræða.
Hér er löng saga og allmerkileg
og verður ekki sögð núna.
Timarnir breyttust nokkuð
fljótt eftir stofnun Héraðsskóla
Suðurlands. Það var liðinn ná-
lægt einn tugur ára þegar
heimsstyrjöldin siðari brauzt
út. Þá hækkaði allt verðlag, þó
sérstaklega kaupgjald, og erfitt
reyndist að reka búskap fyrir
þessa ungu stofnun, Laugar-
vatnsskólann, án þess að tap
yrði af.
Þá var það ráð tekið að leigja
búið og var sá háttur á haföur
um margra ára bil.
Nú hefst mikil uppbygging á
Laugarvatni. Nýir skólar með
ný andlit risa af grunni. Ný
gripahús fyrir kýr og kindur,
hlöður og súrheysturnar. Miklar
sviptingar á skákborði Laugar-
vatns og sótt fram ýmist á
kóngs- eða drottningarvæng.
Þegar skólunum fjölgaði
þurfti ýmsar framkvæmdir
fyrir þá sameiginlega. Ég veit
ekki, hvort hreppsnefnd Laug-
ardalshrepps hefur verið boðið
upp á að annast þær fram-
kvæmdir, eða hún hafi ekki kært
sig um að eiga þar hlut að máli,
nema hvort tveggja sé. Hins
vegar verður til um þetta leyti
Nokkur orð um
Laugarvatn
það sem kallað er Sameignir
skólanna á Laugarvatni.
Ég sé ekki ástæðu til að reka
homin sérstaklega i þá stofnun,
en finnst samt, að hér sé óæski-
legt stjórnunarkerfi innan sveit-
arfélagsins og vægast sagt of
flókið og þungt i vöfum. Hins
vegar ill nauðsyn, sem er að
kenna glapræði stjórnvalda
Laugardalshrepps á sinum
tima.
Ég kann ekki vel að lýsa þessu
stjórnkerfi, en veit þó, að skóla-
nefnd Héraðsskólans, að við-
bættum fjórum skólastjórum á
Laugarvatni, er hér hæstráð-
andi, innan gæsalappa þó.
Skólanefnd héraðsskólans er
dreifð viðs vegar um sveitir Ár-
nessýslu og er þvi ekki, af skilj-
anlegum ástæðum, mjög oft á
Laugarvatni. Hún hefur þviekki
áttmjög hægt um vik að fylgjast
með gangi mála þar.
Sagt er, að eitt sinn, er þeir
nefndarmenn óku til Laugar-
vatns, varð einum þeirra litið
upp i skógarhliðina að baki
gripahúsanna reisulegu. Varð
honum þá að orði eitthvað á
þessa leið:
A samri stundu varð þeim
ljóst, að hér þurfti að spyrna við
fótum og stöðva hina eyðandi
hönd. Með öðrum orðum: hér
var um ofbeit að ræða.
Og skólanefndin lét til sin
taka. Það vargefin út tilskipun
þess efnis, að mjólkurfram-
leiðslu skyldi hætt og hvers kon-
ar nautgriparækt lögð niður á
staðnum.
En hér þurfti meira til. Röðin
kom næst að sauðkindinni. Til-
vera hennar skyldi einníg bönn-
uð. Siðastur var það svo hestur-
inn, sem þótti hér hin óþarfasta
skepna. Hann fór sömu leiðina,
útrýmt af staðnum.
Við minnumst orða Sigurðar i
Dal, þar sem hann litur yfir
grasafjallið og hugleiðir hallær-
isárin — þegar hann kom, sá
sem timdi að skera. Fyrst féll
hesturinn, sagði Sigurður, þvi
næst sauðkindin, og siðast féll
kýrin. Nú, þetta er þveröfugt við
það, sem gerzt hefur á Laugar-
vatni, þvi þar var byrjað á
kúnni en endað á hestinum,
enda óliku saman að jafna,
skólanefnd Héraðsskólans og
honum — þejm, sem timdi að
skera.
Þannig standa þá málin i dag.
Engin kvikfjárrækt leyfð, en allt
kapp lagt á að græða upp þaö,
sem spillzt hefur. Skógrækt
rikisins hefur tekið málið i sinar
hendur og plantar nýgræðingi i
stað fallinna trjáa. Starf skól-
anna er einnig i blóma. En svo
þegar vorar og skólaæskan
pakkar niður, þá breytir margt
um svip á Laugarvatni. Vorið
breytir fjallshliðinni skógi
vöxnu, görðum borgaranna og
vatninu i spegil. Þá bera þeir
annað svipmót, sem leggja leið
sina um brautir staðarins og
gangstiga. Skólahúsum er
breytt i dvalarstaði og þjónustu-
stöðvar ferðamannsins, sem vill
dvelja þar um stund eða koma
við á hraðri ferð.
Barnaskólinn heldur sig nokk-
uð innan þess ramma, sem hon-
um er ætlað sem kennslutæki,
þvi þar eru námskeið ung-
menna- og iþróttafélaga. Sama
erhægt að segja um iþróttaskól-
ann. Þar er æskan einnig að
hollum leikjum undir stjórn
kennara. Er óhætt að segja, aö
þessir tveir skólar starfi i anda
Jónasar og þeirra garpanna
Björns Jakobssonar og Bjarna
skólastjóra.
Þá er það Héraðsskólinn.
Hann er hér gamall i hettunni og
hefur sina árvissu gesti. Skapar
það andrúmsloft, sem fylgir
gömlum húsum, og slær i engu
af sinum virðuleik, en er i
skýrslum feröamála skráður
annars eða þriðja flokks hótel.
Þá eru tveir skólar ótaldir, en
þeirra veröur ekki getið nema
beggja i senn i þessu sambandi.
Hótel Edda, eða Ferðaskrifstofa
rikisins, hefur með þessi hús að
gera yfir sumartimann. Þeir
eru þvi undir einni og sömu
stjórn báðir tveir.
Útlendingar gista mjög
þarna, og er veittur góður beini,
enda er hér um fyrsta flokks
hótel að ræða. Þó er það mál
manna að Húsmæðraskóli Suð-
urlands slái öllu við hvað aðbún-
að snertir. Þar er vel að merkja
stolt staðarins, barinn, þar sem
hinir þorstlátu fá svaladrykk,
hver að sinum geðþótta.
En það eru fleiri en hinir
framandi gestir, sem leggja
þangað leið sina. Frammámenn
koma þar gjarnan til að njóta
hvildar. Ef til vill finna þeir þar
úrræði aðsteðjandi vanda. Sjá
má andlit þeirra svifandi i
vindlareyk við angan dýrra
veiga. Þangað kemur lika
venjulegt fólk, jafnvel bændur
og iðnaðarmenn, að ógleymdri
æsku þessa lands. Hún sveimar
þarna i kringum stolt staðarins
likt og flugur i leit að hunangi.
Já, æskan lffsglaða, er á ferð
og Áugi syngjandi kát. Fer
greitt um nærliggjandi götur á
háværum bilum og raskar ró
þeirra, er næstir búa þessu
menningarinnar tákni, stolti
staðarins.
En þegar langt liður á kvöld
og gáski gengur úr hófi fram,
koma laganna verðir i svörtum
úniformum. Þeir fara að likt og
Laugarvatnsbóndinn áður fyrr,
er hann fór með rakka sina og
stuggaði túnrollum úr slægju-
löndum. Þeir stugga við liðinu,
sem sækir að barnum, smala
nágrennið og vikja hjörðinni inn
með fjallinu, þangað sem Skóg-
rækt rikisins hyggst vemda
skógarleifar og plantar nýgræð-
ingi.
Kannski á þetta æskufólk
tjald eða hjólhýsi að hverfa til,
falið i skógarr jóðri. Allt endar
samt i friði og spekt, þótt einn
og einn vilji gjarnan snúa við i
leit að meira hunangi.
Næsti morgunn innsiglar frið-
sælu staðarins með sól yfir
austurfjöllum, og ekkert mis-
smiði að finna utan vottur af
bréfarusli og nokkrar brotnar
flöskur.
Ingim. Einarsson.
Hvar er, góurinn,
græni skógurinn?
Ég er viss um að hann var
hérna i gær.
ÞRUMUFLEYGUR skiroule 76
Trillubátur til sölu
2 og 1/2 tonns, nýlegur með stýrishúsi og
góðri disilvél.
Tilboð merkt „Trilla no. 1894” sendist af-
greiðslu blaðsins fyrir 25. þ.m.
Upplýsingar i sima 21712 eftir kl. 8 á
kvöldin.
ORÐSENDING TIL f^t/CV
BÆNDA
Ilöfum kaupendur af öllum gerðum notaðra dráttarvéla
ef þið viljið selja, þá hafið samband við okkur strax.
RAGNAR BERNBURG — vélasala.
Simi 27020, kvöldsimi 82933.
Vélsleði fyrir karlmenn sem
Vönduö vél meö krómuöum strokkum ca 45 hö.
Electronisk kveikja.
Centrix sjálfskipting, þreföld drifkeðja.
Hitamælir á hvorn strokk vélarinnar.
17" eöa 15" breitt belti.
Stillanleg fjöðrun, demparar bæöi aftan og f
kröfur
skirau/e.
ER ALLTAF
FREMSTUR
I FLOKKI
Enn á ný helur Skiroule sannaö yfirburði sina
og nú i glimu viö islenzku fjöllin.
Ný sending var aö koma.
AkOreyri •
Reykjavik
ó^ehóöM lif
Glerárgötu 20 • Simi 2-22-32
Sudurlandsbraut 16 • Sími 3-52-00
ATH.: Siöasta tendíng seldist upp á i
Ef þú viltekki missa af Skiroule — þá pantaðu
strax — þvl að hann er gjarn á að stinga
KRAmAIKILL
SPARNEYTINN
ÖDÝR