Tíminn - 31.03.1976, Side 4

Tíminn - 31.03.1976, Side 4
4 TÍMINN Miðvikudagur 31. marz 197«. um i tizkuiðnaðinum og hver hinna mismunandi litaafbrigða falli bezt i kramið hjá kaupend- um á hverjum tima. Nú er Petrovsk að auka framleiðslu á kaffibrúnum, eirrauðum og gul- brúnum skinnum, og einnig eru þeir nú að gera tilraunir með að auka frjösemi kanadiska minksins, sem hefur svarbrún- an, þykkan feld. Þessi minkúr er vandræktaður og viðkoman hjá honum mjög litil. Hér fylgja svo myndir af tveim minkum, annað er bláminkur, en hitt silfurminkur. Svona fara þeir að í Japan Fyrir nokkru gerðist það, að gifurleg sprenging vakti upp ibúa Azabu Juban hverfisins i Tokyo. Svo öflug var hún, að rúður i 24 húsum brotnuðu, sex manns særðust og einn lét lifið. Stúlkan sem bjó i ibúðinni sem sprengingin var i, hét Junko Imoto og var tuttugu og fjögurra ára framreiðslustúlka i Ginza klúbbi. Slökk viliðið tilkynnti, að hún hefði framið sjálfsmorð með þvi að skrúfa frá gasinu i ibúðinni. Siðan mun neisti úr raflögn hafa hrokkið i það og valdið sprengingunni. Orsökin fyrir þessu er talin sú, að viðskiptin i Ginza klúbbn- um hafa dregizt mjög saman og knýr örvænting framreiðslu- stúlkurnar til að fremja sjálfs- morð. I þessum klúbbum er viðskiptavinunum levft að drekka út i reikning og eru rukkaðir siðar. Framreiðslu- stúlkurnar hvetja þá til að drekka, en eru jafnframt ábyrg- ar fyrir greiðslum. Þær hafa þrjá mánuði til stefnu til að ná inn skuldinni, en ef það tekst ekki, á þeim tima verða þær að greiða hana sjálfar úr eigin vasa. I mörgum tilfellum, þegar við- skiptavinurinn hefur runnið þeim úr greipum, breytist vinnuveitandi þeirra i harð-. skeyttan lánadrottin sem krefst hárra vaxta. Ef stúlkurnar geta ekki greitt skuldina i aurum, þá stingur hann upp á öðrum greiðsluformum eða lætur skúrka þjarma litillega að þeim. Taka þær þvi oft þann kostinn að svipta sig lifi fremur en eiga þá yfir höfði sér. heimsmarkaðinn. Minkarhafa verið ræktaðir i þrjátiu ár i Pet- rovsk-rikisbúinu i nágrenni bæj- arins Chutov i Poltava-fylki i Úkrai'nu. í fyrra nam framleiðslan á búinu 26.700 skinnum, og hefur hún hlotið verðskuldaða viðurkenningu fyrir gæði, bæði heima og er- lendis. Það er þolinmæðis- og vandvirknisverk að framleiða góð skinn, og áöur en þau eru sett á uppboð, hafa þau farið um hendur margra visindamanna og sérfræðinga. Framleiðend- urnir fylgjast með öllum stefn- „Drottning" loðfeldanna Þar sem safalinn hefur löngum að bera drottningartitilinn. verið talinn konungur loðfeld- Litaafbrigðin af mink eru 62, og anna, ætti minkurinn með réttu af þeim eru a.m.k. 30 ræktuð i minkabúum i Sovétrikjunum. En Sovétmenn eru nú helztu skinnaframleiðendurnir fyrir

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.