Tíminn - 31.03.1976, Qupperneq 8
8
TÍMINN
Miðvikudagur 31. marz 1976.
H
Iltllll
UM HELGINA var opnuð i
Menningarstofnun Bandarikj-
anna á Islandi sýning á verkum
eftir hinn heimsfræga lista-
mann Hans Richter, en hann er
meðal annars kunnur sem höf-
undúr kvikmynda, tilrauna-
kvikmynda og framúrstefnu-
kvikmynda. Eitt þekktasta verk
hans á þessu sviði er liklega
kvikmyndin Dreams that
Money Can Buy, sem er
súrrealistisk og var gerð árið
1946.
Hans Richter er lika vel
þekktur málari og grafiker, en á
sýningunni eru 19 verk eftir
hann, flest aquatintur, enn
fremur teikningar. Auk þess er
fjöldi bóka á sýningunni, sem
skrifaðar hafa verið um lista-
manninn eða af honum sjálfum.
Það er sannarlega mikill
fengur aö fá þessa sýningu hing-
að, en hún er fyrsta sýningin,
sem haldin er á Norðurlöndum,
á verkum þessa fjölhæfa lista-
manns. Þá munu verða fluttir
fyrirlestrar um manninn og
sýndar kvikmyndir, bæði um
hann og eins hin fræga mynd,
sem getið var um hér að fram-
Frábær
grafík á
sýningu
Vinnubrögð snillinga
En vikjum nú ögn að mynd-
listarsýningunni. Hans Richter
var meðal þeirra er á sinum
tima börðust fyrir viðurkenn-
ingu dadaismans svokallaða.
Vafalaust hafa þessir ungu
menn, sem unnu að þessari list-
grein suður i Zurich árið 1916,
hneykslað marga viðkvæma
sál, en nú á timum gegnir öðru
máli. Myndir Hans Richters
virðasta bara anzi notalegar.
Annars er það liklega engum til
gagns að telja Hans Richter i
hópi þeirra manna, er börðust
fyrir dadaismanum. Farmskir-
teini og yfirlýsing þessarar
listastefnu var á sinum tima rit-
uð af Tristan Tzara, og helztu
leiðtogar flokksins voru menn
eins og André Breton, George
Grosz og Paul Monard. Annars
á nefnd yfirlýsing Tristan Tzara
vel við um myndir Hans Richt-
ers, en þar segir meðal annars :
Dada þýðir ekkert sérstakt. við
viljum framúrstefnuverk, sterk
og nákvæm, verk sem aldrei
verða skilin á venjulegan hátt.
Skynsemi hefur ávallt á röngu
að standa.
Hönd (Dada) 1917
HANS RICHTER
1888 -1976
Myndir Hans Richters eru
einmitt svona. Þær eru fjarska
vel geröar, þrykktar af ná-
kvæmni á handgerðan, mildan
pappir, hvergi blettur né
hrukka, og tæknin er alveg
hreint frábær. Hann viröist
jafnvigur á flestar grafiskar
greinar og vinnur plötur sinar
ýmist með nálum eða efnum, og
árangurinn er eftir þvi.
Gáfaður þýzkur vinur minn
sagði einu sinni við mig, er við
ræddum um stórmálara heims-
ins: Ég hef tekið eftir þvi að
allir beztu málarar heimsins,
þótt heimsfrægð þeirra sé bund-
in oliumálverkinu, voru fram-
úrskarandi grafikerar. Picasso
kunni t.d. allt og vissi allt um
grafik, enginn hefði getað kennt
honum neitt, og samt var hann
ekki grafiker, heldur málari —
og þessi maður hafði fengizt við
grafik alla sina ævi.
Myndir Hans Richters eru
einmitt svona úr garði gerðar
tæknilega. Frá myndlistar-
sjónamiðinu minna þær ofurlítið
á stærðfræði eða tónlist, en hin
siðarnefnda byggir á hinu fyrra,
sem kunnúgt er. Hann endur-
tekur stef sin oft með litlum
breytingum, gráir hvitir og
svartir tónar, og svo kemur
rautt högg. Sumar myndirnar
eru svo frábærar, t.d. PRO &
CONTRA sem er pappirs relief,
að maður staldrar við lengi
(lágmynd úr pappir undir
gleri). Minnst finnst manni
koma til dúka sem þarna eru
með áþrykktum myndum, og
við tökum undir með Tzara, að
skynsemin hefur á röngu að
standa.
Ég vil hvetja fólk til þess að
sjá þessa sýningu, og þá sér-
staklega myndlistarmenn. Að
lokum verður að geta þess, að
frágangur, innrömmun, mynd-
anna er til fyrirmyndar, en á
það vill stundum skorta i þessu
landi — þvi miður.
Það var Frank Ponzi listfræð-
ingur sem gekk frá og setti upp
sýninguna, og hann mun einnig
flytja erindi um listamanninn
þriðjudaginn 30. marz kl. 20.30 i
Menningarstofnun Bandarikj-
anna.
Jónas Guðmundsson.
Listkynninq í
Húnabinai
MÓ-Reykjavik. Fjölbreytt og
mjög fjölsótt listkynning var i
félagsheimilinu á Blönduósi um
helgina. Hófst dagskráin kL
14.00 á laugardag með ávarpi
menntamálaráðherra, Vil-
hjálms Hjálmarssonar, en siðan
lásu listaskáldin vondu úr verk-
um sinum.
Að þeirri dagskrá lokinni var
opnuð málverkasýning en verk
á þeirri sýningu voru úr lista-
safni A.S.I.. Þar voru sýnd 26
málverk eftir 16 málara. Hjör-
leifur Sigurösson, forstööumað-
ur listasafnsins, greindi frá
starfi safnsins og tilgangi með
stofnun þess.
A sunnudag var dagskrá
byggð upp af ungu fólki. Þar
komu fram nemendur úr öllum
skólum A. Hún., og einnig sýndi
fimleikaflokkur frá Reykja-
skóla I Hrútafirði undir stjórn
Höskuldar Goöa Karlssonar.
Þarna voru einnig afhent verð-
laun I skólakeppni U.S.A.H.
Húafyllir varð, og uröu nokkr-
ír frá að hverfa, þó að Félags-
heimilið á Blönduósi taki á
fjórða hundrað manns I sæti i
sýningasalnum.
Málverkasýningin var einnig
opin á sunnudag, og dvaldi fólk
þar fram eftir degi við að skoöa
málverkin og þiggja kaffisopa
hjá kvenfélagskonunum.
Góð samvinna tókst um
undirbúning og framkvæmd
bessarar listkynningar milli
Kvenfélagasambands A. Hún.,
Ungmennasambands A. Hún.,
Verkalýðsfélags A. Hún., og
Félagsheimilisins á Blönduósi.
WL xm
>?*
3%. 7. **5$^^*% -v ^
Listaskáldin vondu, ásamt Vilhjálmi Hjáimarssyni og Elisabetu Sigurgeirsdóttur, formanni
Kvenfélagasambands A. Hún., á flugveliinum á Blönduósi, en flugvel frá Vængjum flutti skáidin og
ráöherrann. Ljósm. Friðþjófur