Tíminn - 31.03.1976, Síða 11

Tíminn - 31.03.1976, Síða 11
Miðvikudagur 31. marz 1976. tltgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Heigason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri: Steingrfmur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur i Edduhús- inu við Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Verð I lausasöiu kr. 40.00. Áskriftar- gjald kr. 800.00 á mánuði. Blaðaprent h.f. Ull, ullariðnaður, ullarverð Alkunna er, að ullariðnaður okkar er mikilvæg grein, sem bæði veitir fjölda fólks atvinnu og færir okkur mikinn gjaldeyri. Mikil alúð hefur verið lögð við að efla þennan iðnað, enda er islenzkur ullar- varningur hin útgengilegasta vara, ekki sizt i Aust- ur-E vrópulöndum. Að sjálfsögðu setur tala sauðfjár i landinu ullar- iðnaðinum takmörk, — hversu margt það er, eða getur verið, án þess að gróðurlendi sé hætta búin, likt og fiskiðnaðurinn er háður þvi, hvað veitt er, eða óhætt er að veiða. Samt sem áður má enn auka ullariðnaðinn að nokkru marki, með betri umhirðu og nýtingu á ull. Talsverður misbrestur hefur verið á þvi mörg undanfarin ár, að fé hafi verið rúið á hæfilegum tima enda þótt vetrarrúningur hafi á hinn bóginn verið tekinn upp mjög almennt sums staðar á land- inu. Sá háttur krefst þó góðra fjárhúsa og góðrar fóðrunar og nákvæmrar umhirðu. Þvi er ekki að leyna, að ýmsir hafa legið bændum á hálsi fyrir það, að þeir vanmætu ullina, og hafa þær ásakanir stundum og sums staðar haft við rök að styðjast, en lika að nokkru leyti verið á vanþekk- ingu byggðar. Ullarverð hefur fram að þessu verið tiltölulega lágt, og þar sem fjárhús og aðrar aðstæð- ur eru ekki með þeim hætti, að vetrarrúningi verði komið við, hefur mannfæð i sveitum og tilkostnaður við vorsmölun hamlað þvi, að fylgt hafi verið venj- um fyrri tiðar að leitazt við að láta sem allra fæstar kindur ganga i ull sumarlangt. Einkum er mjög tor- velt að ná fé saman, eftir það er farið frá bæ, i sveit- um, sem orðnar eru mjög strálbýlar. Þar má sums staðar heita, að smalamennska sé tæpast vinnandi vegur, nema þá haustsmalanir. Hinn dýrmæti ullariðnaður heimtar aftur á móti sem mesta og bezta ull, bæði til atvinnuaukningar og gjaldeyrisöflunar, og ætti sú staðreynd, ásamt mörgu öðru, að vera mikil hvöt til þess að sporna gegn þvi i tima, að fleiri sveitir fari i eyði, margar hverjar ágætlega til sauðfjárbúskapar fallnar, eins og gerzt hefur um Loðmundarfjörð og Múlasveit. Við megum ekki við þvi, að eins fari um Langanes- strönd, Hólsfjöll, Melrakkasléttu, Vatnsnes eða Gufudalssveit, svo að nokkur byggðarlög séu nefnd. Nú fyrir skömmu var sú breyting gerð á verð- lagningu sauðfjárafurða, að ull var meira en tvö- földuð i verði á kostnað kjötverðs, og er markmiðið vitaskuld að hvetja til betri nýtingar og umhirðu á ullinni. Þar með er ullin orðin bændum svo verð- mæt, að það hlýtur að valda þáttaskilum — svo miklu varðar það afkomu sauðfjárbús eftir þessa verðbreytingu að skila mikilli ull og góðri. Þegar til lengdar lætur hlýtur þetta einnig að stuðla að kyn- bótum, sem stefna i þá átt að rækta ullargott fé, laust við óheppileg litbrigði og illhærur. Svo sem þegar hefur verið óbeint sagt, er þetta ekki mál bænda einna. Þetta er einnig hagsmuna- mál þeirra byggðarlaga og þess fólks, þar sem ullariðnaðurinn er snar þáttur atvinnulifsins, og þetta er mál alþjóðar, sem nýtur góðs af þeim gjaldeyri, er fæst fyrir ullarvarninginn i öðrum löndum. Það getur verið, að ýmsum hafi sézt yfir það, að svo veigamikill þáttur er ullariðnaðurinn i þjóðarbúskapnum, að afraksturinn af honum er nefnandi i sömu andrá og það, sem við köllum stór- iðju. Þar á ofan hefur hann það fram yfir stóriðjuna svokölluðu, að hann veitír miklu fleiri höndum verk að vinna. Og enn er á það að lita, að þetta er iðnaður okkar sjálfra, alislenzkur og óháður duttlungum út- lendra auðhringa. TlMINN 11 ísraelar eru kvíðnir vegna óróans á herteknu svæðunum En hafa þó vegna hans rætt við PLO í fyrsta sinn Rikisstjórn ísraels stendur nú frammi fyrir erfiöum vandamálum, sem skapazt hafa vegna ástandsins á her- teknu svæöunum á vestur- bakka árinnar Jórdan. Ibúar svæðanna, sem flestir eru Arabar, hafa á undanförnum vikum risið til mótmæla I si- auknum mæli ogkrefjast þess, að tsraelar láti þegar af stjórn þar. Mótmælagöngur, óeirðir og veikföll setja daglega svip sinn á lifið á svæðunum. Verzlanaeigendur hafa nokkr- um sinnum lokað verzlunum sinum, skólar hafa lokað, og stöku sinnum hafa israelskir lögreglumenn og hermenn gripið til skotvopna gegn múhameðstrúarmönnum. Þannig hafa á siðast liðnum tveim sólarhringum fjórir menn úr flokkum Araba látið lifið fyrir byssukúlum Israela. En óánægja með stjórn og stefnu tsraela á herteknu svæðunum er ekki bundin við Araba og fylgismenn þeirra. A siðustu vikum hafa gagnrýn- andi raddir heyrzt meðal ann- arra þjóða, og jafnvel meðal þeirra, sem tsraelar hafa fram að þessu treyst einna mest á um stuðning og aðstoð. Meðal annars var sendi- herra Bandarikjanna hjá Sameinuðu þjóðunum harð- orður i garð ísraela fyrir nokkru, þegar hann lýsti þvi yfir i ræðu, að herseta þeirra á svæðunum á vesturbakka Jórdan væri bæði ólögleg og til þess eins fallin að koma i veg fyrir árangur af friðarum- leitunum i Mið-Austurlöndum. Ummæli þessi vöktu ugg meðal israelskra ráðamanna, og þótt Bandarikjamenn beittu fáeinum dögum siðar neitunarvaldi sinu til að fella tillögu um gagnrýni á Israela i öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna, breytti það litlu um ótta þeirra. Ræða sendiherrans stendur þeim enn fyrir hug- skotssjónum sem skýrt dæmi um breytta — og neikvæðari — stefnu Bandarikjanna gagn- vart Israelsriki. Nú hefur gagnrýnin einnig breiðzt út heima fyrir, og róð- urinn verður æ þyngri fyrir rikisstjórnina. í siðustu viku lýsti varnar- málaráðherra tsraels þvi yfir i blaðaviðtali, að óróinn á her- teknu svæðunum væri ísrael- um sjálfum að kenna og rangri stefnu þeirra gagnvart arabiska minnihlutanum. Varnarmálaráðherrann sagði i viðtali þessu, að orsaka óróans væri i raun ekki að leita i stjórn tsraela á her- teknu svæðunum sjálfum, heldur rangri stefnu, sem framfylgt hefði verið i tuttugu og átta ár, gagnvart arabiska minnihlutanum i landsvæðum tsraelsrikis sjálfs, eins og það var fyrir styrjöldina 1967. A mánudag jókst svo enn gagnrýni tsraela á rikisstjórn sina, vegna stefnu hennar gagnvart múhameðstrúar- mönnum. Þá birtu flest dag- blöð harðorðar greinar, þar sem deilt var á þá ákvörðun að reka úr landi þrjá af leiðtog- um Araba á herteknu svæðun- um, rétt i sama mund og kosningar eru i undirbúningi þar. Töldu blöðin ákvörðun þessa fljótfærnislega og van- hugsaða. Fleiri ákvarðanir og athafn- ir stjórnvalda á herteknu svæðunum hafa einnig orðið fyrir gagnrýni undanfarið. Meðal annars má þar til telja harkalega meðferð israelskra hermanna og lögreglumanna áskólaæsku Araba. Skólaæsk- an hefur þar, svo sem viðar hefur gerzt, verið virk i mót- mælastarfsemi, og hefur kom- ið til nokkurra átaka mOli hennar og Israela. Gegn vopnuðum hermönnum hafa námsmenn gripið til grjót- kasts, sem siðar hefur leitt tii mótaðgerða tsraela, en þær hafa þótt nokkuð harkalegar á stundum. Meðal annars er til þess tek- ið, þegar israelskir hermenn réðust til inngöngu á heimili margra námsmanna, drógu þá út á götu og börðu með kylfum. Þá hefur einnig komið fyrir að þeir hafa handtekið hópa af skólaíólki á þeim for- sendum, að það hefði tekið þátt i óeirðum, og jafnvel ver- ið upphafsmenn að þeim. Þannig handtóku tsraelar til dæmis stóran hóp skóla- stúlkna á sunnudag, ásamt kennurum þeirra, og reis út af þvi mikil mótmælaalda meðal Araba. Þeim var þó sleppt, eftir að hafa verið sektaðar, en of seint til að koma i veg fyrir lokun skóla á svæðunum og boðun sólarhrings verkfalls i mótmæláskyni. Erfitt er að gera sér grein fyrir þvi úr fjarska, hvað i raun er að gerast á herteknu svæðunum, en ljóst er þó að orsaka óróans þar nú er að leita í þvi, að múhameðstrúar- mönnum þykir sér misboðið. Einkum er þar um að ræða trúarleg málefni, en mótmæl- in hörðnuðu til muna, þegar israelsk yfirvöld ákváðu að heimila Gyðingum bænalestur i mosku, þar sem musteri Salómons áður stóð, en sá staður er múhameðstrúar- mönnum jafnheilagur og Gyðingum. Þetta vakti mikla reiði meðal Araba, sem töldu sér troðið um tær með þessu, og varð það til þess, að mikill fjöldi ungmenna efndi til mót- mæla, þar sem sungnir voru baráttusöngvar frelsishreyf- ingar Palestinuaraba (PLO). Þar i kristallast ef til vill skýrast sú hætta, sem tsrael og stjórn þess á herteknu svæðunum getur stafað af at- burðunum undanfarnar vikur, það er aukin áhrif PLO á svæðunum og fjölgun stuðn- ingsmanna hreyfingarinnár i áhrifastöðum þar. I næsta mánuði, april, er áætlað að haldnar verði kosn- ingar til bæja- og héraða- stjórna á herteknu svæðunum tsraelar höfðu bundið nokkrar vonir við, aði þeim kosningum myndu „meðfærilegir” fram- bjóðendur komast i stjórnar- stöður, eða að minnsta kosti menn, sem ekki væru fylgj- andi frelsishreyfingunni, Þá vonvirðastþeir nú hafa sjálfir. gert að engu, þvi ljóst er að kosningarnar munu mis- heppnast. Þegar hafa bæjarráð að minnsta kosti fimm mikil- vægra bæja á herteknu svæð- unum sagt af sér i mótmæla- skyni við stefnu tsraela. Flest- ir af helztu stjórnarmönnum hafa einnig lýst þvi yfir, að þeir muni ekki taka þátt i kosningunum. Skráning fram- bjóðenda hófst á mánudag i þessari viku, og sýndi hún á fyrstu tveim dögum, að embættismennirnir ætluðu að standa við orð sin. ísraéls- menn eiga þvi á hættu, að kosningarnar verði ekki haldnar, vegna skorts á fram- bjóðendum, eða að stuðnings- menn PLO komist til valda i þeim. Verður þá erfitt fyrir tsraela að halda stjórn á ibúum svæðanna — enn erfiðara en verið hefur. Ólik viðhorf innan tsraels, og jafnvel innan israelsku rikisstjórnarinnar, gera einnig erfiðara fyrir. Til dæm- is greinir þá nokkuð á, for- sætisráðherrann og varnar- málaráðherrann, um þær leiðir, sem fara ber til að koma á ró á herteknu svæðun- um. Varnarmálaráðherrann, Simon Peres, er þvi mótfallinn að beita hernum meira en nú er gert, en, forsætisráðherr- ann, Yitzhak Rabin, hefur lýst þvi yfir, að hann muni senda allan her Israels inn á her- teknu svæðin, ef þess gerist þörf, til að koma friði á. tsraelska rikisst jórnin stendur þvi frammi fyrir ærn- um vanda nú. Óeirðirnar á herteknu svæðunum, sivax- andi gagnrýni bæði innan- lands og utan, breytingar þeim i óhag á stefnu Banda- rikjanna gagnvart Mið-Austurlöndum, og klofn- ingurinnan rikisstjórnarinnar sjálfrar, setja mörk sin á störf hennar þessa dagana. Ein áhrif hefur þetta þó haft, sem gætu orðið til góðs, þegar fram liða stundir. 1 fyrsta sinn hafa fulltrúar tsra- els samþykkt að taka þátt i viðræðum, þar sem fulltrúar PLO . eru einnig viðstaddir. Þegar mál þessi voru til um- ræðu hjá öryggisráði Samein- uðu þjóðanna, mættust fulltrú- ar þessara tveggja aðila. Þótt utanrikisráðherra Israels, Yigal Alion, hafi fullyrt að i þessu fælist engin viðurkenn- ing á PLO, þá rnarkar það engu að siður timamót i þróun mála fyrir Miðjarðarhafsbotni — timamót, sem siðar gætu reynzt skref til þess að komast að kjarna deilunnar þar, og þá jafnvel skref i átt til friðsam- legrar sambúðar. — HV — JH

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.