Tíminn - 31.03.1976, Page 23
Miðvikudagur 31. marz 1976.
TÍMINN
23
Viðtalstímar
alþingismanna og
borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins
Sverrir Bergmann, varaþingmaBur, og Guðmundur G. Þórar-
insson, varaborgarfulltrúi verða til viðtals laugardaginn 3. april
á skrifstofu Framsóknarflokksins að Rauðarárstig 18, frá kl. 10
til 12.
Félag
framsóknarkvenna
í Reykjavík
Jón
Sigurðsson,
Fundur verður að Rauðarárstig 18 fimmtudaginn 1. april n.k. kl.
20,30. Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri, ræðir um stjórnar-
skrána. Takið kaffibrúsann með. Stjórnin
Rangæingar —
Framsóknarvist
Framsóknarfélag Rangárvallasýslu heldur 4. og siðasta spila-
kvöldið að þessu sinni I félagsheimilinu Hvoli Hvolsvelli, sunnu-
daginn 4. april kl. 9. Ingvar Gislason alþingismaður flytur ávarp.
Ýmis skemmtiatriði. Fjölmennið á iokakeppnina. Stjórnin.
Opið hús
Framsóknarfélögin i Kópavogi munu framvegis hafa opið hús að
Neðstutröð 4 mánudaga kl. 5 til 7. Þar verða til viðtals ýmsir
forystumenn félaganna og fulltrúar flokksins i nefndum bæjar-
ins. Stjórnin.
Póskaferðin 10. apríl
til Vínarborgar
Þeir, sem eiga pantaða miða i páskaferðina til Vinar eru beðnir
vinsamlega að greiða þá sem fyrst á skrifstofu fulltrúaráðsins
Rauðarárstig 18, simi 2 44 80.
Kópavogur
Félag ungra Framsóknarmanna i Kópavogi heldur almennan
fund i Félagsheimili Kópavogs miðvikudaginn 31. marz kl. 20,30.
Rætt verður um Félagsmálastofnun Kópavogs.
Frummælandi Baldvin Erlingsson. Pétur Einarsson formaður
tómstundaráðs mætir á fundinn.
Stjórnin.
Framsóknarvist að Hótel Sögu
Annað spilakvöld I þriggja kvölda spilakeppni hefst þriðjudaginn
6. april kl. 20.30 að Hótel Sögu. Sérstök kvöldverðlaun, eins
heildarverðlaun fyrir öll þrjú kvöldin. Verið velkomin og mætið
stundvislega. Framsóknarfélag Reykjavikur.
Snæfellingar
Framsóknarfélögin á Snæfellsnesi gangast fyrir spilakvöldi
laugardaginn 10. april kl. 21 i félagsheimilinu Stykkishólmi.
Ávarp: Halldór E. Sigurðsson ráðherra. Dans á eftir.
SUF
Miðstjórnarfundur Sambands ungra Framsóknarmanna verður
haldinn að Hótel Hofi Rauðarárstig 18 Reykjavik 3. og 4. april.
Fundurinn hefst á laugardag kl. 14.00.
Miðstjórnarmenn eru beðnir að hafa samband við flokksskrif-
stofuna, ef þeir geta ekki mætt. Stjórn SUF.
Aðalfundur AAiðstjórnar
Aðalfundur Miðstjórnar Framsóknarflokksins 1976 verður
haldinn að Hótel Sögu i Reykjavik 7.-9. mai.Miðstjórnarmenn
eru minntir á að hafa samband við flokksskrifstofuna ef þeir
geta ekki mætt.
Liðan pilt-
anna betri
Gsal-Reykjavik — Liðan pilt-
annatveggja, sem stórslösuð-
ust i alvarlegu umferðarslysi
innarlega á Laugavegi að-
faranótt sunnudags i fyrri
viku.ernú mun betri en áöur,
en þó hafa piltarnir ekki náð
fullri meðvitund enn.
Signý (Jóhanna Björnsdóttir) og Þuriður (Elsa Jónsdóttir) hlusta á Munda (Kristján Skaip
héðinsson lesa.
SJÓLEIÐIN TIL BAGDAD
SÝND Á SAUÐÁRKRÓKI
Gó-Suðárkróki — A sunnu-
dagskvöldið frumsýndi Leik-
félag Sauðárkróks sjónleikinn
Sjóðleiðina til Bagdad eftir
Jökul Jakobsson. Leikstjóri er
Kári Jónsson, en leikmynd
gerði Jónas Þór Pálsson. Tón-
listin er eftir Jón Nordal.
Ljósameistari er Helgi
Gunnarsson.
Kári Jónsson hefur stjórnað
mörgum leiksýningum hjá
Leikfélagi Sauðárkróks á und-
anförnum árum, en hann er
greinilega vaxandi leikhús-
maður og leikstjóri. Það hcfur
ávallt verið gifta Leikfélags
Sauðárkróks að hafa hæfa
leikstjóra i sinum röðum, sem
sett hafa á svið stór verk með
mikilli prýði.
Þessi sýning tókst mjög vcl
og er vafalaust ein af beztu
sýningum, sem Leikfélag
Sauðárkróks hefur sett á svið.
Þetta verk Jökuls Jakobsson-
ar er bæði hnyttið og
skemmtilegt, eins og önnur
verk þessa ágæta höfundar.
1 leiknum koma fram sjö
pcrsónur: Mundi er leikinn af
Kristjáni Skarphéðinssyni.
Þuriði konu Munda leikur
Elsa Jónsdóttir. Leikur þeirra
beggja er með ágætum og
mun öllum leikhúsgestum
lengi minnisstæður.
Aðrir leikendur gera hlut-
verkum sinum svo góð skil, að
hvergi er bláþráður á sýning-
unni. Systurnar Signýju og
Hildi leika Jóhanna Björns-
dóttir og Arnfriður Arnar-
dóttir. Hafsteinn Hannesson
leikur Eirik, en Finnur Þór
Friðriksson leikur Halldór.
Bragi Haraldsson fer með
ógleymanlegt hlutverk gamla
mannsins.
Allt er þetta fólk vanir leik-
endur hjá Leikfélagi Sauðár-
króks, nema Arnfriður
Arnarsdóttir, sem er aðeins 18
ára og Finnur Þór Friðriks-
son. Þau hafa ekki farið með
stór hlutverk hjá félaginu
áður, en skila þessum hlut-
verkum áberandi vel.
Húsfyllir var á sýningunni,
og fögnuðu leiksýningargestir
lengi og innilega i leikslok.
Hafi leikfélag Sauðárkróks
beztu þökk fyrir margar og
góðar ánægjustundir á sinum
langa og giftudrjúga starfs-
ferli.
Sæluvika Skagfirðinga
stendur nú sem hæst, og i gær
var kirkjukvöld i Sauöár-
krókskirkju. Þar söng kirkju-
kór Sauðárkróks undir stjórn
Jóns Björnssonar frá Haf-
steinsstöðum. Séra Bolli
Gústafsson iLaufásivið Eyja-
fjörð flutti erindi.
t dag syngur nýstofnaður
Samkór Sauðárkróks i Bifröst.
Söngstjóri er Gunnlaugur ól-
sen. Þetta er i fyrsta sinn sem
kórinn kemur fram, en hann
var stoh.aður 1. nóv. sl.
Mundi (Kristján Skarphéðinsson), Signý (Jóhanna Björnsdóttir) og gantli ntaðurinn (Bragi Haralds-
son).