Tíminn - 09.04.1976, Side 2

Tíminn - 09.04.1976, Side 2
2 TÍMINN Föstudagur 9. apríl 1976. Starfssvið Kristjáns Péturssonar, deiidarstjóra Timanum hefur borizt eftirfar- andi athugasemd: „1 grein eftir Þorstein Hákonarson, er birtistiblaði yðar hinn 1. aprQ s.l. undir fyrirsögn- inni ,,CIA — tilræðið við stjórn- skipun lýðræðisrikja”, er látið að þvi liggja að Kristján Pétursson, deildarstjóri, i tollgæzlunni á Keflavikurflugvelli beri sérstaka ábyrgð á eftirliti með pósthúsi varnarliðsins og að undir hann heyri eftirlit með varningi til- heyrandi varnarliðinu, sem sér- staklega var tilgreindur i téðri grein. Af þessu tilefni vil ég taka fram til leiðréttingar á framanrituðum staðhæfingum i greininni, að starfssvið Kristjáns, sem deildar- stjóra i tollgæzlunni er bundið við daglega stjórnun tollgæzlunnar i flugstöðinnier lýtur að tolleftirliti i flugstöðvarbyggingunni og flug- hlöðum svo og tollskoðun og vegabréfaskoðun flugfarþega og áhafna, er um Keflavikurflugvöll fara. Tolleftirlit með eignum varnar- liðsinsogeinstaklinga tilheyrandi þvi, heyrir undir aðra deild toll- gæziunnar, og tolleftirlit i hliðum flugvallarins er framkvæmt af lögreglunni. Lögreglustjórinn á Keflavikur- fiugveili 5. april 1976. Þorgeir Þorsteinsson.” Athugasemd Timans Það er óneitanlega fróðlegt að fá greinargerð um starfssvið Kristjáns Péturssonar, deildar- stjóra i tollgæzlunni á Keflavikur- flugvelli frá yfirmanni hans, og að eftirlit með tilteknu pósthúsi heyri ekki undir starfssvið hans. En þessi stuttorða greinargerð vekur spurningar. — Að beiðni hvaða aðila og i umboði hvers hefur nefndur Kristján tekið að sér rannsókn á fjölbreytilegustu meintum afbrotum i lögsagnar- umdæmum, sem bágt er að sjá aö heyri undir starfssvið hans sem deildarstjóra afmarkaðrar deild- ar toUþjónustunnar á Keflavikur- flugvelli? A undanförnum árum hefur deildarstjórinn skotið upp kollin- um i fjölmiðlum og gefið yfir- lýsingar um rannsókn sina á að- skiljanlegum málum, utan og innan varnargirðingar flug- vallarsvæðisins. Stundum virðist svo sem hann vinni einn að rann- sóknarstörfum sinum en i öðrum tilvikum gerirhann lögregluþjón- um og öðrum embættismönnum þann grciða, að þiggja aðstoð þeirra við uppljóstran mála. Liggur þá sjaldnast i láginni hver sé hinn raunverulegi snillingur að baki lausninni. Nægir að minna á margitrekaðar staðhæfingar um að deildarstjórinn hafi með smá- vægilegri aðstoð rannsóknarlög- regiuþjóns i Keflavik upplýst um meira magn af smyglvarningi á tilteknum tima, utan og innan vallar.en samanlögð tollþjónusta og lögregla annars staðar á land- inu. En það er fleira en uppljóstran- ir um smygl, sem Kristján Pétursson hefur afrekað að eigin sögn. Hann hfur komizt að ýmsu gruggugu i þrotlausri baráttu sinni við afbrotaöflin í þjóðfélag- inu. Hverjar eru siðan uppljóstran- irnar. Dylgjur, eða hvað? 1 um- boði hvaða embættis „rannsak- aði” tollþjónninn á Keflavikur- flugvelli bókhald fyrirtækis I Reykjavik og samskipti þess við stofnanir og heimtar nú rann- sókn, sem reyndar hefur verið i höndum allt annars embættis I nokkur ár? i krafti hvaða embættis heimt- aði tollþjónninn og vegabréfa- skoðarinn að útgáfa lyfseðla yrði rannsökuð langt aftur í timann og fyrirskipaði heilbrigðisyfirvöld- um að fara eftir sinum eigin kokkabókum varðandi samskipti lækna, sjúklinga og lyfja- verzlana, á sinum tima? Hvernig stendur á þvi, að titt- nefndur deildarstjóri stingur upp kollinum á lögreglustöðvum viðs- fjarri flugstöðvarbyggingunni, sem yfirboðari hans segir, að sé hans vinnustaður? Engu er líkara en að rann- sóknarlögreglan i Keflavik sé handa- og heilalaus nema að Kristján Pétursson sé þar innsti koppur i búri. Að minnsta kosti heyrist ekki um uppljóstranir á þeim stað hvort sem um er að raÆa sprúttsölu, bilþjófnaði, inn- brot eða mannshvarf, nema að rannsóknarlögreglumaður staðarins og tollþjónninn séu spyrtir saman, þegar skýrt er frá afrekunum I fjölmiðlum. Fæst deildarstjórinn við þetta i fritim- um sinum eða hvað? Lögreglustöðin i Reykjavik er ekki óhult fyrir rannsóknargleði tollþjónsins, fremur en aðrar stofnanir. Er skemmst að minn- ast er deildarstjórinn elti rann- sóknarlögreglumann Kefla- vikurkaupstaðar á eftir áfengis- smyglara sem lögr.eglan i Reykjavik handtók.en sá kom frá Keflavik. Það lá og liggur ljóst fyrir, að áfengi það sem hér um ræðir fór aldrei gegnum flug- stöðvarbygginguna en var keypt hjá Bandarikja mönnum á Kefla- vikurflugvelli og kom starfssviði Kristjáns ekki við, enda voru aðr- ir embættismenn að vinna að rannsókn þess máls og uppljóstr- un þess, sem er fyllilega lokið nú. En Kristján sletti sér inn i það mál með þeim eindæmum að yfir- lögregluþjónninn I Reykjavik og ráðuneytisstjóri dómsmálaráðu- neytisins hafa hvað eftir annað þurft að svara opinberlega stað- hæfingavaðli hans þar sem dcildarstjórinn blandar saman tveim alls óskyldum smyglmál- um og gerir þessum mönnum upp orð og fyrirskipanir, sem ekki fá staðizt en hamrar á staðhæfing- um sinum, sem vissir fjölmiðlar eru galopnir fyrir. Hvaða erindi átti deildarstjór- inn yfirleitt i lögreglustöðina i Rcykjavik umræddan dag? Menn minnastað hafa séð hann flækjast þar á göngum en sjálfur ber hann að yfirlögregluþjónninn hafi borið honum og rannsóknarlögreglu- manninum úr Keflavik, skilaboð frá dómsmálaráðuneytinu um að hætta rannsókn máls, sem honum kom ekkert við og var þá reyndar unnið öllum árum að að upplýsa, sem og var gert, án aðstoðar Kristjáns Péturssonar. En það er kannski það sem ekki má . Það eru fleiri mál en hér eru upp talin, sem Kristján telur sig hafa umboð til að hnýsast i. Að sjálfsögðu varða alla borgara þessa lands afbrotamál og réttar- gæzla, en það er ekki þar með sagt, að hver og einn hafi heimild til að taka rannsókn einstakra mála i eigin hendur og vaða inn á gafl þeirra stofnana þjóðfélags- ins, sem hafa það hlutverk að upplýsa og dæma fyrir afbrot og halda uppi löggæzlu i landinu, — en það dettur engum i hug að gera nema Kristjáni Péturssyni. En hafi deildarstjórinn ein- hvers konar heimild til að fylgja þeim málum eftir, sem hann kemstá snoðir um i embætti sinu, vekur það þá spurningu, hvort öll þau fjölbreytilegu rannsóknar- og afbrotamál.sem hann hefur feng- izt við, eigi upptök sin i tollaeftir- liti og vegabréfaskoðun flug- stöðvarbyggingarinnar á Kefia- vikurflugvelli? —OÓ AÐ BEIÐNI HVAÐA ADILA OG í UMBOÐI HVERS HEFUR NEFNDUR KRISTJÁN TEKIÐ AÐ SÉR RANNSÓKNIR Á ÝMSUM MÁLUM? RANNSOKN LOKIÐ í MÁLUM ÁTTA AF TÍU LANDHELGIS BRJÓTANNA Gsal—Reykjavik. — Rannsókn er lokið i málum átta skipstjóra, af þeim tiu, sem teknir voru að meintum ólöglegum netaveiðum á Selvogsbanka s.l. mánudag. Skipstjórarnir hafa allir viður- kennt mælingar varðskipsins Þórs — og þar með viðurkennt brot sin. Sumir skipstjóranna báru þvi við, að þeim hefði ekki verið kunnugt um að bannsvæðið hefði verið stækkað. Rannsókn i mál- um tveggja skipstjóra var ekki lokið i gærdag. Niðurstöður rannsóknarinnar hafa verið að berast rikissak- sóknara og gera má ráð f yrir þvi, að málum skipstjóranna tiu ljúki með dómsátt. BRETAR A FÆREYJAMIÐ Gsal—Rey kjavik. — A Vest- fjarðamiðum og norðvestur af Straumnesi voru i gær sextán brezkir togarar. Ellefu brezkir togarar voru við Suðausturland og fjórir brezkir togarar voru i gærdag á leið á Færeyjamið. Tiðindalaust var á miðunum, að sögn talsmanna Landhelgis- gæzlunnar. Nú er minna atvinnuleysi á sama tíma sama tima i fyrra, en þá voru 1.165 manns atvinnu- lausir. Atvinnuleysisdagar i mánuði voru nú 16.856 á móti 23.463 i fyrra. Gsal-Reykjavik — Um síð- ustu mánaðamót voru 715 manns atvinnulausir á land- inu öllu og er það nokkuð minna atvinnuleysi en á Björn Þorsteinsson islandsmeistari '75. íslandsmótið í skák Gsal-Reykjavik — 1 gærkvöldi kl. 19.30 hófst ís- landsmótið i skák í félagsheimili Taflfélags Reykjavikur að Grensásvegi 46. tslandsmótið hófst með keppni i landsliðsflokki og áskorenda- flokki, en keppni í siðarnefnda flokknum hefur ekki verið háð áður. t hvorum flokknum eru 12 keppendur, en þrir efstu menn i áskorenda- flokknum vinna sér sæti i landsliðsflokki og tefla i þeim flokk að ári liðnu. Núverandi tslands- meistari i skák er Björn Þorsteinsson. Islandsmótinu verður framhaldið i kvöld og einnig verður teflt um helgina, en áformað er að ijúka keppninni á sumardaginn fyrsta. Keppni i meistaraflokki, kvennaflokki og unglingaflokki hefst um helgina. Dregið hefur verið um töfluröð i landsliðs- flokki og fara hér á eftir nöfn keppenda og röð þeirra.: 1. Björn Þorsteinsson. 2. Gylfi Þórhallsson. 3. Bragi Halldórsson. 4. Haraldur Haraldsson. 5. Haukur Angantýsson. 6. Þórir Ólafsson. 7. Jón P. Erlingsson. 8. Helgi ólafsson. 9. Ingvar As- mundsson. 10. Asgeir Þór Arnason. 11. Július Friðjónsson. 12. Margeir Pétursson. í gærkvöldi tefldu saman Björn Þorsteinsson og Margeir Pétursson (1 og 12) og Gylfi Þór- hallsson og Július Friðjónsson (2 og 11) o.s.frv. Að sögn Gunnars Gunnarssonar, formanns Skáksambands Islands er landsliðsflokkurinn skipaður mjög sterkum skákmönnum að þessu sinni og meðalstig þeirra 2300, en það mun vera óvenju hátt. Keppendur i áskorendaflökknum á tslands- mótinu eru þessir: (Töfluröð ókunn.) 1. Magnús Gunnarsson. 2. Ólafur Kristjánsson. 3. Gunnar Finnlaugsson. 4. Pálmar Breiðfjörð. 5. ögmundur Kristinsson. 6. Jón Þorsteinsson. 7. Jón L. Árnason. 8. Þröstur Bergmann. 9. Gunnar Gunnarsson. 10. Björn Jóhannesson. 11. Jóhann Orn Sigurjónsson. 12. Hilmar Viggósson. en var í fyrra Tiltölulega mest er at- vinnuleysið i kauptúnum með færri en eitt þúsund ibúa. Um síðustu mánaða- mót voru 264 atvinnulausir á þeim stöðum, flestir á Þórs- —| höfn 65, þar af 37 konur. I Bildudal voru 35 atvinnu- íausir, þar af 22 konur, 18 á Blönduósi og 15 á Vopnafirði. í kauptúnum með fleiri en eitt þúsund ibúa gætir at- vinnuleysis hins vegar mjög lítið og um mánaðamótin siðustu voru 35 manns at- vinnulausir á þeim stöðum, þar af 20 konur i Stykkis- hólmi. Á Selfossi voru 9 karl- menn á atvinnuleysisskrá. 1 kaupstöðum landsins voru 247 atvinnulausir um siðustu mánaðarmótjlestir i Reykjavik eða 231 talsins, þar af 155 karlmenn. 47 voru atvinnulausir á Akureyri, 21 i Kópavogi og 22 konur at- vinnulausar á Eskifirði. 1 kaupstöðunum eru flestir atvinnulausir úr stétt verka- kvenna og iðnvericakvenna, eða 131, og sömu sögu er að segja um kauptúnin, bæði þau sem hafa fleiri ibúa en eitt þúsund og þau sem hafa færri ibúa.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.