Tíminn - 09.04.1976, Blaðsíða 16

Tíminn - 09.04.1976, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Föstudagur 9. aprll 1976. Á FLÓTTA FRÁ ÁSTINNI Eftir Rona Randall 28 - inn brygðist við gagnvart lækni, sem kom ekki á vakt, hver svo sem ástæðan var. Það var dæmigert af David að eiga ekki einu sinni magnyltöflur heima hjá sér. — Og þú ert læknir! hafði hún hrópað. — Ekki snef ill af lyf jum á heimilinu! Hvers vegna hefurðu ekki farið betur með þig? Veikur og hjálparvana hafði David verið svo sakleysislegur, að hana hafði tekið i hjartað hans vegna. — Ekki skamma mig, hafði hann svarað. — Skilurðu ekki, hvað ég er búinn að gera, Polly? Ég er búinn að svíkja sjúkrahúsið! Ég verð rekinn og ég á það skilið! Hún hafði gripið um hendur hans. — Það er ekki of seint, David. Ég er með bíl f yrir utan. Þú þarft ekkert að útskýra, það sjá allir, að þú ert veikur! — Allir? hafði hann endurtekið, um leið og hún klæddi hann í f rakkann og dró hann með sér út á götuna. — Ó, mér líður svo illa, sagði hann þegar þau voru setzt inn í bilinn og hún hélt utan um hann til að styðja hann. Svo kipptist hann við. — Hvað áttirðu við með allir? Ekki þó Lowell? Hann veit ekki, að ég kom ekki á vaktina? Þá varð hún að segja honum það. Hann rétti úr sér og strauk með skjálfandi hönd yfir enni sér. — Jæja, þá er ég búinn að vera, hvað varðar St. Georges sjúkrahúsið, Pollý. Það er ófyrirgefanlegt af mér að láta ekki vita, að ég kæmi ekki, áður en Bailey fór. Það túlkar Lowell sem kæruleysi og kæruleysi er hlutur, sem hann getur aldrei fyrirgefið. — En þú gazt ekki gert að því, David! Útskýrðu það fyrir honum! — Allar útskýringar í heiminum afsaka ekki, að ég lét ekki vita. — En hann veit ekki, að þú komst ekki á vaktina! Ekki horfa svona á mig, David. Ég varð að segja...eitthvað! Ég varð að finna upp á einhverju til að reyna að hjálpa þér. Henni til undrunar varð hann bálreiður. — Heldurðu í alvörunni, að ég geti látið þig Ijúga fyrir mig? Hvers konar maður heldurðu eiginlega að ég sé, Pollý Friar... maður sem felur sig undir pilsum kvenna? I sömu andrá ók bíllinn upp að sjúkrahúsinu. David hallaði sér yf ir Polly til að opna hurðina, en hún var opn- uð f yrir hann og þar stóð yf irlæknirinn. David steig út úr bílnum og staðnæmdist f rammi fyrir Mark. Hann mætti spyrjandi augnaráði hans, en það var erfitt að einoeita augunum, þegar allt hringsnerist. Mark leit af David á Pollý. — Nú....sagði hann hægt. — Þér sóttuð þá Harwey lækni sjálf, hjúkrunar- kona.....? Pollý steig út úr bílnum og Myra sá óttasvipinn og vildi, að hún gæti huggað hana. Það var fyrst nú, sem henni skildist, hvað Polly elskaði David Harwey innilega og að heimur hennar hryndi í rúst, ef hann yrði látinn fara frá sjúkrahúsinu. — Ég var ekki í sjúkravitjun, læknir, sagði David rólega. — Það var auðvitað eðlilegt að Friar héldi það, þegar ég kom ekki á vaktina. — Þegar þú ekki hvað? sagði Mark ískaldri röddu. — Ég kom ekki á vaktina, endurtók David og skjögr- aði, svo hann var nær dottinn. Andartak var Mark harður á svip, en svo mýktust and- litsdrættirnir hans. Hann leit vingjarnlega á unga lækn- inn. — Farðu inn til yfirhjúkrunarkonunnar á stundinni. Þú getur varla staðið á f ótunum! Hvers vegna léztu ekki vita, að þú værir veikur? Hjúkrunarkona, láttu búa um rúm handa Harwey lækni — ekki mótmæla drengur minn. Heldurðu að ég vilji fá inflúensuveirur um allt sjúkrahúsið? Svo brosti hann svolítið— Hver hefur sagt, að þú hafir ekki komið á vaktina? Hvað ertu að gera hérna núna, ef ég má spyrja? David til undrunar fann hann hönd yf irlæknisins á öxl sér og hún klappaði honum vingjarnlega. — Ef þú setur skyldur þínar sem læknir ofar heils- unni, ertu flestum læknum skylduræknari, Harwey. En komdu þér nú inn! Stattu ekki hérna úti í næturloftinu! Bílhurðin skall aftur. David og Pollý voru ein eftir. Hún horf ði á hann, án þess að koma upp orði, en hann var ennþá reiður við hana. — Næst. þegar ég þarf að koma reglu á mál mín, skal ég tilkynna það fyrirfram, hjúkrunarkona! sagði hann lágt. Reiður við hana, en þó einkum sjálfan sig, skjögr- aði hann upp tröppurnar og inn um sjúkrahúsdyrnar. 13. kafli. Leiðin heim til Myru var of stutt til að hægt væri að ræða mikið saman. Myra sat alveg úti í horni og þegar þau óku f ram hjá götul jósi, sá Mark, að lítið bros lék um HVELL G E I R I D R E K I K U B B U R FÖSTUDAGUR 9. april 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Eyvindur Eiriksson les enn söguna „Safnarana” eftir Mary Norton (15). 9.05. Unglingapróf i ensku Tilkynningar kl. 9.30. Þing- fréttir kl. 9.45. Létt lög á milli atr. Spjallað við bænd- urkl. 10.05. Úr handraðan- umkl. 10.25: Sverrir Kjart- ansson sér um þáttinn. Morguntónleikar kl. 11.00: Rena Kyriakou leikur á pianó Sex prelúdiur og fúg- ur op. 35 eftir Felix Mendelssohn/ Jana- cek-k vartettinn leikur Strengjakvartett i a-moll eftir Franz Schubert. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. . 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Þess bera menn sár” eftir Guð- rúnu Lárusdóttur.Olga Sig- urðardóttir les (9). 15.00 Miðdegistónleikar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn. 17.10 Útvarpssaga barnanna: Spjall um Indiána. Bryndis Viglundsdóttir heldur á- fram frásögn sinni (16). 17.30 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Daglegt mál.Guðni Kol- beinsson flytur þáttinn. 19.40 Þingsjá. Kári Jónasson sér um þáttinn. 20.00 Tónleikar Sinfóniu- hljómsveitar Islands i Há- skólabiói 18. f.m. Hljóm- sveitarstjóri: Páll P. Páls- son. Einleikari á pianó: Halldór Haraldsscn. a. Fomir dansar fyrir hljóm- sveit eftir Jón Asgeirsson. b. Pianókonsertnr. 2 i G-dúr op. 44 eftir Pjotr Ilijits Tsjaikovský. c. „Petrúshka”, belletttónlist eftir Igor Stravinský. —- Jón Múli Árnason kynnir tón- leikana. 21.30 Útvarpssagan: „Siðasta freistingin” eftir Nikos Kazantzakis. Sigurður A. Magnússon les þýðingu Kristins Björnssonar (15). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passiusálma (45). 22.25 Dvöl. Þáttur um bók- menntir. Umsjón: Gylfi Gröndal. 22.55 Afangar. Tónlistarþátt- ur i umsjá Asmundar Jóns- sonar og Guðna Rúnars Agnarssonar. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. 1 Miii Pi Föstudagur 9. apríl 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Kastljós. 21.40 Skákeinvigi i sjónvarps- sal.Fjórða skák Guðmund- ar Sigurjónssonar og Friðriks Ólafssonar. Skýr- ingar Guðmundur Arn- laugsson. 22.10 Upprisa. Finnskt sjón- varpsleikrit, byggt á gam- ansögu eftir rithöfundinn Maiju Lassila (1868—-1918). Óreglum aðurinn Jönni Lumperi vinnur háa fjár- upphæð á happdrættismiða, sem honum var gefinn. Hann verður ágjarn og tek- ur að safna fé. Þýðandi Kristin Mantyla. (Nordvisi- on—Finnska sjónvarpið)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.