Tíminn - 09.04.1976, Síða 12

Tíminn - 09.04.1976, Síða 12
12 TÍMINN Föstudagur 9. april 1976. Föstudagur 9. april 1976. TÍMINN 13 ■aaaa'jBH! "*** ' ' *«• «. ««4; Jl )■■•! Magnús Kristýisson, (ormaður Styrktajfélags v-angefinna við heimiUð að Bjarkarási. >c -.gy- tnÆTiix 'stná Það á að virkja vangefna sem mest og hætta að einblína á stofnanir og hæli Málefni vangefinna eru nokkuð á döfinni þessa dagana og komið hefur i ljós, að enn vant- ar mikið á, að nógu vel sé búið að vangefnu fólki. Talið er að um 1500 manns teljist vangefnir á íslandi, en aðeins er rými fyrir 400 manns á þeim stofnunum er taka á móti þeim. Árlega bætast siðan við 35-40 manns i hóp þessa ó- gæfufólks og þvi er auð- séð að stórt átak þarf að gera á næstu árum til að bæta hag þeirra, enda kveða öll lög á um að þetta fólk eigi að fá að búa við sömu aðstæður og aðrir. Grunnskóla- lögin nýju segja t.d. að þetta fólk eigi að fá fullkomna kennslu, sem hæfi þvi, en enn er ekk- ert menntasetur fyrir þetta fólk. Það hefur hins vegar komið i ljós á undanförnum áratug- um, að þetta fólk getur numið nokkuð mikið, ef byrjað er nógu snemma að kenna þvi. En hvað er að vera vangefinn? Þessari spurningu beindum við að Magnúsi Kristinssyni, formanni Styrktarfélags vangef- inna. — Vangefið fólk er yfirleitt andlega fatlað og oft fylgir þvi likamleg hömlun. Það er talið að nú þurfi 500 rúm fyrir vangefna en um þessar mundir er aðeins rými fyrir 400 manns og vantar þvi pláss fyrir 100 manns. Þær stofnanir sem taka við vangefnu fólki eru allar yfirfullar og veita ekki þá þjónustu, sem þarf og á að veita og þvi miður er fjölgun á rúmi fyrir fólkið ekki i sjónmáli. byggingamáta, og viljum að byggt verði dagvistunarstofnanir og litil heimili. Það hefur sýnt sig að undanförnu, að miklir mögu- leikar eru á að hjálpa þessu fólki. Þá vil ég benda á, að á siðasta þingi aðstandenda vang. á Norð- url. kom fram, að mikil og góð reynsla hefur fengizt af þvi að láta þetta fólk vinna t.d. á vangefna. Við höfum rætt þetta mál við bæði félagsmála og fjár- málaráðherra og erum viö ein- huga um að fara þess á leit að sjóðurinn starfi áfram, helzt i breyttri mynd, þannig að við fá- um prósentugjald af sölu i fram- tiðinni, en ekki ákveðna krónu, sem verðbólgan étur siðan upp. Það er talið að á hverju ári fæð- Spjallað við Magnús Kristinsson, formann Styrktarfélags vangefinna Hvernig er reynt að búa að van- gefnum? — Hér áður fyrr var lögð á- herzla á stórar stofnanir, kannski á nokkrum hæðum. Við i Styrkt- arfélaginu erum á móti slikum vernduðum vinnustofum. Á þinginu kom einnig fram, að á hinum Norðurlöndunum er hætt að byggja stórar stofnanir, heldur eru byggð sérstök heimili eða' ibúðir, þar sem fólkið býr saman. Geta vangefin karl og kona búið saman. Er t.d. ekki óæskilegt að þau eignist börn? — í sumum tilfellum býr þetta fólk saman og það er ekkert sem mælir á móti þvi, að það lifi eins og við, sem teljumst heilbrigð. Hins vegar er talið skynsamlegt að það eigi ekki börn og hægt er að gera viðeigandi ráðstafanir til að fyrirbyggja það. Standa Norðurlandabúar ekki framarlega i aðhlynningu van- gefinna? — Þeir munu vera i fremstu röð á þessu sviði. Það höfðu t.d. verið stofnanir fyrir vangefna þar i 100 ár, áður en nokkur slik stofnun var komin á fót hér á landi. Hér hófst þessi starfsemi 1931, með þvi að Sesselija heitin Sigmundsdóttir stofnsetti Sól- heima heimilið i Grimsnesi fyrir eigin framtak. Það var svo ekki fyrr en 1936, sem löggjafavaldið kom inn i myndina, en þá voru fá- vitalögin sett. Fyrsta hælið, sem rikið rak var sett á stofn að Kleppjárnsreykjum i Borgarfirði árið 1944 og siðan tók rikishælið i Kópavogi til starfa 1952. Arið 1954 beittu góðtemplarar sér fyrir stofnun Skálatúns heimilisins i Mosfellssveit og siðar gerðist Styrktarfélag vangefinna aðili að rekstri þess. Styrktarfélagið setti siðan á fót dagvistunarheimilið Lyngás árið ’61. Tjaldanes i Mos- fellssveit tók til starfa 1965 og 1970 hófst rekstur Sójborgar á Akur- eyri.1971 byggði Styrktarfélagið Bjarkarás, en það er dagvistunar heimili fyrir 50 börn. Þá er heim- ili fyrir vangefna á Selfossi og i Kjarvalshúsinu á Seltjarnarnesi. Hvað er framundan i starfsemi félagsins og hvernig gengur aö afla fjármagns til framkvæmda? — Um þessar mundir eru ýms- ar blikur á lofti. Hinn svokallaði styrktarsjóður vangefinna, sem fær fé með sérstöku gjaldi af sölu öls og gosdrykkja á nú i vök að verjast, þar sem lögin um hann falla úr gildi i sumar. A undan- förnum árum hafa komið um 30 milljónir króna i sjóðinn, en viö fáum 1,95 kr. pr. litra. Þessu fé hefur eingöngu verið varið til að byggja stofnanir og heimili fyrir ist 6-8 börn sem þurfi á hælisvist að halda og ef það kostar 6-8 milljónir króna að byggja yfir hvert barn, er komið i mikið óefni. En ráðamenn hafa tekið vel i okkar beiðni og sömu sögu er að segja af þeim þing- mönnum, sem við höfum rætt viö. En hvað er gert fyrir vangefið fólk á hinum ýmsu stofnunum og heimilum hérlendis? — Fyrst og fremst fær þetta fólk húsnæði og mat og viða góða aðhlynningu, þó svo að húsnæði sé smátt i sniðum. Það sem nú vant- ar tilfinnanlega er kennslu- og þjálfunaraðstaða fyrir fólkiö. Ar- ið 1971 var sett sérstök reglugerð um kennslu á fávitaheimilum og i . grunnskólalögunum er kveðið á að vangefin börn eigi rétt á sam- bærilegri kennslu og aðrir, en hér skortir allt á. Hér þarf lagfæring- ar strax. Hvað myndu t.d. venju- legir foreldrar segja, ef kenna þyrfti börnum þeirra inni i stofu. Þá heldur Styrktarfélagiö á lofti öðru miklu baráttumáli fyrir hönd skjólstæðinga sinna. En þar eru tannviðgerðir. Það hefur ekki verið hægt að gera við tennur þessa fólks með góðu móti til Afmælisveizla að Skálatúni. Ljósmæðrafélag Reykjavíkur styrkir börn með sérþarfir Hinn árlegi merkjasöludagur ljósmæðrafélagsins er næstkom- andi sunnudag 11. april. Eins og að undanförnu verður ágóða varið til liknarmála. Af siðustu merkjasölu 1975 var Helgu Finnsdóttur afhent gjöf á kvennafridaginn 24. október, til barna með sérþarfir. Það er ánægjulegt að sjá hvað mikið er hægt að gera fyrir þessi börn. Mæður leyfið börnunum að selja merkin og klæðið þau hlý- lega. Merkin eru afhent i þessum skólum: frá kl. 10 árdegis. Alfta- mýrarskóla — Árbæjarskóla — Breiðholtskóla — Fellaskóla — Langholtsskóla — Vogaskóla — Melaskóla. þessa. Við höfum rætt þetta mál við heilbrigðisráðuneytið og von- umst reyndar til þess að vangefn- ir fái áður en langt um liður sama rétt og aðrir til að láta gera við tennur. Þó svo að 1000 milljónum króna sé veitt i fræðslukerfi landsins á þessu ári, þá höfum við ekki feng- ið eina einustu krónu til skóla- byggingar. Búið er að ræða skóla- málið við Birgi Thorlacius ráðu- neytisstjóra og þá með skóla- byggingu við Lyngás i huga. Okk- ur hefur verið heimilað að láta teikna skólann, en við vitum ekki enn hvenær við fáum fjárveit- ingu. Hvcr eru helztu verkefni Styrktarfélagsins sjálfs fyrir utan að rcka á eftir byggingum? — Það rekur tvö dagvistunar- heimili. Lyngás og Bjarkarás, en þar eru unglingar og fullorðið fólk. t Bjarkarási vinnur fólkið eftir beztu getu, stúlkurnar eru i saumaskap og piltarnir við ýmiss konar smiðar. Framleiðsla fólks- ins er orðinn söluvarningur á opinberum markaði. Og af þeirri reynslu sem við höfum fengið er þetta þaö sem koma skal. Þá er félagið búið að kaupa hús núna og á það að vera heimili fyr- irstúlkur, sem hafa þroskazt það mikið, að þær eru sjálfbjarga að vissu leyti, en með þeim verður þó kona. Tvær stúlkur, sem hafa dvalið lengi i Skálatúni eru fluttar i þetta hús, en þær hafa þroskazt það mikið, að þær geta t.d séð um að halda öllu hreinu, elda mat og þvo þvott. Að lokum vil ég segja það, að viö eigum að hætta að einblina á stofnanir og hæli. Það hefur sýnt sig, að það er hægt að virkja þetta fólk mjög mikið og það er þvi sjálfu og þjóöfélaginu til góðs. Vistmenn f Bjarkarási vinna að framlciðslu sængurfatnaðar. Aðalfundur Foreldrasamtaka barna með sérþarfir: Hafa ber foreldra með í ráðum, er fjallað er um börnin Aðalfundur Foreldrasamtaka barna með sérþarfir, haldinn i Brautarholti 4, 28. marz 1976, samþykkir að skora á stjórnvöld og aðra, sem fjalla um málefni barna með sérþarfir, að hafa for- eldra þessa barna ætið með i ráð- um um aðbúnað þeirra og með- höndlun. Jafnframt samþykkir fundur- inn að krefjast verði þess af rikis- stjórninni, að byggingafram- kvæmdum við öskjuhliðarskóla verði tafarlaust haldið áfram, ella sé um vitaverða vanrækslu að ræöa. Varðandi fyrra atriðið vilja Foreldrasamtökin benda á það, aö sérþekking á þessum málum getur ekki falið i sér reynslu og tilfinningar foreldranna. Má glöggt sjá það, ef litið er yfir far- inn veg. Óraunhæft er einnig að á- kvarða meðferð barnanna án samráðs við foreldra, eins og gert er þegar um heilbrigð börn er að ræða, vegna þess, að allir eiga heilbrigð börn, en fáir hafa reynslu af að eiga vanheilt barn. Kröfuna um það, að bygginga- framkvæmdir séu ekki stöðvaðar við öskjuhliðarskóla ætti ekki að þurfa að rökstyðja. Nægir að minna á þann fjölda barna, sem þurfa kennslu og þjálfunar með, en komast hvergi fyrir. Einhverj- um foreldrum heilbrigðra barna myndi þykja nóg um, ef börn þeirra fengju ekki að fara i skóla af þvi að ekki væru til peningar til að byggja skólahúsnæði.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.