Tíminn - 05.05.1976, Síða 5

Tíminn - 05.05.1976, Síða 5
Miðvikudagur 5. mal 1976 TÍMINN 5 Nýsköpunarstjórn myndi ráða betur við efnahaasvandann Bónorð Gylfa Senn fer sá tlmi i hönd, að fuglar þessa lands pari sig og safni I hreiður. Formaður þingflokks Alþýðuflokksins er engin undantekning að þvi leyti, og raunar hefur hann nokkra forystu þar um, sbr. bónorð hans tll Sjáiftæðis- flokksins og Alþýðubanda- lagsins I Visi I gær. l>ar kemur fram, að heitasta ósk Gylfa Þ. Gfslasonar er að komast I ný- sköpunarstjóru með Sjálf- stæðisflokknum og Alþýðu- bandalaginu og er Gylfi I eng- um vafa um, að sllk stjórn yrði oilra meina bót. Engin skil- yrði eru sett, að þvi þó undan- skildu, að cnga breytingu megi gera á utanrikismála- stefnu Islendinga, enda þykist formaður þingfiokks Aiþýöu- flokksins geta gengið að þvi visu, að sannfæring Alþýðu- bandaiagsmanna sé til sölu i þeim efnum sem Öðrum. Það fylgdi hins vegar ekki sögunni i VIsi I gær, hver ætti að vera i forsæti hinnar nýju rlkisstjórnar, sem Gylfi Þ. er búinn að mynda I huganum. En sjáifsagt reiknar formaður þingflokks Alþýðuflokksins dæmið þannig, að hinír flokk- arnir geti ekki sætt sig við for- sætisráðherraefni frá hvor öðrum.og lausnin verði þvi sú, að Aiþýðuflokkurinn ieggi for- sætisráðherrann tii. Og þar sem enginn i Alþýðuflokknum hafi aðra eins æfingu sem ráö- hcrra og einmitt formaður þingflokksins, veröi óhjá- kvæmiiegt að leita til hans. Astarhreiður Alþýðuflokks- ins er sem sé tilbúlö og öii- um opið, nema Framsókuar- flokknum. Þarf vart að íara mörgum orðum um það, hversu vonsviknir Framsókn- armenn eru, að komast ekki i rikisstjórn Gylfa Þ. Gisláson- ar. Kyrrstaða norðan fjalla Biaðið Dagur á Akureyri ' fjailaði nýlega um garöyrku og gróðurhús I leiðara sinum. Getur blaðið þess, aö gróöur- hús hér á iandi séu um þrettán hektarar að fiatarmáii og mestur hlutí þeirra i Arnes- sýslu. Siðar I leiðara sinum segir blaöiö: „Taliðer, að það kosti nú 10- 12 þúsund krónur að byggja yfir fermetrann I gróðurhúsi. Garðyrkjumenn sætta sig ekki við minni afrakstur en 2-4 þús. kr. af hverjum fermetra á ári, og fer þaö aö nokkru eftir þvi hvað ræktað cr. Pottaplöntur og sumar tegundir afskorinna blóma gefa mest en krefjast hins vegar mikillar vinnu. Athugun hefur verið gerð á rúmlcga 30 hektara ylræktar- veri hér á landi, með erlenda markaði fyrir augum. t fram- haldi af þeim athugunum, og rannsóknum á sérstakri ljós- tækni víð ræktunina, hafa hol- len/.k fyrirtæki áhuga á 3,5 ha. ylræktarveri, einkum til fram- leiðslu á chrysanthemum- græðiingum. Yrðu þá móður- plönturnar ræktaðar hér, en græöiingarnir, án rótar, send- ir tii framhaidsræktunar I Hollandi, 52 milljónir græðlingar á ári. En á meðan blóma- og græumetisrækt dafnar á Suð- vesturlandi og ævintýraleg ó- form um stórframkvæmdir á þvi sviði eru uppi, rikir á þessu sviði mikii kyrrstaða norðan fjalla og almenn garð- yrkjumenning er minni en vera þyrfti.” —a.þ. Talið frá vinstri: Ole Kristian Hanssen, básúnuleikari, Guðrún Kristinsdóttir, pianóleikari, Lárus Sveinsson, trompetleikari og Christina Tryk, hornieikari. Norræna húsið: AAálmblásaratríó með tónleika gébé—Rvik — A fimmtudags- kvöldið kl. 20:30 halda fjórir hljómlistarmenn úr Sinfónlu- hijómsveit tslands tónleika 1 Nor- ræna húsinu. Þar kemur fram málmbiásaratrió, Lárus Sveins- son, trompet, Christina Tryk, horn, og Ole Kristian Hansen, básúna. Einnig mun Guðrún Kristinsdóttir pianóieikari koma fram á tónleikunum. A efnis- skránnni eru m.a. verk eftir Robert Sanders, Luigi Cherubini, Berthold Hummel, J.S. Back og Francis Poulenc. Lárus Sveinsson trompetleikari er vel þekktur hér á landi, en hann stundaði nám sitt i Vinar- borg, og hefur veriö trompetleik- ari i Sinfóniuhljómsveit íslands siðan 1967, þar sem hann hefur oftsinnis leikið einleik með hljóm- sveitinni. Christina Tryk er bandarisk, en hún stundaði nám við Yale School of Music og einnig i Noregi. Um tima lék hún i Útvarpshljóm- sveitinni I Osló. Hornleikari i Sinfóniuhljómsveit tslands hefur Christina Tryk verið siöan 1975. Ole Kristian Hanssen, básúnu- leikari sem er norskur, stundaði nám við Musikhögskolen i Osló og hjá Dennis Wick I London. Hann hefur verið fyrsti básúnuleikari i Sinfóniuhljómsveitinni siðan i september 1975. Guðrún Kristinsdóttir pianó- leikari er vel þekkt, bæði sem einleikari og undirleikari. Hún stundaði nám i Kaupmannahöfn og Vinarborg. ® AAetlaxveiði sumarið 1975 Laxá i Skeflisstaðahreppi 134 7,6 ( 120) Sæmundará 116 8,5 ( 115) Húseyjarkvisl 118 8,7 ( 112) Fljótaá 189 8,2 ( 204) Fnjóská 268 8,6 ( 386) Laxá i Aðaldal 2326 10,2 (1817) Reykjadalsá og Eyvindarlækur 264 6,7 ( 337) Ormarsá 117 7,7 ( 123) Deildará 189 7,4 ( 158) Svalbarðsá 172 9,9 ( 234) Sandá 238 9,7 ( 288) Hölkná 118 9,2 ( 135) Hafralónsá 302 9,1 ( 343) Selá i Vopnafirði 711 8,1 ( 589) Vesturdalsá i Vopnafirði 329 9,2 ( 371) Hofsá i Vopnafirði 1117 8,9 (1277) Breiðdalsá 123 5,9 ( 126) Geirlandsá i V-Skaftafells. 162 6,8 ( 56) Eldvatn i V-Skaftafells. 51 4,4 ( 24) Stóra Laxá i Hreppum 340 10,2 ( 157) Brúará 84 ( 88) Sogið 593 7,9 ( 526) o Alþingi hans einu sinni i viku. Megn óánægja er rikjandi heima fyrir með skipan þessara mála, og á fundi manna úr öllum hreppum Vestur-HUnavatnssýslu 12. mai 1975 var samþykkt að beina þvi til sýslunefndar Vest- ur-Húnavatnssýslu, „hvort ekki sé timabært, að sýslunefndin óski eftir þvi við viðkomandi y firvöld, að Vestur-Húnavatnssýsla verði gerð að sérstöku lögsagnarum- dæmi, en með þvl ætti opinber þjónusta i sýslunni að geta batnað tU muna frá þvi, sem nú er”. Á sýslunefndarfundi var svo slik samþykkt gerð. Vafalaust er mikil andstaða gegn þvi af kostnaðarástæðum, að sýslumannsembættum verði fjölgað. En flutningsmönnum þessarar tillögu virðist ekki til of mikils mælst, að skrifstofu- aðstöðu sýslumanns verði nú a.m.k. breytt i lögregluvarðstofu með fastráðnum lögreglumanni, ogmá segja, aö það sé lágmarks- úrlausn á þessum vanda. Sýslunefnd Vestur-Húnavatns- sýslu og hreppsnefnd Hvamms- tangahrepps hafa óskað eftir þvi, að viðgerðarmenn frá Rafmagns- veitum rikisins og Landssiman- um hafi fasta búsetu á Hvamms- tanga eða annars staðar i Vest- ur-Húnavatnssýslu. Þegar bilanir verða i vondum veðrum er sér- lega illt að þurfa að sækja þessa þjónustu langan veg. Virðist eðli- legt og sanngjarnt að orðið sé við þessari kröfu.” Dagur Evrópu í dag Stofndagur Evrópuráðsins 5. mai er haldinn hátiðlegur sem DAGUR EVRÓPU i aðildarrikj- um Evrópuráðsins, sem nú eru 18 talsins. 1 fyrra var þess minnzt þennan dag, að 25 ár voru frá stofnun Evrópuráðsins. I ár er dagurinn helgaður starfi ráðsins að mannréttindamálum með þvi að minna sérstaklega á mannréttindasáttmála Evrópu og starfsemi mannréttinda- nefndar og mannréttindadóm- stóls Evrópu. I samræmi við það hefur kjörorð dagsins verið valiö þetta: MANNRÉTTINDI ERU RÉTTUR ÞINN. Sú venja hefur komizt á í flestum aðildarrikjum Evrópu- ráðsins, að sveitarstjórnir og stofnanir þeirraeigi frumkvæði að ýmiss konar hátiöahöldum eða tilbreytni til þess að minna á daginn. I samræmi við það hefur Samband islenzkra sveit- arfélaga fyrir nokkru skrifað sveitarfélögum landsins bréf og farið þess á leit, að þau minnist dagsins með þvi að hafa fána við hún miðvikudaginn 5. mai á eða við stofnanir i eigu sveitar- félaganna. Mörg sveitarfélög hafa orðið sér úti um Evrópu- fánann og munu flagga með honum. Einnig hefur verið dreift veggspjaldi með kjörorði dagsins á mynd, sem sýnir Evrópuráðsrikin. Útvarpsstöðvar i Evrópu- ráðsrikjunum munu að jafnaði 5. mai kynna Evrópustefið, en það er Óðurinn til gleðinnar úr Niundu sinfóniu Beethovens. Evrópustefið hefur verið gefið út á hljómplötu, sem er fáanleg ásamt þjóðsöngvum Evrópu- jj ráðsrikjanna. Vfða mun einnig tiökast, að þjóðhöfðingjar, utanrikisráð- herrar og borgarstjórar haldi ræður á Evrópudaginn, haldin séu iþróttamót og efnt til vina- bæjaheimsókna milli bæja, sem j hafa vinabæjatengsl sin á milli. J „Markmið Evrópudagsins er | að vekja almenning til vitundar um vaxandi samstarf Evrópu- • ráðsrikjanna og gildi þess fyrir | hinn almenna borgara innan jj þeirra,” eins og segir i bréfi | Sambands islenzkra sveitarfé- ii laga til sveitarstjórna i tilefni :J dagsins.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.