Tíminn - 05.05.1976, Síða 14
14
TÍMINN
Miðvikudagur 5. mai 1976
Á FLÓTTA FRÁ ÁSTINNI
Eftir Rona Randall 44
vona, aö þú heföir ekki allt of mikið að gera — því ég
þarfnast hjálpar þinnar.
— Þarfnast þú hjálpar minnar? Drengur minn, þú
hefur ekki þarfnazt hennar i mörg ár!
— Þér skjátlast. Ég þarf aö hressa upp á ýmislegt.
Ekki beint tækni og slíkt, en ég þarfnast þess aö starfa
með meistara....einhverjum sem er færari og reyndari
en ég sjálfur. Stundum staöna málarar. Þú sagöir mér
eitt sinn, aö þegar það gerðist, gæti veriö gott aö starfa
með öðrum listamanni um tíma. Ég er búinn aö mála svo
margar andlitsmyndir af fínum frúm, að mér er orðið
óglatt..þaö er alveg satt, Ég ætlaöi að halda sýningu i
Paris og býst við að gera það einhvern tíma, en ekki'
núna. Ég er að hugsa um að taka á leigu vinnustofu og
mála það sem mér dettur í hug, Og mig langar svo mikið
til að vita hvort þú ert þannig staddur, að þú getir
starfað með mér.
Það leið heil mínúta áður en Simon tók til máls — hann
treysti ekki rödd sinni. Svo tautaði hann: — Þú veizt vel,
aðég hef ekki efni á því, Brent. Ef þú hefur komið í Rue
Guillotine, veiztu hvers vegna!
— Peningar skipta ekki máli í þessu sambandi. Ég hef
nóg af þeim til að við getum báðir lifað góðu lífi um
tima. Við gerðum það einu sinni, manstu? En í þá daga
var það fyrir þína peninga.
— Þú ert vist ekki að bjóða mér einhverja ölmusu?
— Enga vitleysu. Ég þarfnast þín. Ég sagði, að ég
þarfnaðist hjálpar þinnar, f lýtti Brent sér að segja. — Og
reyndu að koma því inn i þykka, gamla stolta hausinn á
þér, að ég ætla ekki að gefa þér neitt. Ég vil að þú
gagnrýnir verk mín, gefir mér ráð og starfir með mér.
Þær stundir koma, að líf ið er svo rausnarlegt, að varla
er hægt að trúa þvi og þetta var Símonislikt andartak,
Hverjar sem raunverulegar ástæður Brents voru, vissi
hann, að hann hafði ekki ráð á að neita tilboðinu. Þetta
var það sama og nýtt líf og Símon rétti Brent höndina,
hann tók í hana og þrýsti hana hlýlega.
Brent sá Myru við dyrnar og kinkaði kolli. Hún brosti
og hvarf aftur, en ekki fyrr en Polly Friar, sem í þessu
kom til að tilkynna, að heimsóknartímanum væri lokið,
hafði séð hana. Aftur varð hún forvitin og horfði á eftir
Myru, sem hvarf fram ganginn. Skyndilega sagði rödd
við hlið hennar: — Ég hélt að heimsóknartímanum væri.
lokið, hjúkrunarkona? Má ég spyrja, hvers vegna enn
eru gestir hér á deildinni?
Það var doktor Harwey, sem stóð og horfði á hana.
Hún hafði ekki séð mikið til hans, síðan nóttina, sem hún
hafði sótt hann á sjúkrahúsið og þau höfðu ekkert talað
saman utan vinnu. Áður hafði hann stundum litið inn í
litla eldhúsið þeirra til að fá sér te og spjalla, já hann
hafði meira að segja sagt henni f rá nokkrum ævintýrum
sínum i Paris og rætt starf ið við alvarlegri tækifæri. En
nú orðið var hann alltaf kaldur og ópersónulegur í f ram-
komu.
Hún sneri sér að honum: — Ég var einmitt að fara að
tilkynna það hér, læknir. Svo bætti hún við, af því hún
var sár við hann: -- Auk þess átti ég ekki von á læknis-
heimsókn á þessum tíma sólarhringsins.
Það var satt, læknarnir tóku sér alltaf hvíld í
heimsóknartímanum og voru ekki vanir að stytta hana
sérstaklega.
—Ég er önnum kafinn og þarf að fara kvöldyfir-
ferðina snemma núna, svaraði David stuttlega og horfði
á granna stúlkuna, sem gekk á undan honum inn.
Hann hafði ekki ætlað að vera óvtngjarnlégur við
hana. Hann saknaði kunningsskaparins, sem verið hafði
á milli þeirra, en síðan þessa bannsetta nótt hafði stolt
hans eyðilagt allt fyrir honum. Hann gat ekki lengur
strítt henni og slegið á grín, því það sem hann hafði þá
sagt, stóð alltaf á milli þeirra. Og hún, sem var svo
falleg og góð, hugsaði hann iðrandi. Hann langaði til að
biðja hana afsökunar á framkomu sinni, en hún hafði
aldrei gefið honum tækifæri til þess. Það var ekki hægt
að skamma stúlku eins og Pollý svona og ætlast svo til að
hún gleymdi því.
Það var því ekki undarlegt þótt spenna væri milli
þeirra þessa dagana. Hann hafði sjálfur skapað hana.
Hún hafði reynt að hjálpa honum af einskærri
góðmennsku og umhyggju fyrir honum og f þakklætis-
skyni hafði hann ausið yfir hana skömmum!
En það einkennilega var, að það var eins og hann væri
núna fyrst að byrja að veita henni athygli. Þegar þau
sátu í bilnum og hún hélt utan um hann til að styðja hann,
hafði hann gert sér grein'fyrir, hvað hún var mikil kona,
en ekki bara laglegur unglingur, sem gaman var að
spjalla við og stríða svolítið. Og til að dylja tilfinningar
sínar, var hann enn styttri í spuna við hana, þegar þau
5. mai
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.15 Til umhugsunar þáttur
um áfengismál i umsjá
Sveins H. Skúlasonar.
13.30 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Þess
bera menn sár” eftir Guð-
rúnu Lárusdóttur Olga
Sigurðardóttir les (21).
15.00 Miðdegistónleikar Fil-
harmoniusveitin i Los
Angeles leikur „Hátið i
Róm”, sinfóniskt ljóð eftir
Respighi, Zubin Mehta
stjórnar/ Sinfóniuhljóm-
sveitin i Filadelfiu leikur
Sinfóniu nr. 1 op. 10 eftir
Sjostakovitsj, Eugene Or-
mandy stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.00 Lagið mitt Berglind
Bjarnadóttir sér um óska-
lagaþátt fyrir börn yngri en
tólf ára.
17.30 Mannlif i mótun Sæ-
mundur G. Jóhannesson rit-
stjóri á Akureyri rekur
minningar sinar frá
kennaraskólaárunum i
Reykjavik (1).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Úr atvinnuiifinu Bergþór
Konráðsson og Brynjólfur
Bjarnason rekstrarhag-
fræðingar sjá um þáttinn.
20.00 Kvöldvaka
21.30 Útvarpssagan: „Siðasta
freistingin” eftir Nikos
Kazantzakis Sigurður A.
Magnússon les þýðingu
j Kristins Björnssonar (24).
I 22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Sá svarti senuþjófur”,
! ævisaga Haralds Björns-
• sonarHöfundurinn, Njörður
| P. Njarðvik, les (17).
I 22.40 Nútimatóniist borkell
Sigurbjörnsson kynnir.
I 23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
Miðvikudagur
5. maí
18.00 Björninn Jógi Bandarisk
teiknimyndasyrpa. Þýðandi
Jón Skaptason.
18.25 Robinson-f jölskyldan
breskur myndaflokkur
byggður á sögu eftir Johann
Wyss. 13. þáttur. Björgunin
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.45 Gluggar Breskur
fræðslumyndaflokkur.
Gömul vopn. Sparneytið
farartæki. Hvalveiðar.
Ilundalif Þýðandi og þulur
Jón O. Edwald.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Nýjasta tækni og visindi
Umsjónarmaður Ornólfur
Thorlacius.
21.05 Bilaleigan Þýskur
myndaflokkur. Nýjasta
tiska Þýðandi Briet Héðins-
dóttir.
21.30 i kjallaranum Janis
Carol syngur. Er-
lendur Svavarsson, Ingvar
Áreliusson, Nikulás Ró-
bertsson, Rúnar Georgsson
og Vignir Bergmann leika
undir. Einnig leika Guðný
Ásgeirsdóttir og Guðriður
Sigurðardóttir fjórhent á
pianó Andante og fimm til-
brigði eftir W.A. Mozart.
Stjórn upptöku Egill
Eðvarðsson.
22.00 Fjöllin blá Bandarisk
mynd um Klettaf jöll i Norð-
ur-Ameriku. Lýst er lands-
lagi og leiðum, náttúrufari
og náttúruauðæfum. Þýð-
andi Jón Thor Haraldsson.
Þulur Ingi Karl Jóhannes-
son. Áður á dagskrá 16.
september 1972.
22.50 Dagskrárlok