Tíminn - 05.05.1976, Page 16
16
TÍMINN
Miðvikudagur 5. mai 1976
Sigmundur Ó. Steinarssonj
Alan
Taylor
leikur
með
— þegar West Ham
mætir Andeslecht
í Brussel í kvöld
í úrslitaleik
Evrópukeppni
bikarhafa
ALAN TAYLOR, hinn mark-
sækni leikmaöur West Ham sem
hefurskorað 18mörká keppnis-
timabilinu — þar af 4 i Evrópu-
keppni bikarhafa, er nú búinn
að ná sér að fuiiu eftir meiðsli i
hné, sem hann hefur átt við að
striða i fjórar vikur. Taylor
ieikur meö West Ham-liðinu i
Brussel I kvöid, þegar
Lundúnaliðið mætir beígiska
liðinu Anderlecht I úrslitaleik
Evrópukeppni bikarhafa.
Mikill áhugi er fyrir leiknum
og munu 65 þús. áhorfendur sjá
hann — þar af 8 þús. stuðnings-
menn West Ham, sem komnir
eru til Briissel, til aðhvetja sina
menn.
Billy Bonds, fyrirliði West
Ham sem hefur átt við meiðsli
að striða, stjórnar liði sinu i hin-
um mikilvæga leik, en West
Ham-liðið verður skipað _þess-
um leikmönnum i Brussel:
Mervin Day, Keit Coleman,
Frank Lampard, Billy Bonds,
Tommy Taylor, John
McDowell, Alan Taylor,
Graham Paddon, Billy Jenn-
ings (eða Pat Holland), Trevor
Brooking og Keith Robson.
— SOS.
AAARGUR ER
.•'r.
KNAR, ÞOTT
HANN SÉ
SMÁR...
KEVIN KEEGAN.... hefur ieikið 18 landsleiki fyrir England.
kosinn knattspyrnumaður ársins
KEVIN KEEGAN, hinn
frábæri leikmaður Liver-
pool-liðsins, hefur verið
| nef ndur „knattspyrnumað-
ur ársins" í Englandi.
Knattspyrnufréttaritarar
velja árlega knattspyrnu-
mann ársins, og er þessi
titill mjög eftirsóttur af
þeim knattspyrnumönn-
um, sem leika í ensku
knattspyrnunni. Keegan
vann nauman sigur yfir
knattspyrnukappanum
Charlie George, sem fékk
aðeins einu atkvæði minna
en Keegan, en síðan komu
| Manchester United-leik-
mennirnir Lou Macari og
Alex Stepney, rétt á eftir.
Kevin Keegan erstórkostlegur
leikmaður og er vel að þessum
sigri kominn. Liverpool keypti
hann frá Scunthorpe á aðeins 35
þúsund pund 1971. Hann leikur á-
vallt af fullum krafti, og það
kunna áhorfendur að meta. Keeg-.
an er einn bezti knattspyrnumað-
Dýrlingarnir frá Southampton
fengu geysilegar móttökur á The
Dell i hafnarborginni frægu, þeg-
ar þeir léku gegn Lundúnaiiðinu
Queens Park Rangers — ágóða-
leik fyrir Mike Channon, lands-
liðsmanninn snjalla. Það var
mikill fögnuður á The Dell, þegar
Dýrlingarnir hlupu inn á völlinn
með bikarinn, sem þeir tryggöu
sér á Wembley, á lofti. Fagnaðar-
hrópin frá áhorfendum, sem troð-
fylltuThe Dell, hljómuðu kröftug-
lega um hafnarborgina — og
áhorfendur sungu ,,We are the
greatest”. (Við erum beztir).
Já, það var mikill fögnuður —
enda fyrsti titillinn sem Dýrling-
arnir vinna i 90 ára sögu félags-
ins. Bobby Stokes, hetja DýrUng-
anna á Wembley, var einnig het ja
þeirra á The DeU — þessi snjalli
leikmaður skoraði bæði mörk
þeirra í jafnteflisleik — 2:2.
Channon fær dágóðan skilding
fyrir þennan leik, sem mun gefa
honum rúmlega 20 þús. pund i
ágóða. — SOS.
MIKE CHANNON......20 þús.
pundum rikari.
ur sem England hefur átt — hann
hefur góða likamsburði og jafn-
vægi, mikla tækni og hann er
fljótur að „leika sig frá” erfiðum
aðstæðum, — og hann er hug-
rakkur. Þótt hann sélitill, er hann
stórkostlegur i loftinu — hreint
frábær skallamaður. Keegan er
nú orðinn fullmótaður leikmaður
og það er ekkert, sem hann kann
ekki i sambandi við knattspyrnu.
Kevin Keegan hefur verið pott-
urinn og pannan i árangri Live'r-
pool-liðsins undanfarin ár. Steve
Heighway, félagi Keegan, hefur
sagt þetta um hann: — Mér finnst
mjög auðvelt að spila við hliðina á
honum — hann er alltaf hlaupandi
og alltaf að leita að knettinum,
sem hann á mjög auðvelt með að
gefa frá sér. Keegan er stórkost-
legur i loftinu og hefur skallan á
réttum stað. — Hann getur skorað
mörk, og er fljótur að sjá út veik-
leika andstæðinganna. Þá á hann
mjög auðvelt með að skipta úr
framlinu i miðvallarspil og svo
aftur fram, sagði Heighway.
Þegar Keegan er hvattur áfram
af áhangendum Liverpool-liðsins,
eða ,,The Kop” eins og þeir eru
kallaðir, er hann i essinu sinu og
sýnir þeim það bezta. Það er ekki
nema von að Keegan sé kallaður
„King of Liverpool’s Kop”.—SOS
Enskur þjdlfari til KR
Englingurinn Ron Lewin mun að-
stoða KR-inga við þjálfun á 1.
deildarliði þeirra i nokkrar vikur.
Lewin, sem dvaldist hjá KR 1967,
er væntaniegur til landsins fljót-
lega, og verður hann þá með
KR-liðið ásamt þeim Guðmundi
Péturssyni og Óiafi Lárussyni.
KNATTSPYRNU
AAENN ÁRSINS
Eftirtaldir leikmenn hafa verið
svo heppnir, að hljóta_ hinn eftir-
sótta titil — „Knattspyrnumaður
ársins”:
1948: Stanley Matthews, Black-
pool.
1939: Johnny Carey.Man. United.
1950: Joe Mercer, Arsenal.
1951: Harry Johnston, Blackpool.
1952: Billy Wright, Wolves.
1953: Nat Lofthouse, Bolton.
1954: Tom Finney,Preston.
1955: Don Revie, Manchester
City, (nú einvaldur enska lands-
liðsins).
1956: BertTrautmann.Man. City.
1957: Tom Finney, Preston.
1958: Danny Blanchflower, Tott-
enham.
1959: Syd Owen.Luton.
1960: Bill Slater, Wolves.
1961: D. Blanchflower, Totten-
ham.
1962: Jimmy Adamson, Burnley.
1963: Stanley Matthews, Stoke.
1964: Bobby Moore, West Ham,
(nú Fulham).
1965: Bobby Collins, Leeds.
1966: Bobby Charlton, Man.
United.
1967: Jackie Charlton, Leeds, (nú
framkv.stj. Middlesborough).
1968: George Best, Manchester
United.
1969: Dave Mackay, Derby, (nú
framkvæmdastjóri Derby).
1969: Tony Book, Manchester
City, (nú framkv.stj. Manchester
City).
1970: Billy Bremner, Leeds.
1971: Frank McLintock, Arsenal,
(nú Queens Park Rangers).
1972: Gordon Banks.Stoke.
1973: Pat Jennings, Tottenham.
1974: Ian Callaghan, Liverpool.
1975: Alan MulIery.Fulham.
1976: Kevin Keegan, Liverpool.
Halldór fluttur
til Reykjavíkur
— hann hefur ákveðið að keppa fyrir Hrönn
í framtíðinni
HALLDÓR Matthiasson,
skíðagöngumaðurinn
snjalli fré Akureyri, sem
hefur stundað nám í
sjúkraþjálfun í Noregi
undanfarin ár, er fluttur
til Reykjavíkur — og mun
hann framvegis keppa
undir merki Hrannar.
Halldór tók þátt i Reykja-
vikurmeistaramótinu i 30 km
skiðagöngu um helgina — en
hann keppti sem gestur. Hann
náði bezta timanum, fór vega-
lengdina á 98.23 minútum.
Reykjavikurmeistari varð
Páll Guðbjörnsson, SR — hann
gekk vegalengdina á 108,02 min.
Jóhann Jakobsson úr Hrönn
varð annar — 111.00 og i þriðja
sæti kom Guðmundur Sveins-
son, SR — 114.18.
—SOS
HALLDÓR MATTHÍASSON... göngumaðurinn sjalli,