Tíminn - 05.05.1976, Síða 17
Miðvikudagur 5. mai 1976 TÍMINN 17
Keegan var óstöðvandi
KEVIN KEEGAN var hetja
Liverpool-liðsins i gærkvöldi,
þegar „Rauði herinn” tryggði sér
Englandsmeistaratitilinn og
sendi þar með tJifana niður í 2.
deild. Það var ekki fyrr en 14.
minútum fyrir leikslok á
Molineux, að Liverpool-liðið fór I
gang og Kevin Keegan náði að
jafna (2:2). Þetta var ekki sfðasta
orð Keegans i leiknum, hann
sundraði varnarvegg úlfanna
tvisvar sinnum tU viðbótar og
sendi knöttinn fyrir markið —
fyrst þakkaði John Toshack gott
boð og skoraði örugglega, en sfð-
an innsiglaði Ray Kennedy sigur-
inn (3:1) eftir sendingufrá Keeg-
an.
Það var ekki laust við, að á-
hangendur Liverpool — „The
EMLYN HÚGHES.
Kop” væru búnir aö sætta sig við
ósigur, eftir að Steve Kindon
hafðiskorað gott mark (1:0) fyrir
Úlfana á 12. minútu leiksins — og
héldu Úlfarnir forskotinu, þar til
14 minútum fyrir leikslok. En þá
fór ,,Keegan-Toshack”-vélin i
gang og mörkin komu á færi-
bandi. Það var geysileg stemmn-
ing á Molineux og leikmenn
Liverpool-liðsins léku stórkost-
Sheffield-liðið, en Terry Hibbitt
jafnaöi fyrir Birmingham.
3. DEILD:
Bury —Cardiff.............0:1
Chester — C. Palace.......2:1
Crystal Palace missti þarna af
lestinni og leikur áfram i 3. deild,
en Hereford, Cardiff og Millwall
fara upp i 2. deild.
JOHN TOSHACK.
Þau leika i Evrópukeppni
6 ensk lið leika i þrenns konar
Evrópukeppni næsta ár. Liver-
pool tekur þátt i Evrópukeppni
meistaraliða, Southampton i
Evrópukeppni bikarhafa og Man-
chester United, Derby, Man-
chester City og Queens Park
Rangers leika i UEFA-bikar-
keppninni.
Dundee United bjargaði sér frá
falli
Dundee United bjargaði sér frá
falli í gærkvöldi, þegar liðið geröi
jafntefli (0:0) gegn Glasgow
Rangers — það eru þvi Dundee og
St. Johnstone, sem falla úr „aðal-
deildinni”, en sæti þeirra i deild-
inni taka Partick Thistle og
Kilmarnock. —SOS
RAY CLEMENCE.
TOMMY SMITH.
lega, hvattir áfram af hinum
fræga „The Kop”-kór.
Úrslit i ensku knattspyrnunni
urðu þessi i gærkvöldi:
Man.Utd. —Man. City......2:0
Sheff. Utd. — Birmingham ....1:1
Wolves — Liverpool.......1:3
Alan Woodward skoraði fyrir
— þegar „Rauði herinn" frá Liverpool tryggði sér
Englandsmeistaratitilinn í gærkvöldi, með því að skora
þrisvar sinnum (3:1) á lokamínútunum
gegn Úlfunum, sem féllu niður í 2. deild
„Rauði herinn” frá Liverpool,
undir stjórn Bob Paisley, fram-
kvæmdastjóra, braut blað i sögu
ensku knattspyrnunnar i gær-
kvöldi, þegar Mersey-liðið
tryggði sér Englandsmeistara-
titilinn i 9. skiptið i 84 ára sögu
félagsins — ekkert annað lið
hefur unnið meistaratitilinn svo
oft. Arsenal kemur næst, en
félagið hefur 8 sinnum hlotið
meistaratitilinn. Liverpool hefur
verið mjög sigursælt siðan félagið
sigraði i 2. deild, keppnistimabilið
1961-62 — það hefur aldrei lent
fyrir neðan áttunda sæti 11. deild-
inni og fjórum sinnum orðiö Eng-
landsmeistari — 1964, 1966, 1973
og 1976. Auk þess vann Liverpool
sigur i bikarkeppninni 1965 og
1974 og þá vann félagið sigur I
UEFA-bikarkeppni Evrópu 1973.
Maðurinn sem hefur staöið á
bak við þessa sigurgöngu er tvl-
mælalaust Skotinn Bill Shankly,
sem stjórnaði Mersey-liðinu með
miklum glæsibrag. Bob Paisley,
sem var aðstoðarmaður hans, tók
siðan við stjórninni á Anfield
Road, þegar Shankly lét af störf-
um fyrir tveimur árum — eða eft-
ir sigurinn I bikarkeppninni 1974.
Þetta er þvi fyrsti titillinn og
örugglega ekki sá siðasti, sem
„Rauði herinn” vinnur undir
stjórn Paisley — en lið hans er
skipaö þessum leikmönnum:
,,Rauði herinn"
frá Liverpool
— braut blað í sögu ensku knattspyrnunnar
BOB PAISLEY.
IAN CALLAGHAN.
STEVE HEIGHWAY.
RAY CLEMENCE — markvörö-
ur, er fastur markvöröur i
enska landsliðinu og hefur
leikið 16 landsleiki. Clemence
byrjaði aö leika með Liver-
pool 1969, en tveimur árum
áður var hann keyptur fyrir
smáupphæö — 20 þús. pund,
frá Scunthorpe. Clemence er
frábær markvöröur, sem er
ávallt rólegur, og öruggur —
fullur af sjálfstrausti.
TOMMY SMITH — bakvörður.
Það tókhann aðeins llmánuði
að komast i aðallið Liverpool
frá þvi að hann skrifaði undir
atvinnumannasamning árið
1962. Smith hafði áður starfað
sem vallarstarfsmaöur á An-
field Road. Smith hefur leikið
landsleiki fyrir England.
Hann er geysilegur baráttu-
hestur og harður leikmaður.
PHIL THOMPSON — miðvörður,
er uppalinn á Anfield Road.
Hann er mjög sterkur varnar-
leikmaður, með óþrjótandi út-
hald og keppnisskap. Thomp-
son lék með enska landsliðinu
gegn Wales fyrr i vetur, en er
nú i landsliðshópi Don Revie
og binda Englendingatuniklar
vonir við hann i HM-keppninni
i Argentinu 1978.
PHIL NEAL bakvörður, er leik-
inn leikmaöur og mjög sókn-
djarfur. Neal tekur vitaspyrn-
ur Liverpool-liðsins og þykir
öruggur I þeirri grein. Hefur
skorað 6mörk úr vitaspyrnum
i vetur. Neal var keypur til
Liverpool frá Northampton
fyrir smáupphæð.
EMLYN HUGHES — miðvörður,
var keyptur til Liverpool frá
Blackpool árið 1967, fyrir 65
þúsund pund. Hughes, er
mikill vinnuhestur og er
geysilega skotfastur. Hann
skorar mikið af mörkum af
löngu færi. — Hann er styrk-
asta stoö Liverpool-liðsins.
Hughes hefur leikið landsleiki
fyrir England, og var hann i
enska landsliðshópnum i
HM-keppninni i Mexikó.
RAY KENNEDY — miövallar-
spilari, vakti fyrst athygli 19
ára, þegar hann hóf að leika
með Arsenal 1969. Kennedy
var geysilega markheppinn,
og skoraði hann alls 53 mörk i
156 deildarleikjum — og hann
átti stóran þátt i sigurgöngu
Arsenal 1971, þegar félagið
vann „Double” — bæði deild
og bikar. Hann lék þá i stöðu
miðherja, en þegar Liverpool
keypti hann 1974 á 180 þús.
pund, fór hann að leika stöðu
miðvallarsp., og hefur hann
farið vaxandi i þeirri stöðu. —
Hann lék sem miðvallarspil-
ari með enska landsliðinu
gegn Wales fyrir stuttu.
KEVIN KEEGAN — miðvallar-
spilari og sóknarleikmaöur,
einn bezti knattspyrnumaður
Englands. Sjá nánar um hann
annars staðar á siðunni Keeg
an hfur skorað 11 mörk fyrir
Liverpool i 1. deildar keppn-
inni.
IAN CALLAGHAN — miðvallar-
spilari, lék sinn fyrsta leik
með Liverpool 1961 og hefur
nú leikið um 600 leiki siðan.
Callaghan, er uppalinn hjá
Liverpool og hefur leikið með
enska landsliöinu,— Hann var
kosinn knattspyrnumaður
ársins i Englandi 1974. Callag-
han er mjög leikinn og fljótur
leikmaðui*, og hann hefur
næmt auga fyrir samspili.
STEVE HEIGHWAY— framlinu-
maður, er lærður hagfræðing-
ur. Hann kom til Liverpool
sem áhugamaður, vegna þess
að félagið, sem hann var upp-
haflega i, vildi fá hann til að
skrifa undir atvinnumanna-
samning, þegar hann var að
læra i háskólanum. Heigh-
way,sem er fastamaður i
irska landsliðinu, er stór-
hættulegur og fljótur fram-
linumaður, sem erfitt er aö
stöðva.
ALEC LINDSEY — varnarleik-
maður. Keyptur frá Bury 1969
á aðeinsþúsund pund. Lindsey
lék sem framlinumaöur með
Bury, og sem innherji i sin-
um fyrsta leik með Liverpool
— en siðan var hann settur
sem bakvörður, og hefur leik-
iðyfir 170leikimeðLiverpool i
þeirri stöðu. Enskur landsliðs-
maður.
JIMMY CASE — miðvallarspilari
og sóknarleikmaöur, hóf sinn
knattspyrnuferil hjá Liver-
pool. Mjög sókndjarfur leik-
maður og gifurlega skotfast-
ur. Case hefur skorað 11 mörk
fyrir Liverpool i vetur.
DAVID FAIRCLOUGH —
sóknarleikmaður, sem hefur
vakið mikla athygli. Þessi 19
ára, rauðhæröi piltur hefur
skorað mörk i öllum leikjum,
sem hann hefur komiö inn á
sem varamaður — þýðingar-
mikil mörk, sem hafa fært
Liverpool sigra og dýrmæt
stig. Fairclough er mjög leik-
inn með knöttinn og hefur
skorað 5 deildarmörk.
JOHN TOSHACK — miðherji.
Toshack byrjaði knattspyrnu-
feril sinn með Cardiff, og
skoraði hann mikið af mörk-
um fyrir félagið — eða 74
mörk i 159 deildarleikjum.
Liverpool keypti þennan há-
vaxna Wales-búa 1970 á 120
þús.pundfrá Cardiff, og hefur
hann margborgað félaginu þá
upphæð. Toshack er mark-
sækinn með afbrigðum og hef-
ur hann ávallt verið mark-
hæsti leikmaður Liverpool —
skorað 73 mörk fyrir félagiö.
Toshack, sem er fastamaður i
landsliði Wales, hefur skorað
22 mörk fyrir Liverpool
á þessu keppnistimabili.