Tíminn - 05.05.1976, Side 19
Miðvikudagur 5. mai 1976
TÍMINN
19
Hvanneyrarkirkju
Anna Kristinsdóttir afhendir
skirnarfontinn. Séra ólafur Jens
Sigurðsson, sóknarprestur, veitti
honum viðtöku.
færður skírnarfontur
Á s.l. hausti átti Hvanneyrar-
kirkja i Borgarfirði 70 ára vigslu-
afmæli. Var þess minnzt með
hátiðarmessu i kirkjunni, sem
prestar prófastdæmisins önnuð-
ust, en sr. Sigurður Pálsson
vigslubiskup prédikaði. Aeftir fór
fram héraðsfundur Borgarfjarð-
arpróf astsdæmis. Hvanneyrar-
kirkja er nú i góðu ástandi og
hirðu, hefur hún nýlega verið
máluð utan og innan, og á s.l. ári
bárust henni ýmsar góðar gjafir,
eins og glæsilegur altariskross,
nýjarsálmabækuro.fl. Við messu
á skírdag, 15. april s.l. var svo
kirkjunni færður skirnarfontur.
Gefendur hans eru félagskonur i
Kvenfélaginu 19. júni. Arið áður
hafði félagið gefiö kirkjunni fé til
kaupa á blómavasa, til minningar
um frú Sigríði Björnsdóttur fyrr-
um prestsfrú á Hesti. íræðu,sem
frú Anna Kristinsdóttir á Hvann-
éýrTTIútti viö afhendingu gjafar-
innar, var henni lýst á eftirfar-
andihátt: „Skirnarfontur þessi er
smiðaður af Þórði Vilmundarsyni
á Mófellsstöðum, úr ljósum aski,
en skál hans er úr brenndum is-
lenskum leir og smiðuð hjá Glit
h/f i Reykjavik.” Þórður Vil-
mundarson er bróðursonur þjóð-
hagans blinda Þórðar Jónssonar
á Mófellsstöðum I Skorradal og er
hagleiksmaður hinn mesti, eins
og smiði fontsins ber vott um.
Ólafur Jens Sigurðsson sóknar-
prestur veitti gjöfinni viðtöku,
þakkaði hana og bað guð að
blessa gefendur og skirnarfontinn
sjálfan og þau börn sem ættu eftir
að skirast úr honum. 1 þakkar-
ræðu sinni sagði hann m.a.:
„Kirkjan hefur löngum átt islenzk-
ar konur að hollvinum og án
stuðnings þeirra væri hún snöggt-
um fátækari og verr búin. Það er
ein af hinum góðu gáfum margra
kvenna, að skynja skýrt og skilja,
hvaða vonir má við kirkjuna
binda og margar þeirra leggja
Skirnarfonturinn
með henni hönd á plóginn.”
Síðan voru skirðar þrjár stúlk-
ur úr sókninni, allar fæddar á
þessu ári. í Hvanneyrarsókn er
góður hugur ríkjandi fyrir útliti
og hirðu kirkjunnar. Það er
greinilegt, að ekkert hús skoða
ferðamenn, sem hér renna i hlað,
frekaren kirkjuna, þótt staðurinn
sé fyrir annað kunnari en að vera
kirkjustaður.
(Fréttatilkynning).
Q Orsök
sjóöa jafnframt þvi sem hamlað
sé gegn óhóflegri eftirspurn eft-
ir lánsfé, er byggist á von um
verðbólguhagnað.Hins vegar er
ekki við þvi að búast á miklum
verðbólgutimum, að jafnvægi
geti náðst á lánamarkaðinum
með þessum ráðstöfunum ein-
um saman. Þvi er nauðsyn
nauðsynlegt, að samtimis séu
önnur stjórntæki lána-
markaðarins styrkt, svo að
hægt sé að bebia fjármagni til
forgangsverkefna, t.d. frá lif-
eyrissjóðum til fjárfestingar-
lánasjóða. Jafnframt þarf að
stefna að þvi að binda umfang
innlendrar lánastarfsemi og
notkun erlends lánsfjár innan
ramma heildaráætlunar um
fjármagnsmarkaðinn.
Sannleikurinn er sá, að engin
einföld töframeðul eru til við
verðbólgunni og almenn verð-
trygging fjárskuldbindinga ein
sér leysir ekki vandann, þótt
hún komi til greina sem þáttur i
samræmdri efnahagsstefnu.
Reynslaþeirra þjóða.sem reynt
hafa viðtæka verðtryggingu
fjárskuldbindinga, hefir leitt i
ljós, að hún er bæði afar erfið i
framkvæmd og vinnur ekki ein
sér bug á verðbólgunni. Á hinn
bóginn er beiting vaxta, hvort
sem ermeð verðtryggingu eða á
annan hátt, nauðsynlegur, þátt-
ur i þeim viðtæku og samræmdu
aðgerðum, sem gætu unnið bug
á verðbólgunni, ef unnt reyndist
að beita þeim af nægilegri stað-
festu. ______________________
o Vandamál
lýstar sérstakar vogir ná-
kvæmar og þægilegar i meö-
förum, til þess ætlaðar að
vigta fikniefni. í auglýsing-
unni segir að þetta séu
samskonar vogir og lögreglan
notar til vigtunar fikniefna,
svo og er bent á, að með notk-
un þeirra geti neytandinn
fullvissað sig um að sölumað-
urinn sviki ekki efnið. Þá er og
auglýsing, þar sem fólk er
hvatt til kaupa á bókum um
fikniefnaframleiðslu. Fjalla
þær um það, hvernig rækta á
cannabis (hassish og mari-
huana), hvernig vinna skal
efnin úr jurtunum og jafnvel
leiðbeiningar til neytenda
annarra efna, svo sem
kókains.
Blað þetta er eitt af viðlesn-
ustu „unglingablöðum ”
Bandarikjanna.
Sú spurning hlýtur þvi að
vakna, hvort Bandarikja-
menn, og þar með flest vest-
ræn lönd, hafi ekki þegar sett
fótinn fyrir sjálfa sig i
baráttunni við lyfjaneyzlu.
Það er til litils að tala hátt og
snjallt, ef ræðumaður hlustar
ekki sjálfur og er I rauninni
önnum kafinn við, að vinna á
móti kenningum sinum i sama
mund og hann setur þær fram.
— HV
——
" i’ i|
E9I
15911
Fjölbrauta
skólinn
Hverfasamtök Framsóknarmanna i Breiðholtshverfum efna til
almenns fundar fimmtudaginn 6. mai n.k. kl. 20.30 að Seljabraut
54 (Verzlunarhúsnæði Kjöt & Fisks).
Umræðuefni:
FJÖLBRAUTASKÓLINN. '
Frummælandi er Guðmundur Sveinsson skólastjóri. Fundar-
stjóri Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi.
Að framsöguerindi sinu loknu mun Guðmundur Sveinsson svara
fyrirspurnum um málefni Fjölbrautaskólans i Breiðholti. Fund-
urinn er öllum opinn.
Hverfasamtök Framsóknarmanna I Breiðholtshverfum.
Framsóknarvist í Keflavík
FUF i Keflavik gengst fyrir framsóknarvist i Framsóknarhús-
inu fimmtudaginn 6. mai kl. 20:30. Framsóknarmenn fjölmennið
stundvislega og takið með ykkur gesti.
ATH! Steingrlmur Hermannsson alþingismaður kemur um
miðjan mánuðinn og ræðir málefni stóriðju á Islandi. Nánar
auglýst síðar. Stjórnin.
I
Viðtalstímar
alþingismanna
og
borgcrfulltrúa
Framsóknarflokksins
.....® - ---
Kristján Benediktsson borgarfulltrúi verður til viðtals að Rauð-
arárstig 18,| laugardaginn 8. mai, ki. 10.00—12.00. ,
Aðalfundur
miðstjórnar
Framsóknarflokksins
Aðalfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins hefst á Hótel
Sögu, annarri hæð, hliðarsal, kl. 2föstudaginn 7. mai.
Þeir aðalmenn, sem ekki geta mætt, eru vinsamlega beðnir að
tilkynna það varamönnum sinum, eða flokksskrifstofunni i
Reykjavik.
Fundurinn stendur I þrjá daga.
Sumcrbúðir að
Hlíðardalsskóla
Eins og undanfarin ár starf-
rækja Sjöunda dags aðventistar
sumarbúðir að Hliðardalsskóla i
ölfusi. Dagskráin verður fjöl-
breytt að venju og verða sögu-
stundir og söngstundir daglega.
Einnig iþróttir, föndur, náttúru-
skoðun, gönguferðir, fjölbreyttir
leikir, hagnýt fræðsla, sund,
kvöldvökur og varðeldar, svo
eitthvað sé nefnt.
Næg húsakynni eru á staðnum,
og munu börnin búa i 2ja og 3ja
manna herbergjum. Fjórar
skólastofur, tvær rúmgóðar setu-
stofur og glæsilegur iþróttasalur
bjóða upp á mikla möguleika til
tómstunda innanhúss þegar veð-
ur er óhagstætt til útiveru. Nú er i
smiðum sundlaug að Hliðardals-
skóla, sem tekin verður i notkun á
þessu ári.
Mikilvægur þáttur sumarbúð-
anna er föndurkennsla. A hverj-
um degi eru föndurtimar fyrir
börnin, þar sem þeim er leiðbeint
við gerð einfaldra og skemmti-
legra muna. Siðasta kvöldið sem
börnin dvelja á sumarbúðunum
er foreldrum þeirra boðið að vera
á kvöldvöku barnanna og skoða
föndursýningu þeirra.
Sumarbúðastjórar verða þeir
Steinþór Þórðarson og Einar Val-
geir Arason. Auk þeirra verða
fjölmargir aðrir starfskraftar.
Til sölu
Kemper sjálf hleðslu-
vagn. 24 rúmmetrar.
Lifter rafstöð, 11 kal.
Stór sogblásari, þeyti-
vinda úr þvottavél, ca.
30-40 kg. Upplýsingar i
síma 92-3268.
Einstaklings-
íbúð
til sölu í nýju húsi.
Upplýsingar í síma 3-
12-74, Reykjavík.