Tíminn - 22.06.1976, Page 3
Þriðjudagur 22. júnl 1976
TÍMINN
3
Gigtsjúkdómar,
risafrumurog erfðir
Fró þingi gigtarlækna:
SJ-Reykjavik. —
Lyfjafyrirtækið Astra-Syntex
veitti I gær árlegan styrk sinn
til giktarsérfræðinga. TiI-
gangurinn með styrkveit-
ingum þessum er að örva
lyfjafræði- og læknisfræðileg-
ar rannsóknir á gikt á Norður-
löndum. Að þessu sinni var
styrknum, 25.000 sænskum
krónum, skipt milli dr. Björns
Svensson frá Ueumatolog-
kliniken i Lundi I Sviþjóð og
dr. Alfreðs Arnasonar, sem
starfar við blóðbankann i
Reykjavik.
Alfreð Arnason.
lupus erythematosus) verið
rannsakaðir. Alfreð vinnur að
þessu verkefni I samvinnu við
Landspitalann og Blóðbank-
ann.
Rannsóknir Björns Svens-
son beinast einnig m.a. að
sjúklingum með áðurnefndan
sjúkdóm og sjúklingum með
langvarandi liðagikt og þvi
hvaða áhrif S.K. risafrumur
hafa i þvi sambandi. Vonandi
leiða þær til þess að læknavis-
indin komast einu skrefi
lengra i átt til vitneskju um
orsakir þessara alvarlegu
sjúkdóma, en þær eru enn ó-
kunnar. Þvi er ekki hægt að
ráða bót á þeim heldur aðeins
veita meðferð við einkennum
þeirra.
Astra-Syntex AB er systur-
fyrirtæki bandariska lyfjafyi-
irtækisins Syntex
Corporationa á Norður-
löndum. Læknar frá öllum
Norðurlöndunum áttu sæti i
dómnefnd auk fulltrúa lyfja-
fyrirtækisins.
Dr. Björn Svensson fékk
styrkinn til að rannsaka áhrif
svokallaðra risafruma á gikt-
sjúkdóma og dr. Alfreð Arna-
son fékk styrkinn til að rann-
saka áhrif erfðafræðiþátta á
giktsjúkdóma.
Alfreð Árnason nam dýra-
fræði og liffræði i Reykjavík,,
Belfast á Norður-trlandi og i
Stratclyde á Skotlandi.
Island hentar vel til erfða-
fræðirannsókna vegna fá-
mennis. Góðar erfðafræði-
skýrslur eru til staðar og auð-
velt er að fá heppilegt úrtak til
rannsókna.
Rannsóknir Alfreðs
Árnasonar beinast að fjöl-
skyldum, þar sem vissir sjúk-
dómar, einkum giktsjúk-
dómar, eru tiðir. Þessi rann-
sókn hans kann að leiða til
þess að sjúklingar finnist, sem
hafa erfðaeiginleika, sem
valda giktsjúkdómum.
Hagnýtt gildi rannsóknanna
gæti orðið það að gikt fyndist
fyrr hjá sjúklingum og þeir
ættu fyrr en ella kost á fyrir-
byggjandi meðferð.
A siðari árum hefur það orð-
ið æ ljósara að samband er á
milli sérstakra gerða vefja i
mannslikamanum og sjúk-
Björn Svensson.
dóma. Sterkt samband er á
milli vefjargerðar, sem kölluð
er HLA B 27 og vissra sjúk-
dóma, t.d. giktsjúkdóms, sem
getur leitt til þess að hryggur-
inn verður stifur og sjúkling-
urinn missir hreyfigetu sina
að nokkru, bakið verður bogið
og höfuðið álútt. Þar sem
þetta samband er til staðar er
mikilvægt að erfðafræðilegar
og læknisfræðilegar rannsókn-
ir haldist i hendur I þessari
grein. Einnig hefur komið i
ljós að fólk með vissar gerðir
vefja hefur einnig svipaða
þætti, sem hafa áhrif á varnir
likamans gegn sjúkdómum.
Rannsóknir Alfreðs
Arnasonar byggjast á þessu
sambandi vefja og sjúkdóma.
Þegar er byrjað að rannsaka
hvaða vefjategundir sjúkling-
ar, sem þjást af áðurnefndum
sjúkdómum hérlendi hafa.
M.a. hafa sjúklingar með
langvarandi húðsjúkdóm á
nefi og kinnum (systemisk
Svona getur viss tegund giktar leikiö sjúklinginn. Itannsóknir
Alfreðs Arnasonar beinast m.a. að þessum sjúkdómi.
Vatnsbunan feliur á yfirfallshjólið og knýr vélar rjómabúsins.
Baugsstaðarjómabúið:
Gömul vélvæðing
kynnt ferðafólki
Danirmæla og kvik-
mynda torfbyggingar
Smjörhnoðunarborðið var knúiö vatnsafli eins og aðrar vélar rjóma
búsins. Tlmamyndir: Stjas
Hópur manna frá arkitekta-
skólunum i Kaupmannahöfn og
Árósum er kominn hingað gagn-
gert þeirra erinda að mæla
islenzka torfbæi, rannsaka
byggingarlag þeirra og kvik-
mynda torfbyggingar, sem enn
eru til i landinu. Mun hópurinn
njóta hér fyrirgreiðslu og leiö-
sagnar starfsmanna þjóðminja-
safnsins.
Dagný til
djúprækjuveiða
gébé Rvik, — Skuttogarinn Dagný
fór til djúprækjuveiða fyrir Norð-
urlandi um s.l. helgi. Um borð er
Guðni Þorsteinsson fiskifræð-
ingur.
Þessi ferð er liður i djúprækju-
rannsóknum Hafrannsóknastofn-
unar, en skipverjar á Dagnýju fá
vissa tryggingu sem miðast við
þriggja mánaða úthald. Trygg-
ingin er ákveðin upphæð, sem
lækkar svo eftir þvi, hvernig veið-
ist.enmiðað er við 385 tonn. —
Dagný er af minni gerð skuttog-
ara eða um 260 lestir.
Þrettán menn eru i þeim hluta
hópsins, sem starfa mun að
mælingum og rannsóknum, en
fjórir vinna að kvikmyndatök-
unni, sem meöal annars er styrkt
af danska sjónvarpinu.
Danirnir verða hér fram undir
miðjan júlimánuð og munu þeir
meðal annars fara noröur i
Skagafjörð, ogaustur að Keldum,
Stöng i Þjórsárdal og i öræfi.
Að Keldum á Rangárvöllum eru varðveitt forn mannvirki, byggingar,
traðir og jarðgöng, sem vissulega eru fýsileg rannsóknarefni.
gébé Rvik — Ákveðið er, vegna
mikillar aðsóknar og vaxandi á-
huga fólks að hafa Baugsstaða -
rjómabúiö opið almenningi til
skoðunar um helgar I sumar, og
fólki þannig gefinn kostur á að
kynnast þessum gamla þætti vél-
væöingar I Islenzkum landbúnaði.
Baugsstaðarjómabúið, sem nú
er varöveitt sem minjasafn, með
öllum vélum og tækjum, verður
opið almenningi alla laugardaga
og sunnudaga frá 19. júni til
ágústloka frá kl. 14 til 18. Þeim,
sem óska eftir að skoða búið á
öðrum tima, er bent á að hafa
samband við Skúla Jónsson, Sel-
fossi i sima 1360.
Mikil aðsókn var að rjómabú-
inu sl. sumar, en þá var það einn-
ig opið um helgar.
wn
V-