Tíminn - 22.06.1976, Blaðsíða 12

Tíminn - 22.06.1976, Blaðsíða 12
12 TÍMINN Þriðjudagur 22. júni 1976 Tröppur og aftur tröppur. Gleymdu þeir sem teiknuöu húsiö að til er fóik sem á við fötlun að strföa? Fólk hérlendis er yfirleitt jákvæðara gagn vart öryrkjum en víðast erlendis Rætt við Theodor A. Jónsson formann Sjólfsbjargar upp i rúmlcga 90 þús. fsl. kr. Ætli vísitölufjölskyldunni gengi jafnvel ekki illa að lifa af þeirri upphæð? Timinn fékk til liðs við sig til að ræða þessi mál Theodor A. Jónsson formann Sjálfs- bjargar, en hann er einnig for- stöðumaður vinnu- og dvaiar- heimilis sama félags. Theodór hefur verið formaöur Sjálfs- bjargar siðan 1960, en for- stöðumaður Sjálfsbjargar siðan 1960, en forstöðumaður dvalarheimilisins s.iðan 1973, eða frá stofnun þess. Fáar byggingar hér á landi sniðnar eftir þörf- um fatlaðra — Hverjir eru helztu erfið- leikarnir, sem verða á vegi fatlaðra? — Þeir eru vissulega af mörgu að taka, en ég vildi fyrst minn- ast á þá erfiöleika sem við verð- um óneitanlega fyrir, þegar við þurfum að komast á milli staða. A mjög fáum stöðum eru renni- brautir fyrir hjólastóla. Við hefðum gétað búizt við að opin- berar byggingar væru þannig búnar, en staðreyndin er sú, að þær byggingar eru sizt betri en aðrar. Við megum heldur ekki gleyma feiknaháum gang- stéttarbrúnum, sem eru ófærar fyrir manneskju i hjólastól. Hins vegar er þetta smám saman að breytast. A timabili var það tizka hjá arkitektum aö hafa tröppur upp aö húsum og aöra tröppuröð, þegar inn var komiö. Þetta eitt hefur t.d. breytzt til muna. Þá er hér á landi nefnd, sem hefur reyndar lokið störfum, en sú nefnd gerði drög að lögum, sem vonandi verða lögð fyrir Alþingi næsta haust. Að minnsta kosti von- umst við til að málið verði rætt og afgreitt. Þá verða allar byggingar, sem njóta opinbers fjárstyrks að vera þannig úr garöi gerðar, að allir hafi greiðan aðgang að þeim. — Hafa svipuð lög verið sett annars staðar á Norðurlöndum? — Já. Lög voru sett i Noregi á s.l. ári, og meirihluti sveitar- félaga i Sviþjóð hefur tekið upp svipaða eða samskonar löggjöf. — En er ekki annars auðveldara fyrir hreyfihamlaða aðkomastleiðar sinnar erlendis en hér? — Það er enginn vafi á þvi. Tökum sem dæmi lestir i Oslo. Þar er yfirléitt gert ráð fyrir fólki i hjólastólum, svo engin vandkvæði eru á þvi að fara bæjarhluta á milli. Sömu sögu er að segja frá Kaupmanna- höfn. Þá eru t.d. oft tveir starfs- menn i hverjum strætisvagni i Stokkhólmi. Þeir eiga i engum vandræðummeð að lyfta þér upp i vagninn. En ef við tökum sem dæmi strætisvagna Reykja- vikur, þá er nær ómögulegt fyrir fatlaða að notfæra sér þjónustu þeirra. Hins vegar verður að geta þess, sem vel er gert. Mörg fyrirtæki hér á landi hafa tekið vel i að breyta húsum sinum. T.d. eru nokkur ný bankaútibú og verzlanir þannig útbúin að fatlaðir geta notfært sér þjón- ustu þeirra. Og þess er skemmst að minnast að Loftleiðir breyttu hóteli sinu fyrir ráðstefnuna, sem við héldum þar fyrr i þess- um mánuði. Bæöi hafa Loft- leiðamenn breytt salernum og einum fimm herbergjum. Svona á hús Sjálfsbjargar að Hatúni 12 að llta út þegar það er fullbyggt. Enn er eftir að ljúka byggingu álmunnar til hægri. I útbyggingunni til vinstri eru ófullgerðu Ibúðirnar sem talað er um I greininni. Þetta er sjaldgæf sjón viö Islenzkar byggingar. Myndin sýnir rennibraut við aðalinngang Hótel Loftleiða. Mikiö hefur verið rætt að undanförnu um málefni fat- laðra. Mönnum er enn I fersku minni ráðstefna sú,er haldin var á vegum þeirra fyrir skömmu, en þar komu saman fulltrúar fatlaðra á Norður- löndum. Niðurstaða þeirrar ráðstefnu kom Islenzku fulltrúunum ekki á óvart, þvi það er löngu vitað, að mun betur er búið að fötluðum annars staðar i Norðurlönd- um, heidur en hér. Þannig er t.d. örorkulífeyrir á tslandi meira en, helmingi lægri en I Oanmörku. Venjulegur ör- orkulifcyrir hér á landi með tekjutryggingu nemur um það bil 34 þús. krónum en hæstur getur hann orðiö rúmlega 48 þúsund kr. f Danmörku getur lifeyririnn hins vegar farið *

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.