Tíminn - 22.06.1976, Blaðsíða 18

Tíminn - 22.06.1976, Blaðsíða 18
18 TÍMINN Þriðjudagur 22. júnl 1976 PUNKTAR Þaö var ekki mikil reisn yfir Eeykjavikurmeistaramótinu i tugþraut, sem fór fram á Laugar- dalsvellinum. 011 keppnin var langdregin og litið spennandi, enda árangrar oft i algjöru lág- marki hjá sumum keppendanna. Bezta dæmið um það, hvað keppnin var langdregin, er að keppnin i 5 greinum siðari keppnisdaginn, stóð yfir i f jóra og hálfa klukkustund — og var þetta 15. - 20. minútna hvild á milli greinanna. HVAR EH ÍÞRÓTTAANDINN? Það vakti athygli, að af þeim 9 mönnum.sem hófu keppni i tug- þrautinni, luku aðeins fjórir keppninni. Astæðan fyrir þessu var, að nokkrir keppendur hættu keppni, þegar á móti blés. T.d. var einn keppandinn búinn aö ná sinum bezta árangri i 6 fyrstu greinunum, en þegar honum gekk ekki sem bezt i einni greininni, lagði hann upp laupana og hætti — hvar var keppnis- og iþrótta- andinn? Það má alltaf búast við þvi, að menn nái ekki sinu bezta i einni grein af 10 i keppninni. ÖSKUR A LEIKVELLI Þeir áhorfendur, sem komu til að sjá KR-inga og Keflvikinga leiða saman hesta sina i 1. deildarkeppninni i knattspyrnu, urðu vitni á hvimleiðri framkomu leikmanna liðanna — þeir voru öskrandi á hvern annan i tima og ótima. Það er hreint furöulegt að það sé ekki hægt að leika knatt- spyrnu, nema með öskrum og óhljóðum. Það er allt i lagi að láta meðspilara sina vita af sér, þegar við á — en, þegar 4-5 leikmenn öskra af fullum krafti, þegar meðspilari þeirra fær knöttinn, er það óþolandi fyrir áhorfendur. Enda kom það fram, aö leikmenn liðanna gerðu litið af þvi að leika sjálfstætt — létu öskrandi með- spilarasina hafa áhrif á sig, oft með þeim árangri, að þeir vissu ekki hverjum þeirra, þeir ættu að fara eftir — og sendu knöttinn i látunum, til mótspilara. Þjálfarar 1. deildarliðanna ættu að sjá sóma sinn i þvi, að koma i veg fyrir þessa framkomu leik- manna sina. Eru þeir ekki ráönir til að skipuleggja leik sinna manna fyrir leik? NVTT FYRIRKOMULAG í HANOKN ATTI.EIK Akveðið var á ársþingi H.S.t. um helgina, að taka upp nýtt fyrirkomulag i deildarkeppninni — en þaö er þannig: Sá aðili, sem næst fæst stig hlýtur i 1. deild og sá aðili, sem næst flest stig hlýtur i 2. deild skulu leika tvo leiki heima og heiman, um rétt til aö keppa i 1. deild á næsta leikári. Verði liðin jöfn að stigum að þessum leikjum loknum, skal markatala ráða. Sami háttur skal hafður á milli 2. og 3. deildar. —SOS Draumurinn rættist ekki já Elíasi sem náði ekki OL-lágmarkinu í tugþraut. ★ Erna nálgast met í fimmtarþraut Draumurinn um farseðilinn til Montreal, er fokinn út I veður og vind, sagði tugþrautamaðurinn Elias Sveinsson úr KR, en honum tókst ekki að ná Olympiulág- markinu i tugþraut á Reykja- víkurmeistaramótinu um helgina Elias var þá 392 stigum frá lág- markinu. — Ég reikna ekki með þvi, að reyna aftur við lágmarkið, enda litill timi tii stefnu og þreytan farin aö segja til sin, sagði Elias, sem hefur tekið þátt i þremur þrautum á stuttum tima. Elias keppti fyrst á Meistara- ELIAS SVEINSSON......Ég fékk enga keppni og það haföi sitt að segja”. (Timamynd Gunnar). Tékkar stöðvuðu V-Þjóðverja.... — og tryggðu sér Evrópumeistaratitilinn í knattspyrnu í vítaspyrnukeppni — ÞETTA var stórkostlegt hjá strákunum, þeir voru vei að sigrinum komnir i þessum frábæra leik, sem var mjög tvlsýnn og spennandi. Það er alltaf gaman að leggja V-Þjóðverja að velli, og sérstaklega, þar sem þeir eru heimsmeistarar, sagði hinn snjalli þjálfari Tékka, Vatclav Jezek, eftir að Tékkar höföu tryggt sér Evrópumeistaratitilinn I knatt- spyrnu eftir vltaspyrnu, — en Tékkar sigruðu-:3. — Við fórum inn á völlinn til að sigra og vorum mjög bjartsýnir. En þvi er ekki að leyna að tak- markið hjá okkur er að komast i HM-keppnina 1 Argentlnu við höfum sett okkur það takmark. Það er gleðilegt að komast þang- að, með Evróputitilinn 1 farar- nesti, sagði Jezek. — Heppnin var ekki með okkur að þessu sinni. Það var sorglegt að sjá, hvernig strákarnir fóru með gullin mark- tækifæri. Það vantaði aðeins PumnN fótboltaskór 10 gerðir Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar Klopporstfg 44 * Sfmi 1-17-83 Hólagarfti f BraiðhoRi • Sfmi 7-50-20 Íþrótta-PEYSUR -SOKKAR -BUXUR Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar Klapparstfg 44 • Sfmi 1-17-83 Hólagor&i f Braiðholti • Sfmi 7-50-20 mörkin — annað hjá okkur gekk upp. Við náðum tökum á miðjunni og réðum gangi leiksins að mestu, sagði hinn frægi einvaldur v- þýzka liðsins, Helmut Schön, eftir leikinn. Tékkar fengu ágæta byrjun — skoruðu 2 mörk (2:0) eftir aðeins 25 minútur. Fyrst Jan Svehik (8. min.) og siðan Karol Dobias — með skoti af 25 m. færi. Diter Muller minnkaði muninn (2:1) fyrir V-Þjóðverja — fjórða mark hans i tveimur fyrstu landsleikj- um sinum. Þannig var staðan (2:1) þar til á siðustu min. leiks- ins, þegar Holsenbein náði að jafna (2:2) meö skalla. Þá þurfti aö íramlengja leik- inn — en ekkert mark var þá skorað. Þvi þurfti vitaspyrnu- keppni til aö skera úr um, hvort Tékkar eða V-Þjóðverjar yrðu krýndir Evrópumeistarar. Báðar þjóðirnar skoruðu I fyrstu þremur spyrnunum — Masny, Nehoda og Ondrus, fyrir Tékka, en þeir Bon- hof, Flohe og Bongartz fyrir V- Þjóðverja. Jurkewicz skoraði sið- an úr fjórðu spyrnu Tékka, en HM-stjarnan Uli Hoeness misnot- aði spyrnu fyrir Þjóðverja — skaut yfir. Panenka skoraði siðan úr fimmtu vitaspyrnu Tékka og JAN SVEHLIK.... einn af hinum ‘■njöllu leikmönnum Tékka. Evrópumeistaratitillinn var þeirra. — Ég vil þakka þennan árangur okkar i vitaspyrnu- keppninni, að það er liður i æfing- um hjá okkur, að æfa vitaspyrn- ur, sagði Jezek. þjálfari Tékka, eftir keppnina. —SOS móti Islands fyrir þremur vikum og hlaut þá 6274 stig fyrir árangur sinn. Þá keppti hann I Póllandi i sl. viku og náði þar 7135 stigum. Um helgina hlaut Elias 7108 stig — og var nokkuð frá sinu bezta i mörgum greinum. Árangur Eliasar varð þessi i þrautinni: 100 m hlaup: — 11.2 sek. — Lang- stökk: — 6.18 m — Kúluvarp 13.58 m. — Hástökk: — 1.97 m. Elias var nálægt þvi, að stökkva 2.02m. — 400 m hlaup: — 51.5 sek. — 100 m grindahlaup: — 15.5 sek. — Kringlukast: — 45.66 m. — Stangarstökk: — 3.70 m. — Spjót- kast: — 56.30 m. og 1500 m hlaup: 5:01.0 min. Erna Guðmundsdóttir, frjáls- iþróttakonan fjölhæfa úr KR, var 65 stigum frá íslandsmetinu og 200 stigum frá OL-lágmarkinu, þegar hún varð sigurvegari i fimmtarþraut. Erna hlaut 3705 stig — nýtt stúlknamet, og var árangur hennar þessi i einstök- um greinum: Kúluvarp: — 9.38 m. — Ilástökk: — 1.54 m. Lang- stökk: — 5.32 m. 200 m hlaup: — 25.3 sek. og 100 grindahlaup: — 14.4 sek. og jafnaði hún þar með fslandsmetið i hlaupinu. —SOS Bóra kom ó óvart Sló út 8 ára gamalt met Hrafnhildar i 200 m fjórsundi BÁRA ólafsdóttir, hin efni- lega sundkona úr Ægi, kom skemmtilega á óvart á meistaramóti tslands I sundi, sem háð var I Laugardals- lauginni um helgina. Bára sló þar út 8 ára gamalt met Ilrafnhildar Guðmundsdóttur I 200 m fjórsundi en það var sett 1968. Bára synti vega- lengdina á 2:36.9 minútum, en gamla metið var 2:38.8. Boðsundsveit Ægis setti 2 Islandsmet — fyrst i 4x100 m fjórsundi karla, en sveitin synti vegalengdina á 4:25.8 og siðan i 4x200 m skriðsundi — 8:45.1. Þær Vilborg Sverris- dóttir og Þórunn Alfreðsdóttir reyndu við OL-lágmörk, en þeim tókst ekki að ná þeim — enda ekki nema eðlilegt, þær kepptu i of mörgum greinum og voru þreyttar eftir það mikla álag, sem hefur hvílt á þeim, að undanförnu. Cruyff horfði á — þegar Hollendingar sigruðu (3:2) Júgóslava HOLLENDINGAR, sem léku án stjörnuleikmannanna Johann Neeskens og Johann Cruyffs (leikbanni), tryggðu sér sigur' (3:2) yfir Júgóslövum i Evrópu- keppni landsliða, þegar þjóðirnar mættust i /agreb á laugardaginn. Hollendingar tryggðu sér þar með bronsverðlaunin i keppninni. Það var Ruud Gells sem skor- aði sigurmark Hollendinga á 117. minútu leiksins, en leikinn þurfti að framlengja. Hollendingar byrjuðu leikinn vel, þegar þeir Geels og Willy van der Kerkhof skoruðu (2:0) fyrir þá, Josip Katalinski náði að minnka mun- inn (2:1) fyrir Júgóslava, fyrir leikhlé og siðan skoraði hinn frá- bæri Dragan Dzajic annað (2:2) mark Júgóslava, þegar 8 minútur voru til leiksloka. Dzajic skoraði með þrumuskoti af 20 m. færi beint úr aukaspyrnu. ^-SOS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.