Tíminn - 23.06.1976, Blaðsíða 5

Tíminn - 23.06.1976, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 23. júni 1976 TÍMINN 5 Hvers vegna mis- tekst svomörgum? t blaðinu Degi á Akureyri birtist nýlega þörf hugvekja i leiðara. Þar segir: ,,A siðustu uppgangstfmum sálfræðinnar vefst það þö meira fyrir mönnum en nokkru sinni fyrr, að skil- greina andlega heilbrigði manna og þvi er jafnvel haldið fram, að hún sé naumast til, ef grannt sé skoðað. Það má þó með sanni segja, að andleg heilbrigði felist m.a. i þvf, að takast á herðar skyldur. t öðru lagi að þýðast samstarf eða hafa hæfileika til samvinnu, og i þriðja lagi að leysa verk sin af hendi eftir beztu getu. Allt eru þetta aðaismerki sér- hvers borgara, en óheilum mönnum mistekst venjulega i þessum atriðum öllum. En hvers vegna mistekst svo mörgum? Heimilum og skólum mun með réttu um kennt. Fyrir þéttbýlisbörn getur ekkert jafnazt á við þá aðstöðu dreifbýlis, að börn fylgi foreldrum úti og inni i daglegri önn, þrátt fyrir dag- heimilin, leikvellina og allar gervimæðurnar.” Eflir þekkingu, en ekki manngildi Þá segir blaðið: ,,t skólunum leggja kennar- ar megináherzlu á þekking- una, minnisatriðin um dauða eða sögulega hluti, en ganga fram hjá Ufinu sjálfu. Há- skólakennarar segja t.d., að það sé i sinum verkahring að veita fræðslu og efla þekkingu nemenda sinna, en ekki mann- gildi. Þetta er döpur stað- reynd, þvi manngildið á auð- vitað að vera aðalatriðið. t stað yfirþyrmandi magns minnisatriða og bókstafs- stagls ættu kennarar allra skóla, hverju nafni sem nefn- ast, að kenna nemendum sin- um orðheldni, heiðarleika I viðskiptum og trúmennsku i starfí. Nemendur þurfa einnig að læra það, að mæta and- streymi með stillingu, óheppni með hugrekki og hvernig á að snúast við freistingum, sem allirstanda frammifyrir, fyrr eða siðar, þar sem ekki verður komist hjá að velja og hafna. Afbrýði, reiöi og ótti eru til- finningar, sem allir þekkja. Hvar eiga nemendur að læra að mæta öllu þessu — lifinu sjálfu, læra að þekkja undir- stöðuatriði tilfinningalifsins?” Nýtt gildismat Loks segirDagur: „Hvað gera heimili og skól- ar til að glæða vinnugleöi barna og unglinga? Hver kennir þeim að komast af við náungann? Hver kennir þeim, að það er ein mesta hamingja að rétta hjálparhönd, bæði i bókstaflegri merkingu og með vinsemd og uppörvun? Vister, að bæði heimili og skólar vilja leggja sig fram i uppeldis- og fræðslustarfi. Þó er siðferöileg upplausn ört vaxandi I þjóðfé laginu og þúsundir karla og kvenna, sem ekki þola mót- gang lifsins og farast. Nýir skólar og ný fræðslulög bæta þar ekki úr skák, heldur nýtt gildismat uppeldis og fræðslu.” —a.þ. Akranes: Flutt í 18 íbúða fjölbýlishús — annað jafnstórt í smíðum GB-Akranesi. Flutt var á laugar- daginn inn i 18 ibúöa fjölhýlishús við Skarðsbraut á Akranesi. Það er trésmiðjan Akur hf. sem byggt hefur þetta fjölbýlishús, og er þetta fimmta fjölbýlishúsiö á Akranesi, sem fyrirtækið reisir með samtals 66 ibúðum. ibúöirn- ar eru tveggja, þriggja og fjög- urra herbergja, og hafa þær allar veriö afhentar fullfrágengnar ut- an og innan. 1 ibúðunum eru islenzk teppi á gólfum, eldhús fullbúið tækjum, svo og vandað bað með öllu til- heyrandi. 1 kjallara eru tvö þvottahús með tilheyrandi bún- aði, þvottavélum, þurrkurum og fleiru. Stór lóð, að öllu frágengin og girt, fylgir, og einnig bilastæði. Verð á ibúðunum er sem hér segir: Fjögurra herbergja ibúðir, 113 fermetrar, kosta 6,6 milljónir króna. Þriggja herbergja 95 fer- metra ibúðir, kosta 5,5 milljónir, en tveggja herbergja ibúðir 57 fermetrar, kosta 3,7 milljónir. Öllum ibúðunum fylgja geymslur i kjallara. Mikið er sótzt eftir þessum ibúðum, sem þykja bæði sérlega vandaðar og öllu vel fyrir komið i þeim, auk þess sem þær eru ódýrar eftir þvi sem nú er um að ræða. Hafin er bygging 18 sams konar ibúða, og á sú bygging að verða tilbúin um næsta ár. Eru flestar ibúðir i þvi fjölbýlishúsi þegar seldar. Framkvæmdastjórar Akurs hf. eru Stefán Teitsson og Gisli Sig- urðsson. AAikil eftirspurn eftir perlusteini tekur 3-5 ár að koma á laggirnar stórri verksmiðju og kostnaður áætlaður 1 1-1200 milljónir —hs-Rvik. „Mjög margir er- lendir aðilar hafa beðið um stórar og smáar prufusend- ingar af bæði þöndum og ó- þöndum perlusteini og fram- leiðslan i tilraunaverksmiðj- unni hefur gengið mjög þokka- lega,” sagði Guðmundur Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Sementsverksmiöjunnar á Akranesi, er hann var inntur eftir þvi hvernig miðaði I þeim málum, en tilraunaverksmiðj- an er rekin i tengslum við Sementsverksmiðjuna. Perlusteinn er notaöur i byggingariðnaðinum og hefúr mikið einangrunargildi. Hann er bæði notaður sem laus ein- angrun og er einnig settur i múrhúð. Guðmundur sagöi að ennfremur mætti nota hann við landbúnaö og garðrækt og hafi hann reynzt vel á þvi sviði. Hægt væri að nota hann við sútun á skinnum, til að af- hita þau, — hægt væri að nota hann til að hreinsa með oliu- mengun úr vatni, með þvf að setja i hann vatnsfráhrindandi efni, og framleiða mætti úr honum svokallaðan siuperlu- stein, sem væri mjög verð- mikill og notaður i ýmsum efnaiðnaði. Hugmyndin er að flytja perlusteininn út, en vegna hins mikla rúmtaks, hans, þegar búið er aö þenja hann, yrði hann i flestum til- fellum fluttur út óþaninn. Guðmundur sagöi það sina skoðun, að reyna ætti að ná eignaraðild aö þensluverk- smiðjum erlendis, þá einkum á Noröurlöndum, i samvinnu viö þarlenda. Ætlunin er, að reisa hér stóra verksmiðju til þurrkun- ar, mölunar og flokkunar á perlusteini og liklegasta stað- setning slikrar verksmiðju er nálægt Grundartanga, að sögn Guðmundar. Þá mætti notast viö tilvonandi Grundartanga- höfn, flytja perlusteininn út með skipunum, sem flyttu hingað hráefni fyrir járn- blendiverksmiðjuna, en aníT ars færu tók til baka, og auk þess mætti nýta hitann, sem myndast við járnblendifram- leiðsluna, til þurrkunar á perlusteininum. Hann sagöi að við ættum gifurlegt magn af hráefni, a.m.k. 30 milljón tonn, en hins vegar væri dýrt að leggja veg að Prestahnjúki, þar sem perlusteininn er að finna. 1 áætlun, sem kemur siðar i sumar, er gert ráð fyrir, að undirbúningsíramkvæmdir stórrar verksmiðju taki 3-5 ár og kostnaður við hana nemi 1100-1200 milljónum, miðað við 100 þúsund tonna útflutn- ing á ári. Fyrsta sólóplata Sigrúnar Harðardóttur komin út Gsal-Rvik — Hljómplötuútgáfan Júdas hefúr sent á markaöinn fyrstu sólóplötu söngkonunnar Sigrúnar Haröardóttur og ber platan nafnið ,,Shadow Lady” eftir einu lagi plötunnar. Sigrún, sem er bóndakona af Vestfjörð- um, hefur samið öll lög og texta plötunnar sjálf, en varðandi hljóðfæraleik nýtur hún aðstoðar ýmissra þekktra popplista- manna, s.s. Magnúsar Kjartans- sonar, Vignis Hermanns, Finn- boga Kjartanssonar, Hrólfs Gunnarssonar og Gunnars Þórð- arsonar, svo einhverjir séu nefndir. A plötu Sigrúnar eru ellefu lög. Öryggismál sjómanna á N-AustuHandi gagnrýnd JK-Egilsstöðum. Um siðastliðna helgi héldu fulltrúar slysavarna- deilda og björgunarsveita á Austurlandi fund á Egilsstöðum. Fundurinn samþykkti að beina þvi til Póst- og simamálastjórn- arinnar að án tafar yrði komið á fjarskiptaþjónustu fyrir skip;sem eru á hafsvæðinu fyrir Norðaust- urlandi. Fundurinn taldi þetta mjög brýnt 'vegna öryggis sjómanna, sem sækja á þau mið sem þar eru, því það hefði komið i ljós að skip og bátar á þessu hafsvæði væru algjörlega sambandslaus við land. Fundurinn benti á til úrbóta að koma upp örbylgjustöð á Gagnheiði til reynslu. Einnig var gerð tillaga um talstöð fyrir skip og báta á tiðnisviðinu 2182. Taldi fundurinn að hægt væri að setja þá stöð niður á norðurbrún Fjarð- arheiðar. Hreint k ^land I fagurt I iand 1 LANDVERWD ^Hljómplata ársins! Verstaf Loksins, eftir alla þessa bið, hafa drengirnir gert nýja plötu, sennilega þá beztu sem þeir hafa látið frá sér fara. Hlustið á þá syngja um Óla Jó, Týnda manninn, Kvennaskólapíuna og 9 aðra afbragðssöngva FÁLKIN N

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.