Tíminn - 23.06.1976, Blaðsíða 17
Miövikudagur 23. júnl 1976
TiMINN
17
„VONANDI ERUM VID EITTHVAÐ SKÁRRI
II
sagði dr. Dudley Hart frá Harley Street um gengna
starfsbræður sína, sem létu giktarsjúklinga liggja grafkyrra
SJ-Reykjavik A 16. norræna
giktiæknaþinginu, sem haldiö er
á Hótel Loftleiöum þessa dag-
ana flutti dr. F. Dudley Hart,
sem starfar á Westminster
sjúkrahúsinu i London og viö
hina þekktu læknagötu Harley
Street, gestafyrirlestur um tvo
giktsjúkdóma, sem hrjá fólk
einkum I norölægum löndum.
Fyrri sjúkdómurinn, sem hann
fjallaöi um, (ankylosing spond-
ylitis) lýsir sér i bólgu i liöa-
mótum hryggjarins. Sjúkdóm
þennan nefndi Vilmundur Jóns-
son, fyrrum landlæknir,
hrygg-ikt. Siöari sjúkdómurinn
er (polymyalgia arterica) bólga
i slagæöum á höföi.
— „Hrygg-ikt” kemur einkum
fyrir meöal fólks,sem hefur sér-
staka gerö vefja i likamanum,
HLA 27, sagöi dr. Dudley Hart,
þegar blaöamaöur Tlmans tók
hann tali eftir aðhann haföi flutt
fyrirlestur sinn i gær.
Nú geta 80% unnið eðli-
legan vinnudag
— Hann er algengari meöal
ungs fólks, segjum á þritugs-
aldri, en i öörum aldursflokk-
um, og karlmenn fá hann oftar
en konur.
Menn, sem hafa sjúkdóminn,
hafa spurt mig hvort þeir eigi
ekki aö láta vefjagreina börn sin
og ganga úr skugga um hvort
þau eigi á hættu ab fá þennan
sjúkdóm. Svar mitt viö þeirri
spurningu er neitandi. Vefja-
greiningin er mjög dýr og til
þess eins fallin að koma af staö
kviöa og áhyggjum ef úrskurö-
urinn veröur á þá leiö aö börnin
séu einnig með þessa vefjateg-
und. En þóttsvo sé þá má gera
ráö fyrir að aöeins 5% likur séu
á abþau fái sjúkdóminn. Ekkert
er hægt aö gera til varnar sjúk
dómnum fyrirfram svo vefja-
greining yrði aöeins kostnaöur
og e.t.v. áhyggjur.
Dr. Dudley Hart.
— Fyrir 1935 meöhöndluöu
læknar sjúklinga meö þennan
sjúkdóm á þann hátt aö þeir
vom látnir liggja grafkyrrir.
Þetta var það alversta, sem
hægt var að gera og við þaö
stifnuöu sjúklingarnir upp. Þeir
máttuþvihrósa happi, sem ekki
komust undir læknishendur.
Nú er hins vegar megin-
áherzla lögö á hreyfingu og
likamsæfingar og yfirleitt þaö
að sjúklingarnir séu eins
athafnasamir og kostur er.
Þeim er gefiö eins litiö af lyfjum
og unnt er að komast af meö.
Horfiö hefur veriö frá notkun
ýmissa lyfja, sem notuð hafa
veriö viö þennan sjúkdóm, sem
og röntgeri meöferð.
80% sjúklinga meö
„hrygg-ikt” geta nú á dögum
gegnt fullu starfi.
Tryggingafélög litanúá þessa
sjúklinga eins og hverja aöra
gagnvart liftryggingum, hafi
þeir ekki hlotið alvarleg örkuml
af völdum sjúkdómsins, en þaö
gera nú aðeins fá prósent, sem
hafa fengið alvarlega fylgi-
kvilla.
Dr. Dudley Hart kvaö þaö sér-
staklega mikilvægt fyrir sjúkl-
inga meb þessa tegund af giktar
aö hreyfa sig mikið þvi ella
stirðnuðu þeir og hryggurinn
yröi stifur.
Ariðandi að sjúk-
dómurinn finnist nógu
snemma
— Hinn sjúkdómurinn sem dr.
Dudley Hart talaði um, risa-
frumubólga I slagæöum höfuös-
insy var ekki greindur fyrr en
1957. Hann er algengur i
sólarlitlum löndum, svo sem á
Norðurlöndum og Bretlandi, og
hann er algengari i Kanada en i
Bandarikjunum. Sjúkdómur
þessi kemur einkum fyrir hjá
öldruöu fólki, hann er mjög
sársaukafullur og getur orsakaö
blindu. Einkenni hans eru aö
axlir og mjaðmir verba mjög
stif einkum á morgnana. Aub-
velt er að halda sjúkdómi
þessum i skefjum meö lyfja-
meöferö (nýrnahormón,
barkstera) hafi hann verið
greindur. Stundum eru skuröaö-
geröir á mjöðmum geröar á
sjúklingunum. Báöir þessir
þessir sjúkdómar finnast hér á
landi og er einkum sá siöar-
nefndi, sizt sjaldgæfari hér en I
öörum norðlægum löndum.
Þarna eru stúdentarnir sem útskrifuöust frá Menntaskólanum á Akureyri þann 17. júni s.l. M.A. er sein-
asti skólinn, sem heldurenn þeim siö aöútskrifa nemendursina á Þjóöhátlöardaginn.
Stúdentar enn útskrifaðir
á Akueyri 17 júní
enskukennara, sem Orlygur Sig-
urðsson málaöi og 10 ára stúdent-
ar færöu skólanum málverk af
Arna Kristjánssyni, sem var is-
lenzkukennari viö skólann i mörg
ár. Þaö verk geröi Sigurður Sig-
urösson. Menntaskólinn á Akur-
eyri er þegar fullsetinn næsta
skólaár, svo og heimavist skól-
ans.
Skólameistari Menntaskólans á
Akureyri er Tryggvi Gislason.
Margrét Kristinsdóttir hús-
mæöraskólakennari á Akureyri.
Hún er trúlega fyrsti skólastjór-
inn á islandi, sem lýkur stúdents-
prófi eftir aö hafa gegnt sllku
starfi.
úr eölisfræöideild. Hæstu einkunn
á stúdentsprófi hlaut Siguröur
Haröarson frá Skálpageröi I
Eyjafiröi, fyrstu ágætiseinkunn
9.40, og mun þaö vera hæsta eink-
unn á stúdentsprófi aö þessu
sinni. Siguröur nam I eölisfræöi-
deild.
Meöaleinkunn á stúdentsprófi
var 7.02 sem er svipaö og veriö
hefur undanfarin ár. Nemendur i
M.A. voru I vetur 582, þar af 74
sem stunduðu nám I öldunga-
deild, sem nú var starfrækt viö
skólann i fyrsta skipti. 1 þriöja
bekk hlaut hæstu einkunn Krist-
ján Kristjánsson frá Akureyri
9.40, I fjóröa bekk hlutu hæstu
einkunn Svandis Hulda Þorláks-
dóttir úr Mývatnssveit og Sigur-
björg Eövaldsdóttir úr Reykja-
vik, 8.80, þær stunduöu nám I
máladeild. i fimmta bekk hlaut
Askell Haröarson frá Skálpageröi
i Eyjafiröi hæstu einkunn, 9.50
sem er um leið hæsta einkunn I
skólanum aö þessu sinni. Askell
er nemandi I eölisfræöideild og er
bróöir Siguröar, sem hæstu eink-
unn hlaut á stúdentsprófi.
Þess má geta aö Margrét Krist-
insdóttir skólastjóri Húsmæöra-
skólans á Akureyri brautskráöist
sem stúdent 17. júni. Og er þaö
sennilega I fyrsta skipti hér á
landi aö menntaskóli brautskráir
skólastjóra sem stúdent.
Margt gesta var viö skólaslita-
athöfnina þ.á.m. margir af eldri
nemendur skólans. 25 ára stúd-
entar. færðu skólanum aö gjöf
málverk af Siguröi L. Pálssyni
KS-Akureyri — Menntaskólanum
á Akureyri var slitiö I 96. sinn I
Akureyrarkirkju 17. júni. Braut-
skráöir voru alls 86 stúdentar, 28
úr máladeild, 15 úr félagsfræöi-
deild, 34 úr náttúrufræöideild og 9
Siguröur Haröarson varö dúx frá
M.A. i ár. Hann hlaut og hæstu
stúdentseinkunn á landinu eöa
9.40.
Frá gigtarþinginu:
Gerviliðir í hné
fullkomnari en áður
IGÆR flutti W. Carson-Dick frá
Glasgow erindi á norræna gigt-
arþinginu um einkenni rheuma-
toid gigtar. Hann lagöi megin-
áherzlu á þau einkenni, sem
koma fram þegar sjúkdómurinn
leggst á önnur liffæri en libi, og
lýsti hvernig slik útbreiösla
sjúkdómsins hefur á batahorfur.
Margir sjúklingar meö liöagigt
eru haldnir þunglyndi á köflumt
taldi fyrirlesari þunglyndi þetta
fyrst og fremst orsakaö af þvi,
aö sjúklingarnir voru oft öörum
háöir félagslega og fjárhags-
lega, en væri ekki bein afleiöing
af sjúkdómnum.
Halldór Steinsen flutti erindi
um aukaverkanir gigtarlyfs.
Þessar aukaverkanir eru ekki
eituráhrif heldur trufla þær
rannsóknir á öörum sjúkdóm-
um.
Oddur Bjarnason ræddi um
nýja aðferö viö mat á virkni
liöagigtar. Þessi rannsóknaraö-
ferð byggist á þvi aö bólgnir liö-
ir taka upp meira magn af
geislavirku efni en þeir, sem
heilbrigöir eru. Þetta magn er
mælt með geislateljara.
Málfundur var haldinn um
brottnám liðslimu úr bólgnum
liöum. Tvær aðferöir voru born-
ar saman, annars vegar eyöing
liöslimu með innspýtingu
geislavirkra efna og hins vegar
brottnám meö skuröaögerö.
Báöar þessar aöferöir hafa gildi
I meðferö liöagigtar, en meta
þarf hverju sinni hvorri aðferð
skuli beitt.
Þá var rætt um notkun á
gerviliöum i hné. Framfarir
hafa oröiö á þessu sviöi á siö-
ustu árum, og nálgast nú árang-
ur af þessum gerviliðum þann
árangur, sem nú fæst meö
gerviliðum i mjöömum.
Útgerðarstjóri
óskum eftir að ráða útgerðarstjóra að b/v
Ljósafelli SU 70, Fáskrúðsfirði.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum
um fyrri störf sendist Gisla Jónatanssyni
kaupfélagsstjóra fyrir 30. þ.m.
Hraðfrystihús Fáskrúðsfjarðar h.f.
Kjörskró til
prestkosninga í
Mosfellsprestakalli
Kjalarnesprófastsdæmi, sem fram eiga að
fara 11. júli n.k., liggur frammi á þingstað
hreppsins, Hlégarði frá 23. til 30. júni.
Kærufrestur er til 7. júli.
Sóknarnefnd.