Tíminn - 23.06.1976, Blaðsíða 9

Tíminn - 23.06.1976, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 23. júnl 1976 TÍMÍNN 9 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri: Steimgrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhús- inu við Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðsluslmi 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Verð i lausasölu kr. 50.00. Askriftar- gjald kr. 1000.00 á mánuði. Blaöaprent h.f. J. Sjersjnev: Þreföld aukning á fimm árum Ádeilur á löggæzluna Siðustu mánuði hefur oft mátt lesa i blöðum þungar ádeilur á dómsmálastjórnina og ástand löggæzlumála i landinu. Slikt þarf ekki að koma á óvart, þegar um æsifréttablöð er að ræða. Hins vegar koma á óvart ýmis ummæli, sem hafa fall- ið um þessi mál i málgögnum Sjálfstæðisflokks- ins. Einkum lætur það illa i eyra, þegar þessi málgögn eru að kasta hnútum að núverandi dómsmálaráðherra og reyna að færa á reikning hans allt það, sem miður kann að fara. Ólafur Jóhannesson tók við stjórn dómsmál- anna fyrir réttum fimm árum. Siðustu 25 árin á undan eða frá þvi i ársbyrjun 1947 og þangað til i júli 1971 hafði yfirstjórn dómsmálanna verið í höndum Sjálfstæðismanna, að rúmum þremur árum undanskildum (1956-1959). Það er á þessum tima, sem núverandi skipan löggæzlumála hefur að miklu ley ti myndast, þótt hún byggist annars á gömlum merg. Það má vel skilja á þeim, sem nú deila á dóms- málaráðherra, að hann hafi tekið hér við ófull- komri skipan löggæzlumálanna og hafi þvi strax átt að hefjast handa um stórbreytingar og mikla útþenslu löggæzlunnar. Þessu er þvi svarað, að Ólafur Jóhannesson hófst skjótt handa um endur- skoðun og breytingar og fól það verkefni fróðustu mönnum. Árangurinn af starfi þeirra kom i Ijós á siðasta þingi, þegar dómsmálaráðherra lagði fram frumvörp um eflingu rannsóknarlögregl- unnar og nýskipan dómstólakerfisins. Þvi miður náðu þau mál ekki framgangi i siðasta þingi og verður dómsmálaráðherra ekki kennt um. Þá hafði ráðherrann áður beitt sér fyrir þvi, að kom- ið var á fót sérstökum dómstóli til að fjalla um fikniefnamál. Framlög til framkvæmda á sviði löggæzlumála hafa stóraukizt i dómsmálaráð- herratið Ólafs Jóhannessonar, en vegna útfærslu fiskveiðilögsögunnar hefur mestur hluti þess runnið til að efla landhelgisgæzluna. Það hefur dregið úr framkvæmdum á öðrum sviðum. Þótt mörgu væri ábótavant um það löggæzlu- kerfi, sem Ólafur Jóhannesson tók við fyrir fimm árum, væri ósanngjarnt að fella þann dóm, að löggæzla sé lakari hér en i öðrum löndum og þvi þurfi að kalla til erlenda sérfræðinga, ef vanda ber að höndum. Margir af löggæzlumönnum okk- ar eru ágætlega færir og þekkja betur en útlend- ingar til islenzkra staðhátta, jafnframt þvi, sem þeir hafa kynnt sér starfshætti erlendis. Það er lika mikill misskilningur, að öll sakamál séu upp- lýst erlendis. Tvimælalaust eru hlutfallslega fleiri sakamál óupplýst þar en hér. Þótt rannsókn ýmissa umfangsmikilla fjársvikamála gangi oft hægthér, gerist það ekki siður erlendis, og er þar skemmst að minna á Glistrupmálið danska. Lög- gæzlumenn okkar vinna vafalitið flestir gott starf og eru borgurunum þvi betri hlif en þeir gera sér yfirleitt ljóst. En þeir auglýsa ekki störf sin og árangur þeirra á gatnamótum. Það eru yfirleitt ekki beztu embættismennirnir, sem auglýsa ágæti sitt. En það breytir ekki þessu, að löggæzlukerfið, sem Ólafur Jóhannesson tók við 1971, þarfnast endurbóta og eflingar. Það er keppikefli trausts þjóðfélags, að löggæzlan sé i góðu lagi og njóti beztu starfsskilyrða. Það er jafnframt mikilvægt, að almenningur sýni henni skilning og meti störf hennar og láti ekki stjórnast af sleggjudómum um hana. Þ.Þ, Verzlun Rússa við vestrænar þjóðir eykst stöðugt Höfundur þessarar greinar, J.Sjersjnev.er vara- formaöur þeirrar stofnunar Sovétrikjanna, sem annast sérstaklega rannsóknir á bandariskum málefnum. Greinin er skrifuö fyrir APN og hefur skrifstofa hennar hér séö um þýöingu. Greinin er m.a. athyglisverö fyrir þá sök, aö hún sýnir mikinn áhuga Rússa á auknum viöskiptum viö vestræn riki, enda er hún vafalaust hag- kvæm efnahagslegri þróun Sovétrikjanna. JÁKVÆÐAR breytingar á ástandi alþjóöamála á þessum áratug hafa skapað ný viöhorf til nýtingar kosta alþjóðlegrar verkaskiptingar. A timabili niundu fimm ára áætlunarinn- ar 1971-1975 settu Sovétrikin sér það verkefni að marka nýja afstöðu til þróunar vis- inda-, tækni- og efnahags- tengsla við önnur riki og að fara að byggja þau upp i sam- ræmi við rikjandi ástand al- þjóðamála. Árangur af framkvæmd þessarar áætlunar hefur, eins og bent var á á 25. flokksþingi KFS, staðfest réttmæti þess- arar stefnu. Utanrikisvið- skipti Sovétrfkjanna 1971-1975 tvöfölduðust borið saman við timabil næstu fimm ára áætl- unar á undan og komust upp I 67 þúsund milljónir dollara árið 1975. Hefur aukningin milli áætlunartimabila aldrei verið meiri. Mikilvægt er og, að samfara mikilli aukningu heildarviðskipta hefur þýðing erlendra efnahagstengsla fyrir sovézkt efnahagslif aukizt mjög. Arið 1970 nam utanrikis verzlun Sovét- rlkjanna 7.6% þjóðarteknanna en 14% árið 1975. Þróun sovézkra efnahags- tengsla siðustu ár er þeim mun athyglisverðari, þar sem hún gerist á tlmum almennra erfiðleika i alþjóðaviöskipt- um. 1975 minnkaði heildar- magn alþjóðaviðskipta veru- lega ifyrsta sinn i þrjá áratugi vegna kreppu i auðvaldslönd- unum. A sama tima jukust heildar utanrikisviðskipti Sovétrikjanna um 28%. Varð aukning á efnahagssam- skipturn við öll lönd sem sýndu samstarfsvilja. Sameiginlegir hagsmunir sósialiskurikjannaog skipuleg og visindaleg efnahagssam- hæfing þeirra skapar sérlega vitt svið gagnkvæmrar sam- vinnu. Eru yfir 55% af utan- rikisviðskiptum Sovétrikj- anna við sósialisku ríkin. En auövaldsriki, sem æskja sam- vinnu á grundvelli gagn- kvæms hagnaðar, hafa einnig mikla möguieira. 1 þessu sam- bandi er aukning viðskipta Sovétrikjanna við iðnþróuð vestræn riki sérstaklega at- hyglisverð. 1971-1975 þreföld- uðust viðskipti Sovétrikjanna viö þessi lönd og komust upp I samtals 63.000 miljónir dollara. VIÐ UPPHAF 9. fimm ára áætlunarinnar námu viðskipt- in við þróuð auðvaldsriki 22% af utanrikisviðskiptum Sovét- rikjanna en voru komin upp i 31% árið 1974. Breytingin á viðskiptum okkar við Banda- rikin var sérstaklega mikil. Var heildarmagn sovézk-bandariskrar verzlun- ar á árunum 1971-1975 áttfalt meira en næsta fimm ára timabil á undan. Þessi aukn- Bréznjev og Kissinger ing er tvimælalaust ákaflega mikilvæg vlsbending um breytt ástand. Þótt viðskipti land- anna hafi verið lítil við upphaf þessa samanburðar, sýnir hann hve möguleikarnir eru gifurlegir á þessu sviði. Heildarviðskipti Sovét- rikjanna og Bandarikjanna árið 1975 námu 2000 milljónum dollara, þ.e. þau eru enn frem- ur litil og sýna ekki hve mögu- leikarnir eru miklir fyrir báða aðila. Það, að Bandarlkjaþing skyldi viðhalda ýmsum mis- mununarákvæðum i banda- riskum lögum, var ekki aðeins pólitlsk feilnóta heldur bakaði það sovézk-bandariskum samskiptum raunverulegt tjón. Að dómi bandariskra hagfræðinga nam það á árinu 1975 einu saman 1600 milljön- um dollara i formi glataðra viðskipta fyrir bandarisk fyrirtæki. Það er ekki að furða þótt samtök bandariskra iðnfram- leiðenda, sem telja innan sinna vébanda yfir 1300 fyrir- tæki, skyldu senda þinginu I april sl. kröfu um að skjótt yrði bundinn endi á þessar eftirhreytur kalda striösins. Sagði William Standart i bréfi til bandariskra þingmanna, að núverandi stefna Banda- rikjanna stuölaði aðeins að meiri aukningu sovézkra við- skipta við önnur lönd og hefði það i för með sér, að banda- risk fyrirtæki misstu af mögu- legum útflutningi sem næmi alitað 6000 milljónum dollara, sem hefði þýtt atvinnu til handa yfir 240 þúsund at- vinnuleysingjum i Bandarikj- unum. Eins og kunnugt er hefur megináherzlan i samskiptum sósialisku landanna innbyrðis um alllangt skeið verið lögð á visinda-,tækni-,iðnaðar- og efnahagssamvinnu þeirra og á samræmingu efnahagsáætl- ana þeirra. A auðvaldsmark- aðnum hefur langmest aukn- ingin orðið á verzlunarvið- skiptum. Hvað varðar sam- skipti landa með ólikt þjóðskipulag, þá hefur hið hefðbundna form þeirra, verzlunarviðskipti, verið rikjandi fram til þessa. Siö- ustu ár hefur þó gætt til- hneigingar til að hagnýta virkara form samvinnu. ÞAÐ ER orðið brýnt verk- efni að skapa fyrirmyndir nýrra samstarfshátta: Sam- eiginlegrar framleiðslu á vör- um til að fullnægja markaðs- þörfum aðildarlanda, sam- eiginlegra aðgerða á mörkuð- um i öðrum löndum og fram- kvæmd sameiginlegra áætl- ana um nýtingu náttúruauð- linda, o.s.frv. Afstaðan til um- ræðna um önnur vandamál hefur og breytzt. Til skamms tima var einkum rætt um hvað Sovétrikin gætu látið mörk- uðum vestrænna landa i té. Nú hafa fjölmargar sovézkar framleiðsluvörur rutt sér til rúms á vestrænum markaði og slflcar umræður tilheyra þvi fortiöinni, eins og bandariska timaritið US News World Report sagði nýverið. Tugir vestrænna fyrirtækja hafa þegar opnað skrifstofur i Sovétrikjunum, eiga samstarf við sovézk fyrirtæki og lita bjartsýnum augum á fram- tiðarhorfurnar. Sl. fimm ár hafa afsannað þá sögu, að Sovétrikin hefðu aðeins áhuga á innflutningi véla og tækja til þungaiðnað- arins, og aðlitil eða meðalstór fyrirtæki á sviði neyzluvöru- framleiðslu og þjónustu gætu varla vænzt þess að koma vör- um sinum á sovézkan markaö. Það er rétt, að áður voru sllk- ar vörur óverulegur hluti sovézkra viðskipta. En 1971-1975 voru 40% af heildar- innflutningi Sovétrikjanna neyzluvörur og hráefni til neyzluvöruframleiðslu. 25. flokksþing KFS sam- þykkti viðtæka áætlun um efnahagsþróun Sovétrikjanna 1976-1980. Hún gerir ráð fyrir áframhaldandi aukningu á þátttöku Sovétrikjanna i al- þjóðlegri verkaskiptingu, auk- inni þýðingu efnahagstengsla við önnur lönd fyrir lausn efnahagsvandamála landsins, upptöku nýrra samstarfshátta og endurbótum á áætlunum, eftirliti og skipulagningu efna- hagssamskipta við önnur riki. Að dómi vestrænna frétta- skýrenda býður 10. fimm ára áætlunin upp á mikla mögu- leika á sviði viðskipta við önnur lönd, ekki aðeins til handa stórfyrirtækjum heldur og meðalstórum fyrirtækjum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.