Tíminn - 22.07.1976, Síða 7

Tíminn - 22.07.1976, Síða 7
Fimmtudagur 22. júll 1976. TÍMINN 7 (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri: Steimgrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhús- inu viö Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrifstoiur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Verð I lausasölu kr. 50.00. Askriftar- gjald kr. 1000.00 á mánuði. Blaðaprent h.f. Spilling á íslandi Ef dæmt væri eftir skrifum vissra aðila um þessar mundir mætti ætla, að hvergi rikti nú meiri spilling i heiminum en á íslandi. Alveg sér- staklega séu þó stjórnmálamenn spilltir. Þvi sé kominn timi til, að heiðarlegir menn komi til sög- unnar og hreinsi musterið. 1 rauninni er þessi áróður ekki nýr. úti i heimi hafa óvandaðir valdabraskarar oft notað sér hlið- stæðan áróður til að ginna fólk til liðs við sig. Með þessum hætti náði Mussolini völdum á ítaliu og Hitler i Þýzkalandi á árunum milli styrjaldanna. Með svipuðum áróðri hefur sá maður, sem skatt- yfirvöld telja skattsvikakonung Danmerkur, eflt um sig flokk, sem i næstu kosningum er talinn lik- legur til að verða annar stærsti stjórnmálaflokk- ur landsins. Með þessu er siður en svo verið að halda þvi fram, að ekki fari sitthvað aflaga á Islandi. Sam- keppnisandinn er sterkur og margir hugsa helzt til mikið um eigin hag. Sennilega fjölgar þeim, sem vaxa i augum byrðarnar, sem þeir þurfa að bera vegna hinna, sem lakar standa i lifsbarátt- unni. Virðing fyrir lögum og reglum er tæpast söm og áður, og hér vottar orðið fyrir glæpafaraldri, sem hefur þjáð sum nágrannalöndin. En mikill mis- skilningur er þó það, að hér hafi ekki verið framdir glæpir áður, og yfirgangsmenn ekki sniðgengið lögin til þess að koma sinu fram. Menn verða að taka það með I reikninginn,að stórkostleg breyting hefur orðið á þjóðfélaginu, sem hefur leitt til margra nýrra hafta og banna, sem ekki þekktist áður. Ef menn lita t.d. til ár- anna 1920—1930, kemur i ljós, að þá voru engin teljandi gjaldeyrishöft, engin verðlagshöft, eng- inn söluskattur, nær engir bilar til að brjóta um- ferðarlög o.s.frv. Fjölmargt af þvi, sem er brot- legt nú, var leyfilegt þá. Þetta hefur óhjákvæmi- lega fjölgað afbrotum. En viðleitnin til að brjóta lög var sennilega engu minni fyrir hendi þá. T.d. hefur áfengissmygl vafalitið verið hlutfallslega meira þá en nú, þrátt fyrir miklu verri aðstæður. En þá var lika hálfgert áfengisbann. Þvi til við- bótar, að höftin og bönnin hafa stóraukizt, hefur svo komið það, að einangrun landsins hefur verið algerlega rofin og erlendur her fengið búsetu i landinu. Allar þessar breytingar verða menn að hafa i huga, þegarrætt er um afbrotinTil að vinna bug á þeim, þarf að skilja orsakirnar. Af reynslunni verður m.a. að læra það, að hafa ekki höft og bönn meiri en nauðsyn krefur. Skattalög þurfa að vera sem einföldust og smuguminnst. En þeim reglum, sem eru settar þarf að fylgja vel eftir. Og hörðum tökum verður að taka óaldarlýð, sem gerir i vaxandi mæli vart við sig. En þrátt fyrir það, sem miður fer, er með öllu rangt að stimpla islenzkt þjóðfélag sem spillingarbæli. Þrátt fyrir alla smágalla, stenzt það fullkomlega samanburð við það, sem er bezt annars staðar i þessum efnum. Jafnrangt er það, að stimpla stjórnmálamennina sem bófa, er ein- göngu hugsi um að skara eld að sinni köku. Flest- ir þeirra hefðu vafalaust efnazt betur, ef þeir hefði farið inn á aðra braut. Og óneitanlega er það verk þeirra, að stéttaskipting er hvergi minni og jafnræði hvergi meira en á íslandi. Þá þjóð- félagshætti má ekki láta neinn nasistaáróður eyðileggja. Þ.Þ. Spartak Beglov, APN: Torfærur í vegi spennuslökunar Hvað er rétt um „óbilgirni Sovétríkjanna?" Brátt er ár liöið siöan Helsinkisáttmálinn var undirritaður. Jafnt i Austur-Evrópu og Vestur-Evrópu gætir nú óánægju yfir þvi, að ekki hafi miðað nóg I þá átt að framfylgja sáttmálanum. i fíölmiðlum I Vestur-Evrópu og Bandarikjunum er Sovétrikjunum kennt um, en fjölmiðlar i Sovétrikj- unum telja sig hafa aðra sögu að segja, eins og fram kemur i eftirfarandi grein: MARGIR einlægir stuðningsmenn friðar, óháð st jórnm álaskoðu num og flokksböndum, vilja gjarnan vita, hvað þegar hefur verið gert og hvað enn er ógert, hvaða erfiðleikar og vanda- mál eru i vegi frekari fram- kvæmdar spennuslökunar og hvernig greina má sann- leikann frá hleypidómum og uppspuna. A ferð sinni nýverið til nokkurra höfuðborga i Vestur-Evrópu, mætti höfundur þessarar greinar hvað eftir annað steinrunnum röksemdum, sem notaðar eru af fjandmönnum spennuslök- unar, sem hafa yfir að ráða mjög áhrifamiklum tækjum til mótunar almenningsálitsins. 1 sambandi við lokaályktun Evrópuráðstefnunnar nota þeir venjulega eftirfarandi röksemdafærslu: Pólitiskar meginreglur um samskipti þjóða eru ekki bindandi og hafa ekki neitt nýtt i för með sér varðandi sambúð þjóða innan Evrópu.og reglur efna- hagslegs samstarfs þjóna að- eins hagsmunum annars helmings Evrópu — hins sósialiska. Það eru aðeins skiptin á sviði mannúðar- og menningarmála, sem vekja raunverulegan áhuga vestrænna rikja sem tæki til þess að beita sóslalisku rikin þrýstingi, sem afsökun fyrir að krefjast „ógreiddrar skuldar” á þessu sviði. Hvað spennuslökun á hernaðarsvið- inu varðar, þá er allri skuld þess að árangur næst ekki skellt á „óbilgirni Sovét- rikj anna”. En þessi uppspuni hrynur saman eins og spilaborg jafn- skjótt og leitað er staðreynda, eins og Leonid Bréznjev lagði áherzlu á I ræðu sinni á fundi evrópskra kommúnista i Berlin. EF VIÐ byrjum að rekja ofan af þráðarhnykli Nató- áróðursins frá upphafi, þ.e. varöandi hindranir i vegi fyrir hernaðarlegri spennuslökun, þá slitnar fyrsti bláþráðurinn óhjákvæmilega um hinar vestrænu sögusagnir um „vilja Sovétrikjanna til að við- halda hernaðarlegum yfir- burðum” og um „stöðuga eflingu herstyrks Sovétrikj- anna”. Tökum t.d. Mið-Evrópu, sem er megin- viðfangsefni Vinarvið- ræðnanna um minnkun vig- búnaðar. Bréznjev lagði áherzlu á, að þarna væri ekki um að ræða mikinn mun á vopnuðum herstyrk Varsjár- bandalagslandanna og Nató. Þarna hefur veriði mörg ár að meira eða hinna leyti jafnræði með vissum mun þó hvað varðar ytri gerð heraflans. Vesturveldin vita þetta jafn- vel og hinn aðilinn. Sósialisku rikin hafa þess vegna gert tillögu um jafna fækkun I herjum og minnkun vigbúnaðar beggja aðila (Sovétrikjanna og Bandarikj- anna i fyrsta áfanga) I þvi skyni að viðhalda jafnvægi herstyrksins, skera niður hernaðarútgjöld og draga úr hættunni á andspæni. Hvers vegna neitar hinn aðilinn að fallast á þennan rökrétta og heiðarlega grundvöll að upp- hafi fækkunar i herjum? Hann fellst ekki heldur á þá tillögu, að þátttakendur i viðræðunum haldi óbreyttum herstyrk sinum. Og það sem meira er, Nató heldur áfram að efla styrk sinn og hæfni herja sinna i Mið-Evrópu. Allar þessar staðreyndir leiða aðeins til þeirrar niðurstöðu, að Nató- löndin eru að reyna að ná fram einhliða fækkun i þvi skyni að breyta hernaðarjafnvæginu sér i hag á kostnað sósialisku rikjanna. Vestrænir gagnaðil- ar okkar i samningaviðræðun- um hljóta þó að skilja að með þvi að gera þetta, afhjúpa þeir sig sem andstæðinga þess að dregið sé úr styrjaldarhætt- unni i Evrópu. Það er afstaða þeirra, sem brýtur gegn meginreglunum um óskert ör- yggi allra aðila, sem stendur i vegi hernaðarlegrar spennu- slökunar. ÞAÐ er einnig hægt að ásaka Vesturveldin um margt á sviði menningarsamskipta og mannlegrar sambúðar. Leonid Bréznjev vitnaöi I beinar tölur og staöreyndir: Streymi upplýsinga, bóka, kvikmynda og annarra menningarverðmæta yfir landamærin er aöskilja Austur- og Vestur-Evrópu er mjög ójafnt. Þaö er reglan, að þrisvar til sex sinnum meira af þessu efni berst til sósialisku rikjanna frá vestri heldur en i' gagnstæða átt eftir upplýsingafarvegunum. Hver er ástæðan? Leonid Bréznjev hefur lagt áherzlu á það, að ráðandi stéttir i auðvalds- löndunum virðast ekki hafa áhuga á að leyía vinnandi fólki I þessum löndum að fá upplýsingar frá fyrstu hendi um sósialisku löndin, þjóðfélags- og menningar- þróun þeirra og pólitiska og siðferðilega stöðu þjóðanna i - sósialisku rikjunum. Sósiah'sku löndin eru ekki „lokað þjóðfélag”. Þau eru opin fyrir öllu, sem er rétt og heiöarlegt. En dyr okkar munu alltaf verða lokaðar fyriröllu, sem miðarað þvi að lofsyngja strið, ofbeldi, kyn- þáttastefnu og mannhatur, svo og fyrir erindrekum frá erlendum leyniþjónustum og andsovézkum útflytjenda- samtökum, sem þær hafa komið á fót, þ.e. fyrir öllu, sem brýtur i bága við anda og bókstaf Helsinkisáttmálans. Hlutverk aukinna sam- skipta á efnahagssviðinu, sem gert er ráö fyrir i þessu sam- komulagi, er mjög raunhæft. k Og auk heldur sýnir þessi samvinna það æ betur, að hún er öllum aðilum til hagsbóta, gagnstætt þvi sem þessir sömu „skoðanamótendur” á Vesturlöndum segja, sem halda þvi fram, að sósialisku rikin fái einhliða hagnað”. Nægilegt er að neftia, að sam- kvæmt tölfræðilegum upplýs- ingum.sem birtarhafa veriöá Vesturlöndum, hafa efnahags- samskiptin við sósialisku rikin skapað hundruðum þúsunda, ef ekki milljónum manna i Vestur- Evrópu vinnu á þessum krepputimum. Leonid Bréznjev lagði þó áherzlu á það, að einnig á þessari leið væri enn mikið af hindrunum, sem settar hefðu verið upp af þeim aðilum i auðvaldsrikj- unum, sem gripiö hafa til mis- mununaraðferða. í ósamræmi við Helsinki- samkomulagið eru einnig undanbrögð vissra vestrænna rikja gagnvart mikilvægum tillögum Sovétrikjanna um að efna til Evrópuþings eða ráð stefnu á rikisstjórnagrund- velli um vandamál eins og umhverfisvernd, þróun sam- göngumála og orkumála. Leonid Bréznjev sagöi, að allt miðaði þetta að þvi að byggja upp friðsamlega samvinnu i Evrópu, er myndi treysta tengslin milli þjóða Evrópu og rikja og auka áhuga þeirra á að tryggja friðinn um mörg ókomin ár.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.