Tíminn - 22.07.1976, Page 11
Fimmtudagur 22. júli 1976.
TÍMINN
11
NÓG AF
LOÐNU
— en hún liggur djúpt og er mjög stygg
gébé Rvik. — Það er ábyggilega
nóg af loönu hérna, en hún liggur
aðeins of djúpt og er þar að auki
mjög stygg, svo erfiðlega gengur
að ná henni og bátarnir hafa aflaö
mjög treglega, sagði Hjáimar
Vilhjálmsson, leiðangursstjóri
um borð i rannsóknarskipinu
Bjarna Sæmundssyni i gærkvöld,
en þá voru þeir staddir rétt innan
við 80 sjómiiur norðnorðaustur af
Horni.
Hjálmar sagði að flest skipin
hefðu haldið til hafnar á þriðju-
dag, þar sem afliþeirra hefði
legið undir skemmdum vegna
veltings. Þvi voru ekki nema 5
skip við veiöar i fyrrinótt, en
þeim var aftur farið að fjölga i
gærkvöldi. — Ég býst við að i allt
séu skipin nú orðin um tuttugu
sem stunda loðnuveiðar hér,
sagði Hjálmar.
W.R. Goodwin afhendir Vésteini Guðmundssyni frkvstj. bikar til viðurkenningar fyrir lága slysatiöni
hjá Kisiliðjunni hf. Ljósm. SPB — Húsavik;
GE NGSS5KRÁNSNC
frá £.imr£ Ki. 12, 00 Kaup Sala
■ bfi i97ó í Bsods rífc js ó .il la - I 94. 20 184. 60
21/7 - i •9t ..-í-lingepuad 328, 20 329. 20 *
16/7 - t ivSd•;4tíOÍi& 7 186. 96 189.45
21/7 _ 100 Ðanakar krór.ur 2983. 25 2991.35 *
20/7 100 Norekar krónur 3292. 60 3301.60
_ „ 100 Sænakar krónvr 4115. 70 4126.90
21/7 - 100 Fíoaslc mörk 4740. 00 4752. 90 *
_ 100 >" raiisksT frsnkar 3756. 60 ' 3766. 80
_ 100 Bsig. ÍJank?. r 462. 90 464. 10 *
_ 100 Sviasn. frankar 7391. 85 7411. 95 *
107 Gvílini 6734. 55 6752. 85 *
_ 100 V, - Þy-zfc mörk 7145. 20 7164. 60 *
20/7 100 Lírur 22. 02 22. 07
21/7 _ 100 Austurr. Sch. 1005. 75 1008. 45 *
19/7 _ 100 Escvdoa 586. 45 588. 05
16/7 100 Peaetar ?.70. 75 271.45
20/7 100 V 62. 75 62. 93
100 R k r*. i v. * k r ó u u r -
16/7 v r} r u s k:ots í.^nd 99.36 100. 14
unglingahátíö
aö úlf Ijótsvatni um verslúnarmannahelgi
Paradís
Cabarett
Experiment
Galdrakarlar
Randver
Þokkabót
Gísli Rúnar &Baldur
Halli&Laddi
Loftbelgsferðir
HOLBERG MÁSSON
Heiðursgestur
Bátaieiga
ÍÞróttir
TÍVOlí
Gönguferðir
varðeidar
MOT FYRIR ALLA UNGLINGA
ELDUR Á LAUGAVEGI
Á þriðjudagskvöld þustu tveir slökkviliðsbilar ásamt hjartabiinum,
með miklu væli og látum niður Laugaveg, en þaðan hafði verið hringt
og tilkynnt um bruna. Þegar á staðinn kom, var hins vegar aðeins eidur
i rusli sem var viö bakhúsiö aö Laugavegi 34 b og gengu slökkviliðs-
menn vaskiega tii verks og slökktu eldinn á stuttri stundu. Ekki er vitaö
um upptök eldsins, en telja má aö þarna hafi verið að verki unglingar
eða krakkar sem jafnvel hafi viljandi kveikt i. Timamynd: Róbert
stóraukizt eftir að orkukreppan
skall á. Höfuðstöðvar fyrirtækis-
ins voru áður i New York, en fyrir
nokkru voru þær fluttar til Den-
ver i Colorado.
Johns-Manville sér um alla sölu
erlendis á framleiðsluvörum
Kisiliðjunnar hf. og rekur i þvi
sambandi sérstaka söluskrifstofu
á Húsavik. Framleiðsla kisilgúr-
verksmiöjunnar við Mývatn er
þvi seld undir vörumerkjum
Johns-Manville og framleidd skv.
sömu gæðakröfum og gerðar eru
til kisilgúrframleiöslu hjá Johns-
Manville verksmiðjunum i
Bandarikjunum, Mexico, Frakk-
landi og á Spáni. Framleiðsla
Kisiliðjunnar hf. er seld til um 20
landa f Evrópu og Afriku og er
samkeppni á markaðnum mjög
hörð, en helztu keppinautarnir
eru fyrirtæki i Frakklandi, á íta-
liu og i Bandarikjunum. Johns-
Manville er nú stærsti seljandi
kisilgúrs til siunar á Evrópu-
markaði og hefur verið leiðandi
um gæðakröfur, sem geröar eru
til þeirrar framleiðsluvöru, segir
i lok fréttar Kisiliðjunnar.
SÆKIR KÍSILIÐJUNA
Fyrir skömmu kom aðalfram-
kvæmdastjóri Johns-Manville
Corp. I Bandarikjunum dr. W.R.
Goodwin i heimsókn i Kisiliðjuna
I Mývatnssveit. Johns-Manville á
sem kunnugt er 48,5% i verk-
smiðjunni, en þetta var fyrsta
heimsókn aðalframkvæmdastjór-
ans til Islands. 1 för með honum
voru ýmsir af helztu framámönn-
um fyrirtækisins, alls 14 manns og
komu gestirnir i éinkaþotu til
Akureyrarflugvallar segir i frétt
frá Kisiliðjunni.
Erindi framkvæmdastjórans
var að skoða kisilgúrverk-
smiðjuna og jafnframt afhenti
hann verksmiðjustjórninni fagr-
an silfurbikar til verölauna fyrir
lága slysatiðni, en Kisiliðjan hf.
var á siðasta ári I ööru sæti i sam-
keppni um lága slysatiðni, sem
Johns-Manville efnir til meðal
verksmiðja, sem tengdar eru
fyrirtækinu. Eru þá öll vinnuslys
og tapaöar vinnustundir vegna
slysa skráð og stigafjöldi siðan
reiknaður út i hlutfalli við unnar
vinnustundir i viðkomandi verk-
smiðju. Kisiliðjan hf. hefur jafn-
an verið meðal þeirra verk-
smiðja, sem Iægsta slysatiöni
hefur haft I þessari samkeppni.
Viöstaddir verðlaunaaf-
hendinguna voru auk starfs-
manna og stjórnarmanna Kisil-
iðjunnarhf. nokkrir gestir, þ.á.m.
oddviti Skútustaðahrepps og full-
trúi frá öryggiseftirliti rikisins.
Að verðlaunaafhendingu lok-
inni snæddi framkvæmdastjórinn
og föruneyti hans hádegisverð að
Hótel Reynihlið i boði stjórnar
Kisiliðjunnar hf. og siðan skoðuðu
þeir sig um við Mývatn. Gestirnir
fóru frá Akureyri áleiðis til Eng-
lands.
Johns-Manville fyrirtækið rek-
ur nú 101 verksmiðju á eigin veg-
um viða um heim, en höfuðstarf-
semi þess er þó I Bandarikjunum.
Starfsmenn fyrirtækisins eru
24.000. Auk þess annast fyrirtækið
sölu frá fleiri verksmiöjum og er
Kisiliðjan ein þeirra.
Fyrirtækið á sér alllanga sögu,
en i dag er það almenningshluta-
félag með 29.000, hluthöfum.
Heildarsala þess á siöasta ári
nam um 1100 milljónum dollara,
en helztu framleiðsluvörur þess
eru margs konár byggingarvör-
ur, einangrunarefni,pipur- og rör
og siunar- og fylliefni úr kisilgúr
og perlusteini. Auk þess hefur
fyrirtækið verulegar tekjur af
sölu tæknikunnáttu.
Fyrirtækið færir nú mjög út
kviarnar á sviði glerullarfram-
leiðslu, en notkun á þvi efni hefur
AÐALFRAMKVÆMDASTJÓRI
JOHNS-MANVILLE HEIM-