Tíminn - 02.09.1976, Blaðsíða 11

Tíminn - 02.09.1976, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 2. september 1976 TÍMINN. 11 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 Morgunbæu kl. ■riorgunstund barn- anna kl. 8.45: Sigurður Gunnarsosn heldur áfram sögu sinni „Frændi segir frá” (2). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli atriöa. Viö sjóinnkl. 10.25 :Ingólfur Stefánsson talar við Guð- mund H. Guðmundsson sjó- mann. Tónleikar. Morgun- tónieikar kl. 11.00: John Wilbraham, Philip Jones og St. Martin-in-the-Fields hljómsveitin leika Konsert fyrir tvo trompeta og strengjasveit eftir Vivaldi: Neville Marriner stjónrar/Fou Ts’ong leikur Svitu nr. 14 i G-dúr eftir Handel/Haakon Stoijn og Kammersveitin i Amster- dam leika Konsert i e-moll fyrir óbó og strengjasveit eftir Telemann: Jan Brussen stjórnar /Hátiðar- hljómsveitin i Bath leikur Svitu nr. 2 i b-moll fyrir hljómsveit eftir Bach: Yehudi Menuhin stjórnar 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. A frívaktinni Sigrún Sigurðardóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Miðdegissagan: „Leikir i fjörunni” eftir Jón óskar Höfundur les (6) 15.00 Miðdegistónleikar Hljómsveit tónlistarskólans i' Paris leikur „Danzas Frantásticas” eftir Turina: Rafael Frubeck de Burgos stjórnar. Filharmónisveitin í Leningrad leikur Sinfóniu nr. 6 i Es-dúr op. 111 eftir Prokofjeff: Eugené Mravinský stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). Tón- leikar. 16.40 Litli barnatiminn Finn- borg Scheving hefur umsjón með höndum 17.00 Tónleikar. 17.30 „Franska einvigiö” smásaga eftir Mark Twain Óli Hermannsson islenzk- aði. Jón Aðils leikari les. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskra kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Nasasjón Árni Þórarins- son og Björn Vignir Sigur- pálsson ræða viö Hafliöa Hallgrimsson tónlistar- mann. 20.10 Pianósónötur Mozarts. Ungverski pianóleikarinn Dezsö Ranki leikur: a. Sónötu i F-dúr (K280). b. Sónötu i Es-dúr (K282). Hljóðritun frá ungverska út- varpinu. 20.35 Leikrit: „Martin Fern” cftir Leif Panduro. Þýöandi Torfey Steinsdóttir. Leik- stjóri Gisli Alfreösson. Persónur og leikendur: Martin Fern: Bessi Bjarns- son, Eva Carlsson: Halla Guðmundsdóttir, Ebbesen læknir: Erlingur Gislason, Frú Fern: Margrét Guð- mundsdóttir, Þjónn: Rand- ver Þorláksson, Frú Hansson: Herdis Þorvalds- dóttir. Aðrir leikendur: Anna Vigdis Gisladóttir, Nina Sveinsdóttir, Bryndis Pétursdóttir, Jón Aðils og Asa Jóhannesdóttir. 21.20 islenzk tónlist: „Missa Brevis” eftir Jónas Tómas- son yngra. Sunnukórinn á tsafirði syngur. Kjartan Sigurjónsson og Gunnar Björnsson leika með á orgel og selló. Hjálmar Helgi Ragnarson stjórnar. 21.45 „tJtsær”, kvæði eftir Einar B e n e d i k t ss on . Þorsteinn O. Stephensen les. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöld- sagan: Ævisaga Sigurðar Ingjaldssonar frá Bala- ’ skarði.Indriöi G. Þorsteins- son les (5J. 22.40 Á sumarkvöldi Guðmundur Jónsson k'ynnir tónlist um ber og ávexti. 23.30 Fréttir. Dagskrárlok. Bernhard Nordh: I JOTUNHEIMUM FJALLANNA 57 nauðugt—sannið þið til, — þá gat svo f arið, að til tíðinda drægi! Þá yrði ekki lengur við að fást menn, sem iátuðu ríkinu hollustu sína, heldur harðsnúinn flokk skógar- manna, sem sætu í launsátri með hlaðnar byssur og hefðu konunginn og ríkisvaldið í flimtingum. Og þessi , nýja löggjöf var ekki nauðsynleg. Lapparnir höfðu nóg landrými, þótt þeir leggðu ekki undir sig jarðir frum- býlinganna — þeir þurftu ekki alla Svíþjóð að bithaga handa þessum hreintörfum sínum! Og er réttvísin yrði fótumtroðin í þessu máli... já, já, þá gætu þeir háu herrar farið að svipast um eftir nýjum sýslumannai. Landshöfðinginn hafði fyrst í stað grett sig dálítið yf ir þessari hressilegu málafærslu sýslumannsins. En áður en Hellgren fór, var kominn annar svipur. Þetta var kannske alvarlegra mál en hann bjóst við. Páli leið illa. Það var miður þægilegt að láta sýslu- manninn rýna svona á sig og hann grunaði sfzt að hann skipaði þarna heiðurssess. Það var ein spurning, eem honum lá á hjarta, en hann varð hvað eftir annað að sækja í sig veðrið, áður en hann áræddi að bera hana fram. Var von á landshöfðingjanum til Ásahlés? Hellgren sýslumaður rumdi önuglega. — Landshöfðingjanum... nei. Hann kemur ekki hingað. Hann er farinn til Stokkhólms. — Er hann farinn til Stokkhólms? Til þess að...? — Nei síður en svo, greip sýslumaðurinn fram í fyrir honum. Heldurðu, að hann fari til Stokkhólms ykkar vegna — dettur þér það í hug? Nei, og aftur nei! Það verður að vera eitthvað meira i húfi en fáein kofahróf. Sýslumaðurinn lagði loðna hramma sína fram á borðið og hvessti augun á Pál. Hann vildi ekki láta fara fram hjá sér, hvernig frumbýlingnum yrði við. En það varð engin breyting á beinaberu andliti Páls, nema hrukkurn- ar á enninu dýpkuðu heldur. Hann hef ir ef til vill verið að velta f yrir sér nýrri spurningu, sem hann náði þó ekki að bera fram, því að nú renndi Hellgren augunum snögg- lega út um gluggann og benti á hóp manna, sem stóðu úti fyrir. — Er þarna ekki einn af Löppunum úr Marzf jallinu?. Páll kinkaði kolli. Sýslumaðurinn spratt á fætur og opnaði dyrnar og kallaði út. Að fáum mínútum liðnum kom hann aftur og ýtti Lappa á undan sér inn í herberg- ið. Af fasi hans hefði mátt halda, að hann hefði lagt að - velli eitthvert óargadýr. Þetta var Turri. Hann heilsaði Páli með hægð og nokkru fálæti. Nú var hann ekki lengur þreytulegur Lappadurgur sem reikaði um f jalllendið og gætti hjarð- ar. Hann var allt annar maður, þegar hann kom á markaðinn. Klæðnaður hans og framganga sýndi, að hér var efnaður maður sem átti talsvert undir sér. Sýslumaðurinn hikaði litla stund, en dró svo fram þriðja glasið. Þótt Lappinn kynni að sætta sig við það að ylja sig við arininn, var honum skylt að veita gesti sínum. Turri þakkaði fyrir sig, leit spyrjandi á Pál og Hellgren, saup á staupinu og lét það síðan á borðið, um leið og hann gretti sig ferlega, eins og kurteislegt var, þegar hann hafði sopið á góðu brennivíni. — Vilt þú bola frumbýlingunum burt? Spurningin kom eins og svipuhögg. En Turri lét sér hvergi bregða. Hann horfði ósmeykur framan í sýslumanninn. — Það hefi ég aldrei sagt, svaraði hann stuttarlega. Við, sem til Fattómakk komum, eigum ekki í neinum úti- stöðum við frumbýlingana. — Stela frumbýlingarnir hreindýrum frá þér? Lappinn dró svarið dálítið við sig, virti vandlega f yrir sér bitana undir stofuloftinu og sagði seinlega: — Ja, það ber við, að fáein hreindýr hverfa. En þau hyrfu fleiri, ef frumbýlingarnir dræpu ekki úlfa og jarfa. — Svo. Heldur þú það? Eru allir Lappar á þeirri skoðun? — Nei — það eru þeir ekki. Sýslumaðurinn gekk um gólf, púandi og rymjandi. Ef allir Lapparnir og frumbýlingarnir væru eins og þessir menn tveir— ja, þá væri þetta mál auðleyst. En það var enn nóg af illþýði, sem sloppið hafði við hegningu... Þumiaskrúf ur og vöndur — það voru tól, sem hefðu hæft því, bölvuðu hyskinu... Turri dró upp stutta járnpipu með silfurloki, tróð í hana tóbaki og kveikti í. Hann gaut augunum til sýslu- mannsins, sem jós úr sér skammaryrðunum á báða bóga. Þegar hann hafði ausið úr sér, tók Turri að ræða málið— hann vildi fyrir sitt leyti lifa í sátt og samlyndi við þá, sem hefðu fasta bústaði. Hellgren settist, óf rýnilegur á svip, og allt i einu virtist hann vera búinn að missa allan áhuga á ágreinings- málum Lappanna og frumbýlinganna. Hann spurði, En þegar Oorsa er oröin ein meö Geira ó, hann .^.ersvo fallegur, bara ( aö hann gæti orðið Cki ^Það er ekkert meir minnzt . )| >á Kula-ku i neinum dagbókum, ekkieinu sinni pabbi minn!"’. r Ég fer og spyr manninn, 'Sö sem allt man og veit allt! S; W

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.