Tíminn - 14.09.1976, Page 1

Tíminn - 14.09.1976, Page 1
Áætlunarstaðir: Blönduós — Sigluf jörður Búðardalur — Reykhólar Flateyri — Bíldudalur Gjögur — Hólmavík Hvammstangi — Stykkishólm- ur — Rif Súgandaf j. Sjúkra- og leiguflug um allt land Símar: 2-60-60 & 2-60-66 205. tölublað—Þriðjudagur 14. september — 60. árgangur Stjórnlokar Olíudælur Olíudríf WmSSSiSnsnSSmM Síðumúla 21 Sími 8*44*43 Metár hjá Skógræktinni norðan lands og austan Frábær viðarvöxtur í ár oq fræfall með eindæmum JH-Reykjavik. — Fræfall verð- Vesturlandi væri i góðu meðal- vor. Þá voru sex hundruð sitka- Skógarhöll I Hallormsstaðarskógi — sólargeislarnir ná hér og þar til jarðar I gegnum limið. JH-Reykjavik. — Fræfall verð- ur með afbrigöum mikið norðan lands og austan á þessu hausti, sagði Hákon Bjarnason skóg- ræktarstjóri við Timann i gær, og trjávöxtur að sama skapi mikill. Grenitré í Hallorms- staðarskógi eru hlaðin könglum, sérstaklega sitkagrenið, þótt ekkert sé þar eldra en frá árun- um 1949 og 1951. Þetta verður metár og við fáum liklega langt til nægjanlegt fræ af eigin stofni handa okkur. Hákon sagði, að byrjað yrði að safn(a könglum um næstu mánaðamót, en siðan yrðu könglarnir látnir liggja um tima til eftirþroskunar, unz þresking fer fram væntanlega I nóvem- bermánuði. Mikið af könglum er einnig á lerki, sem er til þess aldurs komið, að það beri fræ, en eins og kunnugt er eru miklir og fal- iegir lerkiteigar á Hallormsstað og viðar á Fljótsdalshé raði, sumir að visu ungir enn. Frævöxtur i birkiskógum hef- ur einnig veriö með ágætum, og nefndi Hákon til dæmis, að sér hefðu borizt fregnir af þvi úr Vaglaskógi I gærmorgun. Mun svo trúlega vera um allt Norðurland og Austurland, þar sem teljandi birkiskógar eru. Hákon sagðist vænta þess, að trjávöxtur á Suðurlandi og Vesturlandi væri i góðu meðal- lagi, þrátt fyrir votviörin, og mikið af könglum væri til dæmis á stafafuru I Skorradal, þótt hún væri fyrst gróðursett þar árið 1953. Og það, sem meira væri: Sjálfsáin stafafura hefði fundizt á Stálpastöðum. — Það má lika til tiðinda telj- ast, sagði Hákon, að fræræktar- garðurinn á Taraldsöy I Harð- angursfirði var tekinn I notkun I vor. Þá voru sex hundruð sitka- græðlingar græddir þar á stofna, og næsta vor ætlum viö að græða þar átta hundruð til þúsund stafafurugræðlinga á stofna. Þegár fram liöa stundir, eigum við að fá fræ eftir þörfum úr fræræktargarðinum, en aö sjálfsögðu verðum við aö biöa þess mörg ár, að græðlingarnir komist til þess þroska, að þeir gefi fræ. Ungur maður trylltist á Höfn í Hornafirði: Tók pilt sem gísl ■ ■. Króatarnir fimm, sem rændu farþegafiugvél i innanlandsflugi i og skaut á annan Gsal-Reykjavik. — Ungur maður, 24 ára að aldri, gekk berseksgang á Höfn i Hornafirði á sunnudags- morgun. Hafði hann haglabyssu að vopni og hleypti af 15 eða 16 skotum og lenti ein hagladrifan I nærstöddum manni, en hann mun þó ekki vera alvarlega slasaður. Ennfremur skaut maöurinn á hús og tætti sundur dekk á bil með haglaskotunum. í heift sinni tók hann gisl til fanga, 17 ára gamlan pilt, og hót- aði aö gera honum mein, ef til- raun yrði gerð til þess að hefta för hans inn i verbúö á staönum, en þar taldi hann sökudólg sinn vera. Aðdragandinn að þessum at- buröi er sá, aö umræddur maður sat að drykkju með öðrum manni i verbúð á Höfn. Um morguninn varð þeim sundurorða og spruttu af þvi einhver slagsmál, sem þó munu ekki hafa verið alvarleg. Maðurinn taldi sig hins vegar eiga við ofurefli að etja og við yfirheyrslur hefur hann sagt, að hann hafi séð það eitt ráð að fara niður i bát og vopnast, en þar átti hann haglabyssu, Að sögn lögreglunnar á Höfn veitti drykkjufélagi hans honum eftirför niður að bátshlið, en sneri þá við. Maðurinn sótti hins vegar haglabyssu sina og hóf leit að „ó- vininum”. 1 leit sinni að honum lét hann allmörg skot riða af, ýmist upp I loftið ellegar á hús eða bila. Lögreglan á Höfn sagði, að maðurinn heföi tryllzt af bræði og þá tekið 17 ára gamlan ungling Framhald á bls. 19. Bandarikjunum og höföu um tveggja stunda viödvöl á Kefla- vikurflugvelli á laugardag, gerðu þá kröfu. aö stórblöð birtu yfirlýsingu frelsissamtaka Króatlu, og uröu fjögur stórblöð I Bandarikjunum við þeirri kröfu. Ennfremur var yfirlvsingunni dreift úr flugvél og þvrlum yfir Paris og London. Myndin hér að ofan er. af þessari yfirlýsingu, en frekari fréttir og myndir af flugráninu eru á blaöslðu 6. Verka vothey í sandinum í tveimur gryfjum Gsal-Reykjavík. — Þaö er nú kannski fullsnemmt að spá um það hvernig til hefur tekizt, en eins og þetta er i dag, er ekki ann- að að sjá en að þetta ætli aö gefa góðan árangur, sagði Sigurður Asgeirsson i Gunnarsholti á Rangárvöllum, en siðari hluta sumars voru grafnar tvær vot- heysgryfjur skammt frá bænum, og er það I fyrsta sinn sem tilraun er gerð til þess hérlendis aö verka vothey i slikum gryfjum. Við Gunnarsholt er jarðvegur- inn sendinn, en þéttur og voru gryfjurnar klæddar að innan með plasti. Siöustu vikur hefur votheyi verið ekiö i þessar gryfjur og að sögn Sigurðar lætur nú nærri að um 80 kýrfóður séu I hvorri gryfjunni. TILRAUN VERKUN MEÐ VOTHEYS- í GUNNARSHOLTI Sigurður sagði aö gryfjurnar tvær væru 5 metrar að breidd og um 2-3 metrar að dýpt, en einnig væri hlaöið upp úr jörðinni u.þ.b. tvo metra og breitt yfir heyið, einsog um útihey væri að ræða. Sigurður kvaðst þess fullviss aö viða á landinu væri hægt að vinna vothey á þennan hátt, en tilkostn- aður er eins og gefur að skilja hverfandi litill miðað við bygg- ingu votheysturna. Oft hefur verið haft á orði aö is- lenzkir bændur sinntu of litið vot- heysverkun, en ef tilraun þessi á Gunnarsholti gefur góöan árang- ur, má búast við þvi að bændur hugi meira aö votheysverkun en veriö hefur, einkum þegar sumrin eru votviðrasöm. Gunnarsholt á Rangárvöllum. ...r" y-zrfmnwmmmu

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.