Tíminn - 14.09.1976, Qupperneq 8
8
TÍMINN
Þriöjudagur 14. september 1976.
AF HELGARUMFERÐUM
REYKJAVÍKURMÓTSINS
MÓL-Eeykjavik.Nú er einungis
ein umferð eftir af Reykjavikur-
skákmótinu og óneitanlega
stendur Timman bezt að vlgi —
enda efstur. Það er þó óhætt að
segja að hann megi þakka
lukkudisinni fyrir það. Hvort
tveggja er að hann sigraði I
jafnteflislegum skákum, svo og
töpuðu helztu keppinautar hans
hálfum punktum.
1 siðustu umferðinni, sem
hefst klukkan hálf sex i dag hef-
ur Timman hvitt á Vukcevich.
Friðrik og Tukmakov, sem
koma næstir hafa einnig báðir
hvitt. Friðrik teflir þá við Inga
R. og Tukmakov viö Helga
Ólafsson. Leggja Islendingar
þvi allt sitt traust á þá Vukce-
vich og Helga, svo að Friðrik
eigi möguleika á efsta sætinu.
Þó ætti enginn að eigna Friðrik
vinning á Inga fyrirfram. En við
skulum lita á úrslit helgarum-
ferðanna og nokkrar skákir úr
þeim.
13. umferð
13. umferðin, sem tefld var á
laugardagseftirmiðdaginn, var
hin skemmtilegasta og átti Ingi
R. mestan heiðurinn af þvi. En
úrslit skákanna voru sem hér
segir:
Timman —IngiR. 1-0
Najdorf — Tukmakov 1/2-1/2
Matera — Westerinen 1/2-1/2
Kenn —Haukur 1-0
Antoshin — Vukcevich 1/2-1/2
Friðrik— Helgi biðskák
Björn -Margeir biðskák
Guðmundur — Gunnar biðskák
Þegar umferðin hófst var Ingi
með 7.5 vinninga, en hann þurfti
10 vinninga til að öðlast fyrri á-
fangann I stórmeistaratitlinum,
þ.e. hann þurfti 2.5 vinninga á
móti Timman, Guðmundi og
Friðriki. Þetta er ekki óálitlegt
lið, en það var ekki um annað aö
ræða en bita á jaxlinn og gera
sitt bezta. Og það virtist ætla að
heppnast á mótiTimman, þvi að
Ingi fékk úrvalsstööu upp úr
byrjuninni. Ingi heföi a.m.k. átt
að fá jafntefli út úr þessari
skák.
Byrjunin, sem Ingi valdi, var
spænskur leikur — Marshall
árásin — sem er þekkt fyrir að
leiða til skemmtilegrar baráttu,
enda fórnar svartur peði I
byrjuninni til aö fá færi á hvita
kónginn.
Hvitt: Timman
Svart: Ingi R.
1. e4 — e5
2. Rf3 — Rc6
3. Bb5 — a6
4. Ba4 — Rf6
5. 0-0 — Be7
6. Hel — b5
7. Bb3 — 0-0
8. c3 — d5
9. exd5 — Rxd5
10. Rxe5 — Rxe5
11. Hxe5 — c6
12. d4 — Bd6
13. Hel — Dh4
14. G3 — Dh3
15. Be3 — Bg4
16. Dd3 — Ha-e8
17. Rd2 — He6
18. c4 — Bf4
19. cxd5 — Hh6
20. De4 — Dxh2+
21. Kfl — Bxe3
22. Hxe3 — Hf6
23. f3 — Bf5
24. De5 —
24. — Dhl+?
Hér koma mistökin sem Ingi
gerði. I stað þess að taka hrók-
inn á al, hefði hann átt að drepa
riddarann á d2. Þá hótar hann
Bh3 ásamt máti. A al er svarta
drottningin hans úr leik.
25 Ke2 — Dxal
26. dxc6 — Dcl
27. d5 — Hh6
28. g4 — Bc2
29. Bxc2 — Dxc2
30. c7 — b4
31. He4 — f5
32. Hc4 — Hh2+
33. Dxh2 — He8+
34. Kf2 — Dxd2+
35. Kg3 — Dxd5
36. c8D — De5 +
37. Kh3 — Gefið.
Najdorf og Tukmakov, sem
voru I efsta sæti ásamt Friðriki
og Timman, tefldu saman I
þessari umferð. Ekki vildu
kapparnir reyna að gera út: um
mótið með þvi að tefla til vinn-
ings. Skákin var hin rólegasta
og viö birtum hana hér til aö
sýna mönnum hvernig þessi
svonefndu stórmeistarajafntefli
eru.
Hvltt: Najdorf
Svart: Tukmakov
Nimzoindversk vörn.
1. d4 — Rf6
2. c4 — e6
3. Rc3 — Bb4
4. e3 — c5
5. Rf3 — 0-0
6. Bd3 — d5
7. 0-0 — cxd4
8. exd4 — dxc4
9. Bxc4 — b6
10. Bg5 — Bb7
11. Bd3 — Rc6
12. Hcl — Be7
13. Bbl — Hc8
14. a3 — Rd5
15. Dd3 — g6
16. Bh6 — He8
17. Ba2 — Rxc3
18. Hxc3 — Bf6 1/2:1/2
Matera fékk prýðisgóða stööu
gegn Westerinen, en finnski
stórmeistarinn varðist og hélt
jafntefli.
Hvltt: Matera
Svart: Westerinen
Kongsindversk vörn
1. d4 — Rf6
2. c4 — g6
3. g3 — Bg7
4. Bg2 — 0-0
5. Rf3 — d6
6. 0-0 — Rc6
7. Rc3 — e5
8. d5 — Re7
9. e4 — Re8
10. Rg5 — h6
11. Rh3 — c5
12. Í4 — Bd7
13. Be3 — Dc8
14. Rf2 — Kh7
15. fxe5 — dxe5
16. d6 — Rc6
17. Bxc5 — Ra5
18. b4 — b6
19. Bxb6 — axb6
20. bxa5 — bxa5
21. Rd5 — Ðc5
22. Db3 — Rxd6
23. Db6 — Hac8
24. Hacl — Be6
25. Hfdl — Dxb6
26. Rxb6 — Hc6
27. c5 — Rb7
28. Bh3 — Bxh3
29. Rxh3 — Rxc5
30. Rd5 — Hcc8
31. Re7 — Hc7
32. Rd5 — l/2:l/2
Skák Keens og Hauks var
hörku skemmtileg. Keen gaf
hrók og tvo létta menn til að fá
drottningu Hauks. Venjulega
hefði maður haldið, að sílk
skipti væru svörtum (Hauk) I
hag. Það reyndist þó ekki vera
svo, og kom þar bæði til, að
Keen fékk tvö peö upp I, svo og
var staöa hans öllu þægilegri.
Hvltt: Keeni'
Svart: Haukur Angantýsson
Kóngsindversk vörn
1. c4 — gO
2. e4 — Bg7
3. d4 — d6
4. Rc3 — Rf6
5. Be2 — 0-0
6. Rf3 — e5
7. 0-0 — Rbd7
8. Hel — c6
9. Bfl — Rg4!?
10. h3 — Rh6
11. Hbl — f6
12. b4 — Rf7
13. b5 — f5!
14. bxc6 — bxc6
15. Ba3 — éxd4!?
16. Rxd4 — Df6
17. Rxc6!! — Dxc3
18. Bb2 — Dxb2
19. Hxb2 — Bxb2
20. exf5 7G5?!
21. c5! — dxc5
22. Re7+ — Kg7
23. Rxc8 — Bd4
24. He7 — Rf6
25. Hxa7 — Rd5
26. Hb7 — Rc3
27. Df3 — Kh8?
28. Hxf7 — 1:0
Antoshin tefldi frekar veikt á
móti Vukcevich og fékk Banda-
rikjamaðurinn ágæta stöðu. í
tlmahrakinu lék Vukcevich hins
vegar af sér og tapaði. Þetta
voru nokkuð sorgleg úrslit fyrir
Vukcevich, en hann hefur teflt
undir ítyrkleika á þessu móti.
Vonandi gerir hann þó betur I
kvöld.
Hvltt: Antoshin
Svart: Vukcevich
Griinfeldsvörn.
1. d4 — Rf6
2. c4 — g6
3. g3 — Bg7
4. Bg2 — d5
5. cxd5 — Rxd5
6. e4 — Rb6
7. Re2 — 0-0
8. 0-0 — Rc6
9. d5 — Ra5
10. Rbc3 — c6
11. b3 — cxd5
12. exd5 — Bg4
13. Bd2 — e6
14. dxe6 — Bxe6
15. Hcl — Rc6
16. Re4 — De7
17. Bg5 — f6
18. Be3 — HfdS
19. Del — Rd5
20. Bc5 — Dd7
21. Hdl — Dc7
22. Ba3 — Bf7
23. Bb2 — Re5
24. Hd2 — De7
25. Dal —f5
26. Rc5 — Bh6
27. Rf4 — Rxf4
28. Hxd8-|---Hxd8
29. gxf4 — Bxf4
30. Rxb7 — He8
31. h3 — Rd3
32. Bf6 — Dc7
33. Ddl — Rb4
34. a3 — Rc6
35. Rc5 — Re5
36. b4 — Rc4
37. Hel — Hxel
38. Dxel — Rxa3
39. Bd5 — Bh2+
40. Kfl — Db8??
41. Bxf7+ — Kxf7
42. De7+ — 1:0
Eins og segir að ofan, fóru
aðrar skákir þessarar umferðar
I bið og frá úrslitum biðskák-
anna segir á þriðju blaöslöu.
Su biðskák, sem vakti mesta
athygli, var skák Friðriks og
Helga. Sá síðarnefndi veitti
stórmeistaranum harðvltuga
mótspyrnu, en staðan var þann-
ig, þegar hún fór I bið. Friörik
hafði hvltt:
14. umferð
Þótt 13. umferðin hafi verið
skemmtileg, var sú 14. mun
skemmtilegri, og þá sérstak-
lega fyrir þær móttökur, sem
„veikari” mennirnir veittu
efstu mönnum mótsins. En úr-
slitin urðu sem hér segir:
Keeni—Matera 1/2-1/2
Ingi—Guðmundur 1/2-1/2
Gunnar—Friðrik 1/2-1/2
Helgi—Najdorf biðskák
Margeir—Timman biið.skák
Vukcevic—Björn biðskák
Haukur—Tukmakov biðskák
Westerinen—Antoshin biðskák
Keene og Matera sömdu um
jafntefli eftir að hafa teflt tlð-
indalausa skák.
Ingi og Guðmundur tefldu
einnig rólega skák og sömdu um
jafntefli eftir aðeins 16 leiki.
Gunnar lék kóngspeðinu fram
um tvo leiki á móti Friðriki, öll-
um á óvart, þvl að hingað til I
þessu móti hefur hann val:ið c4,
sem byrjunarleik. Þetta gafst
þó vel — enda hefur Gunnar oft
áður teflt kóngspeðsbyrjanir.
Hann tefldi skákina vel, og jafn-
tefli voru því rökrétt úrslit.
Hvltt: Gunnar
Svart: Friðrik
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5
2. Rf3 - - e6
3. d4 — cxd4
4. Rxd4 — Rc6
5. Rc3 - - a6
6. Be3 - - Dc7
7. Dd2 - - Rf6
8. a3 — b5
9. Rxc6 — Dxc6
10. f3 — Bb7
11. C5 — Rd5
12. Rxd5 — Dxd5
13. Dxd5 — Bxd5
14. a4 — b4
15. Bd4 - - Be7
16. Bd3 - - f6
17. 0-0-0 — f5
18. b3 — Kf7
19. Hh-fl — h5
20. g3 - Bc6
21. Be3 - - g5
22. h3 — Kg7
23. Kbl - - Bd5
24. Hd2 - - h4
25. g4 — fxg4
26. fxg4! — Hh-f8
27. Hxf8 — Bxf8
28. Bc3 - - Be7
29. Bc4 - - Bc6
30. Bfl - - Kf7
31. Hf2+
Jafntefli.
Helgi fékk á sig uppáhalds-
byrjun Najdorfs — kóngsind-
verska vörn. Helgi var þó öllum
hnútum kunnugur og hafði
lengst af betri stöðu en þegar
skákin fór I bið, var hún þó jafn-
teflisleg.
Margeir tefldi einnig vel, en
hann gllmdi við Timman. Stað-
an var mjög lokuð og nær þvl ó-
tefld, þegar hún var sett I bið.
Björn hafði betri stöðu á móti
vukcevich, þegar skák þeirra
var sett I bið.
Westerinen og Antoshin tefldu
rólega og var biðstaðan jafntefl-
isleg.
Haukur og Tukmakov tefldu
skemmtilega skák. Sovézki
stórmeistarinn fórnaði skipta-
mun til að skapa sér færi. Þó
tókst honum ekki að gera út. um
skákina áður en hún fór I bið,
enda tefldi íslandsmeistarinn
mjög vel. Biðstaðan var nokkuð
óljós, en Haukur ætti varla að
tapa henni.
Kennarar gagnrýna enn
úrskurð kjaranefndar
Kennarafélag Kópavogs og
Kjósarsýslu hélt f jölmennan fund
i Kársnesskóla miðvikudaginn 8.
september 1976. Fundarefni var
úrskurðaður kjaranefndar s.l.
sumar um laun, réttindi og skyld-
ur kcnnara á barnaskólastigi.
A fundinum kom fram töluverð
undrun og gagnrýni á ýmis
ákvæði og orðfæri þessa kjara-
plaggs.
Þá vekur það mikla athygli, að
nýútskrifaðir kennarar frá
kennaraháskólanum fara beint i
sama launaflokk og kennarar
með eldra kennarapróf, sem hafa
áunnið sér fulla starfsreynslu i
tilskilin 12eöa 6 ár. Mörgum virð-
ist þetta vera ærið vanmat á
kennaraskólaprófi þeirra, sem
ekki áttu annars kost á sínum
tima, og starfsreynslu, sem þó er
lögð til grundvallar að launum
kennara meiri hluta starfsævi
þeirra.
Fundurinn gerði svohljóðandi
ályktun:
„Fundur Kennarafélags Kópa-
vogs og Kjósarsýslu, haldinn i
Kópavogi 8. september 1976, lýsir
yfir vanþóknun sinni og miicilli
óánægju með það óréttlæti gagn-
vart kennurttffi' 1*. til 6.bekkjar
grunnskóla, sem fram kemur i
úrskurði kjaranefndar.
Fundurinn vekur sérstaklega
athygli á eftirfarandi atriöum,
þar sem þessir kennarar eru
beittir augljósum órétti miðað við
aðra kennara grunnskólans:
1. Lengri vikuleg vinnuskylda.
2. Skert laun þeirra, sem starfa
við átta mánaða skóla.
Lægri stigagjöf fyrir hvertstarfs-
ár.
4. Lægra yfirvinnukaup.
Fundurinn felur stjórn og
samninganefnd SÍB að krefjast
þegar I stað leiðréttingar á
framangreindum atriðum.
Beri samningaviðræður ekki
viðunanlegan árangur fyrir 15.
okt., telur fundurinn rétt að kalla
saman aukaþing SIB þar sem
teknar verði ákvarðanir um frek-
ari aðgerðir.
Fundurinn heiör á alla félags-
menn SÍB að standa einhuga um
hverjar þær aðgerðir, sem nauð-
synlegar kunna að reynast.