Tíminn - 14.09.1976, Blaðsíða 20
Þri&judagur
14. september 1976.
kFk
FÓÐURVÖRUR
þekktar
UM LAND ALLT
fyrir gæði
Guðbjörn
Guðjónsson
Heildverzlun Slðumúla 22
Simar 85694 8. 85295
LEIKFANGAHÚSIÐ
Skólavörðustíg 10-Sími 1-48-06
Ævintýra-
maðurinn
Póstsendum
Skriðdrekar
Þyrlur
Jeppar
Bátar
/*ALLAR TEGUNDIR
FÆRIBANDAREIMA
FYRIR
Lárétta
færslu
Einnig: Færibandareimar úr
ryðfriu og galvaniseruðu stáli
ÁRNI ÓLAFSSON & CO.
.—— 40088 ÍS* 40098 —
Ford beitir neitunarvaldi
gegn inntöku Vietnam í SÞ
Reuter, Washington.— Gerald
Ford, Bandarlkjaforseti, skip-
aöi i gær sendinefnd Bandarikj-
anna hjá Sameinuöu þjóöunum
aö beita neitunarvaldi gegn um-
sókn Vietnam um upptöku i
samtökin, aö þvi er William
Scranton, sendiherra USA hjá
S.þ. sagöi i gær.
Búizt er viö, aö umsóknin
komi fyrir öryggisráö S.þ. I dag,
en i þvi eiga fimmtán aöildar-
þjóöir fulltrúa.
Scranton sagöi i gær, aö for-
setinn heföi ákveöiö aö beita
neitunarvaldi vegna þess, aö
stjórnvöld i Vietnam heföu sýnt
— algeran skort á sanngirni
gagnvart kröfum Bandarikja-
manna um upplýsingar um
hundruö Bandarikjamanna,
sem enn er saknaö siöan I Viet-
nam-styrjöldinni —.
A s.l. ári beittu Bandarikja-
menn neitunarvaldi gegn um-
sóknum bæöi Suöur- og Noröur-
Vietnam um upptöku I samtök-
in, en þaö var áöur en rikin tvö
sameinuöust.
Umsóknir um upptöku i S.þ.
veröa aö hljóta samþykki
öryggisráös S.þ. — en þar geta
fimm fastafulltrúar beitt
neitunarvaldi — áöur en þær
koma fyrir allsherjarþing sam-
takanna.
Bandarikjamenn beittu fyrr á
þessu ári neitunarvaldi gegn
inntöku Angóla á þeim forsend-
um, aö kúbanskir hermenn
væru enn þar i landi.
Scranton sagöi I gær, þegar
hann fjallaöi um umsókn Viet-
nam, aö tvennt væri einkum
lagt til grundvallar, þegar inn-
taka rikis væri athuguö, þaö er,
aö rikiö væri friösamlegt og
mannúölegt.
— Ekkert mál I sambúö
Bandaríkjanna og Vletnam, eöa
I veröldinni yfirleitt, er
ómannúölegra en alger skortur
Vietnama á sanngirni I þvi aö
gefa upplýsingar um þá, sem
enn er saknaö, sagöi hann siöan.
Fyrir tiu dögum veittu Viet-
namar Bandarikjamönnum
upplýsingar um tólf bandariska
hermenn, en bandariskir
embættismenn halda þvi fram
aö enn vanti a.m.k. hundraö og
fimm-tiu menn.
Ford forseti kraföist þess I
siöustu viku, aö fullar upplýs-
ingar yröu veittar um menn
þessa, ef samband milli Banda-
rikjanna og Vietnam ætti aö
veröa eölilegt.
Vietnamar sökuöu I gær
Bandarikjamenn um aö nota
mál þetta til aö afvegaleiöa
almenningsálit I heiminum.
.....
Japan:
Flutt heim
Reuter, Tokyo.— Sendinefnd
á vegum japönsku rikis-
stjórnarinnar kom I gær til
Japan meö jaröneskar leifar
nær eitt þúsund og þrjú-
hundruö japanskra her-
manna, sem féliu á Mariana-
eyjum i slöari heims-
styrjöldinni.
Um tvö hundruð og fimm-
tiu þúsund japanskir her-
menn féllu á Mariana-eyj-
um, þar sem einhverjir hörð-
ustu bardagar styrjaldarinn-
, ar áttu sér staö.
HEimSHORNA
' ÁIVIILLI
Reuter, Jerúsalem. — Yigal
Allon, utanrikisráöherra ísra-
el, fordæmdi I gær skýrslu eins
af embættismönnum stjórnar-
innar, þar sem lagt er til aö
fjölgun Araba I Galileu veröi
hindruö, og kallaöi hann
skýrslu þessa — Aumlegt skjal.
Allon sagöi, aö skýrsla
þessi, sem unnin er af Yisröel
König, aöalfulltrúa Israelsku
rikisstjórnarinnar I Galileu,
heföi skaöaö lýöræöis-mynd
tsraelsrikis og tilraunir
stjórnvalda þar til þess aö fá
Gyöinga og Araba til aö lifa og
starfa saman I Galfleu.
1 skýrslunni er lagt til, aö
þeim leiötogum Araba á svæö-
inu sem gagnrýna stjórnvöld,
verði harölega hegnt, minnk-
uð veröi fjárframlög til stórra
Arabafjölskyldna þar, og ung-
ir Arabar verði hvattir til þess
að nema og setjast aö erlend-
is.
Skýrsla þessi var skrifuö
fyrir um sex mánuöum eftir
að miklar óeiröir uröu meöal
Araba I ísrael, en I þeim
misstu sex þeirra lifið. Hátt-
settir ráöherrar hafa lýst sig
meö öllu ósamþykka niður-
stöðum hennar, en óánægja
meðal Araba er mikil vegna
þess aö König er enn á svæö-
inu.
Allon sagöi i gær, aö hann
undraöist hvernig König gæti
sýnt andlit sitt meöal Araba
eftir birtingu skýrslunnar.
— Þetta er aumlegt skjal,
sagði Allon, og þaö eru alls
engin tengsl milli innihalds
þess og raunverulegrar stefnu
rikisstjórnarinnar.
Alþjóðlegi skæruliðinn Carlos á ferðinni?
Talinn hafa komið við í
Belgrad
r
Óttazt, að hann kunni að grípa
aðgerða að nýju
til
Reuter, Bonn. — Vestur-Þjóð-
verjar komust aö þvi I siöustu
viku, aö alþjóöalegi skæruliöinn
Carlos væri liklega niðurkominn I
Júgóslaviu.
Talsmaöur v-þýzka utanrikis-
ráðuneytisins sagöi I gær, aö
rikisstjórnin heföi frétt, aö Carlos
Martinez, Venezúelamaöur aö
uppruna, og Vestur-Þjóöverjinn
Hans-Joachim Klein, sem báöir
tóku þátt I skæruliöaárásinni á
höfuðstöövar OPEC (samtök
oliuútflutningsrikja) I Vin I
desembermánuði siöastliönum,
væru staddir I Belgrad.
Embættismenn rikisstjórnar-
innar sögöu i gær, að Júgóslavar
heföu boriö þetta til baka og sagt,
að mennirnir tveir, sem átt var
við, væru ekki Carlos og Klein.
Handtökuskipun hefur veriö
gefin út á Klein I Vestur-Þýzka-
landi vegna aöildar hans aö
OPEC árásinni, en Carlos, sem i
raun heitir Illich Raminez Snach-
ez, er leitað af yfirvöldum bæöi I
Frakklandi og Austurriki, vegna
afbrota I þeim löndum.
Vestur-þýzka timaritiö Spiegel
skýröi frá þvi i gær, án þess aö
nefna heimildir, aö mennirnir
tveir heföu komiö til Júgóslaviu
frá Alsir siöastliöinn mánudag.
Timaritiö sagði, aö fylgzt heföi
veriö meö þeim i Júgóslaviu, en
þeir ekki handteknir, þar sem
yfirvöld hafi viljaö komast aö þvi,
hverjir væru tengiliðir þeirra.
Siöan sagöi timaritiö, aö
mönnunum tveim heföi verið
fylgt út á flugvöll I Belgrad eftir
fjögurra daga dvöl i Júgóslavia
og þeir settir um borö I flugvél á
leið til Damaskus og Bagdad.
Undanfarið hafa borizt óljósar
fregnir af þvi að Carlos hyggi á
aðgerðir i Evrópu, en yfirvöld
kannast ekki við að hafa meðtekiö
viðvaranir þess eölis.
Lögreglan I Frakklandi skýröi
frá þvi, að síðastliöinn mánuö
hafi sérstakar varúöarráöstafan-
ir veriö geröar á öllum frönskum
flugvöllum vegna viövarana
njósnastofnana um, aö skæruliöa-
aögeröir væru i vændum, en hins
vegar hefði Carlos ekki verið sér-
staklega nefndur i þessu sam-
bandi.
Vorster brevtir litlu í innanríkismálum
Ekki búizt við afgerandi
þróun í Ródesíu heldur
Reuter, Pretoria. — John Vorst-
er, sem nú hefur gegnt embætti
forsætisráöherra Suöur-Afriku
um nákvæmlega tiu ára skeiö,
stendur nú frammi fyrir timabili,
sem margir telja að veröi hiö
erfiöasta á embættisferli hans, en
undanfarið hefur aukizt mikiö
þrýstingur á stjórn hans aö
breyta stefnu sinni I innanlands-
málum.
Meðan vandræöin héldu áfram
að steöja að I formi verkfalls
blökkumanna i Soweto-bæjar-
hverfinu, til að mótmæla kyn-
þáttaaöskilnaöarstefnu stjórnar
Vorsters, lauk forsætisráöherr-
ann, sem nú er sextugur, viö gerö
ræöu þeirrar, sem hann átti I gær-
kvöld aö halda á ársþingi flokks-
sins.
Undanfariö hafa óeirðir kyn-
blendinga, sem og blökkumanna,
kostað meir en þrjú hundruð
mannslif.
Haft er eftir áreiöanlegum
heimildum, aö Vorster muni aö
öilum likindum skýra flokksþing-
inu frá þvi, hvaö hann hyggst fyr-
ir I bæöi innanlands- og utanrikis-
málum.
Taliö er, aö rlkisstjórn hans
muni taka ákveðna og ósveigjan-
lega afstööu i innanrikismálum,
en þó jafnframt boöa til einhverra
umbóta.
BUizt er viö, aö meöal umbót-
anna verði afnám á núverandi
stjórnskipulagi I landinu þannig
að i staöinn komi eins konar for-
setavald og sambandsstjórn allra
kynþátta.
Haft er þó eftir áreiöanlegum
heimildum aö ekki megi búast viö
róttæku fráhverfi frá kynþáttaað-
skilnaöarstefnu stjórnarinnar i
Suöur-Afriku.
I dag mun Vorster eiga viöræö-
ur viö Ian Smith, forsætisráö-
herra Ródesiu, um „Kissinger-á-
ætlunina” um friö I suöurhluta
Afriku.
Búizt er viö, aö Vorster skýri
Smith nákvæmlega frá tillögum
Bandarikjamanna um, aö meiri-
hlutastjórn blökkumanna veröi
komiö á I Ródesiu innan tveggja
ára meö ákveðnum tryggingum
fyrir hvita minnihlutann I
landinu.
Vorster hefur alltaf sagt, að
hann sé reiðubúinn til aö beita
áhrifum sinum viö Smith og
stjórn hans, en ekki beinum
þrýstingi. Ekkert viröist benda til
þess, að hann hafi nú breytt þeirri
afstööu sinni.
Ródesia á efnahagslega af-
komu sina undir Suöur-Afriku, en
taliö er óliklegt, að Vorster muni
reyna að þvinga Smith meö þvi að
loka á viöskiptallfæð hans um
Suður-Afriku.
Þvi viröast litlar likur á þvi, aö
viðræöur þessar leiöi til afgerandi
niðurstööu I Ródesiu-málinu.
Frakkland:
Stórrán í
spilavíti
Reuter, Deauville. Klukkan rúm-
lega þrjú, aöfaranótt mánu-
dags, þegar þreyttir fjarhættu-
spilarar I spilavitinu I Deauville I
Frakklandi voru að leggja undir I
siðasta sinn á rúlettuboröunum
þar, ruddust þar fjórir grimu-
klæddir og vopnaöir menn inn og
rændu um þrjú hundruö og fimm-
tiu þúsund sterlingspundum.
Um fjörutiu manns voru I spila-
vitinu — fjárhættuspilarar, spila-
stjórar og gjaldkerar — og var
þeim skipað aö leggjast á gólfiö.
Ræningjarnir, sem vopnaöir
voru byssum, báru grimur úr
sokkum og hettur og klæddust
bláum gallabuxum, bundu hend-
ur allra viðstaddra á bak aftur
áöur en þeir tæmdu skúffur þær
sem innihéldu innkomið fé þá um
kvöldiö og nóttina.
Þeir hreinsuöu einnig alla
peningaseðla af boröunum og
börðu einn gjaldkera I höfuöiö
meö skammbyssuskefti, þegar
hann tregðaöist viö aö opna
skúffu sina.
Lögreglan I Deauville segir, aö
ræningjarnir hafi augsýn ilega
þekkt staðhætti i spilavitinu mjög
vel, þvi aö þeir hafi vitað ná-
kvæmlega hver gegndi hvaöa
stöðu þar og hvar peningar væru
geymdir.
Aður en ræningjarnir hurfu út i
nóttina, ráku þeir alla þá sem i
spilavítinu voru inn á salérni þess
og i simaklefa og sögöu þeim aö
hreyfa sig ekki I fimmtán minút-
ur.
Eftir fáeinar minútur hreyfði
einn spilastjóranna höfuö sitt, til
þess aö sjá hvað væri að gerast,
en þá var sagt fyrir aftan hann,
alvarlegri röddu: — Ég sagöi þér
aö hreyfa þig ekki.
Fólkið beiö þvi i fullar fimmtán
minútur, áöur en þaö geröi viö-
vart um fanið, en spilavitiö var
ekki tengt viövörunarkerfi I
neinni lögreglustöö.
Timann vantar fólk til
blaðburðar i eftirtalin
hverfi:
Laufásvegur
Eskihlíð
Bólstaðahlíð
Túnin
Suðurlandsbraut
Langagerði
Seljahverfi
Sendlar óskast
fyrir hódegi
SÍMI 1-23-23