Tíminn - 29.09.1976, Blaðsíða 2

Tíminn - 29.09.1976, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Miövikudagur 29. september 1976 erlendar fréttír • Harðir bardagar í Líbanon í gær Reuter, Beirút. — Miklir bardagar geisuöu i gær f fjaliahéruöunum austur af Beirdt, höfuöborg Libanon, eftir aö sameinaöir herfir hægrisinnaöra Libanona og Sýrlendinga höfu tvfþætta sókn gegn sameiginiegum herjum vinstrisinnaöra Libanona og Palestlnuskæru- liöa. Innan scx klukkustunda frá þvi aö bardagarnir hófust sendi Yasser Arafat, leiötogi Palestinumanna frá sér hjálparbeiöni til allra leiötoga Arabarikja, sem hann baö um aö stööva þaö sem hann kall- aði „þetta nýja fjöldamorö”. Haft er eftir heimitdamönnum meöal Palestlnumanna aö hann hafí hringt sjálfur til Khalcd Saudi-Arasiukonungs, Gaddafi, þjóöarleiötoga Libýu og Boumedienne Alsirforseta. Gtvarpsstöövar beggja styrjaldaraöila skýrðu frá þvi i gær að harðir bardagar geis- uöu og skriðdrekum, stór- skotaliöi, eldflaugum og flug- vélum væri beitt. Talið er aö sókn þessi sé ein hin mesta siöan Sýrlendingar hófu afskipti af borgara- styrjöldinni i Libanon. Virðist hún beinast aö þvi aö reka Palestinumenn og vinstrisinn- aöa Libanona af f jallasvæöun- um, áöur en snjóar gera um- ferö þungra farartækja yfir þau ómögulega, i næsta mán- uði. 0Aukin spenna hjá Spánverjum Reuter, Madrid. —Námsmaö- ur i Madrid lézt i gær af sár- um, sem hann hlaut I mót- mælaaögerðum gegn spænsku rikisstjórninni á mánudags- kvöld, og spenna jókst til muna á Spáni i gær, eftir póli- tisk verkföll og átök á mánu- dag. Námsmaðurinn, Carlos Gonzalez Marines, rúmlega tvitugur sálfræöinemi, fékk á mánudagskvöldiö skot i kviö- inn, aö þvi er viröist i átökum viö öfgamenn til hægri. Lög- reglan hefur neitaö að hafa beitt skotvopnum, þegar hún dreiföi hópum námsmanna i borginní þetta kvöld. 1 Baskahéruöunum, sem veriö hafa miðpunktur mót- mælanna gegn stjórninni, sneru andófsmenn til vinnu aö nýju i gær, sannfæröir um aö þcir heföu sýnt stjórnmálaleg- an styrk sinn nægilega. t bænum Azcoitia, nálægt San Sebastian, sprakk sprengja I lyfjaverzlun, sem eiginkona bæjarstjórans þar rekur, en bæjarstjórinn er tal- inn ákafur stuöningsmaöur þjóöernishreyfingar Baska. • t fáum orðum ...hafnaryfirvöld i Chalkis I Grikklandi tóku I gær 1.500 riffla og 300 sjálfvirkar skammbyssur i flutninga- skipi, sem kom frá Kýpur. ...átta af stuöningsmönnum Baader-Meinhof hreyfingar- innar þar á meöal þrjár konur, voru I gær dæmdir til tveggja til sjö ára fangelsisvistar, fyr- ir glæpastarfscmi. ...rúmlega hálfrar annarrar aldar gömul flaska af Claret vini, var I gær seld á uppboöi fyrir þrjú hundruö sterlings- pund. ...tvö stærstu samtök þel- dökkra þjóöernissinna i Ró- desiu deiidu f gær harölega um þaö hvernig þau gætu náö ein- ingu sin á milli. „Mikill vatnsskortur yfirvofandi í vetur" — segir Pétur Már Jónsson' bæjarstjóri á Ólafsfirði gébé Rvík. — Við sjáum fram á mjög slæmt ástand hér í vetur, ef ekki rignir áður en fer að frysta og snjóa, því vatnsskorturinn verður þá mikill, sagði Pétur Már Jónsson bæjarstjóri á ólafsf irði í viðtali við Tímann í gær. — Það hefur varla kom- ið deigur dropi úr lofti í margar vikur, og þaðhefur ekki rignt hér heilan dag síðan í byrjun ágúst, sagði hann, við verðum því að fara að hugsa til framkvæmda um nýja aðveitu til bæjarins og þetta sýnir okkur reyndar að hjá því verður ekki kom- izt. — Við fáum vatn úr Brimnes- dal, sem er austanvert i firöinum, sagöi Pétur Már, en undanfarin tvö sumur hafa verið geröar kannanir og mælingar á vatni i Burstabrekkudal, sem er skammt frá. Þar hafa bæði jarö- fræðingar frá Orkustofnun verið aö verki svo og heimamenn, sem fylgjast með vatnsmagninu þar. Virðist þar vera um meira vatns- magn að ræða en i Brimnesdal og litur þvi mjög álitlega út til að- veitugerðar. Pétur Már sagði að sennilega yrði litið úr framkvæmdum á þessu ári, en leggja þarf leiðslur úr Burstabrekkudal um þriggja og hálfs kilómetra vegalengd til Ólafsfjarðar. — Kostnaðurinn við aðveitu sem þessa er lauslega áætlaður um tuttugu milljónir króna, sagði Pétur Már. Undanfarin ár hefur orðið vart við vatnsskort á Ólafsfirði i febrúar-marz á hverjum vetri og ef ekki rignir áður en snjóa fer og frysta i haust, verður ástandið þar vægast sagt mjög alvarlegt i vetur. Þá hjálpar einnig til að siðastliðinn vetur var mjög snjó- léttur i Ólafsfirði. Að lokum sagði Pétur Már að enn sem komið væri, hefði litið orðið vart við vatnsskort. ...... ..............■■«■■■• i Skipakaup Eimskip: „Ýmislegt, sem við getum gert — en það ræðst allt af fjármagni" segir Óttarr Möller HV-Reykjavik. — Viö höfum séö ýmislegt, sem viö gætum gert, en ekkert hefur veriö ákveöiö, enda ræöst þetta svo mikiö af þvf fjármagni, sem fyrir hendi er, sagöi Óttarr Möller, forstjóri Eimskipafélags Islands, f viötali viö Timann igær. óttarr er nýkominn að utan, þar sem hann, meðal annars at- hugaði þá möguleika, sem fyrirfinnastum skipakaup, en eins og fram kom i frétt i Timanum i siðustu viku, hefur Eimskip hug á að endurnýja skipastól sinn að einhverju leyti, enda sum skip- anna komin nokkuð til ára sinna. Óttarr mun meðal annars hafa skoðað skip i Noregi og Dan- mörku. — Annars er ekkert af þessu að frétta, nema að við höfum þetta allt i athugun, og engar ákvaröanir hafa verið teknar sagði Óttarr i gær. Pétur Már Jónsson, bæjarstjóri f Ólafsfiröi Æ 5 — á Egilsstöðum og líklegt að byrjað verði á fleirum í haust gébé Rvik. — Þetta er sami barningurinn og verið hefur aö undanförnu, Htiö aö fá f hverju hali, en þetta lemst upp á löngum tfma, sagöi Andrés Finnbogason hjá Loönunefnd um veiöina. Þá sagöi Andrés aö rannsóknar- skipiö Arni FriÖriksson væri enn viö loönuleit, og heföi fariö langleiöina austur aö Jan Mayen um helgína, en var f gærmorgun fariöt; aö nálgast miöin þar sem loönan veiddist fyrst I sum- ar, eða um 120-130 milur norður af Siglufirði. — Ekk- ert fannst þó sem gagn var að, sagöi Andrés. Um helgina tilkynntu þrir bátar um loönuveiöi. Hákon landaði 250 tonnum f Kefla- vík a laugardag, en á mánu- dag landaði Guðmundur tæplega 600 tonnum i Kefla- vfk og Arsæll Sigurðsson, sama dag, 140 tonnum á Bol- ungarvfk. J.K. Egilsstöðum. — Undanfarið hef ur staðið yf ir gatna- gerð hér á Egilsstöðum, svo og lagning á kantsteinum. Er nú lokið við að leggja kantsteina við þrjár götur og meira verður ekki gert í haust, þar sem vélin fer nú á Seyðisf jörð. Þá stendur til í haust að undirbyggja eina götu undir varanlegt slitlag. 1 sambandi við gatnagerðina hefur og farið fram lagning vatnsleiðslna og holræsa, en þar erstærsta verkefnið lagning aðal- æðar að nýrri mjólkurstöð, sem er töluvert verk, svo og holræsa- lögn i nýju ibúðarhúsahverfi. Hér hefur verið i byggingu sextán íbúða blokk, samkvæmt lögunum um leiguibúöir sveitafé- laga, og verður siðari helmingur ibúðanna afhentur um næstu mánaðamót, en þegar er flutt inn i átta ibúöir. Mikil aðsókn var um ibúðir þessar og fengu færri en vildu, enda húsnæðisvandamálið mjög stórt hérna og viröist ekkert lát á, þótt mikið sé byggt. Nú eru á milli þrjátiu og fjöru- tiu einbýlishús i smiðum hér, en byrjað var á tólf þeirra nú i sum- ar. Hugsanlegt er að byrjað verði á enn fleiri húsum nú i haust, þar sem tiðarfar er mjög gott til þeirra hluta. Þrjátiu lóðum var úthlutað um siöustu áramót, en þá voru opnaðar tvær nýjar göt- ur. Af öðrum framkvæmdum er það að segja að unnið er við skólahús hér og verður lokið við fjórar nýjar kennslustofur nú riæstu daga. Þrengsli eru mjög mikil i skólanum. Þá er unnið i grunni væntanlegs Menntaskóla og er búið að bjóða út fyrsta áfanga framhaldsins. Loks er verið aö slá upp fyrir viöbyggingu við Valaskjálf, það er hóteiálmu og er ætlunin að steypa upp á næstunni, en veriö er að útvega fjármagn fyrir frekari framkvæmdum Miklar framkvæmdir hafa ver- iðhjá prjónastofunni Dyngju und- anfarið og er hún komin i nýtt húsnæði, þannig að öll starfsemin er undir sama þaki. Hefur saumastofan verið endurskipu- lögð frá grunni og er nú væntan- leg ný prjónavél á næstunni, sem verður til mikilla bóta. Nú er hafin framleiðsla á flik- um úr nýrri blöndu af ull og gerviefni og binda þeir miklar vonir við það. Um þrjátiu manns hafa nú at- vinnu við prjónastofuna og sagöi framkvæmdastjóri hennar að næg verkefni væru framundan. Haustslátrun hófst hér þann 10. september og gengur vel. Þegar hefur verið slátrað um sextán þúsund fjár hjá Kaupfélagi Hér- aðsbúa, en áætlað er aö slátrað verði um sjötiu þúsund fjár í haust. Þungi dilka er i meðallagi, en þó heldur lakari en i fyrra. ’ib-tlkrfj. Á fjórða tug ein- býlishúsa í smíðum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.