Tíminn - 29.09.1976, Blaðsíða 20
LEIKFANGAHÚSIÐ Skólavörðustíg 10-Sími 1-48-06
Bruöu- ffcfbarna-
vagnar regnhlífa-
kerrur kerrur
rúm A. TW
hús v 1 Póstsendum i
RAFDRIFIN
BRÝNI
Brýning tekur aöeins
1—2 mínútur.
Stærö aöeins
25x20x15 sm.
EINNIG: 30 tegundir Victorinox
hnlfa — ryöfrítt stál meö
' Nylon sköftum.
ÁRNI ÓLAFSSON & CO.
—n . 40088 a* 40098
24.843 innstæðu-
lausir tékkar
gefnir út í fyrra
Gsal-Reykjavik — Arið 1964 nam
fjárhæð þeirra tékka, sem Seðla-
bankinn fékk til innheimtu alis
um 25 milljónum króna. Þessi
upphæð var komin upp i 47
milljónir árið 1970, i 97 milljónir
1972, 130 milljónir 1973, 360
milljónir 1974 og i 550 milljónir á
siðasta ári.
Þessar upplýsingar fékk Tim-
inn hjá Bjarna Kjartanssyni I
Seðlabankanum i gær.
0>rið 1973 voru innstæðuiausu
tékkarnir samtals 12.331, ári síð-
ar voru þeir 19.207 og i fyrra voru
þeir 24.843.
1 árslok i fyrra voru 70 milljónir
króna ógreiddar af þeim 550
milljónum, sem Seðlabankinn
fékk til innheimtu, og i árslok 1974
voru 47,5 milljónir króna af 360
milljónum ógreiddar.
Innstæðulausir tékkar, sem
Seðlabankinn þurfti að kæra út af
á sfðasta ári voru 6103 að upphæð
rúmlega 125 milljónir króna og
komu þar 1240 aðilar við sögu.
Arið 1974 voru þessir inn-
stæðulausu tékkar 5068 að fjár-
hæð tæplega 103 milljónir króna
ogkomu þar 1207 aöilar við sögu.
Arið 1973 voru tékkarnir 3200,
upphæðin rúmlega 29 milljónir og
aðilarnir 684.
Bjarni Kjartansson sagði, að
viðskiptabankarnir ættu að senda
imvstæðulausar ávisanir til inn-
heimtu i Seðlabankann og það
sem Seðlabankinn gerði þegar
hann fengi slikar ávisanir, væri i
stuttu máli það, aö samdægurs
sendi hann útgefenda tékkans og
framseljanda, ef ekki væri um
sama mann að ræða, bréf, þar
sem honum eða þeim væri til-
kynnt um það, að Seðlabankinn
hefði verið beðinn um að inn-
heimta tékkann, þar sem ekki
hefði verið til innstæða fyrir hon-
um. 1 þessu bréfi er viðkomandi
hvattur til þess að greiða skuld
sina i Seðlabankanum og er þeim
boðið upp á það að leysa málið á
þann hátt, að greiða upphæð tékk-
ans og að auki 10% innheimtu-
gjald, 2% dráttarvexti fyrir hvern
byrjaðan mánuð, svo og grunn-
gjald, sem er mismunandi eftir
þvi hversu tékkinn er hár. Ef
tékkinn er að upphæð innan við
1000 krónur er grunngjaldið 250
kr., ef upphæð tékkans er á bilinu
milli 1000 og 5000 er grunngjaldið
500 kr. og ef upphæð tékkans er
Framhald á bls. 19.
Rannsóknarlögreglan:
wm
|0
Gsal-Reykjavik. — Það eru al-
veg ósköp af tékkamálum, sem
liggja óafgrcidd hjá okkur og
þau skipta hundruðum, sagði
Torfi Jónsson, rannsóknarlög-
reglumaöur hjá Sakadómi
Reykjavikur I samtali við Tim-
ann i gær.
Torfi kvaðst nýlega hafa tekið
við þessum málaflokki hjá
rannsóknarlögreglunni, þar eð
þeír tveir rannsóknarlögreglu-
menn, sem áður voru með þessi
mál, Grétar Sæmundsson og
Guðmundur Guðmundsson,
hefðu verið kallaðir til annarra
starfa.
Torfi sagði að elztu tékkarnir
sem lægju óafgreiddir væru frá
árinu 1974, en flestir væru þó frá
þessu ári og þvl siðasta.
Eins og sjá má er þetta gömul mynd, en sýnir glögglega hvernig oft var umhorfs á síldarplönunum á
Siglufirði á hinum góðu gömlu sfldarárum þar.
SÍLDARSÖLTUN
Á SIGLUFIRÐI
gébé Rvik. — Við byrjuðum að
salta I dag og að öllum lfkindum
munum við halda áfram fram á
nótt þar til allt er búið, sagði Egill
Thorarensen forstjóri Lagmetis-
iðjunnar Siglósild á Siglufirði, en
þar hefur sild ekki veriðsöltuð frá
þvi árið 1968. — Við höfum gert
samning við Reykjaborg, sem
mun landa öllum sildarafla sinum
hjá okkur eða rúmlega tvö hundr-
uð tonnum, sagði Egill, en þetta
voru um scxtiu tonn, sem við
fengum núna, ætli það geri ekki
25% meiri fyrir-
framsala á síld
um fimm hundruö tunnur. Megn-
iðaf þeirri sild sem við fáum, tök-
um við til eigin nota, eða um 80%,
hitt er heilsaltað til útflutnings.
— Þetta var allt fremur smá
sild, en við söltum hér hjá okkur i
tvo stærðarflokka, annars vegar
300-500 stk. i tunnu og hins vegar
500-700 stk. i tunnu, sagði Egill.
Þessi fyrsta sild gengur mjög vel
i seinni flokkinn.
Þá sagði Egill, að Reykjaborg-
in væri eina skipið sem væri ör-
uggt um að myndi landa sfldar-
afla sinum hjá Siglóslld, en að
ekki væri ótrúlegt, að norðanbát-
ar lönduðu einftverju smávegis
þegar þeir fylltu upp i veiðikvóta
sinn, —Þaðermjög hagkvæmt að
nýta okkar tunnur á þennan hátt
og eðlilegar að fá sild með þess-
um hætti, heldur en þurfa að
kaupa hana annars staðar að.
Hjá Siglósild vinna nú á annaö
hundrað manns, en við sjálfa sild-
arsöltunina i gær, unnu 18 konur,
svo það er af sem áður var, þegar
hver einasti kvenmaður i kaup-
staðnum byrjaði að salta sild,
strax og hún var nógu há i loft-
inu...
PALLI OG PESI
Tæplega 120 þúsund tunnur af
Suðurlandssíld seldar
gébé Rvik. — Sildarútvegsnefnd
hefur gert fyrirframsamninga
um sölu á tæplega 120 þúsund
tunnum af saltaðri Suðurlands-
sild. A siðastliðnu ári, voru salt-
aðar samtals um 95 þúsund tunn-
ur af Suðurlandssild og er þvi
fyrirframsalan í ár, u.þ.b. 25%
meiri en söltunin nam á sl. ári.
Langmest er selt til Sovétrikj-
anna, en siðan til Svíþjóðar og
Finnlands. Verið er að ganga
formlega frá samningum um
mismuninn viö aðra kaupendur.
Fyrirframsamningarnir við
Sovétmenn eru sextiu þúsund
tunnur af saltaðri Suðurlandssild.
Til Sviþjóðar eru seldar um 43
þúsund tunnur og til Finnlands
rúmlega átta þúsund.
A siðastliðnu ári keyptu Sviar
aöeins 15 þúsund tunnur af stór-
sild og er sölumagnið I ár, þvi
næstum þrefalt miðað við fyrra
árs samningsmagn. Mikil verð-
hækkun náðist nú I Sviþjóð, eða
um 20%.
Hins vegar brugðust þær vonir
um að Finnar myndu auka kaup
sin á sild á þessu ári og minnkaði
magniö um 20%. Astæðan er sú,
að Finnar fá sild frá öðrum lönd-
um á 30-40% lægra verði en ís-
landi, Verð það sem nú var samið
um var hins vegar 5% hærra en
verðið á sl. ári.
Þegar i sumar var óskað eftir
þvi, að reynt yrði að tryggja sölu
á 60 þúsund tunnum sildar til
Sovétrikjanna með fyrirfram-
samningum, vegna reynslunnar
sem fékkst á samningaviðræðun-
um i fyrra. Þetta tókst og er hið
nýja söluverð til Sovétrikjanna
8% hærra en verð það sem samið
var um á sl. ári og 22% hærra en
verð það, sem samið var um með
viðbótarsamningnum siðastliðinn
vetur.