Tíminn - 29.09.1976, Qupperneq 15
Miðvikudagur 29. september 1976
TtMINN
15
aði, en telja má öruggt að slysa-
tryggðar vinnuvikur séu ekki góð
heimild, eins og oft er undirstrik-
að i Hagtiðindum, en þvi er oft
gleymt, þegar þessar tölur eru
notaðar.
1 Hagtiðindum stendur „Auk
þess ágalla, að eiginkonur eru
sjálfkrafa slysatryggðar meö 52
vikum i landbúnaði, hvort sem
þær vinna i honum eða ekki, er
hér um að ræða annan verulegan
vankant. Hann er sá, að atvinnu-
rekendur i landbúnaði eru teknir i
slysatryggingu með 52 vinnuvik-
ur á ári, án tillits til þess hvort
þeir hafa verið við störf i öðrum
atvinnugreinum á vinnuárinu eða
ekki.
Hér kemur einnig til t.d. vinna
við eigin húsbyggingu o.þ.h.
Vinnutimi við öll slik störf utan
landbúnaðar ætti að sjálfsögðu að
koma til frádráttar vinnutima við
búrekstur, en grundvöllur er ekki
fyrir hendi til að framkvæma þá
aðgreiningu, Af þessum sökum
eru slysatryggðar vinnuvikur i
heild, oftaldar sem svarar þess-
ari tvitalningu og slysatryggðar
vinnuvikur i landbúnaði eru þá
oftaldar að sama skapi. Ljóst er
af framansögðu að notagildi talna
um slysatryggðar vinnuvikur i
Kaupið
tízku-
fatnaðinn
PILS
Stærðir 36-46.
Blá, hvít, rauð.
Verð kr. 2300.
\
BUXUR:
Stærðir 34-48.
Flauel:
Brúnt, beige,
grátt, gráblátt.
Terylene:
Hvitt, blátt,
rautt, grænt,
svart, brúnt.
Verð kr.
1980-2480.
Vesturgötu 4 — Pósthólf 391
Sérverzlun með sniðin tizkuföt ,
Sendið gegn póstkröfu
0£ c ....______, .
(/> -1 => X 3 aei|io merKi vio stærð og lit:
Q. ca Nr.: AAitti: Mj.:
□ □ 34 63 86
□ □ 36 65 90
□ □ 38 67 94
□ □ 40 70 98
□ □ 42 74 102
□ □ 44 78 106
□ □ 46 82 110
□ □ 48 89 114
Litir:
□ Flauel;
□ Brúnt
□ Beige
□ Grátt
Terylene:
□ Hvítt
□ Blátt
□ Rautt
□ Grænt
□ Gráblátt □ Svart
□ Brúnt
landbúnaði er takmarkað, eink-
um að þvi er varðar hlutdeild
landbúnaðar i mannaflanum i
heild”.
Niðurlag
Tækniþróun i landbúnaði er ör
ogi sumum búgreinum byltingar-
kennd. Tækniþróun i mjólkur-
framleiðslu hefur verið nokkuð
mikil á siðustu árum og öllu meiri
en i sauðfjárrækt. Við heyöflun
hefur i raun átt sér stað tækni-
bylting undanf. ár með tilkomu
dragtengdra heyvinnutækja eins
og heyþyrlunnar, sláttuþyrlunn-
ar, heyhleðsluvagnsins, bindivél-
arinnar auk fleiri véla. Nokkuð
hefur borið á þvi, að heygæði hafi
minnkað með aukinni tækni og
mun það að öllum likindum stafa
af reynsluleysi, þvi að alltaf
tekur tima að breyta um starfs-
aðferð.
Ungir menn, er nú hef ja búskap
eru hlynntir sérhæfingu, bæði
vegna aukinnar vinnuhagræðing-
ar og minni fjármagnsþörf við
uppbyggingu á sérhæfðu búi
fremur en blönduðu búi.
Sérhæfðum búum mun þvi
fjölga i aðalbúgreinum landbún-
aðarins á næstu árum. Að
óbreyttri stefnu mun sérhæfing i
aukabúgreinum einnig aukast
verulega. Full ástæða er til þess
að marka stefnu i þeim málum
áður en i óefni er komið. Vissu-
lega geta afskipti hins opinbera
haft neikvæð áhrif á einstaklings-
framtakið og hindrað að duglegir
og framtakssamir menn hasli sér
völl i landbúnaði.
Markaður á landbúnaðarvörum
er takmarkaður og tæknivæðing i
aukabúgreinum er i raun meiri
erlendis heldur en i okkar hefð-
bundnu búgreinum. Sé fjármagn,
hugrekki og dugnaður fyrir hendi,
er tiltölulega auövelt að koma á
fóteins konar verksmiðjurekstri i
þessum greinum.
Það er hins vegár óhjáRvæmi-
legt fyrir unga bændur að stefna
að stærri búum, en nú eru algeng-
ust, vegna þeirra fjárhagsskuld-
bindinga, sem þeir verða að
stofna til við uppbyggingu á búi.
Vaxtabyrði nýrrar fjárfestingar
er mikil i dag, og staða lausa-
skulda að lokinni fjárfestingu má
ekki vera slæm til þess að mögu-
legt sé að kljúfa þá skuldabyrði.
Bústærðina verður þvi að miða
við það fjármagn, sem viðkom-
andi bóndi hefur yfir að ráða eða
getur fengið.
í töflum og súluritum hér að
framan frá kúabúum og sauðf jár-
búum kemur ýmislegt fram, sem
vert er að ihuga og rannsaka nán-
ar, en ekki má nota þessar tölur
sem neina visindalega sönnun,
heldur aðeins sem visbendingu.
Ég vil þó leyfa mér að setja fram
hugmynd, sem ég hef reyndar
gert áður.
Sú hugmynd er á þá leið að ung-
ir menn, sem eru að byggja fyrir
sig og fjölskyldu sina, að þeir ættu
að miða sauðfjárbú við 8-9 tonna
framleiðslu á ári, en kúabú við
100-120 þúsund litra af mjólk,
stefni þeir að sérhæfingu.
Að sjálfsögðu er þetta of mikil
einföldun og ekki rétt að steypa
öll býli i sama mót. Almennt séð
er heppileg bústærð fyrir fjöl-
skyldu ekki ein stærö heldur
margar.
Það er einnig álit margra
bænda.
Einn ágætur bóndi hefur bent á
eftirfarandi atriði:
„Lega og stærð jarðar ræður
miklu um heppilega bústærð,
ennfremur nýting þess húsakosts
sem fyrir er, framtak og dugnað-
ur, fjármagn og fjólksfjöldi, góð
heilsa og hreysti, kappið við sjálf-
an sig, nágrannann og dýrtíðina.
Það er ótal margt fleira, sem
hefur áhrif á bústærðina og sem
er aðeins á valdi hvers og eins
bónda fyrir sig að gera upp við
sig. Bændur eru misjafnir að ytri
og innri gerð, eins og aðrir og ef
vel er að gáð má sjá það i búskap
þeirra. Min skoðun er sú, að
bóndinn og þróunin hverju sinni
verði að skapa bústærðina”.
Fækkun býla hér á landi má
heita óumflýjanleg, nema þvi að-
eins að útflutningsverð hækki
verulega eða nýjar búgreinar
komi til. Bú munu stækka smátt
og smátt og ekki ber að hamla
gegn þvi, nema innan vissra
marka. Stefna ber að jöfnun á bú-
stærð og afkomu.
Frá byggðarsjónarmiði er þörf
á aðgerðum til þess að stöðva
grisjun byggðar, þar sem byggð
er i hættu. Jafnframt er full á- '
stæða til þess að bæta hag bænda
á þeim landsvæðum, þar sem
bændur eru mun tekjulægri en
bændur almennt. Leiðir til lausn-
ar þessu vandamáli verða þó að
miðast við markaðsmöguleika og
áhrif aðgerða á heildarstefnu i
landbúnaði.
Ekki er ástæða til þess að hafa
verulegar áhyggjur af bústærð
framtiðarinnar hér á landi, þar
sem stærð óræktaðs lands, sem
fylgir hverri jörð, er i flestum til-
fellum það mikið, að fjölskyldubú
framtiðarinnar ætti að hafa vaxt-
arrými, þó að tækniþróunin verði
nokkuð ör.
Taka þarf til endurskoðunar
bústærðarmælikvarðann ærgildi,
sem mest hefur verið notaður.
Framleiðslumagn virðist, eins
og fram kemur hér að framan,
mun nær þvi að geta sagt til um
afkomu búsins heldur en gripa-
talan.
í sauðfjárrækt virðist
framleiðsla búsins segja nokkuð
til um afkomuna og þvi réttari
stærðarmælikvarði, en tungu-
tamt er það ekki. í mjólkurfram-
leiðslu er innlegg mjólkur nokkuð
algengur stærðarmælikvarði.
Ein leið til þess að draga úr
framleiðslukostnaði er aukin
framleiðsla á grip. Ef sauðfjár-
bóndi þarf að framleiða 8-9 tonn
af dilkakjöti, þá er framleiðslu-
kostnaður þvi lægri, sem gripa-
fjöldi er færri sem þarf til að
framleiða þettamagn, Einkum er
það fjármagnskostnaðurinn, sem
er lægri á kjöt kg.
A hinn bóginn krefst það vis-
indalegri búskapar og nákvæm
skýrslugerð er nauðsynleg til
þess að ná afurðum.
Einungis afurðamikil bú geta
staðið undir nýrri fjárfestingu, þó
að byggingar og aðrir fram-
leiðsluþættir séu nýttir til fulln-
ustu. Þeim, sem ekki tekst að ná
afurðum, mega ekki leggja út i
mikla fjárfestingu og mikil lausa-
skuldasöfnun skapar verulega
hættu á gjaldþroti vegna þess hve
vaxtagreiðslur eru nú miklar.
I mjólkurframleiðslu er há-
marksafúrðastefnan ekki eins af-
gerandi og i sauðfjárrækt, að þvi
leyti að tilkostnaður er meiri og
hlutfallslega minna er eftir til
greiðslu launa, en við framleiðslu
á dilkakjöti.
Kjarnfóðurnotkun er nokkuö
mikil i mjólkurframleiðslu og of
mikið er framleitt af mjólk á er-
lendu kjarnfóðri. Þó að innflutn-
ingur kjarnfóðurs hafi ekki aukizt
á undanförnum árum, er full á-
stæða til þess að stefna að aukinni
landbúnaðarframleiðslu úr Is-
lenzku fóðri. Leggja þarf rika á-
herzlu á bætta heyverkun bæði
við þurrheys- og votheysgerð og
aukningu á framleiðslu á inn-
lendu kjarnfóðri úr islenzku
grasi.
Þó að uppbygging grasköggla-
verksmiðja sé ekki beint hags-
munamál bænda, þá er það hags-
munamál þjóöarinnar.
Hér hefur einungis verið rætt
um þá hlið, sem snýr að búskapn-
um, en bæta má stöðu landbúnað-
arins á annan hátt. Kostnaður við
að koma afurðum bænda á borð
neytenda hefur aukizt hröðum
skrefum. Rannsóknir á þeim
þáttum eru takmarkaðir og ekki
er óliklegt að þar sé mögulegt að
vinna árangursrikt starf. Sama
er að segja um þá framleiðslu,
sem fer á erlendan markað, en
rætter um þessa þætti i öðrum er-
indum.
Að siðustu vil ég leggja áherzlu
á þá skoðun mina að nokkurs kon-
ar verksmiðjurekstur i landbún-
aði sé óheppilegur, en fjölskyldu-
bú myndi aðalkjarna landbúnað-
ar.
Aukin þátttaka búnaðarsam-
bandanna I skipulagningu og
mótun landbúnaðarins, hvert á
sinu svæði er skipulagsatriði, sem
þörf er á að gefa meiri gaum en til
þessa hefur verið gert.
Hjartagarn
Eigum enn marga liti
af ódýra Hjartagarn-
inu.
Sendum í póstkröfu.
Þingholtsstræti 1
sími 16776.
Sinfóniuhljómsveit íslands
Starfsár 1976/77
Sala áskriftarskirteina er hafin á skrif-’
stofunni Laugaveg 120 (Búnaðarbanka-
húsinu við Hlemmtorg) 2. hæð.
Fyrstu tónleikarnir verða 7. okt., og er
endurnýjunarfrestur til mánudagsins 4.
okt. Vegna nýrra áskrifenda er til þess
mælst að þeir, sem ætla ekki að endur-
nýja, tilkynni það i sima 22260 eða 22310.
Hjúkrunarfræðingur
— Ljósmóðir
Hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir óskast
að Sjúkrahúsinu á Blönduósi nú þegar.
Upplýsingar gefur yfirhjúkrunarkona eða
yfirlæknir kl. 9-16 i simum 4206 eða 4207.
Kennslugreinar
veturinn 1976-1977
Almennir flokkar:
Gltarleikur, flautuleikur, tónlistarsaga, megrun, teiknun,
jarðfræði, skák, ensk hraðritun, skattaframtal
(hefst I nóv.) lestur f. lesblinda, esperanto 2. fl.,
latfna f. byrjendur, færeyska, danska 4 fl. sænska 3.
fl., norska 2 fl., þýska 4. fl. enska 7 fl., franska 2 fl.,
ítalska 4fl.,spænska 4fl. & 2 sérstakir talflokkar
vélritun, bókfærsla, verslunarenska, stæröfræði,
hjálparfl. í stærðfr. á framhaldsskólastigi
barnafatasaumur, smlðar, kjólasaumur, málmsmlði
og smelti, bifreiðaviðhald, postulinsmálning
Prófdeildir:
Grunnskóladeild 3 bekkjar, gagnfræðanám, forskóli
I og II fyrir sjúkraliðanám- Innritun I áðurtaldar 4
deildir hefur farið fram.
Hagnýt verslunar- og skrifstofu-
starfadeild:
Kennslugreinar: bókfærsla, vélritun, vélreikningur,
útreikningur tollskjala, ensk verslunarbréf, ensk
hraðritun, islenska. Einnig þýska, spænska eöa
enska eftir vali.
Kennsla til prófs i norsku
fer fram i Miðbæjarskóla. Nemendur mæti allir 30.
sept., kl. 18 I stofu 11. Kennsla til prófs I sænsku fer
fram I Hliðarskóla og Laugalækjarskóla (fram-
haldsskólastig). Kennsla til stúdentsprófs I spænsku
fer fram I Miðbæjarskóla.
Kennslugreinar 1:
Laugalækjarskóla sænska, vélritun, bókfærsla,
enska ■
Laugarnesskóla enska, þýska, barnafatasaumur.
t þessum þremur skólum fer kennsla fram á þriðju-
dögum.
Breiðholtsskóli: Mánudaga og fimmtudaga enska,
þýska, bókfærsla og barnafatasaumur.
Fellahellir: Dagkennsla mánudaga og miðvikudaga.
Enska, myndvefnaður, spænska, leikfimi, leirmuna-
gerð, . ljósmyndaiðja (kvöldkennsla).
Aðalkennslustaður Námsflokka
Reykjavikur er Miðbæjarskóli simi 14106.
Kennslugjald:
Kr. 4.000.00 fyrir 22 kennslustundir
Kr. 6.000.00 fyrir 33 kennslustundir
Kr. 8.000.00 fyrir 44 kennslustundir
Kr. 11.000.00 forskóli I
Kr. 15.000.00 gagnfræðadeiid og
grunnskóli 3. bekkur.
Kr. 18.000.00 forskóli II .
Kr. 21.000.00 hagnýt skrifstofu-
starfadeild
Innritun fer fram i Miðbæjarskóla 30. sept. og 1. okt. kl.
7.30-10. Inngangur úr portinu.
Innritun i Arbæjarskóla, Breiðholtsskóla og Fellahellir
nánar auglýst slðar.
Kennslugjald greiðist við innritun.