Tíminn - 01.10.1976, Blaðsíða 1
fÆNGIRF
Áætlunarstaðir:
Bíldudalur-Blönduós-Búðardalur
Flateyri-Gjögur-Hólmavík
Hvammstangi-Rif-Reykhólar
Sigluf jörður-Stykkishólmur
Súgandaf jörður
Sjúkra- og leiguflug
um allt land
Simar:
2-60-60 og 2-60-66
Jll II U!
t3
Síðumúla 21 — Sími 8-44-43
— en nótabátar
>ébé Rvík. — Sildveiði rek-
netabátanna hefur verið mjög
treg að undanförnu og að sögn
Guðmundar Finnbogasonar á
Höfn i Hornafírði, stendur
sildin mjög djdpt og fengu
sumir bátanna engan afla I
gær, og voru jafnvel nokkrir
sem ails ekki lögðu net.
Nokkrir fengu þó afla, þar á
meðai Akurey, sem var með
140-150 tunnur. Guðmundur
sagði ennfremur að vafasamt
væri hvort reknetabátarnir
færu út aftur fyrir helgi, þar
sem allt benti tii að bræla væri
i aðsigi.
Eins og áöur segir stendur
sildin djúpt fyrir austan, og ná
nótabátarnir henni þvi vel.
Sildveiðin hjá þeim var góð i
gær, bæði á Hornafjarðardýpi
og við Ingólfshöföa. Allir bát-
anna voru á leið til lands I gær
og flestir með fullfermi.
Sjómennska
ekkert grín..
-hs- Rvik. — Sjómennska og út-
gerð hafa jafnan verið taldar all
stormasamar atvinnugreinar.
Gtgerðin berst oft i bökkum,
a.m.k. að sögn þeirra sem hana
stunda, og enginn efast um, að oft
er stormasamt á sjónum. Ef til
vill eiga þessir piltar eftir að
stunda aðra hvora atvinnugrein-
ina, eða báðar þvi að oft hefur það
reynzt sannmæii, að snemma
beygist krókurinn. Enn um sinn
eru þó rekstrarkostnaður og vos-
búð hjá þeim i algjöru lágmarki,
— enda aðeins gert út á Tjörnina.
Timamynd: Gunnar.
Unnið ab samræmdri kæruskrá opinberra mála:
Miðar að því að hraða
afgreiðslu þeirra og
bæta eftirlitið að mun
Sakamálum fer fjölgandi hvar sem er á landinu, segir fulltrúi dómsmálaráðuneytis
greiðslu opinberra mála hjá
embættunum væru of fáir og
þyrfti að stórfjölga þeim, ef
vel ætti að vera.
Um samræmdu kæruskrán-
inguna sagði Eirikur, að i
sumum embættum hefðu verið
haldnar kæruskrár, en i mörg-
um embættum væri ekki til
nein heildarskrá um kærur. —
Hugmyndin er sú að i þessari
samræmdu kæruskrá verði
málin skráð um leið og þau
berast og jafnframt að af-
greiðsla mála verði skráð
jafnóðum og eitthvað gerist i
málinu. Með þessari skrá ætti
að vera hægt aö fá betra yfirlit
yfir afgreiðslu mála og jafn-
framt ætti þetta að gera það
að verkum, að afgreiösla mála
gangi hraðar fyrir sig en verið
hefur. Auk þess miöar þetta að
þvi, að koma betra skipulagi á
afgreiðslu opinberra mála,
bæði á afgreiðslu- og
fullnustustigi.
Þá ætti þessi skrá jafnframt
að auðvelda eftirlit með þess-
um málum og það er mjög
mikilvægt fyrir i fyrsta lagi
yfirmenn viðkomandi
embættis, i öðru lagi rikissak-
sóknara, i þriðja lagi dóms-
málaráðuneytið, og sennilega
rannsóknarlögreglu rikisins
slðar. Fulltrúar og dómarar
sem fást viö þessi mál fá lika
betri möguleika til þess að
fylgjast sjálfir með þvi, hvaða
mál biða úrlausnar hverju
sinni og aðstaða fyrir aöra
eftirlitsaðila baínar stórlega,
sagði Eirikur Tómasson að
lokum.
Gsal-Reykjavik — Sakamál-
um fer fjölgandi hvar sem er á
landinu og þeim fjölgar veru-
lega á hverju ári. Þetta stafar
m.a. af þvi, að löggæzla hefur
verið aukin og efld, en senni-
lega einnig af þvi, að tiðni af-
brota hefur aukizt, sagði
Eirikur Tómasson, fulltrúi i
dómsmálaráðuneytinu i sam-
tali við Tlmann, en hann hefur
ásamt nokkrum öðrum starfs-
mönnum dómsmálaráðu-
neytisins unnið að gerð sam-
ræmdrar kæruskrár i embætt-
um utan Reykjavlkur, sem
taka á gildi um næstu áramót.
Dómsmálaráðuneytið hefur
gert könnun á þvi, hvernig af-
greiðslu opinberra mála er
háttað hjá embættum utan
Reykjavikur og sagði Eirikur,
að það væri mjög misjafnt
hvernig þeim málum væri
háttað.
Varðandi hina miklu fjölgun
sakamála, sagði Eirikur, að
það væri staðreynd, að þeir
menn, sem ættu að sjá um af-
Virðist vera eitt mál
— segir rannsóknardómarinn við Sakadóm
Reykjavíkur
Gsal-Reykjavik. —
— Svo virðist sem
um sama mál sé að
ræða, þótt ekki sé
alveg hægt að full-
yrða um það enn
sem komið er,
sagði Þórir Odds-
son, rannsókna-
dómari Sakadóms
Reykjavíkur í lita-
sjónvarpssmygl-
inu, í samtali við
Tímann í gær, en
svo sem Timinn
hef ur greint frá, er
verið að rannsaka
meintan innflutn-
ing á litasjón-
varpstækjum bæði
í Reykjavík og
Hafnarfirði.
Eftir ábendingu rann-
sóknarmanna i Reykja-
vik, handtóku rann-
sóknarlögreglumenn I
Hafnarfirði mann
vegna þessa máis I
fyrradag og var hann
úrskurðaður I gæzlu-
varðhald.
— Mér þykir ekki
óliklegt, að þessi mál
verði sameinuð siðar, ef
I ljós kemur, að hér er
um sama málið að
ræða, sagði Þórir.
Eins og Timinn hefur
greint frá, ákvað Sveinn
Björnsson, yfirmaður
rannsóknarlögreglunn-
ar i Hafnarfirði að taka
að sér rannsókn á
meintu litasjónvarps-
smygli, eftir að Haukur
Guðmundsson og
Kristján Pétursson
höfðu komið með ein-
hver gögn þar að lút-
andi til hans. Fulltrúi
bæjarfógetans i Hafnar-
firði ráðlagði hins vegar
Sveini að taka ekki þetta
mál aö sér, fyrr en hann
væri þess fullviss, að
um tvö óskyld mál væri
að ræða, enda taldi full-
trúinn að rannsókn á
litasjónvarpssmyglinu
færi fram i Reykjavik
og rihissaksóknari hefði
tekiö málið úr höndum
Hauks og Kristjáns.
Sveinn sagði hins veg-
ar i samtali við Timann
daginn eftir, að um tvö
óskyld mál væri að
ræða, en annaö virðist
nú vera að koma á dag-
inn.
• Rofar til í efnahagsmálunum — Sjá baksíðu